Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Page 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.6. 2020
Fæstir geta séð sjálfan sig í hin-
um 226 sentimetra háa Tacko
Fall. Þrátt fyrir það hefur hann
náð að fanga hug og hjarta
stuðningsmanna Boston
Celtics, þar sem hann er á
mála, og aðdáenda NBA-
deildarinnar um allan heim.
Fall er fæddur og uppalinn í
Senegal en fluttist til Bandaríkj-
anna 16 ára gamall til að
leika körfubolta þrátt fyrir
að hafa aldrei leikið
íþróttina. Hann var ekki
valinn í nýliðavalinu í
fyrra en stóð sig vel
þegar hann lék
með Celtics í sum-
ardeildinni í Las
Vegas. Hann hefur
þó aðeins leikið
sex leiki með lið-
inu í deildinni það
sem af er tíma-
bilinu.
En aðdáend-
um er sama; þeir
kyrja nafn hans
líkt og um stór-
stjörnu væri að ræða og biðla til
þjálfara liðsins, Brads Stevens,
um að setja Fall inn á. „Gefðu
fólkinu það sem það vill,“ hafði
Stevens eftir tíu ára dóttur sinni
í vetur. Var Fall til að mynda
sjötti í kosningu austurdeildar-
innar fyrir stjörnuleikinn í febr-
úar og skákaði þar með mörg-
um af bestu leikmönnum
deildarinnar.
Eins og áður segir er Fall
einkar hávaxinn, hann notar
skó númer 58 og vænghaf-
ið er tveir og hálfur
metri, hvorki
meira né minna.
En það sem
heillar aðdá-
endur mest er
líklega hvern-
ig hann kem-
ur fram; með
húmor og
auðmýkt að
vopni. Þá er
hann einkar vel
liðinn af liðs-
félögum sínum.
HINN HÁVAXNI TACKO FALL
Það sem fólkið vill
Tvær mínútur og 43 sekúndureru eftir af leik Chicago Bullsog Detroit Pistons í NBA-
deildinni þegar þjálfari Bulls
ákveður að skipta Brian Scalabrine
inn á. Allt verður vitlaust í höllinni.
Þegar Scalabrine, eða Hvíta mamb-
an eins og hann er oft kallaður,
sendir frá sér boltann gefa áhorf-
endur frá sér vonbrigðaóp enda eng-
inn annar sem fólk vill að skjóti að
körfunni.
Þegar 14,6 sekúndur eru eftir
tryggir Scalabrine Bulls sigurinn
með afar fallegu stökkskoti og þakið
ætlar að rifna af United Center í
Chicago. Að vísu vinnur Bulls leik-
inn með meira en 20 stigum en það
er annað mál. Stundin er Scala-
brines, sem margir telja að eigi
heima í frægðarhöll körfuboltans.
Eins og bara einhver gaur
Þetta var árið 2012 en sama ár lagði
Scalabrine skóna á hilluna eftir 11
ára feril í deildinni. Kauði var valinn
í annarri umferð nýliðavalsins af
New Jersey Nets árið 2001, var þar í
fjögur ár áður en hann skipti yfir í
Boston Celtics og vann með þeim
meistartitilinn árið 2008. Eftir tap
Celtics í oddaleik lokaúrslita deild-
arinnar árið 2010 færði hann sig yfir
í Chicago Bulls og var þar síðustu
tvö tímabil ferilsins.
Þótt margir kalli Hvítu mömb-
una (Kobe Bryant var Svarta
mamban) þann besta í sögunni er
það auðvitað allt í gríni gert og
Scalabrine er líklega þekktur sem
einn sá versti í sögunni. Hann er þó
ekki allur þar sem hann er séður.
Að þrauka í NBA-deildinni 11 tíma-
bil í röð er alls ekki á færi allra. Að-
eins einum Íslendingi hefur tekist
að spila leik í deildinni, Pétri Guð-
mundssyni, og ekki spilaði hann
eins lengi.
Scalabrine hefur ávalt verið einn
af vinsælustu leikmönnum síns liðs,
að minnsta kosti er hann lék með
Bulls og Celtics, og netverjar hafa
haft mjög gaman af kappanum.
Helsta ástæða vinsældanna er að
Scalabrine lítur út eins og hann sé
bara einhver gaur sem þjálfarinn
fékk til að spila með liðinu þetta
kvöldið. Hann hefur nánast enga lík-
amlega burði, fyrir utan að vera 206
sentimetrar, og er hann bar svita-
band á höfðinu var hann merkilega
líkur Jackie Moon, karakter Wills
Ferrells í myndinni Semi-Pro.
En ekki láta blekkjast. Leikskiln-
ingur Scalabrines var það sem kom
kappanum áfram og var hann ungum
liðsfélögum sínum oft innan handar.
Þá átti hann betri tímabil í deildinni
en maður myndi halda; skoraði 6,3
stig á 21,6 mínútum að meðaltali í
leik með Nets tímabilið 2004-05.
Mikilvægastur eftir 30 ár
Scalabrine kom ávallt vel fram, gaf
sér tíma með aðdáendum og starfar
nú sem sjónvarpsþulur. Þá var hann
nokkuð hnyttinn í viðtölum við
blaðamenn. Þegar hann var spurður
eftir sigur Celtics á Los Angeles
Lakers í úrslitum deildarinnar árið
2008 hvort það væri erfitt að hafa
ekki spilað neitt í einvíginu svaraði
hann á skemmtilegan hátt:
„Núna geturðu sagt að ég hafi
ekki spilað eina sekúndu. En eftir
fimm ár verðið þið búnir að gleyma
því. Eftir 10 ár verð ég ennþá meist-
ari. Eftir 20 ár segi ég börnunum
mínum að ég hafi byrjað inni á og
eftir 30 ár segi ég þeim að ég hafi
verið valinn mikilvægastur í loka-
úrslitunum.“
Sköllótta mamban
Annar leikmaður sem er ekki með
þeim bestu en hefur fangað hjarta
áhorfenda er hinn 25 ára gamli
Alex Caruso. Hann leikur nú með
Lakers eftir að hafa ekki verið val-
inn í nýliðavalinu 2016. Hann hóf
því leik í G-deildinni sem er eins
konar B-deild fyrir NBA. Hann
spilaði fyrst fyrir Lakers tímabilið
2017-18 en vann sér ekki fast sæti í
liðinu fyrr en á yfirstandandi tíma-
bili.
Hann er mjög vinsæll meðal bæði
leikmanna og áhorfenda enda leggur
hann hart að sér og allir elska ösku-
buskuævintýrið sem hann býður upp
á. Netverjar hafa tekið upp á því að
kalla Caruso „sköllóttu mömbuna“.
Caruso er mjög þunnhærður en
virðist vera alveg sama og rakar
ekki af sér hárið.
„Ég held það sé hvernig ég spila;
í hverjum einasta leik fer ég út á
völl og leik af eins miklum krafti og
ég get og ég held að fólk kunni að
meta það,“ sagði Caruso eitt sinn
við BleacherReport um vinsæld-
irnar.
Caruso er líkur Scalabrine að
vissu leyti; hann lítur ekki út fyrir
að vera atvinnumaður í körfubolta
og mætti halda að hann væri 10 ár-
um eldri en hann er. En Caruso
hefur mikla líkamlega hæfileika.
Hann er 196 sentimetrar á hæð,
sem er ekki mikið í NBA, en hefur
mikinn stökkkraft og sprengikraft
og spilar góða vörn. Hann kemur
oft á óvart með kraftmiklum
troðslum.
„Ég get þetta líka“
Ástæða þess að þessir miklu herra-
menn hafa náð svo miklum vinsæld-
um er ekki að þeir séu lélegir, í lé-
legu formi eða asnalegir í útliti. Fólk
elskar þá því það getur séð sjálft sig
í þeim. Það horfir á þá og hugsar:
„Ef þessir gaurar geta þetta, þá get
ég það líka.“
Þótt magnaðir leikmenn á borð
við Michael Jordan, LeBron
James, Kobe Bryant og fleiri séu
geysivinsælir vilja áhorfendur,
hluti þeirra að minnsta kosti, halda
upp á einhvern sem þeir tengja við.
Þeir Scalabrine og Caruso hafa
lagt mikið á sig til að komast í
bestu deild í heimi, þeir hafa báðir
mikinn leikskilning og eru vinsælir
meðal liðsfélaganna. Þeir eru hóg-
værir og kunna að meta þá stöðu
sem þeir eru í. Þess vegna eru þeir
vinsælir.
Hárprúðar
mömbur
Eðli málsins samkvæmt eru bestu leikmenn NBA-
deildarinnar einnig þeir vinsælustu. Einn og einn
leikmaður nær þó að fanga hug og hjarta aðdá-
enda þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra bestu.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Alex Caruso hefur heillað aðdáendur Los Angeles
Lakers með krafti sínum og sigurvilja.
AFP
Brian Scalabrine, Hvíta mamban, á sér stóran aðdáendahóp
netverja enda maðurinn goðsögn í lifanda lífi.
AFP
Tacko Fall er með
hærri leik-
mönnum sem
leikið hafa í NBA.
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar