Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Page 10
Hann heitir Kevin af því að á mínu heim-ili voru Minions afar vinsælir og hanner gulur,“ segir Hafdís Ósk Gísladóttir
en Kevin er fjögurra ára gamall fress.
Hvernig týpa er Kevin?
„Hann er voðalega sjálfsöruggur köttur og
ánægður með sig. Hann er skemmtilegur er
svolítil frekja. Hann lætur mann ekki í friði
fyrr en hann fær það sem hann vill. Hann
mjálmar ekki mikið nema það sé verulega farið
að reyna á þolinmæðina. Og það má alls ekki
halda á honum,“ segir hún.
„Hann situr oft hjá okkur í stól á mat-
artímum og fær að éta. Hann er mjög hrifinn
af kjúklingi og er því spenntur þegar við erum
með kjúkling í matinn og þá fær hann smá bita
hjá okkur,“ segir hún.
Sparkar alveg á fullu
Kevin kemst ekki inn og út um glugga því fjöl-
skyldan býr á annarri hæð. Því kenndi hann
sjálfum sér að banka með afturfætinum á úti-
dyrahurðina til þess að komast inn.
„Hann sparkar alveg á fullu og stundum
mjög hátt,“ segir Hafdís.
„Svo kemur hann þegar maður kallar nafnið
hans. Við þurfum bara að fara út og kalla nafn-
ið og þá kemur hann hlaupandi. Ég segi alltaf:
„Kevin, komdu!“ Þá kemur hann yfirleitt
strax. Það er fyndið að sjá hann koma hlaup-
andi,“ segir hún.
„Hann á einn vin í hverfinu sem heitir Bat-
man. Hann fer stundum yfir til hans og þeir
sofa hlið við hlið. Svo fer hann stundum í heim-
sókn hér í íbúð fyrir neðan okkur,“ segir hún.
Þolir ekki ólar
„Hann hefur komið inn með lifandi fugla.
Hann kom með einn í gær sem ég sleppti síðan
út og hann flaug af stað. Kevin vill ekki vera
með ól; þetta er níunda ólin sem við setjum á
hann. Hann nær þeim alltaf af. Við erum búin
að prufa allar gerðir, það dugar ekkert. Þessi
sem hann er með hefur tollað á lengst, í fjóra
daga!“ segir hún og hlær.
„Hann vill bara þurrmat með kjúklinga-
bragði. Annars er hann ekki mjög spenntur
fyrir mat. Nema þegar maðurinn minn er að
elda, þá vill hann fylgjast spenntur með. Ef
hann vill fá vatn þá leggst hann ofan í baðkarið
og bankar þar og þá látum við renna vatn sem
hann drekkur. Stundum bankar hann líka í
glugga. Svo bankar hann stundum í eldhús-
skápana hjá skálinni sinni til að láta vita að
hann vilji fá mat.
Slefar yfir nuddi
Ef við förum í göngutúr eltir hann okkur
stundum allan tímann. Hann röltir á eftir.
Ef við förum í lengri göngutúra lætur hann
sig stundum hverfa en hann hefur labbað
með okkur allan hringinn hér á Álftanesi.
En þá þarf maður aðeins að halda honum
uppteknum með því að kalla á hann,“ segir
hún.
„Hann elskar líka að láta nudda á sér eyrun.
Ef maður nuddar þá á hann til að slefa. Það
frussast út um allt!“ segir hún og byrjar að
nudda eyrun. Kevin er ánægður með nuddið
og slefar fyrir blaðamann.
Morgunblaðið/Ásdís
Tjáir sig með
banki
KEVIN
Gabríela, Hafdís, Kevin og Magnús Freyr stilla sér
upp á mynd. Kevin er klár köttur sem notar aftur-
fæturna til að banka þegar hann vill komast inn.
Kevin er fyndinn
köttur. Hann er
með tvo
skemmtilega
bletti á nefinu.
GÆLUDÝR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.6. 2020
Simbi er eins árs og Nala tveggja ára. Viðbyrjuðum á því að fá okkur Nölu af þvíað stelpan okkar er búin að vera með
kisur á heilanum síðan hún fæddist. Við létum
undan og fengum fyrst hana,“ segir Arna
Dögg Ragnarsdóttir, eigandi kattanna.
„Svo veit maður aldrei hvernig einstakling
maður fær og hún er ekki mjög mannblendin.
Það þarf allt að vera á hennar forsendum.
Hún er ekki fyrir að láta halda á sér, hvað þá
að leyfa krökkum að tala við sig. En svo á hún
það til að koma og kúra hjá manni og hún
elskaði það þegar ég var að vinna heima í
Covid. Þá sat hún í kjöltunni á mér á meðan
ég var að vinna,“ segir hún.
„Simbi var líka alsæll að hafa mig heima.“
Étur papriku og gúrku
Arna segir það hafa verið skyndiákvörðun að
fá annan kött.
„Ég sá inni á Facebook þennan gaur. Hann
var af sveitabæ rétt hjá Búðardal og þegar
hann kom fyrst var hann svo horaður greyið.
Hann er rosalega gráðuður. Þegar hann kom
þriggja mánaða var hann með rosalega sog-
þörf og er enn með hana. Hann sýgur allt sem
hann kemst í,“ segir hún og hlær.
„Líka eyrnasneplana á okkur. Ég reyndi
eitt sinn að kaupa handa honum snuddu en
það gekk ekki,“ segir hún og hlær.
„Hann hét Ed Sheeran þegar við fengum
hann af því hann mjálmar alveg gífurlega
hátt. Og svo er hann svolítið rauðhærður. En
svo leyfðum við Hildi að ráða nöfnunum og
hún vildi að hann héti Simbi. Simbi og Nala.
Hann er hvers manns hugljúfi og vill alltaf
vera með. Hann eltir okkur út um allt. Svo ét-
ur hann allt og það besta sem hann fær er
paprika og gúrka. Ég missti þetta í gólfið og
hann gleypti þetta bara. Annars fær hann
mest þurrmat og blautmat einstaka sinnum.
Hann andar blautmatnum að sér,“ segir hún.
Sest, leggst og rúllar sér
„Við byrjuðum á því að reyna að kenna Nölu
eitthvað en það gekk ekki. Hún þekkir reynd-
ar orðið nammi. Þegar við erum að reyna að
ná henni inn á kvöldin þá köllum við: „Nala,
viltu nammi?“ Þá kemur hún eins og skot,“
segir hún.
„Svo labbar hann með manni þegar ég fer í
göngutúr. Þau neita bæði að lepja vatn úr skál
heldur vilja bara vatn úr baðkari eða drullu-
polli,“ segir hún.
„Strákurinn minn, Ragnar Heiðar, byrjaði
nýlega að kenna Simba að hlýða, eins og
hundar gera. Að setjast, leggjast og rúlla sér.
Hann byrjaði að ýta honum niður á rassinn og
sagði: „Sestu“. Hann náði þessu eins og skot,“
segir hún og sýnir okkur hvernig Simbi hlýðir.
„Síðan kenndi hann honum að leggjast og
þá segir hann: „Leggstu“.
Svo kenndi hann honum að rúlla og hann
lærði það líka. Svo gerum við handahreyfingar
með og hann virðist horfa á þær,“ segir hún.
„Stundum kemur hann og sest, leggst og
rúllar sér því hann veit að þá fær hann
nammi. Það verður að vera umbun,“ segir
hún.
„Simbi er algjör dásemd. Mjög ákveðinn og
skemmtilegur kisi og mikill persónuleiki.“
SIMBI OG NALA
Simbi kann að setjast, leggj-
ast og rúlla sér fyrir nammi.
Sýgur eyrnasnepla
Hildur Heiða og Ragnar Ágúst
eru hér með Simba og Nölu.
Morgunblaðið/Ásdís