Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Síða 17
Þótt tíminn væri naumur tókst undraskjótt að
undirbúa mótmælin en undirbúningurinn sýndi að
meira stóð til.
Það höfðu verið límdir upp prentaðir miðar á dyr og
glugga á húsum og tilkynnt að sá rekstur væri í hönd-
um blökkumanna! Það átti sem sagt að hafa hliðsjón
af því þegar tekið væri til við að brjóta, brenna og
ræna verslanir, vinnustofur og skrifstofur sem ekki
höfðu slíkar merkingar. Þessir miðar gengu undra-
skjótt borg úr borg og um allar helstu götur atvinnu-
lífsins!
Það var ekki einungis starfsemi í höndum hvítra
sem gerð var árás á. Verslanir og veitingastaðir í
höndum minnihlutahópa eins og Kóreumanna, Víet-
nama og annarra urðu eldi, ránum og bareflum að
bráð. Myndir af gömlum konum að reyna að verja litlu
búðina sína eða veitingastaðinn sem tekið hafði ár að
byggja upp og voru barðar með boltakylfum fóru ekki
endilega víða og má spyrja sig hvers vegna ekki.
Látalætisákall um umræður
Í sumum fjölmiðlum var sagt hátíðlega að brýnt væri
að fram færi hreinskilin umræða um sambúð kynþátt-
anna, eins og það var orðað. En iðulega létu þeir sömu
í framhaldinu dæluna ganga með stóryrðum, þar sem
staðreyndirnar höfðu verið lagaðar til af yfirlæti og
ásökunum, svo að þeir sem ekki jánkuðu jafnvel fárán-
legustu fullyrðingum væru stimplaðir fasistar, kyn-
þáttahatarar og allt það sem nú fylgir. Slíkur munn-
söfnuður sást jafnvel hér á landi og ekki aðeins frá
föstum liðum eins og vant er og úr sér gengið og
ómarktækt. Nokkrir óvæntir aðilar dingluðu stundum
með í þeim taumi og fór þeim ekki vel.
Horft var framhjá því af staðföstum ásetningi að
verst var ástandið sem kvartað var yfir einatt í þeim
fylkjum og borgum sem demókratar hafa farið með
stjórn á lengi og skipað þar alla helstu yfirmenn lög-
gæslunnar jafn lengi.
Þar voru nú hafðar uppi kröfur um að lögreglustöðv-
um yrði helst lokað, en ella fækkað mjög í liðunum og
fyrirmennin tóku samstundis undir! Einhverjir úr
þeim hópi sögðust ætla að hætta að ráða lögreglumenn
og ráða í stað þeirra félagsráðgjafa. Það ætti að verða
léttur leikur því alllengi hefur ekki verið auðvelt að
manna þar stöður. En þeir sem kalla eftir hjálp eftir að
vopnaðir menn ráðast inn á heimili þeirra verða sjálf-
sagt hissa þegar félagsráðgjafarnir mæta til að tala
um fyrir hinum óboðnu vopnuðu gestum. Óláns-
maðurinn sem beittur var fantabrögðunum sem að
framan var lýst hafði áður verið dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir vopnað rán í heimahúsi.
Fróðlegt var að sjá að borgarstjórar og lögreglu-
stjórar í þeim sömu borgum sögðu nú opinberlega að
til greina kæmi að banna þessa aðferð sem lögreglu-
maðurinn beitti og kallaði á svo mikla réttláta reiði
eftir myndbirtingu! Með öðrum orðum sögðu þeir að
þetta hefði verið lögmæt aðgerð, sem þeir töldu þó nú
að kæmi til greina að endurskoða í ljósi atburða!
Hermikrákur mæta
Strax í kjölfarið hófst svo glórulaus eftiröpun mótmæl-
anna í borgum í Evrópu og þá ekkert gert með gild-
andi fyrirmæli um bann við samkomum vegna kórónu-
veirunnar.
Í vandræðum sínum tóku Evrópumennirnir að beina
athygli sinni að nokkrum mörg hundrað ára gömlum
myndastyttum. Þeir sömu gerðu reyndar aðsúg að
frægri styttu af Churchill, þeim sama og hafði haft
mest um það að segja á augnabliki neyðarinnar að nas-
isminn næði ekki endanlegu tangarhaldi á heiminum,
eftir að hafa lagt meginland Evrópu undir sig með
léttum leik, í trausti friðarsamnings við Jósef Stalín.
Varla halda skemmdarverkamenn að Adolf heitinn
með skeggið hafi verið óhóflega veikur fyrir minni-
hlutahópum?
Aldrei hefur heyrst að Bandaríkjamenn efni til mót-
mæla og óeirða vegna einhvers sem gerist austan
megin ála. En minnimáttarkenndin gagnvart Banda-
ríkjunum er mikil og söm við sig og þeim þar hefur
ekki enn verið fyrirgefið það að hafa bjargað Evrópu
undan sjálfri sér tvisvar sinnum með fárra ára milli-
bili.
Kannski væri hægt að fyrirgefa slíkt einu sinni, en
tvívegis gerir mönnum óneitanlega erfitt fyrir.
Morgunblaðið/Eggert
’Aldrei hefur heyrst að Bandaríkjamennefni til mótmæla og óeirða vegna einhverssem gerist austan megin ála. En minni-máttarkendin gagnvart Bandaríkjunum er
mikil og söm við sig og þeim þar hefur ekki
enn verið fyrirgefið það að hafa bjargað Evr-
ópu undan sjálfri sér tvisvar sinnum með
fárra ára millibili.
14.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17