Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Page 19
14.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
ÚTSALA
SUMAR
www.husgagnahollin.isS
EN
DUM FR
ÍT
T
V E
F V E R S L U N
afsláttur60%Allt að
Sigrún segir þau hafa neyðst til að fara íframkvæmdirnar vegna músagangs. Tilað byrja með ætluðu þau bara að taka
eldhúsið í gegn en eitt leiddi af öðru á og end-
anum voru þau búin að gera húsið fokhelt.
„Við ætluðum bara að breyta eldhúsinu því
við héldum að þetta kæmi inn hjá vaskinum en
svo kom í ljós að þetta kom úr loftinu. Þannig
að við enduðum á að hækka loftið og rífa niður
nokkra veggi,“ segir Sigrún í viðtali.
Þegar framkvæmdirnar voru komnar vel á
vel komu í ljós einstaklega fallegir hlaðnir
veggir sem setja nú svip á heimilið. Sigrún
segist hafa viljað halda þeim berum og gefa
þeim nýtt líf.
Framkvæmdirnar hófust seint á síðasta ári
en þau hjónin rétt náðu að gera allt klárt fyrir
jólin. Sigrún segir að hún hafi haft mjög
ákveðnar hugmyndir um hvernig hún vildi
hafa hlutina.
Eftir framkvæmdirnar hefur Sigrún ekki
keypt mikið af húsgögnum þar sem gömlu hús-
gögnin pössuðu miklu betur inn í húsið eftir
framkvæmdirnar en áður.
„Þau smullu bara einhvern veginn inn og
þetta meikaði allt miklu meira sens,“ segir Sig-
rún.
Hvað fannst þér skemmtilegast í þessu
ferli?
„Mér fannst skemmtilegast að gera þetta
hús að mínu. Við vorum með smið, hann Lúlla,
og hann fór eiginlega eftir öllu sem ég sagði og
gerði,“ segir Sigrún.
Liturinn sem Sigrún valdi á stofuna heitir
daggarblár og passar einstaklega vel við leður-
sófana. „Það er alltaf talað um að það megi
ekki setja dökka liti á lítil rými eða þar sem er
lágt til lofts en mér finnst það bara alveg. Svo
lengi sem það er kósí og fallegt og manni líður
vel í rýminu,“ segir Sigrún.
Þau keyptu allt nýtt í eldhúsið sem var kom-
ið til ára sinna. Sigrún segir að þau hafi reynt
að fara sem sparlegast út úr þessu. Innrétt-
inguna fengu þau í Ikea. Þau völdu græna inn-
réttingu en Sigrún segir að það hafi verið mjög
erfitt að finna liti á Íslandi.
„Við ætluðum að skoða að hafa flísar í eld-
húsinu og ég var að spá í bláar flísar, en svo er
innréttingin það dökk að ég hugsa að ég fari í
hvítar flísar. En það er ekki hægt að finna lit-
ríkar flísar og það tekur svolítinn tíma að finna
réttu hlutina,“ segir Sigrún og bætir við að það
sé bara skemmtilegt langtímaverkefni að finna
réttu hlutina sem passi inn hverju sinni.
Hvert er þitt uppáhaldshorn á heimilinu?
„Ég á mér nokkur uppáhaldshorn hérna
heima. Mér finnst hleðslan sem við fundum í
veggjunum rosalega falleg. Þannig að ég er
rosalega hrifin af öllum stöðunum þar sem hún
kemur fram. Stofan er líka í miklu uppáhaldi,“
segir Sigrún.
„Síðan er það krókurinn minn inni í svefn-
herbergi sem er alveg yndislegur, með helling
af blómum. Þar sit ég og mála,“ segir Sigrún.
Sigrún er einstaklega listræn enda vinnur
hún sem húðflúrari á tattústofunni Bleksmiðj-
unni. Tattústofur þurftu að hafa lokað í sam-
komubanninu en Sigrún hafði þó nóg fyrir
stafni á meðan og byrjaði aftur að mála. Hún
málar málverk sem eru innblásin af sterkum
konum sem hafa haft áhrif á Sigrúnu í gegnum
árin.
Hún hélt áfram að mála eftir að samkomu-
banninu lauk og hélt málverkasýningu á veit-
ingastaðnum The Coocoo’s Nest nú í byrjun
júní.
Sigrún segist ekki vera mikið fyrir að
skreyta eigin heimili með verkum eftir sjálfa
sig þótt nokkur þeirra séu á heimilinu núna.
Hún vill frekar kaupa list af öðrum og sést það
á fallega skreyttu heimili hennar.
Dökkgræna eldhús-
innréttingin er úr Ikea.
Morgunblaðið/Eggert
Nýjasta verk Sigrún-
ar í vinnslu.
Fjöldi málverka eftir Sigrúnu prýðir heimilið um
þessar mundir og bíður þess að fara á málverka-
sýningu. Hér má sjá leikkonuna Marlene Dietrich,
en sterkar konur eru helsti innblástur Sigrúnar.
Plöntur og litir eru áberandi á heimili Sigrúnar.
Tóku húsið í gegn
vegna músagangs
Húðflúrarinn Sigrún Rós Sigurðardóttir og eiginmaður
hennar Ingólfur Pálmi Heimisson gerðu nýverið upp
einbýlishúsið sitt á Kársnesinu. Húsið var byggt árið
1942 og því komið til ára sinna.
Sonja Sif Þórólfsdóttir sonjasif@mbl.is
Sigrún Rós Sigurðardóttir býr í fallegu ný-
uppgerðu húsi á Kársnesi í Kópavogi.
Innlit Sigrún Rós Sigurðardóttir - Bleksmiðjan