Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.6. 2020
LÍFSSTÍLL
Stemningu má skilgreina semþað félagslega andrúmsloftsem umlykur okkur, mótar
okkur og stýrir, án þess að við
veitum því kannski sérstaka at-
hygli. Stemningin myndast í hópn-
um og virkar eins og ósýnilegt afl
sem sendir skilaboð til meðlima
hópsins um væntingar, vinnu-
brögð og venjur hópsins sem ein-
staklingar mótast svo af – í gegn-
um félagslega smitun – og tileinka
sér í starfi hópsins. Stemningin
getur verið jákvæð og upp-
byggileg, og ýtt öllum meðlimum
hópsins upp á æðra plan, eða nei-
kvæð og óæskileg, og dregið alla
meðlimi hópsins niður að lægsta
samnefnara hópsins. Þetta á við
um stemningu sem myndast í
skólastofunni, á íþróttaæfing-
unum, á tónleikunum sem við
sækjum, nú eða bara heima við.
Stemningin hefur þannig bein
áhrif á líðan, væntingar og hegð-
un allra meðlima hópsins, og í
framhaldinu á færni þeirra og ár-
angur.
Stemning og færni
Nýleg rannsókn Yeger o.fl. sem
birtist í Nature nú fyrir skömmu
sýndi til dæmis hvernig stemn-
ingin í skólanum skiptir máli
varðandi að nemendur geti til-
einkað sér nýja færni í náminu.
Rannsóknin sýndi þannig hvernig
stutt inngrip, þar sem nemendum
voru kennd grundvallaratriði um
gróskuhugarfar (e. growth mind-
set), hafði jákvæð áhrif á náms-
árangur nemenda í fjölbreyttum
námsgreinum. Það sem kom enn
fremur fram var að í þeim skólum
þar sem ríkti meiri jafningja-
stuðningur við að nemendur tækj-
ust á við áskoranir (e. challenge-
seeking), varð meiri bæting í
námsárangri nemenda en í skólum
þar sem jafningjastuðningur var
minni við að takast á við slíkar
áskoranir. Með öðrum orðum: Í
þeim skólum þar sem stemningin
var almennt jákvæðari fyrir því
að nemendur prófuðu og tileink-
uðu sér nýja hluti sýndu nem-
endur meiri framfarir í náminu
eftir kynninguna á gróskuhugarf-
ari, burtséð frá gæðum skólans.
Þessar niðurstöður stemma vel
við kenningar Mihaly Csiks-
zentmihalyi og K. Anders Er-
icsson um mikilvægi áskorana fyr-
ir bættan árangur sem og
kenningar Nicholas Christakis um
hvernig félagsleg smitun virkar í
raun sem ósýnilegt afl sem ýtir
einstaklingum í ákveðnar áttir.
Sífellt er verið að ræða um
menntamál, skólana okkar og
stöðu okkar í PISA. Ef þróunin
síðustu áratugina er skoðuð má
sjá að skóladagurinn hefur lengst.
Lengingin felst sem oftast í að
fleiri fög eru kennd á sviði hins
bóklega. Það er ekki sama aukn-
ingin í tímum í íþróttakennslu eða
sundi né í skapandi greinum eða
tónlist. Nú síðast er verið að ræða
um að fjölga tímum í íslensku
vegna slæmrar stöðu í lesskiln-
ingsprófum PISA. En það má
spyrja hvort magn sé endilega
það sama og gæði? Fleiri tímar í
málfræði eru til að mynda ólíkleg-
ir til þess að hjálpa þeim 26%
nemenda sem komast ekki upp á
hæfniviðmið 2 í PISA prófinu –
þeim sem geta ekki lesið sér til
gagns. Aðrar leiðir en fjölgun
kennslustunda eru mögulegar í
þessu sambandi.
Markvissari þjálfun
Það mætti til dæmis huga betur
að markvissari þjálfun nemenda í
lykilfögum í náminu með því að
skapa forsendur sem ýta almennt
undir áhuga nemenda fyrir skóla-
starfinu sem slíku og gera nem-
endum betur kleift að nýta skóla-
daginn sem skyldi. Í þessu
samhengi hafa komið upp hug-
myndir um breyttar áherslur í
skipulagi skóladagsins sem fela
það í sér að brjóta hann meira
upp en jafnan er gert, sem gæti
hvort í senn stuðlað að aukinni
orku og einbeitingu nemenda í
náminu sem og skapað upp-
byggilega stemningu meðal nem-
enda fyrir skólastarfinu. Tvær
hugmyndir koma fljótt á litið fram
sem gætu haft jákvæð áhrif í þá
átt. Hreyfing fyrir hádegi og val-
tími eftir hádegi.
Jákvæð áhrif hreyfingar
Hreyfing eins og íþróttir, sund,
dans, útileikur, göngutúr eða
skokk í byrjun skóladagsins eykur
einbeitingu, veitir vellíðan og
stuðlar að betri sjálfsmynd nem-
enda. Eftir hreyfingu eru nem-
endur betur í stakk búnir að ein-
beita sér að verkefnum dagsins og
ná þannig betri tökum á bóknáms-
fögum en ella. Valtíminn, sem
stundum er nefndur ástríðutím-
inn, gæti svo falist í að nemendur
velji sér þema í skapandi starfi,
eins og; tónlist, skák, myndlist,
leiklist eða einhverju slíku sem
bæði skapar eftirvæntingu meðal
nemenda og veitir þeim aukna
orku og kraft þegar líður á skóla-
daginn. Með því að hafa ástríðu-
tíma eftir hádegi, þegar námsorka
nemenda er hvað minnst, mætti
þannig betur fullnýta þau tæki-
færi sem skóladagurinn felur í sér
en jafnan er raunin.
Þegar litið er til náms barna og
ungmenna er mikilvægt að huga
sérstaklega að þeirri stemningu
sem skapast í skólunum með
heildrænum hætti, þ.e. þessu fé-
lagslega andrúmslofti sem stýrir
því hvort námið þykir spennandi,
áhugavert, skemmtilegt, nú eða
mikilvægt í augum nemenda. Já-
kvæð og uppbyggileg stemning í
skólanum getur hreyft við nem-
endum, skapað orku og magnað
upp áhuga þeirra fyrir viðfangs-
efnunum. Það ætti því að vera eitt
af meginhlutverkum skólastjórn-
enda og kennara að vinna að því
að skapa jákvæða og upp-
byggilega stemningu meðal nem-
enda fyrir skólastarfinu – eins og
til dæmis lestri – því þetta ósýni-
lega afl sem stemningin leysir úr
læðingi getur ekki einungis haft
jákvæð og uppbyggileg áhrif á líð-
an, frammistöðu og árangur
sumra nemenda, heldur smitast
þau til allra. Þær hugmyndir sem
lagt er upp með í þessari grein,
að skapa stemningu og auka orku
nemenda í skólastarfinu, með því
að auka líkamlega hreyfingu nem-
enda og fá inn ástríðutíma, gætu
því reynst mikilvægar breytingar
á formi skóladagsins sem gagnast
nemendum í öllu því sem þeir
taka sér fyrir hendur í skólanum,
hvort sem um er að ræða að ná
tökum á lestri eða færni í smíði.
Stemning, nám og árangur
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson prófessor í
lífeðlislegri sálfræði hermundur@ru.is
Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði
„Hreyfing eins og íþróttir, sund, dans, útileikur, göngutúr eða skokk í byrjun skóladagsins eykur einbeitingu, veitir vellíðan
og stuðlar að betri sjálfsmynd nemenda,“ segja höfundar greinarinnar, Hermundur Sigmundsson og Viðar Halldórsson.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.