Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.6. 2020 LÍFSSTÍLL Stemningu má skilgreina semþað félagslega andrúmsloftsem umlykur okkur, mótar okkur og stýrir, án þess að við veitum því kannski sérstaka at- hygli. Stemningin myndast í hópn- um og virkar eins og ósýnilegt afl sem sendir skilaboð til meðlima hópsins um væntingar, vinnu- brögð og venjur hópsins sem ein- staklingar mótast svo af – í gegn- um félagslega smitun – og tileinka sér í starfi hópsins. Stemningin getur verið jákvæð og upp- byggileg, og ýtt öllum meðlimum hópsins upp á æðra plan, eða nei- kvæð og óæskileg, og dregið alla meðlimi hópsins niður að lægsta samnefnara hópsins. Þetta á við um stemningu sem myndast í skólastofunni, á íþróttaæfing- unum, á tónleikunum sem við sækjum, nú eða bara heima við. Stemningin hefur þannig bein áhrif á líðan, væntingar og hegð- un allra meðlima hópsins, og í framhaldinu á færni þeirra og ár- angur. Stemning og færni Nýleg rannsókn Yeger o.fl. sem birtist í Nature nú fyrir skömmu sýndi til dæmis hvernig stemn- ingin í skólanum skiptir máli varðandi að nemendur geti til- einkað sér nýja færni í náminu. Rannsóknin sýndi þannig hvernig stutt inngrip, þar sem nemendum voru kennd grundvallaratriði um gróskuhugarfar (e. growth mind- set), hafði jákvæð áhrif á náms- árangur nemenda í fjölbreyttum námsgreinum. Það sem kom enn fremur fram var að í þeim skólum þar sem ríkti meiri jafningja- stuðningur við að nemendur tækj- ust á við áskoranir (e. challenge- seeking), varð meiri bæting í námsárangri nemenda en í skólum þar sem jafningjastuðningur var minni við að takast á við slíkar áskoranir. Með öðrum orðum: Í þeim skólum þar sem stemningin var almennt jákvæðari fyrir því að nemendur prófuðu og tileink- uðu sér nýja hluti sýndu nem- endur meiri framfarir í náminu eftir kynninguna á gróskuhugarf- ari, burtséð frá gæðum skólans. Þessar niðurstöður stemma vel við kenningar Mihaly Csiks- zentmihalyi og K. Anders Er- icsson um mikilvægi áskorana fyr- ir bættan árangur sem og kenningar Nicholas Christakis um hvernig félagsleg smitun virkar í raun sem ósýnilegt afl sem ýtir einstaklingum í ákveðnar áttir. Sífellt er verið að ræða um menntamál, skólana okkar og stöðu okkar í PISA. Ef þróunin síðustu áratugina er skoðuð má sjá að skóladagurinn hefur lengst. Lengingin felst sem oftast í að fleiri fög eru kennd á sviði hins bóklega. Það er ekki sama aukn- ingin í tímum í íþróttakennslu eða sundi né í skapandi greinum eða tónlist. Nú síðast er verið að ræða um að fjölga tímum í íslensku vegna slæmrar stöðu í lesskiln- ingsprófum PISA. En það má spyrja hvort magn sé endilega það sama og gæði? Fleiri tímar í málfræði eru til að mynda ólíkleg- ir til þess að hjálpa þeim 26% nemenda sem komast ekki upp á hæfniviðmið 2 í PISA prófinu – þeim sem geta ekki lesið sér til gagns. Aðrar leiðir en fjölgun kennslustunda eru mögulegar í þessu sambandi. Markvissari þjálfun Það mætti til dæmis huga betur að markvissari þjálfun nemenda í lykilfögum í náminu með því að skapa forsendur sem ýta almennt undir áhuga nemenda fyrir skóla- starfinu sem slíku og gera nem- endum betur kleift að nýta skóla- daginn sem skyldi. Í þessu samhengi hafa komið upp hug- myndir um breyttar áherslur í skipulagi skóladagsins sem fela það í sér að brjóta hann meira upp en jafnan er gert, sem gæti hvort í senn stuðlað að aukinni orku og einbeitingu nemenda í náminu sem og skapað upp- byggilega stemningu meðal nem- enda fyrir skólastarfinu. Tvær hugmyndir koma fljótt á litið fram sem gætu haft jákvæð áhrif í þá átt. Hreyfing fyrir hádegi og val- tími eftir hádegi. Jákvæð áhrif hreyfingar Hreyfing eins og íþróttir, sund, dans, útileikur, göngutúr eða skokk í byrjun skóladagsins eykur einbeitingu, veitir vellíðan og stuðlar að betri sjálfsmynd nem- enda. Eftir hreyfingu eru nem- endur betur í stakk búnir að ein- beita sér að verkefnum dagsins og ná þannig betri tökum á bóknáms- fögum en ella. Valtíminn, sem stundum er nefndur ástríðutím- inn, gæti svo falist í að nemendur velji sér þema í skapandi starfi, eins og; tónlist, skák, myndlist, leiklist eða einhverju slíku sem bæði skapar eftirvæntingu meðal nemenda og veitir þeim aukna orku og kraft þegar líður á skóla- daginn. Með því að hafa ástríðu- tíma eftir hádegi, þegar námsorka nemenda er hvað minnst, mætti þannig betur fullnýta þau tæki- færi sem skóladagurinn felur í sér en jafnan er raunin. Þegar litið er til náms barna og ungmenna er mikilvægt að huga sérstaklega að þeirri stemningu sem skapast í skólunum með heildrænum hætti, þ.e. þessu fé- lagslega andrúmslofti sem stýrir því hvort námið þykir spennandi, áhugavert, skemmtilegt, nú eða mikilvægt í augum nemenda. Já- kvæð og uppbyggileg stemning í skólanum getur hreyft við nem- endum, skapað orku og magnað upp áhuga þeirra fyrir viðfangs- efnunum. Það ætti því að vera eitt af meginhlutverkum skólastjórn- enda og kennara að vinna að því að skapa jákvæða og upp- byggilega stemningu meðal nem- enda fyrir skólastarfinu – eins og til dæmis lestri – því þetta ósýni- lega afl sem stemningin leysir úr læðingi getur ekki einungis haft jákvæð og uppbyggileg áhrif á líð- an, frammistöðu og árangur sumra nemenda, heldur smitast þau til allra. Þær hugmyndir sem lagt er upp með í þessari grein, að skapa stemningu og auka orku nemenda í skólastarfinu, með því að auka líkamlega hreyfingu nem- enda og fá inn ástríðutíma, gætu því reynst mikilvægar breytingar á formi skóladagsins sem gagnast nemendum í öllu því sem þeir taka sér fyrir hendur í skólanum, hvort sem um er að ræða að ná tökum á lestri eða færni í smíði. Stemning, nám og árangur Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlislegri sálfræði hermundur@ru.is Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði „Hreyfing eins og íþróttir, sund, dans, útileikur, göngutúr eða skokk í byrjun skóladagsins eykur einbeitingu, veitir vellíðan og stuðlar að betri sjálfsmynd nemenda,“ segja höfundar greinarinnar, Hermundur Sigmundsson og Viðar Halldórsson. Morgunblaðið/Styrmir Kári DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.