Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Side 29
öll öskrin á upptök-
unni, þekkt sem Vil-
hjálmsöskrið.
Eins og rætt er hér
að ofan er öskrið notað
til að túlka hræðslu
stormsveitarmanns
sem hrapar til dauða.
En Burtt stoppaði
ekki þar og notaði
öskrið í fjölda ann-
arra mynda sem hann vann að; þar á
meðal í næstu Star Wars-myndum,
Indiana Jones-myndunum auk More
American Graffiti og Willow.
Félagi Burtts úr háskóla, Richard
Anderson, vann einnig sem hljóð-
hönnuður að fjölda mynda í Holly-
wood og tók ástfóstri við öskrið.
Notaði hann það í myndir á borð við
Poltergeist, Toy Story, Hercules og
Pirates of the Caribbean.
Öskrarinn fundinn
Fyrst um sinn vissu fáir af Vil-
hjálmsöskrinu. Smátt og smátt
mátti heyra öskrið í fleiri og fleiri
myndum. Weddington Productions,
hljóðvinnslufyrirtæki Andersons,
kom öskrinu fyrir í safni sínu og var
það því notað í fjölda mynda þar sem
fyrirtækið kom að framleiðslu. Af
þeim má nefna teiknimyndirnar
Beauty and the Beast, Aladdin og A
Goofy Movie sem margir kannast við
frá 10. áratugnum.
Með tímanum færðist það sem í
upphafi var einkabrandari nokkurra
hljóðhönnuða í Hollywood yfir í að
verða hluti af meginstreyminu í
kvikmyndaiðnaðnum. Alltaf þegar
einhver hrapaði eða var skotinn
mátti búast við öskrinu. Quentin
Tarantino hefur notað öskrið í mörg-
um af myndum sínum; fyrst í Re-
servoir Dogs og síðar í Inglorious
Basterds og Django Unchained.
Við hljóðvinnslu á annarri mynd
sinni um Hringadróttinssögu heyrði
Peter Jackson söguna um öskrið.
Hann varð svo spenntur að hann lét
hækka hljóðið í öskrinu og krafðist
þess að það yrði líka notað í þriðju
myndinni, í atriðinu sem fjallað er
um hér að ofan.
Allt í allt hefur Vilhjálmsöskrið
komið við sögu í yfir 400 kvikmynd-
um og sjónvarpsþáttum.
Ekki var vitað hver ætti heiðurinn
af öskrinu svo Burtt reyndi að kom-
ast til botns í málinu. Nokkrir voru
skráðir á lista leikara fyrir hljóð-
upptökur Distant Drums og eftir að
hafa hlustað á raddir þeirra allra
taldi Burtt Sheb Wooley þann líkleg-
asta.
Wooley var bæði leikari og tónlist-
armaður og líklega frægastur
fyrir lagið Purple People Ea-
ter sem var sex vikur efst á
vinsældalistum í Bandaríkj-
unum árið 1958. Wooley lék
lítið hlutverk í Distant Drums
og var síðan fenginn til
að hjálpa til við
hljóðsetn-
inguna. Hann
dó 82 ára að
aldri árið
2003.
New Line Cinema
14.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
15:04 100%
FYLKI Keanu Reeves mun leika Neo í
nýrri mynd um Fylkið, The Matrix 4.
Myndin á að koma í kvikmyndahús á
næsta ári og mun mótleikari Reeves, Car-
rie-Anne Moss sem leikur Trinity, einnig
vera með. Í viðtali við Empire á dögunum
var Reeves spurður af hverju hann hefði
tekið hlutverkið að sér en 17 ár eru síðan
önnur og þriðja myndin í þríleiknum um
Fylkið komu út. Sagði hann handrit
myndarinnar fallegt og að handritshöf-
undurinn Lana Wachowski, annar hand-
ritshöfunda upprunalegu myndarinnar,
hefði mikilvæga sögu að segja.
Neo snýr heim
Reeves snýr aftur sem Neo.
AFP
BÓKSALA 3.-9. JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Vegahandbókin 2020 Steindór Steindórsson o.fl
2 Á byrjunarreit Lee Child
3 Dóttirin Anne B. Ragde
4 Möndulhalli Ýmsir höfundar
5 Sjö lygar Elisabeth Kay
6 Danskvæði um söngfugla Suzanne Collins
7 Tíbrá Ármann Jakobsson
8 Beðið eftir barbörunum J. M. Coetzee
9 Kisa litla í felum Holly Webb
10
Hryllilega stuttar
hrollvekjur
Ævar Þór Benediktsson
1 Kisa litla í felum Holly Webb
2
Hryllilega stuttar
hrollvekjur
Ævar Þór Benediktsson
3 Kalli breytist í grameðlu Sam Copeland
4 Hvar er Andrés? Walt Disney
5 Græna geimveran Hjalti Halldórsson
6 Heillaspor Gunnar Hersveinn o.fl.
7
Dagbók Kidda klaufa 12
– flóttinn í sólina
Jeff Kinney
8 Sögur úr Múmíndal Tove Jansson
9
Blokkin á heimsenda
Arndís Þórarinsdóttir/Hulda
Sigrún Bjarnadóttir
10 Þekkir þú Línu langsokk? Astrid Lindgren
Allar bækur
Barnabækur
Ég hef verið svo heppin að nátt-
borðið hefur verið hlaðið gæð-
um síðustu mánuði og það verð-
ur erfitt að velja hvað tekur við.
Þetta eru þrjár bækur, hver ann-
arri betri, allar nýjar eða nýlegar
og allar eftir erlendar skáldkon-
ur. Sú sem ég nostra nú við heit-
ir The Mirror & the Light og er
lokakaflinn í mögnuðum þríleik
Hillary Mantel um Thomas
Cromwell, helsta
ráðgjafa Hinriks
VIII og lykilmann
á bak við djúp-
stæðar þjóð-
félagsbreytingar
sem urðu í Eng-
landi í valdatíð
hans. Sjónvarps-
áhorfendur sáu
kannski þættina, Wolf Hall, sem
gerðir voru upp úr fyrri bók-
unum tveimur en færri vita að
bækurnar hlutu hvor fyrir sig
Booker-verðlaunin, sem er afrek
fyrir bókaröð. Það er sérstök un-
un að lesa sögulega skáldsögu
sem er jafnframt bókmennta-
afrek. Þar á und-
an las ég bókina
Drive Your Plow
Over the Bones
of the Dead eftir
nóbelsskáldið
Olgu Tokarczuk.
Vá, hvað mér
fannst hún fersk
og öðruvísi.
Morðgáta úr pólskri fjallasveit
þar sem geðheilsa sögumanns er
jafn áleitin ráðgáta og leitin að
morðingjanum. Þetta var fyrsta
bókin sem ég las eftir Olgu en
verður ekki sú síðasta. Ein bók
ber þó höfuð og herðar yfir allt
sem ég hef lesið í langan tíma og
það er meistaraverkið Ducks,
Newburyport eft-
ir Lucy Ellman.
Bókin er svo góð
að ég set hana
við hlið Stríðs og
friðar eftir
Tolstoy yfir bestu
bækur sem ég hef
lesið um ævina –
og allt annað kemur þar langt á
eftir. Í stuttu máli er sagan inn-
sýn í hugarheim heimavinnandi
húsmóður í Ohio á mörkum
kulnunar við
barnauppeldi og
bakstur á kanil-
snúðum og epla-
bökum. Inn í
fléttast ljóðræn
frásögn af örlög-
um annarrar
móður, fjalla-
ljónynju, sem býr
á mörkum borgar og óbyggða.
Frásögnin sogar lesandann inn á
fyrstu síðu og heldur í heljar-
greipum, án punkta eða greina-
skila, í rúmar 1.000 blaðsíður í
rótsterkri ádeilu á umhverfismál,
ofbeldi gegn konum, byssueign,
skortinn á velferðarkerfi í Banda-
ríkjunum og þjóðarmorðið á
frumbyggjum N-Ameríku. Þegar
ég kláraði bókina vildi ég byrja
samstundis upp á nýtt og elta
nýja þræði í þessum þéttofna
vefnaði bókmennta og þjóð-
félagsrýni. Ég hugsa, svei mér
þá, að ég geri það áður en árið
er á enda.
BIRNA ER AÐ LESA
1.000 blaðsíður án punkta
eða greinaskila
Birna Þórarins-
dóttir er fram-
kvæmdastjóri
UNICEF á Ís-
landi.
Á lista yfir þann fjölda kvik-
mynda þar sem heyra má Vil-
hjálmsöskrið er að finna
margar af bestu og vinsæl-
ustu myndum sögunnar. Hér
má nefna nokkrar sem ekki
eru nefndar í greininni. Les-
endur geta sest niður, horft á
og reynt að taka eftir öskrinu
fræga.
Titanic (1997)
Kill Bill: Vol. 1 (2003)
Guardians of the Galaxy
Vol. 2 (2017)
Once Upon a Time … in
Hollywood (2019)
Hacksaw Ridge (2016)
Up (2009)
The Hunger Games (2012)
Avengers: Infinity War
(2018)
Sin City (2005)
21 Jump Street
Juno (2007)
Af nógu að
taka
Ben Burtt kom
öskrinu á kort-
ið þegar hann
notaði það í
Star Wars.
AFP