Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.6. 2020
Velkomin
aftur
w w w. i t r. i s
L augarnar í Reykjaví k
Höldumbilinu
S ý n u m hve r t ö ð r u t i l l i t s s e m i o g v i rð u m 2 m e t r a
f j a r l æ g ð a r m ö r k i n a l l s s t a ð a r þ a r s e m m ö g u l e g t e r
G e s t i r e r u á e i g i n á by r g ð
Við erum öll almannavarnir
2m
08.00 Strumparnir
08.20 Adda klóka
08.40 Blíða og Blær
09.05 Dóra og vinir
09.25 Mæja býfluga
09.40 Zigby
09.50 Mia og ég
10.15 Lína langsokkur
10.40 Latibær
11.00 Lukku láki
11.25 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Nágrannar
13.50 McMillions
14.40 Katy Keene
15.25 Áttavillt
15.55 BBQ kóngurinn
16.30 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.45 Sportpakkinn
19.00 The Greatest Dancer
20.25 Samkoma
21.05 Rebecka Martinsson
21.55 Prodigal Son
22.40 I Know This Much Is
True
23.40 Cardinal
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Uppskrift að góðum
degi á Norðurlandi
eystra
20.30 Eitt og annað af Vest-
urlandi
Endurt. allan sólarhr.
13.00 Catch the Fire
14.00 Omega
15.00 Joel Osteen
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Helgarviðtalið
21.30 Bærinn minn (e)
Endurt. allan sólarhr.
12.15 The Voice US
13.00 The Bachelor
14.20 The Good Place
15.10 Gordon Ramsay’s 24
Hours to Hell and Back
16.05 Survivor
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 A Million Little Things
18.20 This Is Us
19.05 Með Loga
20.00 The Block
21.20 Madam Secretary
22.10 Godfather of Harlem
23.10 City on a Hill
00.05 FBI
00.50 Bull
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu: Sin-
fóníuhljómsveit Ís-
lands og Hallveig Rún-
arsdótti.
16.55 Himininn brosir: Smá-
saga.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Raunir, víti og happ.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Undantekningin.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Tulipop
07.19 Molang
07.23 Húrra fyrir Kela
07.47 Hæ Sámur – 52. þáttur
07.54 Hrúturinn Hreinn
08.01 Bréfabær
08.12 Lalli
08.19 Stuðboltarnir
08.30 Konráð og Baldur
08.43 Nellý og Nóra
08.50 Múmínálfarnir
09.12 Ronja ræningjadóttir
09.36 Robbi og Skrímsli
10.00 Herra Bean
10.25 Fólkið í blokkinni
10.50 Skólahreysti
11.50 Söngvaskáld
12.40 Músíkmolar
12.50 Treystið lækninum
13.40 Menningin – samantekt
14.10 Veröld sem var
14.35 Emilíana Torrini og
Sinfó
16.25 Gereyðing – í kapp við
tímann
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Lífsins lystisemdir
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.40 Jarðtengdur
20.20 Músíkmolar
20.35 Viktoría
21.25 Framúrskarandi vin-
kona: Saga af nýju
ættarnafni
22.25 Maximilian og María af
Búrgund
23.55 Kafbáturinn
13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á
sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu
Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl-
ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi
vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé-
lagi hljómplötuframleiðanda.
18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á
K100 í allt kvöld.
Í byrjun mánaðarins
var opnaður nýr ís-
lenskur fréttavefur
helgaður Sony PlaySta-
tion-leikjatölvum á
slóðinni psfrettir.com.
Þar eru birtar fréttir
og annað efni um nýj-
ustu og væntanlega
leiki fyrir PlayStation 4
og PlayStation 5. Hægt
er að sjá myndir og um-
fjöllun um nýjustu
leikjatölvu Sony, PS5.
PlayStation-fréttavefur
opnaður
Vefurinn er aðgengi-
legur á psfrettir.word-
press.com
Síminn hringdi hjá neyðarlínunnií Pétursborg rétt fyrir klukkanfimm að morgni laugardagsins
9. nóvember 2019. Tilkynnt var að
maður héldi sér í steinþrep í ánni
Mojku og hrópaði á hjálp. Björgunar-
menn voru snöggir á vettvang og
fljótir að ná manninum úr ánni. Þeir
tóku af honum bakpokann og vöfðu
hann í teppi. Hann kvaðst heita Oleg
Valerjevits Sokolov, dósent við ríkis-
háskólann í borginni og búsettur við
ána. Hitinn var við frostmark þennan
morgun og maðurinn drukkinn, en
björgunarmönnum var létt þar sem
honum virtist ekki hafa orðið meint
af. Svo opnuðu þeir bakpokann. Í
honum voru tveir kvenmannshand-
leggir, teknir af við olnboga.
Réttarhöld í máli Sokolovs hófust í
Pétursborg á þriðjudag. Handlegg-
irnir reyndust af Anastasíu Jest-
sjenkó, 24 ára gamalli ástkonu Soko-
lovs og fyrrverandi nemanda hans.
Hann var handtekinn og skömmu síð-
ar játaði hann morðið. Hún hafði
komið til borgarinnar 2012 til að læra
sagnfræði. 2014 sótti hún fyrsta sinni
fyrirlestur hjá Sokolov. Hann var þá
einn vinsælasti fyrirlesari borgar-
innar.
Æðsta orða Frakka
Sokolov er sérfræðingur í Napóleon
Bonaparte og talar frönsku eins og
innfæddur. Hann hefur skrifað
nokkrar bækur um Napóleon og hef-
ur dálæti á að leika hlutverk hans í
sviðsetningum í búningum á orr-
ustum úr herleiðangri hans inn í
Rússland 1812. Hann segir að ástríða
sín á viðfangsefninu hafi kviknað þeg-
ar hann las fyrstu setninguna í bók-
inni Skytturnar þrjár eftir Alexandre
Dumas. Skrif Sokolovs hafa verið
þýdd á frönsku og hlaut hann heið-
ursorðu frönsku heiðursfylkingar-
innar árið 2003, á eftir Willy Brandt
og undan Bill Gates.
Svo virðist sem Sokolov hafi myrt
Jestsjenkó eftir rifrildi. Hann skaut
hana í höfuðið með afsagaðri veiði-
byssu, kyrkti hana, skaut hana svo
aftur, alls fjórum sinnum.
Daginn eftir má sjá á upptökum
myndavéla hvar hann fer út í búð og
kaupir sér sög. Um daginn heimsóttu
hann tveir vinir og sátu hjá honum til
tíu um kvöldið, grunlausir um að í
næsta herbergi lægi lík. Í vitnisburði
sínum kveðst Sokolov hafa fengið sér
koníak og byrjað að búta líkið sundur
þegar þeir voru farnir. Líkamshlutana
setti hann í poka og sést hann í mynda-
vélum fleygja þeim í ána. Síðast fleygði
hann bakpokanum í Mojku, en hann
sökk ekki. Sokolov hljóp meðfram
ánni, fram hjá Júsúpov-höllinni þar
sem Raspútín var drepinn 1916, og
fann loks stað þar sem hann gat náð í
bakpokann. Þá vildi svo til að hann
hrasaði út í ána, sem hrifsaði hann með
sér, og skömmu síðar var hann veidd-
ur upp úr henni.
Ítrekaðar kvartanir
Eftir að Sokolov var handtekinn kom
í ljós að ítrekað hafði verið kvartað
vegna ágengni hans við konur en
aldrei var brugðist við kvörtununum.
Skólinn hefur verið sakaður um að
þagga niður hegðun Sokolovs. Komið
hefur fram vitnisburður um að hann
hafi lagt hendur á aðra konu, sem var
nemi við skólann, og hótað að kveikja
í henni og myrða hana 2008, en hann
var aldrei ákærður.
Málið hefur kveikt heitar umræður
í Rússlandi um heimilisofbeldi. Talið
er að 16,5 milljónir kvenna í Rúss-
landi verði árlega fyrir ofbeldi af
hálfu fjölskyldu eða maka. Lög um
heimilisofbeldi voru milduð í Rúss-
landi fyrir þremur árum þannig að
flestir, sem gerast brotlegir, borga
yfirleitt aðeins sekt.
Aljona Popova lögmaður, sem bar-
ist hefur fyrir rétti kvenna, sagði að
Sokolov hefði verið í skjóli hins rotna
kerfis í Rússlandi og hægt hefði verið
að afstýra morðinu.
Réttarhöldunum í máli Sokolovs
verður fram haldið á morgun, mánu-
dag.
Oleg Sokolov er þekktur fyrir þátttöku í sviðsetningum á innrás Napóleons í
Rússland. Hér er hann í hlutverki Napóleons við ána Nemas í Litháen. Sokolov
hefur játað að hafa myrt ástkonu sína í nóvember.
AFP
RÚSSNESKUR SAGNFRÆÐINGUR FYRIR DÓM
Sagaði ást-
konuna í búta