Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Side 14
BÖRN Í VANDA 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.6. 2020 Því miður er þessi saga sem við lesum umþarna saga allt of margra íslenskrabarna,“ segir Ásmundur Einar Daða- son, félags- og barnamálaráðherra, um sögu dóttur móðurinnar sem rætt er við hér í blaðinu. „Forgangsverkefni mitt hér í ráðherrastól er að breyta þessu kerfi. Láta þessi kerfi okkar tala betur saman og loka gráum svæðum,“ seg- ir hann. Ásmundur segir að unnið hafi verið að því síðustu tvö ár að búa til kerfi þar sem börn muni ekki lenda í því að falla á milli kerfa og vera, auk aðstandenda sinna, send á milli sveit- arfélaga og ríkisstofnana. Hann segir að ef ekki sé gripið inn í hjá börnum í vanda skapist af því gífurlegur kostnaður fyrir íslenskt sam- félag, svo ekki sé nefndur skaðinn sem barnið sjálft, og nánustu aðstandendur, verði fyrir. „Við erum búin að sjá allt of mörg dæmi um þetta í íslensku samfélagi. Það er ekki gripið nógu snemma inn í og það er komið út í óefni þegar loksins er gripið inn í. Það er eiginlega ótrúlegt að við séum ekki búin að samþætta þetta fyrr.“ Barnið verði hjartað í kerfinu Í lok maí var sett fram frumvarp um samþætt- ingu þjónustu í þágu farsældar barna inn á Samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu „er ætlað að stuðla að samvinnu aðila. Þar er fjallað um samþættingu þjónustu margra þjón- ustukerfa sem starfa með stoð í lögum og veita þjónustu sem skiptir máli fyrir farsæld barns, þ.m.t. menntun, heilbrigðisþjónusta, fé- lagsþjónusta og löggæsla,“ að því er fram kem- ur á Samráðsgátt. „Markmiðið er að þegar barn þarfnast þjón- ustu mæti öll stoðþjónusta barninu þar sem það er statt,“ segir Ámundur um frumvarpið. „Þegar þjónusta fer yfir einhver ákveðin mörk myndi einhver aðili innan samstarfs ríkis og sveitarfélaga taka boltann með viðkomandi barni og fjölskyldu og leiða þau gegnum kerf- ið.“ Unnið er að því að koma upp gagnagrunni sem kemur til með að styðja við þetta starf. Þá vill Ásmundur að barnið, ekki hver stofnun fyr- ir sig, sé útgangspunktur kerfisins. „Við viljum að barnið verði hjartað í kerfinu en ekki öfugt.“ Hann segir stóra verkefnið að fá alla til að vinna saman að sem bestri lausn fyrir hvert og eitt barn. Ráðherrann segir marga hafa komið að und- irbúningi frumvarpanna; fulltrúa allra ráðu- neyta og þingflokka og frjáls félagasamtök og síðast en ekki síst fjöldi einstaklinga sem hafa reynslu af því að leita þjónustu fyrir sig eða börn sín. „Við settum upp átta undirhópa sem skoðuðu ákveðna þætti. Eitt af því sem við skoðuðum þar var þriðja stigs þjónusta, eins og BUGL og fleiri. Hvernig væri hægt að ná betur utan um þetta. Um 400 manns lögðu til málanna í þessum hópum.“ Engin betri fjárfesting En hvenær fer þetta að bera árangur? „Vandinn er að þetta er eins og stórt olíuskip sem tímafrekt er að snúa. Það eru allir í kerf- inu að gera sitt besta. Ég held að allir sem starfi í þjónustu við börn og ungmenni séu að leggja sig alla fram. En það að tengja alla svona saman er erfitt. Þótt við höfum sett allan pólitískan kraft og styrk í það síðustu tvö árin, þá hefur það tekið þennan tíma að undirbúa þetta. Það hefur líka þurft að fá alla á þá blað- „Við erum búin að sjá allt of mörg dæmi um þetta í ís- lensku samfélagi,“ segir Ás- mundur Einar um börn sem fá ekki næga þjónustu. Morgunblaðið/Eggert „Eins og stórt olíuskip“ Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra segir forgangsverkefni sitt að breyta kerfinu til hins betra. Allt of mörg börn falli í gegnum það eins og staðan er í dag. þar sem dóttir mín var í eina klukkustund í listmeðferð. Í garðinum fyrir utan BUGL voru heilbrigðir framhaldskólanemar að vinna við að hirða um garðinn. Þau höfðu fengið vinnu hjá Landspítalanum/BUGL í allt sumar, 8 klukkustundir á dag á fullum laun- um. Landspítalinn/BUGL sparar sér að búa til almennilegt virkni- og meðferðarpró- gramm fyrir 15 til 20 krakka árlega. Þetta eru börn sem eru í mjög miklum vanda og þurfa nauðsynlega hjálp, flest búin að vera á margra mánaða bið eftir smá hjálp, börn sem Landspítalinn á að sinna. En stofnuninni finnst mikilvægara að redda alheilbrigðum hressum krökkum sumarvinnu á fullu kaupi allt sumarið. Á meðan ég beið eftir barninu mínu þenn- an klukkutíma, gat ég hugsað um þennan veruleika. Ég tekjulaus vegna veikinda barns- ins míns sem Landspít- alinn/BUGL vill ekki veita viðeigandi hjálp á meðan hinir heilbrigðu krakkarnir léku sér í afgirtum garði spít- alans sem enginn notar – ég sé alla vega aldrei neinn þar – og for- gangsröðunin varð eitt- hvað svo skýr og ljós þarna. Það er bara bruðlað með peningana og þeir settir í allt ann- að en heilbrigðisþjónustu.“ Móðirin segir sláandi að bera saman virkni- prógramm Landspítalans fyrir þessi ung- menni og það sem dóttir hennar fær. „Barnið mitt fær 5 klst í allt sumar hjá Landspítalanum/BUGL en heilbrigður krakki sem Landspítalinn réð á fullu kaupi fær 488 klukkustundir í allt sumar sem sitt virkni- og vinnuprógramm. Ríkið ákveður að búa til sumarvinnu fyrir framhaldskólakrakka vegna Covid-19 en börn- in sem eru í verstu málunum, og eiga að fá meðferð á BUGL, fá ekkert. Það er því ekki gert ráð fyrir börnum sem var úthýst af BUGL í Covid-19.“ Koma sér markvisst undan því að hjálpa Móðirin segir þennan hóp barna sem dóttir hennar tilheyrir þurfa á samfelldri meðferð að halda svo líðan þeirra og virkni batni. „Samanborið við aðra krakka hafa þessi börn ekkert virkniprógramm. Þau treysta sér ekki í skóla og þetta snýst um að koma þeim af stað út í lífið. Þá er talað um að það þurfi 6 til 12 mánaði í samfelldri meðferð, nokkrar klukkustundir á dag. Hún fékk smá meðferð í janúar og febr- úar, það var ekki mikið, einn til tveir tímar á dag, en það varð til þess að hún byrjaði að- eins að vakna. Það þarf að kveikja á þessum börnum og það var byrjað að kvikna hjá henni, en svo var bara ákveðið að hætta þessari meðferð sem var að ganga svona vel. „Stopp, búið,“ var sagt og ekkert var látið taka við. Svo kom Covid-19 og það fennti yfir allan árangurinn, ekki bara hjá henni heldur líka hjá hinum börnunum. Núna er eins og enginn meðferð hafi átt sér stað því hún var ekki kláruð,“ segir móðirin. Hún segir geðræn vandamál meðhöndluð ólíkt því sem væri ef um líkamleg meiðsl væri að ræða. „Ímyndaðu þér ef þú færir með barnið þitt og það væri fótbrotið og það er sagt við þig: „nei við ætlum ekki að laga þetta strax,við ætlum að funda um þetta.“ Svo værirðu búin að fara á 50 fundi með öllum kerfum og barnið væri enn þá fót- brotið og gæti ekki gengið. Það kæmist hvorki lönd né strönd, fótbrotið væri gróið vitlaust saman og samt væri þér vísað á fleiri fundi.“ Þetta endurspegli geðheilbrigðiskerfið á íslandi. „Ef sjúkdómurinn er af geðrænum toga þá færðu helst ekki neitt, þrátt fyrir að geðrænir sjúkdómar séu lamandi, hamlandi, valdi mikilli þjáningu, séu lífshættulegir og oft banvænir,“ segir móð- irin. „Menn koma sér mjög markvisst undan því á BUGL að sinna almennilega börnum með langvarandi geðræn vandamál, sérstaklega ef þau eru á einhverfurófi. Þetta er svona eins og upp á Landspítala væri sagt: „Við ætlum ekki að sinna fólki með hjarta- sjúkdóma. Það er svo dýrt, svo mikil tæki og þarf svo mikinn mannafla. Sleppum því og spörum þannig.““ ’ Ímyndaðu þér ef þú fær-ir með barnið þitt og þaðværi fótbrotið og það er sagtvið þig: „nei við ætlum ekki að laga þetta strax,við ætlum að funda um þetta.“ Svo værirðu búin að fara á 50 fundi með öllum kerfum og barnið væri enn þá fótbrotið og gæti ekki gengið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.