Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Side 18
Markmiðið með Töfrandi brúðkaupi erað búa til vettvang þar sem tilvon-andi brúðhjón geta fengið bæði inn- blástur og aðstoð í undirbúningsferlinu,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir. „Töfrandi brúð- kaup er bæði viðburðaþjónusta og fjölmiðill þar sem allt snýst um brúðkaup. Það má segja að vefurinn skiptist í fjóra hluta. Ég er með blogg þar sem hægt er að lesa sögur þeirra sem hafa gift sig. Svo er ég með hlaðvarp þar sem ég fæ til mín ýmsa sérfræðinga í brúð- kaupum. Hluti síðunnar er tileinkaður fyr- irtækjum sem bjóða þjónustu til fólks sem er að gifta sig. Að lokum er ég með þjónustu fyrir brúðhjónin. Allt frá skipulagsskjölum sem fólk getur keypt sem ætlar að gera allt sjálft en vill smá stuðning, í það að ég sjái al- veg um skipulagið fyrir tilvonandi brúðhjón sem geta næstum bara mætt eins og hinir gestirnir, alveg áhyggjulaus. Auk þess býð ég upp á að búa til heimasíður sem tilvon- andi brúðhjón geta vísað sínum gestum á.“ Hefur alltaf haft áhuga á að stýra viðburðum Hvaðan kemur áhugi þinn á brúðkaupum og að plana brúðkaup? „Frá því ég man eftir mér hef ég verið algjör ráðskonurass og alltaf elskað að leiða fólk áfram inn í einhver verkefni. Þessi áhugi minn fékk fallegan farveg þegar ég fór að vinna fyrir tónlistarfólk árið 2012 og síðan þá hef ég verið umboðsmaður Jónasar Sig og fleira tónlistarfólks, viðburðahaldari og komið að fjölmörgum æðislegum verkefnum. Þegar ég og maðurinn minn byrjuðum að undirbúa okkar eigin brúðkaup um síðustu jól fann ég hvað þetta er dásamlegur heimur að hrærast í; þessi brúðkaupsheimur. Það er svo mikil fegurð, kærleikur og einskær ásetningur allra sem að þessu koma að samgleðjast og fagna ást tveggja einstaklinga sem hafa tekið þá ákvörðun að ganga saman í gegnum lífið. Þetta er svo stórkostlegt í sjálfu sér og til- hugsunin að vinna að því að gera þennan dag eins vel heppnaðan og hugsast getur kveikti eitthvað innra með mér. Svo þegar ég varð at- vinnulaus í lok mars sá ég gluggann opnast til að keyra þessa hugmynd mína af stað og út í kosmósið.“ Með gagnvirka heimasíðu fyrir gestina Hvernig gengur að undirbúa þitt eigið brúð- kaup? „Það gengur mjög vel. Ég hefði ekki trúað því hvað undirbúningurinn er ævintýralega skemmtilegur. Hann býr til svo mörg tilefni til þess að eiga stundir með ættingjum og vinum sem vilja ólmir fá að taka þátt og hjálpa til við undirbúning. Ég og maðurinn minn erum líka miklar félagsverur og tilhugsunin um að fagna Töfrandi brúðkaup er hugar- fóstur Ásu Berglindar. Ljósmynd/skjáskot Instagram Ása Berglind ásamt Tómasi Jónssyni. Þau eru nú í óðaönn að undirbúa brúðkaupið sitt. Þú getur átt töfrandi brúðkaup Ása Berglind Hjálmarsdóttir er eigandi viðburðaþjónustunnar og fjölmiðilsins Töfrandi brúðkaups. Hún er sérfræðingur í brúðkaupum og er að fara að gifta sig sjálf á næstu dögum. Elínrós Líndal elinros@mbl.is Ljósmyndarinn Emma sem finna má undir Emma_Epiclovestory á Instagram er í uppá- haldi hjá Ásu Berglindi. Ljósmynd/skjáskot Instagram Ása Berglind elskar sterka liti. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.6. 2020 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.