Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2020, Page 28
Grínistinn og uppistandarinnDave Chappelle gaf frásér hálftíma langan uppi-
standsþátt á YouTube fyrir síðustu
helgi. Netflix sá um útgáfuna enda
streymisveitan gefið út uppistands-
þætti hans síðan hann fór að gefa
þá út á ný árið 2017.
Þátturinn sem hann gaf út um
daginn er þó heldur frábrugðinn
þeim sem fólk á að venjast frá
Chappelle. Í fyrsta lagi var hann
tekinn upp aðeins sex dögum fyrir
útgáfuna og því í miðjum heimsfar-
aldri sem enn hefur mikil áhrif á
daglegt líf í Bandaríkjunum.
Oftast er tekið upp í stórum sal
áhorfenda en nú sátu þeir sem á
horfðu utandyra í sætum með hæfi-
legu millibili. „Þetta er skrítið,“
sagði Chappelle við grímuklædda
áhorfendur. Hann kom þar með
fram í fyrsta sinn í þrjá mánuði.
Það sem sker uppistandið úr enn
frekar er að það átti aldrei að vera
fyndið fyrir utan einn og einn
brandara hér og þar. Chappelle tók
fyrir það sem hefur verið á allra
vörum í Bandaríkjunum síðustu
vikur, allt frá dauða George Floyds
af hendi lögreglumanns í lok maí,
lögregluofbeldi og kerfislæga mis-
munun gagnvart svörtum í landinu.
Ekkert heilagt
David Chappelle fluttist til New
York-borgar til að elta drauminn
um að verða grínisti eftir að hann
útskrifaðist úr menntaskóla 1991.
Hann hóf uppistandsferilinn í
Apollo-tónleikahúsinu í Harlem og
var eitt sinn púaður út af sviðinu.
Hann lét það ekki á sig fá og gekk
fljótlega betur. Hann kom fram í
spjallþáttum og og lék minni hlut-
verk í kvikmyndum. Chappelle
skrifaði, ásamt öðrum, handrit að
og lék í myndinni Half Baked sem
kom út árið 1998.
Það var síðan árið 2003 sem
sketsaþátturinn Chappelle’s Show
fór í loftið á Comedy Central.
Fyrstu tvær þáttaraðirnar nutu
mikilla vinsælda. Chappelle var
ekkert heilagt. Hann grínaðist með
ýmsa þætti í bandaríkskri menn-
ingu; staðalímyndir kynþátta,
stjórnmál o.fl. Sketsar þar sem
hann gerir grín að tónlistarmann-
inum Rick James vöktu mikla
lukku meðal áhorfenda og varð
„Ég er Rick James, tík“ ódauðleg
setning.
Þá túlkaði Chappelle tónlistar-
manninn Prince eftirminnilega í
þáttunum. Var Prince sjálfur svo
hrifinn að hann notaði mynd af
Chappelle sem Prince á umslag
smáskífu sinnar, Breakfast Can
Wait.
Í viðtali í spjallþætti Jimmy
Fallons mátti ætla á Chappelle að
Prince hafi notað myndina án leyf-
is. „Þú gerir grín að Prince í skets
og hann setur þig á plötuumslagið
sitt. Hvað á ég að gera, kæra hann
fyrir að nota mynd af mér, klædd-
an sem hann? Ég er skák og mát
þarna.“
Gekk frá milljörðum
Þrátt fyrir vinsældir þáttanna vildi
Chappelle frekar einbeita sér að
uppistandi sínu og kvartaði undan
tímaleysi vegna anna við þættina.
Þriðja þáttaröðin átti að fara í sýn-
ingar í lok maí 2005 en fyrr í mán-
uðinum hætti hann skyndilega
vinnu við þáttaröðina og fór í frí til
Suður-Afríku. Kom þetta eins og
þruma úr heiðskíru lofti fyrir bæði
framleiðendur þáttanna og aðdá-
endur þeirra.
Sagði Chappelle þættina hafa
farið í átt sem honum líkaði ekki.
Með því að hætta í þáttunum
gekk Chappelle frá 50 milljóna
dala (3,3 milljarða króna á þáver-
andi gengi) samningi sínum við
Comedy Central. Á næstu árum
„Þetta er
í dag“
Dave Chappelle er af mörgum talinn einn
besti, ef ekki sá besti, grínisti sögunnar.
Honum er ekkert heilagt í gríninu og hann
veigrar sér ekki við að tala alvarlega um
málefni sem þarfnast umfjöllunar.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Prince notaði Chappelle á umslag
smáskífu sinnar, Breakfast Can Wait.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.6. 2020
LESBÓK
SETNINGAR „Haldið í rassana ykkar,“ („Hold on to yo-
ur butts“) sagði karakter Samuel L. Jackson eftir-
minnilega í fyrstu Jurassic Park-myndinni frá árinu
1993. Handritshöfundur myndarinnar, David Koepp,
hefur nú ljóstrað upp um uppruna setningarinnar sem
lifir enn meðal aðdáenda myndanna. Hann segir í viðtali
við Collider að setningin sé komin frá leikstjóra Back to
the Future, Robert Zemeckis. Koepp og Zemeckis unnu
saman að annarri mynd sem var á lokastigum fram-
leiðslu þegar hann vann að handritinu að Jurassic Park.
Hópur sem vann að myndinni horfði saman á senur og
þegar ljósin voru slökkt sagði Zemeckis: „Haldið í rass-
ana ykkar.“ Koepp var fljótur að átta sig og skrifaði
setninguna um leið inn í handritið.
„Haldið í rassana“
Samuel L.
Jackson í hlut-
verki sínu.
Universal Pictures
VERÐLAUN Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel
verður kynnir Emmy-verðlaunahátíðarinnar þetta árið.
Hátíðin verður haldin með breyttu sniði í ár vegna kór-
ónuveirufaraldursins en óvíst er nákvæmlega hversu
miklar breytingar verða. Hátíðin heiðrar það besta
sem fram kemur í bandarísku sjónvarpi á ári
hverju og ráðgert er að hún verði haldin hinn 20.
september í ár. Kimmel er ekki ókunnugur
kynnastarfinu en hann var kynnir hátíðarinnar
árin 2012 og 2016 og Óskarsins árin 2017 og
2018. „Ég veit ekki hvar eða hvernig og ekki
einu sinni af hverju við ætlum að gera þetta,
en ég mun vera kynnir!“ sagði Kimmel á
Twitter.
Kimmel kynnir á ný
Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem
Kimmel kynnir. AFP
Wayans Jr. var inn og út úr þáttunum.
Hætti, kom aft-
ur og hætti svo
BROTTFARIR Gamanþættirnir
New Girl hafa verið einkar vinsælir
á Netflix hér á landi síðan þeir
komu aftur á streymisveituna fyrr á
árinu. Margir hafa eflaust velt fyrir
sér afhverju karakterinn Coach,
sem Damon Wayans Jr. leikur, birt-
ist í fyrsta þætti en svo ekki söguna
meir fyrr en í þriðju þáttaröð. Wa-
yans hverfur svo aftur í lok fjórðu
seríu en á nokkrar gestainnkomur í
þremur síðustu þáttaröðunum. Í
fyrri brottför sinni þurfti Wayans
að halda áfram leik sínum í þátt-
unum Happy Endings en í þeirri
seinni ákvað hann einfaldlega að
endurnýja samning sinn ekki.
Veiðivefur
í samstarfi við