Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglu-gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 21.220 Verð kr. 59.100 Verð kr. 37.560Verð kr. 16.890 Mikið var um að vera á Árbæjar- safni í gær þar sem talsverður fjöldi fólks var samankominn til að fylgjast með hópi hæfileika- ríkra skemmtikrafta leika listir sínar í góða veðrinu. Hópurinn sem um ræðir er sirkus, sem fer nú um bæinn, en þar á meðal eru loftfimleikafólk, galdramenn og aðrar skrautlegar persónur. Að auki stóð gestum og gangandi til boða að fara í lestarferð í nýrri krakkalest Árbæjarsafns, grilla sykurpúða og taka þátt í úti- leikjum. Þá gat yngsta kynslóðin sömuleiðis barið kindur og land- námshænur safnsins augum. Dag- skráin stóð yfir frá klukkan 13 til klukkan 16 og var mætingin mjög góð. Veðrið lék við gesti, en blíð- skaparveður var á höfuðborgar- svæðinu í gær. Hitastigið sunnan- lands var um og við 17 gráður og heiðskírt allt frá morgni til kvölds. aronthordur@mbl.is Fjöldi hæfileikaríkra listamanna heillaði gesti á sýningu í Árbæjarsafni Léku listir sínar í góða veðrinu Ljósmynd/Ómar Óskarsson Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Magnframleiðsla kexvara hjá Kex- smiðjunni á Akureyri hefur verið lögð niður. Þess í stað mun öll slík framleiðsla fyrirtækisins flytjast í nýtt húsnæði Ísams á Korputorgi og verður framleiðsla Fróns og Kexsmiðjunnar hér eftir undir sama þaki. Þetta staðfestir Kristján Theodórsson, framkvæmdastjóri Myllunnar. Að sögn Kristjáns er kostnaðar- samt að halda úti tveimur fram- leiðslustöðvum. Að auki krefjist áframhaldandi framleiðsla á Akur- eyri þess að ráðist verði í ákveðnar framkvæmdir. „Það er mjög dýrt að endurnýja línuframleiðslu og sömu- leiðis kostnaðarsamt að halda henni úti á tveimur framleiðslustöðum. Það er meginástæða þess að farið var í þessar breytingar,“ segir Kristján en tekur fram að ekki sé frekari tilfærslna að vænta fyrir norðan. Þá haldist önnur starfsemi áfram óbreytt. „Kexsmiðjan verður að öðru leyti ekki fyrir tilfærslum á Akureyri þar sem áfram verða starfrækt þar lager og sala auk þess sem ýmis sérbakstur eins og snúð- ar, vínarbrauð og fleira verður enn bakaður á staðnum. Þá framleiðum við líka vinsæl og fersk pítsukúlu- deig áfram,“ segir Kristján. Ljóst er að flutningurinn mun valda því að störf færast frá Norð- urlandi til höfuðborgarinnar, en ekki er ljóst um hversu mörg störf er að ræða. Þá verður umtalsvert rými laust þar sem áður var fram- leiðsla. Reyna að finna nýja aðila Kristján segir unnið að því að finna rekstraraðila er nýtt geti rým- ið. „Ísam hefur haft samráð við At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar (AFE), þar sem nokkurt rými losn- ar í húsnæðinu, í þeim tilgangi að finna nýja starfsemi á staðinn og þar eru tækifæri sem eru áhuga- verð,“ segir Kristján. Sökum heimsfaraldurs kórónu- veiru hefur flutningsferlið tafist lít- illega auk þess sem tíma hefur tekið að finna nýja aðila í umrætt hús- næði. Vonir standa þó til að úr því leysist á næstu misserum. „Það er ljóst að kórónuveiru- faraldurinn hefur haft áhrift á allt ferlið, flutningurinn á Korputorg hefur til að mynda tafist sem og leitin að nýjum tækifærum til að nýta húsnæðið á Akureyri.“ Flytja framleiðsluna suður Morgunblaðið/Rósa Bakstur Línuframleiðsla Kexsmiðjunnar hefur verið flutt frá Akureyri.  Kexframleiðslan hefur fram til þessa verið á tveimur stöðum  Verður undir sama þaki á Korputorgi  Störf munu færast til Reykjavíkur frá Norðurlandi Það er gríðarlega jákvætt að bresk stjórnvöld mæli ekki lengur gegn ferðalögum til Íslands. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. Þannig verður farþegum sem koma til Bretlands frá Íslandi ekki skylt að fara í tveggja vikna sóttkví. Er Ísland meðal 60 landa sem undanskilin eru reglunni um sóttkví. Að hans sögn eru Bretar einn stærsti markhópur íslenskrar ferðaþjónustu. Vonir eru bundnar við að með þessu muni ferðir milli landanna aukast að nýju. Morgunblaðið/Ómar Gullfoss Breskum ferðamönnum gæti fjölgað á næstu vikum. Stórt skref fram á við Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Kjarasamningar leik- og grunn- skólakennara hafa verið lausir í rúmt ár. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakenn- ara, segir að fundað sé daglega um þessar mundir til að ná ásættanlegri lausn svo skólastarf geti hafist með eðlilegum hætti í haust. Aðspurð segist hún alltaf bjartsýn á að við- ræður skili tilskildum árangri. „Það er engin ástæða til að vera svartsýn nú frekar en áður,“ segir hún. Óvenjulegt sé að fundað sé um há- sumar en það skýrist af óvenjulegum aðstæðum í sam- félaginu. „Við vit- um að það er mik- il ábyrgð á okkar herðum og þess vegna vinnum við að því að funda þótt það sé há- sumar.“ Reglulega líða fleiri mánuðir, ef ekki ár, frá því kjarasamningar opinberra starfs- manna renna út og þar til aðrir taka við. Þorgerður segir ljóst að það sé ástand sem allir hafi keppst við að breyta. „Það er stefna allra að það taki við nýr samningur beint á eftir öðrum. Það tókst ekki að þessu sinni en þar er ekki áhugaleysi, hvorki okkar né viðsemjenda, um að kenna heldur aðstæðum sem voru uppi á þeim tíma,“ segir hún. Samningsmarkmið kennara hafi þó legið fyrir frá fyrsta degi, þrátt fyrir að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan. Auk samninga grunn- og leik- skólakennara hafa kjarasamningar Skólastjórafélagsins og Félags stjórnenda leikskóla nú verið lausir í ellefu mánuði, en samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er þar einnig fundað nær daglega. Samningar kennarastétta verið lausir í rúmt ár  Allt kapp lagt á að ljúka samningum áður en skólar hefjast Þorgerður Laufey Diðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.