Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég var einmitt að lesa Staksteinana
þegar þið komuð, mér líkaði það vel,“
sagði Dóra Ólafsdóttir, elsti núlifandi
Íslendingurinn og jafnframt elsti
áskrifandi Morgunblaðsins, þegar
hún tók á móti Morgunblaðsmönnum
á herbergi sínu á dvalarheimilinu
Skjóli í Reykjavík.
Dóra verður 108 ára í dag en hún
fæddist 6. júlí árið 1912 í Sigtúnum á
Kljáströnd í Grýtubakkahreppi í
Suður-Þingeyjarsýslu.
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun-
blaðsins, kom færandi hendi til Dóru
og færði henni blómvönd frá Morg-
unblaðinu í tilefni af 108 ára afmæl-
inu, þakkaði henni fyrir áratuga
langa tryggð við blaðið sem lesandi
og tilkynnti henni jafnframt að hér
eftir fengi hún ókeypis áskrift.
„Það er aldeilis flott,“ sagði Dóra
og þakkaði innilega fyrir glaðning-
inn.
Hvatti þjóðina til dáða
„Ég stend enn í fæturna,“ segir
hún aðspurð um heilsufarið. Heyrnin
er farin að daprast verulega, sem og
sjónin, en þó ekki svo að hún les allar
þær bækur sem hún kemst í og fylg-
ist vel með þjóðmálunum. Hún hefur
sérstakt dálæti á Morgunblaðinu og
verið áskrifandi til fjölda ára.
Skemmst er að minnast þess þegar
hún hafði samband við blaðið í
miðjum kórónuveirufaraldri og vildi
hvetja þjóðina til dáða með erindi úr
ljóði Gríms Thomsen, Á fætur. Birt-
ist hvatningin í Morgunblaðinu 1. maí
sl.
Að loknu gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum á Akureyri, síð-
ar MA, fór Dóra til Kaupmannahafn-
ar. Þegar hún kom heim starfaði hún
sem talsímakona hjá Landsímanum á
Akureyri í 40 ár. Eiginmaður hennar
var Þórir Áskelsson, sjómaður og
seglasaumari, en hann lést árið 2000,
89 ára að aldri. Sonur þeirra er Ás-
kell, kynningar- og upplýsinga-
fulltrúi Landgræðslunnar og fv. rit-
stjóri, f. 1953. Fyrir átti Dóra
dótturina Ásu Drexler, f. 1933, en
hún er búsett í Bandaríkjunum.
Þegar Dóra var 100 ára flutti hún
suður yfir heiðar, bjó fyrst hjá Áskeli
í Kópavoginum en hefur síðustu árin
dvalið á Skjóli.
Dóra segist fylgjast vel með fjöl-
skyldu sinni. „Þetta er duglegt fólk
og ég er stolt af þeim.“ Dóra á eina
systur á lífi, Þóru Soffíu, f. 1931, sem
býr í Reykjavík en sex systkini eru
látin.
Davíð Stefánsson, skáld frá Fagra-
skógi, var kunningi Þóris og Dóru.
Langamma Dóru og Jónas Hall-
grímsson skáld voru systkinabörn og
langafi hennar og Tryggvi Gunnars-
son bankastjóri voru systkinabörn.
Tryggvi var bróðir Þóru sem Jónas
orti um í Ferðalokum. Dóra og Guð-
ríður Hjaltested (mamma Gógó), sem
varð 100 ára, voru þremenningar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glaðningur Dóra Ólafsdóttir, 108 ára í dag, tekur á móti blómvendi frá Davíð Oddssyni, ritstjóra Morgunblaðsins.
Elsti áskrifandi
blaðsins heiðraður
Dóra Ólafsdóttir 108 í dag Elsti núlifandi Íslending-
urinn Fékk blóm frá Morgunblaðinu og fría áskrift
Árið 1912
» Kristján tíundi varð kon-
ungur Danmerkur og Íslands.
» Lýðveldið Kína var stofnað.
» Farþegaskipið Titanic sökk á
Atlantshafi.
» Auk Dóru fæddust á þessu
ári m.a. Milton Friedman, Gene
Kelly, Jóhannes Páll páfi fyrsti
og Thorbjörn Egner.
Elstu Íslendingarnir í dag Heimild: Langlífi á Facebook
Fæðingardagur Aldur
1. Dóra Ólafsdóttir Kópavogi 6. júlí 1912 108 ára
2. Nanna Franklínsdóttir Siglufirði 12. maí 1916 104 ára
3. Stefán Þorleifsson Neskaupstað 18. ágúst 1916 103 ára
4. Anna Steinþórsdóttir Reykjavík 28. apríl 1917 103 ára
5. Þórdís Filippusdóttir Reykjavík 07. maí 1917 103 ára
6. Helga Guðmundsdóttir Bolungarvík 17. maí 1917 103 ára
7. Anna Hallgrímsdóttir Eskifirði 07. ágúst 1917 102 ára
8. Ásta Sigmundsdóttir Kópavogi 22. ágúst 1917 102 ára
9. Hólmfríður Sölvadóttir Reykjavík 21. september 1917 102 ára
10. Jóhanna Jónasdóttir Skagaströnd 15. október 1917 102 ára
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR
Segja má að Dóra Ólafsdóttir sé
langelst núlifandi Íslendinga því
næst á eftir henni er Nanna Frank-
línsdóttir á Siglufirði sem varð
104 ára í maí sl.
Jónas Ragnarsson, sem heldur
úti vefnum Langlífi á Facebook,
sendi Morgunblaðinu meðfylgjandi
lista yfir tíu elstu Íslendingana og í
þeim hópi er aðeins einn karl-
maður, Stefán Þorleifsson í Nes-
kaupstað, sem verður 104 ára í
næsta mánuði.
Að sögn Jónasar eru nú 60 Ís-
lendingar 100 ára og eldri og hafa
aldrei verið fleiri; 48 konur og 12
karlar. Alls hafa um 780 manns
náð 100 ára aldri í gegnum tíðina,
segir Jónas, þar af um 50 í Vest-
urheimi. Í Kanada bjó Guðrún
Björg Björnsdóttir og varð allra Ís-
lendinga elst, eða 109 ára og 310
daga gömul þegar hún lést. Ís-
landsmetið í aldri á Jensína Andr-
ésdóttir, sem bjó í Reykjavík, en
hún lést 18. apríl á síðasta ári, þá
109 ára og 159 daga gömul.
Aldrei fleiri 100 ára og eldri
Í DAG ERU 48 KONUR OG 12 KARLAR ELDRI EN 100 ÁRA
Stefán
Þorleifsson
Nanna
Franklínsdóttir
Einhugur var innan stjórnar Rit-
höfundasambandsins um að lýsa
yfir áhyggjum af kaupum sænska
fyrirtækisins Storytel AB á 70%
hlut í Forlaginu, stærsta bóka-
útgefanda landsins. Þetta segir
Karl Ágúst Úlfsson, formaður fé-
lagsins. Margir félagsmenn hafi
viðrað áhyggjur sínar af kaupunum
við stjórn og skrifstofu félagsins.
Kaupin voru tilkynnt á miðvikudag,
en seljandinn, Mál og menning,
mun áfram fara með 30% hlut í fé-
laginu.
Aðspurður segir Karl að Rithöf-
undasambandið geti lítið aðhafst
annað en að senda frá sér yfirlýs-
ingu. „Við erum auðvitað ekki að-
ilar að þessu máli. Við getum lýst
yfir áhyggjum en ekki mikið
meira.“
Í yfirlýsingu stjórnar Rithöf-
undasambandsins, sem gefin var út
á föstudaginn, segist hún van-
treysta sænska félaginu og stjórn-
endum þess. Reynsla höfunda af
dótturfélagi þess á Íslandi sé ekki
góð og sömu sögu megi heyra frá
félögum sambandsins annars stað-
ar á Norðurlöndum.
Frelsi stefnt í hættu
Velta Forlagsins er um þriðj-
ungur af veltu allra útgáfufélaga á
Íslandi. „Við höf-
um áhyggjur af
því að smærri
forlög muni eiga
enn erfiðara
uppdráttar um
leið og stærsti
aðilinn eflir sig.
Fákeppni virkar
þannig,“ segir
Karl Ágúst.
Samkvæmt
kjarakönnun, sem félagið hefur lát-
ið framkvæma meðal félagsmanna,
eru greiðslur til þeirra vegna hljóð-
bóka afar lágar og tekjumódel út-
gefenda hljóðbóka sagt ógagnsætt.
„Stjórnin óttast að tilgangur eig-
anda Storytel á Íslandi, Storytel
AB í Svíþjóð, sé að komast nær
höfundarverki íslenskra höfunda
og eyða allri samkeppni á hljóð-
bókamarkaði,“ segir í yfirlýsing-
unni.
Þá segir enn fremur að höfundar
og útgefendur ytra hafi borið því
vitni að frelsi þeirra og menning-
arleg áhersla hafi beðið hnekki
með eignarhaldi Storytel. „Slíkt
vekur ugg í brjósti höfunda hér á
landi, sporin ytra hræða, en reynsl-
an ein mun leiða í ljós hvort sama
öfugþróun verði hérlendis.“
alexander@mbl.is
Hafa áhyggjur af
smærri forlögum
Rithöfundar vantreysta Storytel
Karl Ágúst
Úlfsson