Morgunblaðið - 06.07.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 06.07.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fræðsla til almennings er mik- ilvægur og stór þáttur í þjóð- garðastarfi og landvörslu. Hér rækjum við þær skyldur með fjöl- breyttu móti og reynum eins og tök leyfa að vera sýnileg úti á mörkinni. Tökum fólk tali, segjum frá og vísum veginn sem fólki finnst yfirleitt mjög jákvætt,“ seg- ir Agnes Brá Birgisdóttir þjóð- arðsvörður í Vatnajökuls- þjóðgarði. Hún veitir starfsemi þjóðgarðsins á svonefndu aust- ursvæði forstöðu, en það nær yfir hálendið norðan Vatnajökuls vestan Jökulsár á Fjöllum. Á ýms- um stöðum þar verður í sumar fjölbreytt dagskrá með fræðslu- göngum og fleiru skemmtilegu. Skipulagðar ferðir víða Á hverjum degi í allt sumar kl. 19 eru skipulagðar ferðir í Fljótsdal með landverði að Hengi- fossi. Sá er 126 metra hár og er 2. hæsti foss landsins, hvar hann steypist ofan af hálendisbrúninni. Um það bil klukkustundarlöng ganga er frá vegi að fossi, leiðin er svolítið á fótinn en á færi flestra. Hengifoss er utan marka Vatnajökulsþjóðgarðsins, en svæðið er hins vegar í umsjá starfsmanna hans. Við Snæfell er einnig boðið upp á skipulagðar fræðsluferðir og er lagt af stað frá Snæfells- skála alla morgna í sumar kl. 9. Snæfell, sem er 1.833 metra hátt, er hæsta fjall Íslands utan jökla og er ásamt nærliggjandi svæðum innan landamæra Vatnajökuls- þjóðgarðs. Snæfell er því sem næst keilulaga, og sést víða frá rétt eins og gott útsýni er af fjall- inu sem er auðkleift. Sömuleiðis er fram í ágúst dagskrá alla daga í Kverkfjöllum og Hvannalindum. Fjölbreytt flóra og fána á hásléttunni Margir sem fara um aust- ursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs hafa viðkomu í Snæfellsstofu, gestastofu þjóðgarðsins á Skriðu- klaustri í Fljótsdal. Í stofunni er sýning þar sem brugðið er ljósi á hringrás og mótun náttúrunnar með gróðurfar og dýralíf aust- ursvæðis í brennidepli. Minja- gripaverslun er þar líka og í önd- vegi umhverfisvænar vörur framleiddar í sveitum í nágrenni þjóðgarðsins. Skammt frá Snæ- fellsstofu er Bessastaðafjall en um sneiðinga í hlíðum þess liggur vegurinn upp á öræfin mikla „Í rauninni kemur maður inn í alveg nýja veröld þegar komið er upp brekkurnar í Bessastaðafjalli og inn á Fljótsdalsheiði; gróin víð- erni í 600-800 metra hæð sem eru alveg óendaleg að flatarmáli og ná frá jökli og fram til sjávar. Flóra og fána á þessari hásléttu er fjölbreytt; gróðurtegundir marg- ar og dýralífið fjölbreytt. Hrein- dýr og og gæsir sem hafa verið nýtt um aldir. Raunar hefur alltaf verið opið og heimilt að nýta auð- lindir svæðisins samkvæmt reglum og hefðum sem mótast hafa á löngum tíma, og það er einnig hluti af atvinnustefnu sem er áherslumál í starfi Vatnajök- ulsþjóðgarðs,“ segir Agnes. Kynngikraftur í Kverkfjöllum Nýmæli er, að á fimmtudög- um og laugardögum allt til ágúst- loka í sumar eru landverðir með viðveru og til frásagnar við Háls- lón og Kárahnjúkastíflu. „Þar sem við segjum frá stíflunni og lóninu en einnig frá þjóðgarð- inum, náttúrufari þarna, dýralífi, gróðri, hopun jökla og fleiru,“ segir Agnes. „Einnig gefur þetta okkur tækifæri til að ræða við ferðamenn og segja þeim frá ferðaleiðum, aðstæðum og af- þreyingu á hálendinu norðan jökla, vöðum á ám, vegslóðum og fleiru, sem er hluti af þeirri við- leitni okkar að sporna gegn utan- vegaakstri. Gjarnan er við Kára- hnjúka fólk sem er á leið um Brúaröræfi áfram í Krepputungu í Kverkfjöll, Öskju og Herðu- breiðarlindir; svæði í Vatnajök- ulsþjóðgarði sem mikilvægt er að þekkja áður en haldið er af stað,“ segir Agnes Brá og að síðustu: „Krepputunga er fremur fá- farið svæði en mjög áhugavert í hrikaleik sínum. Kverkfjöll eru síðan, ef svo mætti, segja, heill heimur út af fyrir sig og náttúran þar eins og lifandi kennslubók í jarðfræði. Óvíða sér maður sköp- un landsins jafn glöggt og í raun finnst mér Kverkfjöll búa yfir ein- stökum kynngikrafti.“ Fræðsla í allt sumar um landslag, leiðir og náttúru á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs Morgunblaðið/Sigurður Bogi Snæfell Hæsta fjall utan jökla á Íslandi, 1.833 metrar á hæð, og sést víða að. Starfsmenn Vatnajökuls- þjóðgarðs eru daglega með fræðslugöngur frá Snæfellsskála, en margt forvitnilegt er þarna að sjá. Ný veröld  Agnes Brá Birgisdóttir er fædd 1975 á Egilsstöðum og er uppalin á Akranesi, Neskaup- stað og Selfossi. Er garðyrkju- fræðingur mennt og með MSc í skógfræði með áherslu á skóg- arumhirðu og -iðnað og um- hverfi frá Landbúnaðarháskóla Noregs (NMBU).  Hefur starfað sem þjóð- garðsvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs frá stofnun hans 2008. Hún situr í norrænum vinnuhópi um líf- breytileika og menningar- minjar. Hver er hún? Þjóðgarðvörður Agnes Brá Birg- isdóttir starfar á austursvæðinu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útsýni Horft af Kárahnjúkastíflu yfir Dimmu- gljúfur sem aðrir kenna við Hafrahvamma. Ljósmynd/Ingimar Eydal Fljótsdalur Hengifoss hefur sterkan svip, þar sem hann steypist fram af hálendisbrúninni, 126 metrar á hæð. Flóra Fjölbreyttur gróður er á víðernum Snæfells, svo sem þjóð- arblóm Íslendinga, holtasóley. Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is Jarðvatnsdæla sló út undir bygg- ingu Háskólabíós í fyrrinótt, sem olli því að það flæddi upp úr brunni í kjallara hússins. Þetta gekk á í rúm- an hálftíma þar til viðbragðsaðilar, öryggisverðir og slökkvilið komu á staðinn og dældu upp vatninu. Að sögn Þorvalds Kolbeinssonar, fram- kvæmdastjóra Háskólabíós, var ör- yggiskerfið hetja dagsins. Slökkvilið náði jafnframt að mæta á svæðið og leysa málið farsællega. Flæddi í Háskólabíói Morgunblaðið/Ómar Bíó í bakgrunni Betur fór en á horfðist þegar jarðvatnsdæla sló út.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.