Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ný greind tilfelli kór-ónuveirunnar í Banda-ríkjunum voru nokkuðfærri þjóðhátíðardaginn
4. júlí en dagana þar á undan. Far-
aldurinn setti þó nokkurn á hátíð-
arhöldin, þar sem loka hefur þurft
börum og öðrum samkomustöðum í
nokkrum ríkjum að undanförnu.
Aukningin að þessu sinni er
mest áberandi í ríkjum sunnan og
vestan til í Bandaríkjunum, og eru
Kalifornía, Texas, Flórída, Utah og
Arizona meðal þeirra ríkja þar sem
útbreiðsla kórónuveirunnar er nú
hvað mest.
Þessi þróun endurspeglast í
þeirri staðreynd, að fjöldi nýrra til-
fella á einum sólarhring fór yfir
50.000 á bæði miðvikudag og
fimmtudag og á föstudaginn voru
tilkynnt rúmlega 45.300 ný tilfelli.
Um fjórðungur þeirra kom í
Flórídaríki, en þar greindust 11.458
ný tilfelli. Er það hið mesta sem
greinst hefur í ríkinu til þessa, og
næstmesti fjöldi nýrra tilfella sem
greinst hefur í einu ríki Bandaríkj-
anna á einum degi, en 11.571 nýtt
tilfelli kom upp í New York-ríki um
miðjan aprílmánuð, þegar farald-
urinn var þar í hámarki.
Tvöföldun á hálfum mánuði
Þessi mikla fjölgun tilfella þýð-
ir að Flórída er eitt af ellefu ríkjum
þar sem tala smitaðra hefur tvöfald-
ast á undanförnum tveimur vikum.
Fjölgunin er að miklu leyti rakin til
þess að ríkið var eitt af þeim fyrstu
til þess að létta á sóttvarna-
aðgerðum sínum, en ríkisstjórinn,
repúblíkaninn Ron DeSantis, lagði
mikla áherslu á að slíkt yrði gert,
þar sem aðgerðirnar hefðu neikvæð
áhrif á efnahag ríkisins.
Þá hefur DeSantis einnig hald-
ið því fram að hina miklu fjölgun til-
fella megi nær eingöngu rekja til
þess að fleiri séu prófaðir en áður,
en pólitískir andstæðingar ríkis-
stjórans halda því fram að það
standist ekki skoðun, þar sem hlut-
fall þeirra sem reynist jákvæðir fyr-
ir kórónuveirunni hafi einnig hækk-
að, en nú reynast um 25% allra sem
fara í skimun í Flórídaríki vera með
veiruna.
Þá hefur DeSantis ekki viljað
mæla fyrir um almenna skyldu fólks
til þess að hylja vit sín á almanna-
færi, en hann bendir á að margar af
fjölmennustu sýslum ríkisins, sem
ná meðal annars yfir borgirnar
Miami og Orlando, hafi nú þegar
sett slíka skyldu á.
Mikil andstaða við grímur
Að einhverju leyti má rekja
tregðu DeSantis til þess að mæla
fyrir um grímuskylduna til þess að
margir stuðningsmenn repúblíkana
virðast á þeirri skoðun, að notkun
andlitsgríma sé atlaga að stjórnar-
skrárvörðum réttindum þeirra.
Hafa sumir þeirra skipulagt mót-
mæli víða um Bandaríkin, þar sem
fólk hefur meðal annars komið sam-
an og brennt andlitsgrímur á báli.
Þessarar andstöðu hefur einnig
orðið vart í Texas, en þar hafði rík-
isstjórinn Greg Abbott gengið svo
langt að banna sveitarstjórnum í
ríkinu að skylda fólk til þess að
ganga með grímu. Hann skipti hins
vegar um skoðun í síðustu viku og
undirritaði tilskipun um að í öllum
sýslum ríkisins þar sem fleiri en 20
manns hefðu greinst með kórónu-
veiruna yrði fólk að bera grímu á
almannafæri frá og með síðasta
föstudegi, með þeim undantekn-
ingum að ekki yrði gerð krafa um
notkun gríma í bænahúsum eða á
kjörstöðum.
Ákvörðun Abbotts var tekin í
kjölfar þess að tilfellum í Texas, líkt
og í Flórída, hefur fjölgað hratt síð-
ustu vikurnar, og greinast nú um
8.000 manns á dag með veiruna, en
dagleg tilfelli í ríkinu fyrir tveimur
vikum voru einungis um 2.400.
Aukningin er rakin til þess að Texas
var eitt af fyrstu ríkjunum til þess
að aflétta sóttvörnum sínum, og
sagði Anthony Fauci, sem leiðir
sóttvarnateymi Hvíta hússins, að
ríkið hefði „hlaupið yfir“ sumar af
þeim kvöðum sem ríki þyrftu að
uppfylla áður en hægt yrði að opna
á ný.
Bakslag í Kaliforníu
Kaliforníuríki sker sig úr lista
þeirra ríkja þar sem tilfellum fjölg-
ar ört að því leytinu til, að þar er
ríkisstjórinn demókrati, Gavin New-
som. Hann þótti hafa stýrt við-
brögðum síns ríkis allþokkalega í
vor, en bæði tilfelli og dauðsföll af
völdum veirunnar voru þá sambæri-
leg við þau hlutföll sem sáust í
Þýskalandi.
Þá setti Newsom fram áætlun
um að létta á sóttvarnaaðgerðum í
fjórum skrefum, en í öðru skrefinu
fólst að skemmtistaðir og barir yrðu
opnaðir á ný. Það leiddi aftur af sér
nýja sprengingu í fjölgun tilfella, nú
meðal yngra fólks. Er þessi aukning
einna helst í Los Angeles, en þar
hefur meira en helmingur allra til-
fella í ríkinu greinst.
Eini ljósi punkturinn í þessum
uppgangi faraldursins í Bandaríkj-
unum er að dauðsföllum hefur ekki
fjölgað jafnört og nýjum tilfellum.
Það kann þó að breytast, því að í öll-
um ríkjunum sem nú glíma við upp-
gang veirunnar hefur þeim sem
liggja á gjörgæslu vegna hennar
fjölgað mjög. Má þar nefna, að gjör-
gæsludeild sjúkrahússins í Houston,
sem talið er stærsta sjúkrahús
heims, er nú yfirfull.
Kórónuveiran í örum
vexti í Bandaríkjunum
AFP
Þjóðhátíðardagur Loka þurfti baðströndum í Los Angeles og víðar í
Kaliforníu vegna uppgangs kórónuveirunnar, og var því tómlegt þar 4. júlí.
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ámiðviku-daginnvoru liðin
23 ár frá því að
Kínverjar fengu
yfirráð yfir
bresku nýlendunni Hong
Kong, samkvæmt sam-
komulagi sem Bretar og Kín-
verjar undirrituðu um miðj-
an níunda áratuginn. Í því
samkomulagi, sem talið er
lagalega bindandi að al-
þjóðalögum, hétu Kínverjar
því, að íbúar Hong Kong
myndu fá að njóta allra
þeirra sömu lýðréttinda og
þeir nutu undir stjórn Breta í
að minnsta kosti fimmtíu ár
eftir yfirtökuna, eða til árs-
ins 2047.
Þetta loforð Kínverja hef-
ur stundum verið útskýrt
með hugtakinu „Eitt ríki, tvö
kerfi“, og var eitt markmið
Kínverja með því að sýna að
hið kapítalíska Hong Kong
gæti þrifist undir yfirstjórn
kínverska kommúnista-
flokksins. Á þeim tíma var
einnig rætt um að yfirtakan á
Hong Kong gæti varðað leið-
ina að sameiningu megin-
lands Kína við Taívan-eyju,
þá með sömu formerkjum.
Reyndin er þó sú að kín-
versk stjórnvöld hafa ekki
staðið fyllilega við sinn hlut
samkomulagsins. Í 23 ár hef-
ur verið vegið smátt og smátt
að réttindum íbúa Hong
Kong, allt þar til upp úr sauð
í fyrra þegar lagt var fram
nýtt framsalsfrumvarp, sem
hefði gert kínverskum
stjórnvöldum léttara að
kveða niður alla gagnrýni og
mótspyrnu gegn sér innan
Hong Kong-borgar.
Það var svo síðastliðinn
þriðjudag, degi áður en af-
mæli yfirtökunnar var fagn-
að, sem Kínverjar létu loks
til skarar skríða. Ný þjóðar-
öryggislög, sem kínverski
kommúnistaflokkurinn setti
á einhliða, tóku gildi, en ná-
kvæmt innihald þeirra hafði
legið í þagnargildi. Nú þegar
hulunni var svipt af lögunum
kom í ljós að þau voru jafnvel
enn verri en nokkurn hefði
grunað.
Ákvæði laganna eru mörg
hver óskýr og má túlka mjög
rúmt, kínverskum stjórn-
völdum í hag. Brot á lögunum
geta varðað allt að lífstíðar-
fangelsi og öryggislögregla
kommúnistaflokksins fær nú
að starfa óhikað í landinu.
Leynilögreglan fær að auki
rúmt svigrúm til þess að
handtaka menn og færa yfir
landamærin til Kína, þar sem
þeirra bíða grimm örlög.
Sum réttarhöld
munu nú fara
fram fyrir lok-
uðum dyrum og
sjálfstæði dóm-
stólanna í Hong
Kong er svo gott sem fyrir bí.
Í lögunum er einnig kveðið
á um að hægt sé að sækja fólk
til saka fyrir pólitíska
„glæpi“ sem framdir eru utan
bæði Kína og Hong Kong, og
hefur það ákvæði verið túlk-
að sem svo að þátttaka í frið-
sömum mótmælum hinum
megin á hnettinum gæti þýtt
það að viðkomandi gæti aldr-
ei snúið aftur til Hong Kong.
Þá ber yfirvöldum í Hong
Kong nú að fylgjast grannt
með því sem kennt er í skól-
um þar og hvað sagt er í fjöl-
miðlum. Vegið er að málfrelsi
svo mjög, að það eitt að halda
á mótmælaskilti getur nú
varðað við lögin, og raunar
var fyrsta handtakan sem
gerð var á grunni laganna
einmitt vegna manns sem
veifaði fána með skilaboðum
um sjálfstæði Hong Kong.
Ljóst er að tal um „tvö
kerfi“ á ekki lengur við. Kín-
verski kommúnistaflokk-
urinn hefur sett á sitt kerfi,
sem leyfir enga mótspyrnu,
þvert á þau loforð sem gefin
voru þegar samið var um
yfirtökuna. Það er því ekki að
undra að bresk stjórnvöld
hafi að miklu leyti leitt við-
brögð hins vestræna heims,
en þau hafa nú í hyggju að
gera allt að þremur millj-
ónum íbúa Hong Kong kleift
að öðlast borgararéttindi í
Bretlandi. Ástralía og
Bandaríkin hafa einnig íhug-
að hvaða viðbrögð séu viðeig-
andi í ljósi þeirrar nýju stöðu
sem komin er upp í Hong
Kong.
Víst er að kínverski komm-
únistaflokkurinn mun láta
allar mótbárur sem vind um
eyru þjóta eins og hann hefur
áður gert og er alræmdasta
dæmið um það á síðustu ára-
tugum atlagan sem hann
gerði gegn friðsamlegum
mótmælendum á Torgi hins
himneska friðar í Peking.
Á sama tíma og þessir at-
burðir eiga sér stað í sam-
skiptum Kína og Hong Kong
hafa Kínverjar gert sig meira
gildandi í samskiptum sínum
út á við, jafnt á landamærum
Indlands, í Suður-Kínahafi, í
málefnum Taívans, og jafnvel
í þróun 5G-samskiptanetsins.
Víst er að Vesturlönd þurfa
að huga vel að því hvernig
þau ætla sér að bregðast við
þessari þróun. Þau geta ekki
látið sem ekkert sé.
Hong Kong hefur
verið sett undir hæl
Pekingstjórnar}
Eitt ríki, eitt vont kerfi
D
r. Kristján Þórarinsson, stofn-
vistfræðingur Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi, skrifaði
grein í Morgunblaðið 27. júní sl.
sem svar við grein minni í sama
blaði sem birtist 17. júní. Þar fjallaði ég um
slælegan árangur af fiskveiðistjórnun á Ís-
landsmiðum eftir að hið svokallaða kvótakerfi
var tekið upp á níunda áratug síðustu aldar.
Þá var lagt upp með að nú skyldu nytjastofnar
verndaðir gegn rányrkju. Hver stofninn á fæt-
ur öðrum var settur í kvóta sem gefinn var
fáum útvöldum til fénýtingar. Okkur, það er
almenningi í þessu landi, var sagt að ef við
færum bara eftir „vísindalegri ráðgjöf“ þá
yrði allt svo gott. Síðan var hafist handa við að
bíða eftir árangrinum. Og enn erum við að bíða.
Hörpudiskurinn, rækjustofnar, humarinn, lúðan, grá-
lúðan, skötuselurinn, gullkarfi, djúpkarfi, úthafskarfi,
steinbítur, hlýri og loðna. Allir þessir stofnar eru sam-
kvæmt nýjustu ráðgjöf Hafró í vandræðum. Skoðið bara
nýjustu ástandsskýrslu á heimasíðu stofnunarinnar
(hafogvatn.is). Stórlega hefur dregið úr veiði úr þessum
stofnun, nýliðun léleg um margra ára skeið. Á sumum er
hreinlega veiðibann eða því sem næst. Loðnustofninn
telst hruninn. Bara sú staðreynd veldur mér mjög þung-
um áhyggjum sem ég hef oft tjáð bæði í ræðum og grein-
um. Loðnan er undirstaða lífríkis á grunnslóðinni við Ís-
land.
Svo er það þorskurinn, okkar verðmætasti
stofn. Samkvæmt öllum væntingum sem
gefnar voru í upphafi og alla tíð síðan ætti
þorskstofninn fyrir löngu að vera búinn að ná
þeim styrk og afrakstri í afla sem hann gaf
áður en kvótakerfið var sett á. Þetta hefur
ekki gengið eftir. Nú er hafin niðursveifla
eins og ég rakti í grein minni hér í blaðinu 17.
júní sl. Kvótinn er minnkaður um sex pró-
sent. Á sama tíma eru horfur á að þorskkvóti í
Barentshafi verði aukinn um 20 til 30 prósent.
Nýting Íslandsmiða virðist hvergi hafa ver-
ið vistfræðilega sjálfbær um langan tíma. Við
sjáum það bæði á nytjastofnum sjávar og á
sjófuglategundum sem eru víða í miklum
vandræðum. Vitanlega vill dr. Kristján Þór-
arinsson ekki viðurkenna að við séum í vanda með þorsk-
inn. Hann starfar fyrir hagsmunasamtök kvótaeigenda í
landinu (LÍÚ/SFS). Tilkall þeirra til veiðiheimilda rétt-
lætist einna helst í því að þeir einir geti verið vörslumenn
(og helst eigendur) fiskistofna þjóðarinnar. Þeir verða að
standa vörð um þá ímynd að kvótakerfið skili árangri.
Dr. Kristján Þórarinsson skrifar auðvitað það sem
vinnuveitendur hans vilja sjá í þessum efnum. Ég reyni
hins vegar að tala hreint út um mitt eigið mat þótt leik-
maður sé. Ég á nefnilega fiskinn í sjónum eins og allir
aðrir Íslendingar.
Inga Sæland
Pistill
Svar til hagsmunagæslumanns
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen