Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020 ✝ Anna GuðnýHildiþórsdóttir fæddist á Akranesi 20. janúar 1934. Hún lést á Land- spítalanum 25. júní 2020. Anna var dóttir hjónanna Að- alheiðar Guðrúnar Guðnadóttur Andr- easen, f. 9.3. 1914, d. 22.8. 1997, og Hildiþórs Loftssonar kaup- manns, f. 17.8. 1905, d. 3.7. 1995. Alsystir Önnu var Fjóla Stein- dóra, f. 23.8. 1932, d. 27.10. 2013. Systkini Önnu sammæðra eru Guðni, f. 18.3. 1950, d. 21.9. 2017, og Steinunn Ásta, f. 10.9. 1953. Eiginmaður Önnu var Sig- urjón Óskar Sigurðsson, f. 8.5. 1927, d. 11.11. 2016, frá Háfshól í Ásahreppi. Anna og Sigurjón eignuðust fimm börn: 1) Sig- urður Ármann, f. 26.6. 1952, sambýliskona Lek Kaewphanna, þeirra er Jökull Owen. 4) Anna María, f. 27.9. 1957, d. 2.7. 2002, eiginmaður Guðmundur Ingi Sumarliðason, f. 31.3. 1954. Son- ur þeirra er Sigurjón Sumarliði, f. 26.10. 1989. 5) Aðalheiður Guðrún, f. 10.5. 1965, eig- inmaður Daníel Heiðar Guð- jónsson, f. 29.8. 1958. Dætur þeirra eru Anna Lovísa, f. 15.3. 1996, og Katrín Hörn, f. 20.2. 2004. Anna sleit barnsskónum á Akranesi og flutti með móður sinni og systur að Kotmúla í Fljótshlíð eftir að foreldrar hennar skildu. Hún fluttist á Sel- foss 1945. Hún kynntist eigin- manni sínum Sigurjóni árið 1950. Þau fluttust til Reykjavík- ur árið 1953. Fyrstu átta árin bjuggu þau í Drápuhlíð en fluttu síðan í Hvassaleiti 16 þar sem þau bjuggu síðan. Anna starfaði hjá Símanum á Selfossi. Hún var húsmóðir og sá um heimili og börn til margra ára. Árið 1978 tók Anna við rekstri verslunar og hafði mikla gleði af því starfi í yfir þrjátíu ár. Útför Önnu fer fram frá Grensáskirkju í dag, 6. júlí 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. f. 5.4. 1966. Fóst- urdætur: a) Pris- ana, f. 11.8. 1986, b) Walnipha Bo, f. 14.9. 1989, sam- býlismaður Guð- mundur Wuthitha, f. 22.11. 1984, synir þeirra Alexander, Patrick og Richard. 2) Kristín Júlía, f. 25.8. 1953. 3) Aðal- steinn Þormar, f. 30.8. 1955, eiginkona Kristín Guðný Sigurðardóttir, f. 19.9. 1958. Börn: a) Guðmundur Ósk- ar, f. 16.4. 1978, hann á þrjá syni með Magneu Magnúsdóttur, þau slitu samvistum. Synir þeirra eru Veigar Tjörvi, Kormákur Hrafn og Fróði. b) Anna Margrét, f. 25.8. 1981, eiginmaður Ellert Geir Ingvason, f. 13.2. 1980, börn þeirra eru Axel Edílon, Sólon Breki og Elín Kristín. c) Ágústa Sif, f. 4.4. 1991, sambýlismaður Adam Ward, f. 21.1. 1986, sonur Nú er elskuleg tengdamóðir mín Anna Guðný Hildiþórsdóttir látin á 87. aldursári eftir stutta en snarpa sjúkralegu. Sál hennar eða andi sem jafnan var kvikur og frjáls til hinstu stundar er floginn til sinna sem áður eru gengnir. Það var hennar von og trú. Anna mun lifa áfram í minningunni eins og Sigurjón tengdafaðir minn hef- ur gert síðustu árin og minningin um þau verður samtengd um ókomna tíð. Lífið er sérstakt og enginn er eins. Ára sem streymir frá fólki er eins fjölbreytileg og mennirnir eru margir. Ýmislegt má læra af öðrum og margt er það sem má tileinka sér til góðs með því að fylgjast með afstöðu og tilveru annarra. Þetta á ekki síst við um Önnu. Ég kynntist Heiðu dóttur hennar á tíunda áratugnum og síðan hafa síast inn í mig sögur úr lífi Önnu og Sigurjóns í gegnum árin. Anna kom utan af landi; frá Akranesi, úr Fljótshlíðinni, frá Selfossi. Ung kynntist hún Sigur- jóni sem var úr Þykkvabænum. Þannig var líka um fleiri í stiga- ganginum í Hvassaleiti 16. Aðflutt fólk sem studdi hvert annað og hjálpaðist að. Fólk sem flutti úr sveitinni á mölina eins og það var kallað og frá öðrum löndum. Anna var orðin móðir með fjög- ur börn 23 ára gömul. Ekki nóg með það heldur tók hún inn á heimilið tvö gamalmenni tengd Sigurjóni austan úr Þykkvabæ og þjónustaði þau og líknaði árum saman. Heiða kom svo í heiminn átta árum síðar og börnin orðin fimm. Þannig var heimilið stórt og fjölmennt. Anna var félagslynd. Seinna gerðist hún búðarkona og versl- unarmaður enda fékk hún fólk til sín með þeim hætti. Anna hafði hraðan hug. Hún var stálminnug. Hún trúði að vilji og iðjusemi væri það sem til þarf. Hún mætti fólki þar sem það var statt og hafði áhuga á sérkennum hvers og eins. Hún var seig, þrjósk og þolinmóð. Hún kvartaði aldrei undan nokkrum hlut. Hún var ánægð með það sem hún hafði og var þannig nægjusöm. Hún vildi hvergi annarsstaðar búa en heima hjá sér á þriðju hæðinni í Hvassaleitinu. Gallinn var hins vegar sá að fótaveiki hennar ágerðist með aldrinum. Líkami hennar var sem í fjötrum. Það reyndi á að komast að heiman og ekki síður heim aftur. Tröppurnar upp að íbúðinni voru margtaldar 39 þrep alls, neðsti pallurinn hafði bara sjö þrep sem var vegna mis- taka í byggingu hússins en hún var því fegin. Það var þá einni tröppu léttara að komast upp í íbúðina. Hún var baráttukona að þessu leyti og hafði lífsvilja alveg fram í andlátið. Anna vissi hvað hún vildi og þá þýddi ekkert að reyna að hafa áhrif á hana. Það var stemning í kringum hana. Hún var frétta- veita og spurði frétta. Hún var símakona. Hún var prjónakona. Hún var dugleg að lesa bækur og mundi hvað hún las. Hún hafði áhuga á mat. Hún hafði áhuga á fólki. Hún hafði gaman af að spila. Hún var spennt fyrir lottóinu og Happdrætti Háskólans og að fylgjast með tölunum sínum þar. Þótt hún keyrði aldrei bíl þá var hún ökuþór. Þegar Sigurjón var farinn að missa sjón þá sagði hún honum til við aksturinn. Hún hafði áhuga á kappakstri og Formúl- unni. Henni fannst myndin Stella í orlofi einhver besta íslenska myndin og horfði á hana margoft með barnabörnunum og hafði allt- af jafn gaman af. Hún fór aldrei út fyrir landsteinana. Nú er hún hins vegar farin yfir í annan heim. Ég þakka Önnu samskipti og samfylgd. Megi minning hennar vera ljós í lífi okkar. Daníel Heiðar Guðjónsson. Elsku amma, nú hefur þú kvatt okkur. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til þín í Hvassa- leitið, sitja og spjalla og vera við sjálfar. Það var líka svo gaman að tala við þig í síma, oft mikil stemn- ing yfir litlum hlutum þegar þú hringdir. Það er líka minnisstætt þegar þú varst með búðina og að koma þangað. Með þér voru allar stundir skemmtilegar, það var fjör hjá þér og það var gleði í kringum þig. Bingóin, baksturinn, horfa á fyndin myndbönd í iPad- inum, spila og horfa á eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Stella í orlofi og formúlan minna á þig, já elsku amma þú varst algjör töff- ari. Þú varst mikil stemningskona og símakona, hringdir í ættingja og vini bara til þess að heyra í þeim hljóðið. Alltaf svo jákvæð að prófa eitthvað nýtt t.d. nammi eða uppskrift. Amma, þú ert fyrirmynd í okk- ar augum, last margar bækur, prjónaðir heilu peysurnar á örfá- um klukkutímum og varst góð vinkona okkar. Eftir að þú komst á samfélagsmiðlana þá fékkst þú tækifæri til að fylgjast með ætt- ingjum og vinum og fékkst meira að segja að heimsækja nokkra staði í útlöndum úr stofunni heima. Hvattir okkur systur í öllu sem við gerðum hvort sem það var tengt íþróttum, námi, vinnu eða bara í lífinu sjálfu. Varst t.d. fljót að læra orðaforðann í golfi. Alltaf varstu tilbúin að hjálpa okkur hvort sem það var að taka upp myndir eða tónleika á spólu eða kenna okkur að búa til brauðtertu. Það var gaman að spila við þig og þér fannst það svo gaman enda hafðir þú verið í saumaklúbbi með vinkonum þínum í 65 ár en líkast til var meira spilað í sauma- klúbbnum en saumað. Þú varst glöð dagana eftir saumaklúbbinn þegar þú hafðir unnið en ef það gekk illa þá beiðstu spennt eftir að komast í næsta klúbb til að jafna leikinn. Svakaleg keppnismann- eskja í spilunum og mundir ná- kvæmlega hver hafði sett hvað á borðið. Þér líkaði vel við fólk og hafðir svo óendanlega mikinn áhuga á fólki. Þér fannst skipta svo miklu máli að hugsa alltaf já- kvætt og vona það besta, þá myndi allt ganga vel. Einnig að það mikilvægasta væri að vera vinnusamur og standa sig vel því þá yrði maður ánægður og hepp- inn. Með þakklæti og kærleika í huga kveðjum við ömmu okkar í Hvassaleitinu. Traustu, hlýju, kláru og hugrökku ömmu okkar. Þínar, Anna Lovísa og Katrín Hörn Daníelsdætur. Í dag kveðjum við hana Önnu okkar, hún var konan hans Sig- urjóns (Dúdda) bróður hennar mömmu minnar (Dúnu). Hún var stór hlekkur í fjölskyldunni, alltaf var hægt að leita til hennar. Hvassaleiti 16 var heimilið þeirra, frá því ég man eftir mér, margar á ég góðar minningar þaðan. Anna og Sigurjón ráku verslunina Smá- fólk í mörg ár, fyrst í Austur- stræti, Hallveigarstíg og síðan í Ármúla. Anna og Sigurjón eign- uðust fimm börn. Alltaf var svo gott að heyra í Önnu og koma til hennar, gaman að sjá hvað hún var tæknivædd, kona sem var 86 ára og með ipad. Gaman var að sjá hana spila bingó með barnabörn- unum sínum á netinu og allar fal- legu minningar um hana og það sem hún kenndi mér geymi ég hjá mér. Hún var svo fróð og góð kona. Hún lést eftir mjög stutt veikindi, mikið sakna ég hennar. Við vottum Sigga, Distu, Tomma og Heiðu okkar dýpstu samúð. Gaman var að sjá hvað þið voru hlýleg að annast hana til þess að hún gæti búið í Hvassaleitinu. Hugrún, Halldór, Grétar Þór. Hve fagurt ljómar ljósa her á loftsins bláa geim. Hve milt og blítt þau benda mér í bústað Drottins heim. (Valdimar Briem) Anna Guðný Hildiþórsdóttir lést 25. júní sl. Hún var Fljótshlíð- ingur í móðurætt og átti hún margar góðar vinkonur úr þeirri fallegu sveit. Eiginmaður Önnu var Sigurjón Sigurðsson frá Borgartúni í Þykkvabæ. Þau eignuðust fimm mannvænleg börn. Ég kynntist Önnu þegar sonur minn fór að búa með hálfsystur hennar, Steinunni Ástu Andreasen. Anna rak verslun í mörg ár. Það var gaman að koma í versl- unina til Önnu, hún tók öllum svo vel. Anna var viðræðugóð, hress og kát kona. Ég þakka Önnu allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Börnum, þeirra fjölskyldum, systrum og öðrum aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðj- ur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Hvíl þú í friði. Guðríður Bjarnadóttir. Anna Guðný Hildiþórsdóttir ✝ SveinbjörnÁrnason fædd- ist 20. ágúst 1926 á bænum Hellnafelli við Grundarfjörð á Snæfellsnesi. Hann lést 22. júní 2020 á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldrar hans voru Herdís Sig- urlín Gísladóttir húsfreyja, f. 24.2. 1899, d. 1.10. 1996, og Árni Sveinbjörnsson, bóndi og vél- stjóri, f. 3.12. 1891, d. 11.10. 1963. Systkini Sveinbjörns eru: Ingi- björg, f. 1923, d. 2012, Guðbjörg, f. 1925, Gísli, f. 1930, d. 1992, Kristín, f. 1931, Ester, f. 1933, d. 2018, Arndís, f. 1935, d. 2017, Benedikt, f. 1937, d. 1944, Sig- urberg, f. 1940, Ívar, f. 1940, d. 2011. Sveinbjörn ólst upp hjá for- eldrum sínum í Hellnafelli við Kirkjufellið ásamt stórum systk- inahópi. Hann stundaði almenn kvist Sveinbjörnsson, f. 1951. 3) Sveindís María, f. 1954, eigin- maður, Óskar Sigurbjörnsson, f. 1954. 4) Sigrún Inga Petersen, f. 1957, eiginmaður Ingolf Jóns Petersen, f. 1940. 5) Díana Sæ- rún, f. 1961, sambýlismaður Jón Þór Traustason, f. 1960, d. 2013. 6) Kolbrún Linda, f. 1964, eig- inmaður Stefán Halldórsson, f. 1962. Barnabörnin eru tíu og langafabörnin eru tíu. Sveinbjörn og Magnþóra skildu en vinkona hans til margra ára var Ragnhildur Jós- efsdóttir, f. 1929, d. 1998. Eftir að Sveinbjörn kom suður vann hann ýmis störf, m.a. í vél- smiðju og við fiskvinnslu á Kirkjusandi. Síðan söðlaði hann um og fór í vöruflutninga fyrir Kirkjusand og varð síðan sjálf- stætt starfandi vöruflutningabíl- stjóri hjá Þrótti árið 1956 og allt þar til hann varð 78 ára eða í 48 ár. Síðasta árið dvaldi Sveinbjörn á Engey, Hrafnistu í Reykjavík, og naut þar hlýlegrar umönn- unar. Sveinbjörn verður jarðsung- inn frá Neskirkju í dag, 6. júlí 2020, og hefst athöfnin kl. 15. sveitastörf en fór snemma á sjóinn með föður sínum, Árna, sem var með- eigandi og vélstjóri á bát sem gerður var út frá Grund- arfirði. Sjó- mennskan átti vel við hann og vann hann á ýmsum ver- tíðar og síld- arbátum gegnum tíðina, m.a. á Þolinmóði, Grund- firðingi og Farsæl svo fáir séu nefndir. Árið 1951 flutti Sveinbjörn suður til Reykjavíkur ásamt heit- konu sinni, Magnþóru Kristínu Þórðardóttur sem var frá Kvía- bryggju, Grundarfirði, f. 1932, d. 2010, og fyrsta barni þeirra, Ingibjörgu Þórey sem fæddist í Stykkishólmi sama ár. Svein- björn og Magnþóra eignuðust sex börn: 1) Ingibjörg Þórey, f. 1951, sambýlismaður, Bjarni Jó- hannsson, f. 1956. 2) Árni, f. 1953, eiginkona Marianne Lind- Elsku afi. Það er skrýtið að hugsa til þess að þú sért farinn. Á sama tíma er huggun í harmi að vita til þess að þú varst tilbúinn að leggja upp í þína hinstu ferð, og þú varst fullur tilhlökkunar að hitta ömmu Möggu á ný. Núna hefurðu fengið hvíldina. Tíu árum eftir að amma kvaddi okkur hittist þið aft- ur. Hún hefur tekið vel á móti þér með kaffi og kleinum. Það var alltaf gott að koma til afa og hann elskaði að fá okkur barnabörnin í heimsókn. Hann var aldrei lengi að bera veitingar á borð. Þá vissi maður á hverju var von. Hann fór inn í ísskáp og náði í Tab-flöskuna og hellti veglega í öll glös. Tab-ið var stundum gamalt og goslaust, en hann tók ekki ann- að í mál en að við fengjum okkur af þessum gæðadrykk. Afi var, að eigin sögn, aldrei einmana. Eftir að amma dó af- þakkaði hann stundum heimboð dætra sinna og bað þær um að hafa ekki áhyggjur af sér, brosti breitt og sagði að Magga væri hjá honum. Afi elskaði að veiða. Mörg af okkar árum með afa einkenndust af óþreytandi ferðum á Reynis- vatn og átti hann alltaf Prins Póló handa okkur í rauða bílnum. Þá skipti engu hvernig veðraði eða hversu þykkur ísinn var yfir vatn- inu, hann boraði einfaldlega holu í ísinn, með risastórum bor, og þá var hægt að veiða. Nokkur okkar muna þetta vel þar sem það kom ekki til greina að fara heim tóm- hentur, sama hvað veður og vind- ar sögðu. Afi þreyttist svo aldrei á að monta sig af hvað barnabörnin sín væru fiskin. Þegar afi var ekki að veiða þá var hann að keyra stóra græna vörubílinn sinn og þótti elstu barnabörnunum það svakalegt sport að fá að sitja í. Afi Svein- björn keyrði bílinn fyrir Þrótt. Afi var mikill hundavinur og þegar fjölskylduhundarnir komu í heimsókn átti afi alltaf góðgæti fyrir þá í vasanum. Honum þótti alltaf gaman að taka í spil og varð Rommí oftast fyrir valinu. Afi fór oft með okkur í ferðalög og lék á als oddi í sumarbústaðarferðunum í Húsafelli og naut þess að vera með fjölskyldunni. Afi naut þess að eiga samskipti við langafabörnin. Það sást greini- lega að hann naut þess að vera langafi og lék við börnin með bros á vör. Hann hafði gaman að ferð- unum niður í bílakjallara að skoða bílana og hamaganginum úti í garði. Hann naut þess einnig að tala við langafabörnin í Danmörku með nútímatækni. Allar okkar minningar um afa Sveinbjörn eru góðar. Hann var ákveðið akkeri í fjölskyldunni. „Hvað segiði börnin mín góð?“ spurði hann iðulega þegar við hitt- umst og klappaði okkur á kollinn með bros á vör. Við vorum honum mjög mikilvæg þótt hann sýndi ekkisterkar tilfinningar. Hans stóra hjarta kom þó sterklega í ljós í hvert skipti sem hann hitti langafabörnin sín. Elsku afi, við erum sannfærð um að þú sért kominn til ömmu og að þið vakið yfir okkur. Minning þín mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Viktor Björn, Berglind, Linda Björk, Tinna María, Ingolf Davíð, Aron Örn, Ívar Mikael, Egill Þór og Samúel. Elsku hjartans pabbi hefur nú kvatt og söknuðurinn er sár. Hann hefði orðið 94 ára í ágúst og orðinn uppgefinn. Hann þráði mest að fá hvíldina eins og hann sagði og að leggjast við hlið mömmu. Ævi hans var löng og ströng oft og tíðum, ekki alltaf auðveld. Veikindi herjuðu á en einhvern veginn tókst honum alltaf að brjótast út úr veikindunum og koma tvíefldur til baka. Pabbi var hörkuduglegur til vinnu; fór mjög ungur á sjó með Árna afa og vann síðan á mörgum bátum frá Grundarfirði, Stykkis- hólmi og víðar um land. Sjarmör- inn í sveitinni heillaði svo fallega snót frá Kvíabryggju, Möggu mömmu og úr varð ævintýri og sex börn. Pabbi var ótrúlega duglegur að gera við allt, dytta að og laga. Hann varði mörgum stundum við viðgerðir á bílunum sínum og hélt þeim alltaf vel við. Hann lá heldur ekki á liði sínu þegar við börnin vorum að byggja! þá mætti hann með verkfærin sín og hjálpaði til. 80 ára gamall kom hann hingað til að hjálpa við að mála þakið og fannst ekkert mál! Pabbi og mamma skildu eftir erfiða tíma en voru alltaf vinir. Pabbi eignaðist góða vinkonu, Rögnu og nutu þau þess að ferðast mikið saman, dansa og spila. Því miður lést hún allt of snemma! Pabbi hafði mjög gaman af matreiðsluþáttum, fannst gaman að matreiða og kallaði allt biksí- mat sem hann gerði en allur mat- ur varð að vera með laukkryddi! Hann hafði mjög gaman af harmonikutónlist, sérstaklega sjó- mannalögum. Fiskveiðin bjó í pabba en síð- ustu árin veiddi hann mest regn- bogasilung í Reynisvatni og fór svo á milli systra, Ingu mágkonu og barna með aflann en hélt kannski einum sjálfur. Ótal minningar koma upp í hugann og ég þakka fyrir þær og sakna! Ég sakna heimsóknanna í Vest- urbæinn. Ég sakna fjölskyldu- ferðanna okkar saman, oftast í Húsafell þar sem alltaf var glatt á hjalla og pabbi var hrókur alls fagnaðar. Ég sakna sérstaklega kaffi- stundanna okkar við eldhúsborðið þar sem hann sagði okkur sögur frá æskuárunum í Grundarfirði og ótal sögur af sjómennskunni sem átti hug hans allan. Ég sakna líka spilastundanna hans í eldhúskróknum við langafa- börnin sem hann dáði og fengu svo ísblóm að launum fyrir spila- mennskuna. Þar var oft mikið hlegið og mikið gaman. Ég sakna símtalanna við pabba á kvöldin þegar hann fullvissaði mig um að hann væri örugglega kominn upp í rúm, með lyfin hjá sér og öryggishnappinn. Þá spurði hann ávallt um litlu strákana og vildi segja góða nótt. Ég sakna heimsóknanna til pabba á Engey Hrafnistu þar sem hann svaf undir lokin vært en vissi samt af nærveru okkar, opnaði augun, brosti, vissi að hann var í góðri umönnun hjá Dýrfinnu og starfsfólki. Hann dreymdi mikið Þolinmóð, fyrsta bátinn sem hann fór til sjós á með Árna afa og alltaf fönguðu þeir stórlúðu! Í dag kveðjum við pabba með trega og sorg í hjarta en einnig með virðingu og þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa hann hjá okkur allan þennan tíma sem var ynd- islegt! Ég þakka pabba fyrir að hafa gefið mér lífið og býð honum góða nótt! Kveðja, Sveindís María. Sveinbjörn Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.