Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opinn handavinnuhópur kl. 12-16. Stólajóga kl. 10-10:45.
Sögustund af hljóðbók / spjall kl. 13.00. Hádegismatur kl. 11:30-13.
Kaffisala kl. 14:45-15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið, s. 411-2600.
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 08:30-16:00. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 13:45-15:15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur
fer frá Smiðju kl. 13:00
Gerðuberg 3-5 Kl. 08:30-16:00 opin handavinnustofa, kl. 09-16 út-
skurður kl. 11:00-11:30, leikfimi Helgu Ben kl. 13:00, ganga um hverfið
Hraunbær 105 Kl. 10:30 hreyfiþjálfun á vegum sjúkraþjálfara hjá
Hæfi. Markmiðið er að auka hreyfigetu, bæta þol og styrk. Áhersla
verður lögð á að hafa fjölbreytta þjálfun og nýta umhverfið sem er í
kringum félagsmiðstöðina. Þegar ekki viðrar til útiveru verður
aðstaðan inni notuð. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega vel-
komnir að vera með.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 08.00 til 12.00. Billjard kl. 08.00.
Listmálun kl. 09.00.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9:45. Minningahópur kl. 10:30. Stólaleikfimi 13:30.
Korpúlfar Gönguhópar leggja af stað frá Borgum, Grafarvogskirkju
og inni í Egilshöll. Samrómur kemur í borgir kl. 13:00 til að safna
hljóðbrotum frá einstaklingum á aldrinum 60+.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag, klukkan 10:30, verður hreyfiteymið
okkar með minnisleik með bolta í setustofu. Eftir hádegi, kl. 13:30,
hittumst við í handverksstofu á 2. hæð og iðkum núvitund. Í fram-
haldi af því, kl. 15 hlustum við saman á hlaðvarpsþátt Veru Illugadótt-
ur, Í ljósi sögunnar. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59,
hlökkum til að sjá ykkur.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag mánudaginn 6.júlí. Kl. 10:30 er kaffi-
spjall í króknum. Kl. 11:00 er leikfimi í salnum á Skólabraut. Kl. 13:30
er ljóðastund og gleði á Skólabraut. Kl. 18:30 er vatnsleikfimi í sund-
laug Seltjarnarness. Hlökkum til að sjá ykkur.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15 þegar velferðarsvið gefur grænt ljós. Kaffi og
meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu
er 568-2586.
Bílar
Til sölu Suzuki Grand Vitara
árgerð 2006, ek. 205.000 km.
Sjálfskiptur. Nýtt púst Góð smurbók.
Fínn bíll. Verð 590.000 kr
Uppl. í síma 824-4184
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Það er hálf-
einkennileg og tóm-
leg tilfinning, til-
hugsunin um að
jólaborðið verði afa-
laust á næstu jólum. Feður okkar
Óla hafa fylgt okkur í gegnum
alla hátíðisdaga síðan við fluttum
í Fjóluás og urðum alvöru fjöl-
skylda. Það voru þrír mánuðir
upp á dag, tíminn sem leið milli
andláta þeirra, fyrst Júlíus pabbi
minn, síðan Jóhannes sem var
jarðsunginn frá Seljakirkju 22.
júní sl.
Ég kynntist Jóa þegar við Óli
vorum í tilhugalífinu, það fór
strax vel á með okkur, gátum
mikið spjallað og áður en langt
um leið var það fastur liður að ég
skutlaði honum heim þegar hann
kom í mat. Við áttum margar
góðar stundir saman, sunnudags-
kvöld voru afakvöld og það var
hrein unun að gefa þessum gamla
manni að borða. Hann var nýj-
ungagjarn og alltaf til í að
smakka framandi rétti.
Þegar ég varð ófrísk að Ragn-
ari Óla var Jóhannes mikið með
okkur, við fórum saman í Kringl-
una 1 sinni í viku í hans föstu inn-
kaup og svo kom hann í mat á
sunnudögum. Þegar Ragnar Óli
svo fæddist var hann fyrstur að
fá fréttirnar. Með þeim myndað-
ist sterkur strengur og mikil
væntumþykja, bað Jóhannes mig
sérstaklega að segja Ragnari frá
Jóhannes Leifsson
✝ JóhannesLeifsson fædd-
ist 6. júlí 1920.
Hann lést 11. júní
2020.
Útför hans fór
fram 22. júní 2020.
því í gegnum lífið að
hann væri ljósberi
og góður drengur.
Þrátt fyrir þennan
sérstaka þráð þeirra
á milli gerði hann
aldrei upp á milli
þeirra systkinanna.
Þeirra samband var
bara svo hreint.
Jóhannes var
mjög vel lesinn og
hafði einstaklega
gaman af að segja frá, þær voru
ófáar kvöldstundirnar sem við
áttum við eldhúsborðið, þar sem
hann sagði ýmist frá æsku sinni
eða fullorðinsárum, hann sagði
frá góðum tímum og minna góð-
um.
Í hvert sinn sem Alma tengda-
móðir mín kom til tals kom
ákveðinn glampi í augun hans,
lífsförunautur sem einnig var
hans besti vinur. Hann hefði ekki
orðið sá maður sem hann varð
hefði hann ekki haft hana sér við
hlið! Gullhamrar til þessarar
konu voru ótakmarkaðir.
Við vorum svo heppin að fara
tvisvar með honum á griðastað
hans, Laxá á Skógarströnd, þar
var hann eins og kóngur í ríki
sínu, yngdist um maga tugi ára
og var hálf-óðamála, frá svo
miklu hafði hann að segja. Þar
hafði hann eytt mörgum sumrum
með Ölmu og Óla á uppvaxtarár-
um hans, þar þekkti hann hvern
krók og kima.
Það gladdi hann Jóa minn
óendanlega mikið um jólin 2017
þegar við tilkynntum honum um
væntanlegt leynibrúðkaup okkar
hjóna í skírn Gunnars. Hann var
að sjálfsögðu svaramaður Óla og
hringarnir sem við berum eru eitt
af því síðasta sem hann smíðaði á
sínum ferli.
Sem gullsmíðameistari var það
honum kappsmál að Óli kláraði
sinn skóla til að fá meistara-
gráðuna og rann sá dagur upp í
vor, Óli kláraði það sem þurfti til
að geta haldið áfram. Jóhannes
var vægast sagt stoltur, hann var
hreinlega að springa úr stolti yfir
litla stráknum sínum.
Jói var magnaður maður, lista-
maður, mannvinur, heiðarlegur
og góður. Sem betur fer eigum
við Óli svo mikið af minningum
um hann til að halda minningu
hans lifandi um komandi ár.
Þín tengdadóttir,
Ragna Júlíusdóttir.
Í dag hefði Jóhannes Leifsson
gullsmíðameistari orðið eitt
hundrað ára.
Þessi ljúflingsdrengur lést 11.
júní síðastliðinn og vantaði því
aðeins nokkrar vikur til að ná
þessum stóra áfanga sem stefnt
var að.
Jóhannes var annar eigandi að
fyrirtækinu Steinþór og Jóhann-
es, sem var eitt stærsta og glæsi-
legasta skartgripafyrirtæki síns
tíma, tvær verslanir í miðborg
Reykjavíkur. Á vinnustofunni
sem var mannmörg ríkti ávallt
góður andi og þar voru skapaðir
listagripir af þeim meisturum
Steinþóri Sæmundssyni og Jó-
hannesi. Báðir voru þeir miklir
öðlingar og listamenn, þar var
líka fyrir leturgrafarinn listfengi
Gísli Loftsson, hinn mikli ljúfl-
ingur og húmoristi, og lærling-
arnir fimm.
Þarna var góður andi og var
okkur nemendunum kenndir
góðir siðir og falleg vinnubrögð
og frágangur á öllu sem við snert-
um hvort sem var á sjálfri gull-
og silfursmíðinni eða umgengni
við viðskiptavini og alla þá gesti
er komu á vinnustofuna, margir
hverjir skrautlegir og skemmti-
legir sem bættu enn á flóru fyrir-
tækisins. Undir þetta allt lék síð-
an klassísk tónlist í bland við
dægurlög og inn á milli fréttir
Ríkisútvarpsins. Þetta voru
dýrðardagar, ég var ein þeirra
heppnu lærlinga sem þarna
fengu inni í gegnum Sigurð son
Steinþórs er nú rekur Gull og
silfur á Laugavegi. Þarna var
framtíðin ráðin, það er ekki sjálf-
gefið að lenda í svo góðum fé-
lagsskap í rúm fjögur ár í námi,
að hlakka til hvers einasta dags
að mæta í þennan góða og gef-
andi félagsskap lífskúnstnera.
Okkur nemendunum var
treyst til allra verka, glugga-
útstillinga, afgreiðslustarfa og
sjá um fyrirtækið þegar meistar-
arnir fóru utan til efniskaupa.
Af þakklæti og virðingu við
meistarana tókum við vel til á
verkstæðinu, máluðum og þrifum
allt og biðum spennt eftir að þeir
kæmu heim úr ferðalaginu.
Traustið var mikið því ekki voru
dýrgripirnir fáir né ódýrir er
nemendurnir fimm gættu, tvær
verslanir fullar af demöntum,
gulli og silfri.
Nú eru þessir meistarar og
góðu drengir, Steinþór og Jó-
hannes gullsmíðameistarar og
Gísli Loftsson leturgrafari, sam-
einaðir á ný og skapa vonandi
listaverk á ný á öðrum stað undir
fallegri tónlist og englasöng.
Við nemendurnir fimm, sem
erum öll komin vel yfir miðjan
aldur, drúpum höfði með þakk-
læti fyrir góða tíma, ást og um-
hyggju góðra meistara.
Takk elsku Jói minn fyrir alla
kennsluna og elskuna í minn garð
minn gamli góði meistari.
Hvíldu í friði.
Hjördís Gissurardóttir.
✝ Sigþór ReynirSteingrímsson
fæddist á Blöndu-
óski 23. janúar
1931. Hann lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ 23.
júní 2020.
Sigþór ólst upp á
Blönduósi. For-
eldrar hans voru
Helga Dýrleif Jóns-
dóttir húsfreyja, f.
8.12. 1895, d. 7.6. 1995 og Stein-
grímur Davíðsson, skólastjóri á
Blönduósi og vegaverkstjóri í
Húnavatnssýslum, f. 7.11. 1891,
d. 9.10. 1981.
Steingrímur og Helga eign-
uðust 14 börn og náðu 12 þeirra
fullorðinsaldri. Sigþór var 9.
barn foreldra sinna. Elst var
Anna, f. 1919, d. 1993, Svava, f.
1921, d. 2014, Olga, f. 1922, d.
2010, Hólmsteinn,
f. 1923, Haukur, f.
1925, Fjóla, f. 1927,
d. 1993, Jóninna, f.
1928, d. 2015, Bryn-
leifur, f. 1929, d.
2018, Davíð, f.
1932, d. 2017,
Pálmi, f. 1934, d.
2001 og Sigurgeir,
f. 1938.
Sambýliskona
Sigþórs var Mar-
grét Ó. Jónsdóttir, f. 1921, d
1977. Dóttir Margrétar er Nína
V. Magnúsdóttir, f. 1948.
Sigþór nam bifvélavirkjun og
vann lengi við þá iðn, síðan hjá
Bifreiðaeftirliti ríkisins og síð-
ustu starfsárin sem leigubíl-
stjóri hjá BSR.
Útför Sigþórs verður gerð frá
Seljakirkju í dag, 6. júlí 2020, kl.
11.
Í dag kveðjum við stjúpföður
minn Sigþór Reyni Steingríms-
son eða Sissa eins og hann var
jafnan kallaður.
Ég á góðar minningar um
Sissa. Þær ná til minna fyrstu
ára en ég var 4 ára þegar þau
mamma, Margrét Ó. Jónsdóttir,
hófu sambúð. Mamma lést árið
1977 en samband mitt og fjöl-
skyldu minnar við Sissa hélst
alla tíð.
Sissi var Húnvetningur, fædd-
ur og uppalinn á Blönduósi en
pabbi hans, Steingrímur Davíðs-
son, var skólastjóri þar. Hann
ólst upp í litlu fallegu húsi á ár-
bökkum Blöndu í stórum systk-
inahópi.
Sissi hafði alla tíð mikinn
áhuga á bílum og fór ungur til
Reykjavíkur til náms í bifvéla-
virkjun og útskrifaðist með
sveinspróf 20 ára og meistara-
próf í sömu grein 3 árum síðar.
Hann vann lengi sem bifvélavirki
og þótti fær í sínu fagi.
Síðar fór hann að vinna hjá
Bifreiðaeftirliti ríkisins og var
þar prófdómari til ökuréttinda.
Eftir að árunum í bifreiðaeftirlit-
inu lauk vann hann sem leigubíl-
stjóri hjá BSR. Á þeim árum
kom hann iðulega í heimsókn
snemma á laugardagsmorgnum
með vínarbrauð og var hinn
hressasti. Drakk með okkur
morgunkaffið og sýndi gjarnan
nýbónaðan bílinn sinn. Fljótlega
var hann síðan rokinn af stað til
að sinna næsta viðskiptavini.
Sissi var hestamaður og var
með hesta sína að Hrísbrú í Mos-
fellsdal. Þegar börn mín voru lítil
fóru þau stundum með honum
þangað á sunnudögum og fengu
smá reiðtúr. Hjá syninum varð
þetta kveikjan að miklum áhuga
á hestum auk þess sem sérstök
tengsl mynduðust milli hans og
Sissa.
Ekki er hægt að skrifa um
Sissa án þess að minnast þess
hversu barngóður hann var.
Mínum börnum reyndist hann
góður afi. Hann kom í afmælin
þeirra með vandaðar gjafir og
fyrir páska og jól fóru þau með
honum í bæjarferð sem var til-
hlökkunarefni. Þau fengu að
velja sér gjöf eða páskaegg og
borðuðu saman.
Í nóvember 2012 fékk Sissi
heilablóðfall og dvaldi síðustu sjö
ár sín á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ. Hann átti þá erfitt
með að finna nafnorð og sá illa
eftir áfallið. Það var aðdáunar-
vert hversu minni hans var
sterkt. Í heimsóknum reyndi
hann að gera sig skiljanlegan
með því að setja önnur orð inn í
stað nafnorða og þá var eins gott
að giska rétt. Sjö ár eru langur
tími á hjúkrunarheimili en hann
var vel liðinn af starfsfólki og eru
því hér færðar þakkir. Minningin
lifir og ég þakka allar góðar
stundir sem við áttum saman.
Nína V. Magnúsdóttir.
Sigþór var vinur foreldra
minna. Þeir pabbi voru sveitung-
ar úr Húnavatnssýslunni. Að
þeirra mati skipti miklu að þeir
væru úr austursýslunni. Þeir
voru sveitastrákar komnir á möl-
ina á fyrri hluta síðustu aldar.
Þeirra viðfangsefni voru farar-
skjótar, hestar og bílar. Það varð
hlutskipti þeirra beggja að vinna
við bíla og báðir héldu þeir hross.
Saman byggðu þeir sér hesthús
á Varmárbökkum í Mosfellssveit
eins og þá var, seint á áttunda
áratugnum og þótt þá greindi
stundum á um hvernig best væri
að takast á við óstýrilæti í
hrossahópnum undu þeir sér
aldrei betur en á þeysireið um
leirurnar. Eftir að þessari sam-
búð þeirra í hesthúsinu lauk töl-
uðu þeir saman í síma kvöldin
löng, um liðna tíma, menn og
horfna góðhesta.
Sigþór sá ég síðast í útför
pabba fyrir átta árum. Þá var
nokkuð liðið síðan síðast. Sigþór
var góðgjarn maður og glaðvær.
Að hitta hann var ávallt tilhlökk-
unarefni og helgardagar í hest-
húsinu, þegar þeir báðir voru
þar, voru ævintýr fyrir ungan
mann. Nú hleypir hann heim-
draganum á móti sólinni. Ég er
ekki frá því að það sé peli í
strengnum.
Guð blessi hans för.
Jón Þórisson.
Sigþór Reynir
Steingrímsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli
sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um hvar og hvenær
sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað út-
förin fer fram. Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á út-
farardegi verður greinin að hafa borist eigi
síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr
(á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í
Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög.
Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Minningargreinar