Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18
50 ára Kolbeinn fædd-
ist á Selfossi en ólst
upp á Ási í Mýrdal.
Hann fylgdi konu sinni
til Vestmannaeyja árið
1993 og hefur búið þar
síðan. Kolbeinn hefur
fengist við ýmis störf,
þ.á m. bílamálun, en frá 1993 hefur hann
að mestu verið til sjós; nú á Breka VE.
Formaður Sjómannaf. Jötuns frá 2019.
Maki: Guðríður Jónsdóttir grunnskóla-
kennari, f. 1972.
Börn: Svana Björk Kolbeinsdóttir, f.
1995, meistari í markaðsfr. og alþjóða-
viðsk. frá HÍ; Arna Dögg Kolbeinsdóttir, f.
2001, nýstúdent og verðandi nemi í HÍ;
Vala Dröfn Kolbeinsdóttir, f. 2009,
grunnskólanemi og sundgarpur.
Foreldrar: Agnar Hólm Kolbeinsson bíla-
málarameistari, f. 1949, og Lóa Halls-
dóttir verkakona, f. 1953, d. 2010.
Kolbeinn Agnarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sambönd eru ekki svo flókin þegar
þú veltir þeim fyrir þér. Samskipti eru yfir
höfuð eitthvað stirð í dag og það er ekkert
við því að gera.
20. apríl - 20. maí
Naut Forðastu að troða illsakir við vinnu-
félaga þína að ósekju. Gerðu þér dagamun
út af vel unnu verkefni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fegurð hlutanna er ekki fólgin í
stærð þeirra. Ekki þreyta vinnufélagana
með endalausum sögum af einkahögum
þínum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert óvenjuviðkvæm/ur og þarft
því á einveru að halda í dag. Varastu að taka
afstöðu því með því myndir þú slá sjálfan
þig út af laginu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ástvinir þínir eru óhemjugjafmildir við
þig. Láttu það ekki koma þér úr jafnvægi
heldur auka skilning þinn og styrk.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru bjart í kringum þig og þú
hefur í nógu að snúast. Vinir þínir geta
reynst þér hjálplegir þessa dagana.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu ekki ýmsa smámuni vefjast svo
fyrir þér að þú getir ekki sinnt því sem máli
skiptir. Taktu þér tak og viðurkenndu stað-
reyndir með bros á vör.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur reynst þér nauðsyn-
legt að halda sumu fólki í ákveðinni fjarlægð
frá þér. Best er er að hafa allan fyrirvara á
hlutunum og leyfa þeim að sanna sig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft ekki að taka heiðurinn
af því sem þú gerir svo vel, en það væri frá-
bært ef þú gerðir það. Vandinn er bara að
velja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Kannaðu verð og gæði áður en
þú festir kaup á nýjum hlut. Aðalmálið er að
vera með góðum vinum sem hægt er að
deila með sorg og gleði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hömlum er aflétt. Farðu varlega í
það að biðja nána vini eða fjölskyldu um lið-
sinni. Talaðu um þær breytingar sem þú vilt
sjá á kringumstæðum þínum og hvernig þið
getið unnið saman að þeim.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Notaðu tjáningarhæfileika þína til
þess að koma máli þínu til skila. Rétta fram-
koman ásamt nýjustu upplýsingunum geta
fært sigur. Vertu góður við þig.
mig m.a. til að skipuleggja ferðir í
Móseldalinn og Svartaskóg,“ segir
Ása en hún var vinsæll fararstjóri
og átti eftir að fara með Íslendinga
í fjölda ferða víða um heim og einn-
ig taka á móti erlendum gestum á
Íslandi.
Frá lokum 9. áratugarins og
fram að aldamótum tók Ása þátt í
bæjar- og félagsmálum í Hafnar-
firði og lagði einkum áherslu á
Ása kenndi þýsku um árabil við
Flensborgarskólann í Hafnarfirði
og síðar við MR. Árið 1984 bauðst
henni að vinna sem fararstjóri er-
lendis. „Ingólfur Guðbrandsson hjá
Útsýn fékk mig til að hjálpa sér að
opna Þýskaland fyrir íslenskum
ferðamönnum. Á þessum tíma stóðu
Íslendingum einkum til boða sól-
baðsstaðir á borð við Mallorca en
Ingólfur vildi auka úrvalið og fékk
É
g ólst upp á Akranesi
og naut alls þess
frelsis og forréttinda
sem börn höfðu á
þessum tíma, og tók
þátt í öllu æskulýðs-, menningar-
og íþróttastarfi sem völ var á,“ seg-
ir Ása og minnist þess með hlýhug
hvernig hún lék sér um allan bæinn
með hinum börnunum. Ása valdi
góðan dag til að koma í heiminn því
6.7. 1950 var 55 ára afmælisdagur
Ólafs B. Björnssonar afa hennar,
ritstjóra og athafnamanns á Akra-
nesi. „Hann var stórmerkilegur
maður og kom víða við í störfum
sínum, ekki síst í því sem tengdist
ritun sögu Akraness.“
Frá Akranesi lá leiðin í stúdents-
nám í Reykjavík og var Ása í hópi
fyrstu nemenda Menntaskólans við
Hamrahlíð. „En ég var svo bráðlát
að eftir annan bekk í MH eignaðist
ég Valdimar, eldri son minn. Vildi
ég því læra utan skóla í einn vetur
en það var ekki hægt vegna þess
hvað MH var nýr skóli svo ég færði
mig yfir í Menntaskólann í Reykja-
vík og lauk námi þar.“
Ása segir það hafa verið nokkra
áskorun fyrir sig að eignast barn
svona ung en var samt algengara
þá en það er í dag. „Ég var heppin
að eiga að hana frænku mína Sig-
ríði Kristjánsdóttur sem bæði hýsti
mig og hjálpaði mér með barnið,“
segir hún. „Í MR fór ég í stelpu-
bekk og vorum við 22 stúlkurnar í
6C. Við útskrift árið 1969 voru
fjórtán okkar trúlofaðar eða giftar
og áttunda barnið á leiðinni.“
Lok 7. áratugarins var tímabil
mikilla umbreytinga og hápunktur
hippatímabilsins. Ása segist ekki
hafa haft mikinn áhuga á þessari
menningu. „Ég var mjög íhaldssöm,
átti minn kærasta og djammaði
ekki að neinu ráði.“
Ása stundaði nám í þýsku við há-
skólann í Heidelberg og átti seinna
eftir að bæta við sig menntun í Inn-
sbruck í Austurríki. Frá HÍ lauk
hún námi í íslensku og uppeldis- og
kennslufræðum en löngu síðar, eða
árið 1992, lauk hún leiðsögumanns-
prófi og MA-prófi í hagnýtri menn-
ingarmiðlun árið 2008.
ferða-, æskulýðs- og tómstundamál.
Hún kom einnig töluvert að vina-
bæjarsamskiptum Cuxhaven og
Hafnarfjarðar og var starfsmaður
Skátafélagsins Hraunbúa um skeið.
„Í dag er ég formlega hætt að
vinna en tek þó að mér stöku verk-
efni sem leiðsögumaður og farar-
stjóri enda elska ég að vera á ferð-
inni og fátt yndislegra en að kveðja
ánægða túrista eftir góða ferð. Tím-
ann nota ég líka til að fara í golf og
göngur og grúska í mínu eigin lífi.
Er margt sem ég hef fundið ofan í
skúffum og uppi í heilabúi sem
mætti gera meira við.“
Fjölskylda
Ása var gift Svavari E. Haralds-
syni húsasmíðameistara, f. 16.1.
1946, en þau skildu. Foreldrar
Svavars voru Haraldur V. Magn-
ússon vélstjóri, f. 28.7. 1924, d. 26.2.
2009, og Rannveig Jóna Elíasdóttir
kona hans, f. 17.9. 1925, d. 12.3.
1997. Þau bjuggu á Akranesi.
Ása á tvo syni. Sá eldri er Valdi-
mar Svavarsson framkvæmdastjóri,
f. 5.6. 1968. Kona hans er Nanna
Renee Husted viðskiptafræðingur.
Þau eru búsett í Hafnarfirði og eiga
börnin Ásu Kristínu, f. 2002, og Ró-
bert Thor, f. 2004, bæði nemendur í
Flensborg.
Sá yngri er Ólafur Már Svavars-
son ljósmyndari, f. 22.6. 1976. Kona
hans er Freyja Auðunsdóttir ís-
lenskukennari og eru þau búsett í
Hafnarfirði. Börn þeirra eru Birkir,
f. 2003, nemandi í Flensborg,
Andri, f. 2007, og Orri, f. 2011, báð-
ir nemendur í Víðistaðaskóla.
Systkini Ásu eru Indriði Valdi-
marsson, fv. skrifstofustjóri og
prentsmiðjustjóri á Akranesi, f.
22.12. 1948, og Ingveldur Valdi-
marsdóttir, fv. bankaútibússtjóri á
Akranesi, f. 4.2. 1954, d. 11.12.
1991.
Foreldrar Ásu voru Valdimar
Indriðason, f. 9.9. 1925, d. 9.1. 1995,
alþingismaður og framkvæmda-
stjóri Síldar- og fiskmjölsverk-
smiðju Akraness, og kona hans
Ingibjörg Ólafsdóttir húsmóðir, f.
19.7. 1925, d. 19.11. 2017. Þau
bjuggu alla sína tíð á Akranesi.
Ása María Valdimarsdóttir þýskukennari og ferðafrömuður – 70 ára
Auður Ása María með afkomendum sínum. Frá vinstri: Birkir, Ólafur, Orri,
Freyja, Ása Kristín, Ása María, Andri, Nanna, Róbert og Valdimar.
„Ég elska að vera á ferðinni“
Víðförul Ása María að störfum sem fararstjóri í bænum Bled í Slóveníu.
50 ára: Karítas er frá
Reykjavík en býr í
Hafnarfirði. Hún er
leik- og grunnskóla-
kennari að mennt frá
Kennaraháskóla Ís-
lands. Starfaði lengi
vel sem leikskólakenn-
ari bæði í Reykjavík og Hafnarfirði. Starf-
ar í dag sem grunnskólakennari í Hafnar-
firði.
Maki: Trausti Kári Hansson húsasmíða-
meistari, f. 1969.
Börn: Þorgerður Brá Traustadóttir, f.
1995, Kolfinna Álfdís Traustadóttir, f.
1995, og Berglind Rún Traustadóttir, f.
2003.
Foreldrar: Guðmundur Kristinn Ólafsson
f. 1948, járn- og húsasmiður, og Ingibjörg
Sigurðardóttir, f. 1950, afgreiðslu- og
verslunarkona. Þau eru búsett í Grafar-
vogi, Reykjavík.
Karítas Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is