Morgunblaðið - 06.07.2020, Blaðsíða 26
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Tvær vítaspyrnur í uppbótartíma
bundu endahnút á líflega fjórðu um-
ferð Pepsi Max-deildar karla í gær
þegar KA og Breiðablik skildu jöfn,
2:2, á slæmum Akureyrarvelli sem
nú er kenndur við Greifann.
Sigur KA virtist í höfn eftir fyrri
spyrnuna en Blikar fengu vítaspyrnu
í næstu sókn og úr henni jafnaði
Thomas Mikkelsen, 2:2, og gerði sitt
fjórða mark í deildinni í ár. Hann
gerði líka fyrra mark Breiðabliks í
leiknum.
Blikar töpuðu sínum fyrstu stigum
en fara nú með 10 stig í krefjandi
leikjatörn gegn FH, KR og Val. Þar
kemur betur í ljós hvort þeir séu þau
meistaraefni sem margir telja Kópa-
vogsliðið vera í ár.
Völlurinn á Akureyri er mikið í
umræðunni. „Völlurinn er mjög laus í
sér og hann býður ekki upp á fal-
legan fótbolta. Það bætir svo ekki úr
skák að leikmenn virðast eiga erfitt
með að fóta sig á vellinum með til-
heyrandi hættu á meiðslum. Það er
ljóst að Akureyrarbær þarf að að-
stoða KA við að koma vellinum í al-
mennilegt ástand því þetta er ekki
boðlegt,“ skrifaði Baldvin Kári
Magnússon m.a. í grein sinni um leik-
inn á mbl.is.
Brynjar Ingi Bjarnason skoraði
sitt fyrsta mark í efstu deild þegar
hann jafnaði metin fyrir KA um miðj-
an síðari hálfleik.
Guðmundur Steinn Haf-
steinsson skoraði fyrir sitt fimmta fé-
lag í efstu deild þegar hann kom KA í
2:1 úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Hann
hefur áður skorað fyrir Stjörnuna,
Víking Ó., Fram og Val.
Þrír miðverðir með
968 leiki reknir af velli
Allir þrír miðverðir Víkings, Kári
Árnason, Sölvi Geir Ottesen og Hall-
dór Smári Sigurðsson, sem sam-
anlagt hafa leikið 968 deildaleiki á
ferlinum, voru reknir af velli í sögu-
legum leik KR og Víkings á Meist-
aravöllum á laugardaginn, þar sem
KR vann 2:0 með mörkum frá Krist-
jáni Flóka Finnbogasyni og Pablo
Punyed.
Kristján Jónsson skrifaði um
brottvísanirnar þrjár í grein sinni um
leikinn á mbl.is: „Kristján Flóki
komst þá framhjá honum með snyrti-
legri hreyfingu og féll við. Kári setti
höndina út og virtist toga Kristján
niður sem lét sig þó væntanlega
detta því snertingin virtist ekki mikil.
Sölvi Geir henti Stefáni Árna
Geirssyni í jörðina á 78. mínútu og
virtist slá hann í framhaldinu. Sölvi
mótmælti kröftuglega og vildi líklega
meina að Pablo Punyed hefði hrint
sér á Stefán í síðara atvikinu en Pu-
nyed var þar nærri.
Ekki þarf að deila um brottvísun
Halldórs Smára sem tæklaði Kennie
Chopart illa sem fór meiddur af leik-
velli á 82. mínútu.“
Víkingar eru fyrsta liðið í deild-
inni til að missa þrjá menn af velli
með rautt spjald síðan þrír Grindvík-
ingar voru reknir af velli gegn Fram
árið 2008.
Þeir Kári Árnason, Sölvi Geir
Ottesen og Halldór Smári Sigurðs-
son missa allir af heimaleik Víkings
gegn Val á miðvikudagskvöldið.
Ingvar Jónsson markvörður lék
ekki með Víkingi og Arnar Gunn-
laugsson þjálfari liðsins sagði við
Morgunblaðið að hann yrði frá í 2-4
vikur vegna meiðsla á öxl.
Kári Árnason valdi ekki beint
besta leikinn til að ná stórum áfanga
en hann lék á laugardaginn sinn 450.
deildaleik á ferlinum. Hann er aðeins
ellefti íslenski knattspyrnumaðurinn
frá upphafi sem nær þessum leikja-
fjölda. Af þessum leikjum eru 395 er-
lendis og 55 á Íslandi.
Átta marka veisla á Nesinu
Grótta fékk sitt fyrsta stig í mögn-
uðum átta marka leik gegn HK á Sel-
tjarnarnesi sem endaði 4:4 en nýliðar
Gróttu komust í 2:0 og 4:2 og voru
manni færri frá 37. mínútu.
„Gróttumenn spiluðu gríðarlega
vel, áður en vítið og rauða spjaldið
riðlaði leik liðsins. Óttuðust eflaust
margir það versta þegar HK jafnar
snemma í seinni hálfleik en Grótta
gerði einstaklega vel í því að komast
tveimur mörkum yfir á ný, manni
færri. Andleysið hjá HK-ingum var
algjört í kjölfar þess að þeir jafna í
2:2. HK á ekki að fá á sig tvö mörk
manni fleiri gegn Gróttu. Það ber
hinsvegar að hrósa HK sömuleiðis
fyrir að leggja ekki árar í bát og
tvisvar ná að jafna eftir að hafa lent
tveimur mörkum undir,“ skrifaði Jó-
hann Ingi Hafþórsson m.a. í grein
um leikinn á mbl.is.
Ari Sigurpálsson, 17 ára sókn-
armaður, skoraði sitt fyrsta mark í
efstu deild þegar hann jafnaði fyrir
HK gegn Gróttu, 4:4.
Arnþór Ari Atlason skoraði tvö
marka HK og er þar með kominn
með jafnmörg mörk í deildinni í ár og
allt síðasta tímabil.
Pétur Theódór Árnason skoraði
fyrsta mark Gróttu í efstu deild í
leiknum við HK. Hann, Axel Sigurð-
arson og Karl Friðleifur Gunn-
arsson gerðu allir sitt fyrsta mark í
deildinni í leiknum.
Valdimar skorar áfram
Valdimar Þór Ingimundarson
skoraði sitt fjórða mark í fyrstu fjór-
um umferðunum, úr vítaspyrnu, þeg-
ar Fylkir vann Fjölni 2:1 í Grafarvogi
á laugardaginn.
„Fylkismenn voru undir á öllum
sviðum leiksins, fyrstu 25. mín-
úturnar eða svo. Ef ekki hefði verið
fyrir vítaspyrnudóminn á 28. mínútu
er erfitt að sjá fyrir sér hvernig
Árbæingar hefðu annars komið sér
inn í leikinn. Eftir að þeir komust yfir
tóku þeir öll völd á vellinum ef svo má
segja,“ skrifaði Bjarni Helgason m.a.
um leikinn á mbl.is.
Sigurpáll Melberg Pálsson úr
Fjölni skoraði sitt fyrsta mark í
deildinni gegn Fylki, með síðustu
snertingu leiksins.
Daninn Christian Sivebæk og
Ungverjinn Péter Zachán komu inn
á hjá Fjölni og léku sinn fyrsta leik í
deildinni.
Ótrúlegur uppbótar-
tími á Akureyrarvelli
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Tvenna Thomas Mikkelsen sækir að Aroni Degi Birnusyni, markverði KA,
á Akureyri í gær en Mikkelsen gerði bæði mörk Breiðabliks í leiknum.
Tvær vítaspyrnur lokuðu líflegri
helgi í deildinni Blikar fara með 10
stig í stóru prófraunina Vængbrotn-
ir Víkingar gegn Val á miðvikudag
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Vesturbær Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Nikolaj Hansen og Kennie Chopart
í sögulegum leik KR og Víkings þar sem þrír Víkingar voru reknir af velli.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020
Pepsi Max-deild karla
Grótta – HK .............................................. 4:4
Fjölnir – Fylkir......................................... 1:2
KR – Víkingur R....................................... 2:0
KA – Breiðablik ........................................ 2:2
Staðan:
Breiðablik 4 3 1 0 9:3 10
KR 4 3 0 1 5:4 9
Stjarnan 2 2 0 0 6:2 6
ÍA 4 2 0 2 9:6 6
Valur 4 2 0 2 8:5 6
Fylkir 4 2 0 2 5:4 6
FH 3 2 0 1 6:7 6
Víkingur R. 4 1 2 1 5:4 5
HK 4 1 1 2 9:11 4
KA 3 0 2 1 3:5 2
Fjölnir 4 0 1 3 4:10 1
Grótta 4 0 1 3 4:12 1
Lengjudeild karla
Vestri – Grindavík .................................... 2:3
Staðan:
Fram 3 3 0 0 6:1 9
ÍBV 3 3 0 0 6:1 9
Þór 3 3 0 0 7:3 9
Leiknir R. 3 2 1 0 5:2 7
Keflavík 3 2 0 1 10:3 6
Grindavík 3 2 0 1 5:4 6
Leiknir F. 3 1 0 2 4:6 3
Víkingur Ó. 3 1 0 2 2:6 3
Vestri 3 0 1 2 2:5 1
Magni 3 0 0 3 1:6 0
Þróttur R. 3 0 0 3 1:6 0
Afturelding 3 0 0 3 2:8 0
2. deild karla
Fjarðabyggð – Víðir................................. 6:1
Staða efstu liða:
Kórdrengir 3 3 0 0 9:0 9
Haukar 3 3 0 0 8:4 9
Fjarðabyggð 3 2 0 1 11:4 6
Selfoss 3 2 0 1 7:6 6
3. deild karla
Augnablik – Höttur/Huginn.................... 4:3
Einherji – Reynir S .................................. 2:3
Sindri – Elliði ............................................ 2:0
Tindastóll – KFG...................................... 1:3
Staða efstu liða:
Reynir S. 3 3 0 0 8:5 9
KFG 3 2 0 1 10:6 6
KV 3 2 0 1 9:5 6
Ægir 3 2 0 1 7:5 6
Lengjudeild kvenna
Völsungur – Fjölnir.................................. 0:3
Staðan:
Keflavík 3 2 1 0 10:1 7
Tindastóll 3 2 1 0 6:2 7
Haukar 3 1 2 0 5:3 5
Grótta 3 1 2 0 2:1 5
Afturelding 3 1 1 1 2:2 4
ÍA 3 0 3 0 4:4 3
Fjölnir 3 1 0 2 3:3 3
Víkingur R. 3 0 1 2 2:6 1
Augnablik 2 0 1 1 1:6 1
Völsungur 2 0 0 2 0:7 0
2. deild kvenna
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir – HK........ 0:4
Staða efstu liða:
HK 3 3 0 0 10:0 9
Álftanes 2 2 0 0 5:2 6
Hamrarnir 3 2 0 1 6:5 6
FHL 3 2 0 1 8:9 6
England
Burnley – Sheffield United ..................... 1:1
Norwich – Brighton ................................. 0:1
Leicester – Crystal Palace ...................... 3:0
Manchester Utd – Bournemouth............ 5:2
Wolves – Arsenal...................................... 0:2
Chelsea – Watford.................................... 3:0
Newcastle – West Ham ........................... 2:2
Liverpool – Aston Villa ............................ 2:0
Southampton – Manchester City............ 1:0
Staðan:
Liverpool 33 29 2 2 72:25 89
Manch.City 33 21 3 9 81:34 66
Leicester 33 17 7 9 63:31 58
Chelsea 33 17 6 10 60:44 57
Manch.Utd 33 15 10 8 56:33 55
Wolves 33 13 13 7 45:36 52
Arsenal 33 12 13 8 49:41 49
Sheffield Utd 33 12 12 9 34:33 48
Burnley 33 13 7 13 37:46 46
Tottenham 32 12 9 11 51:44 45
Everton 32 12 8 12 40:47 44
Newcastle 33 11 10 12 35:45 43
Southampton 33 13 4 16 42:55 43
Crystal Palace 33 11 9 13 28:40 42
Brighton 33 8 12 13 35:44 36
West Ham 33 8 7 18 40:58 31
Watford 33 6 10 17 29:52 28
Aston Villa 33 7 6 20 36:62 27
Bournemouth 33 7 6 20 32:59 27
Norwich 33 5 6 22 25:61 21
Grikkland
OFI Krít – PAOK ..................................... 2:2
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK sem er í öðru sæti, 20 stigum á
eftir Olympiacos sem er orðið meistari.
Danmörk
Nordsjælland – Midtjylland ................... 0:1
Mikael Anderson lék allan leikinn með
Midtjylland.
AaB – Bröndby......................................... 2:0
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
AGF – FC Köbenhavn ............................. 1:0
Jón Dagur Þorsteinsson lék í 65 mínútur
með AGF og Ragnar Sigurðsson allan leik-
inn með FC Köbenhavn.
GRÓTTA – HK 4:4
1:0 Pétur Theódór Árnason 2.
2:0 Axel Sigurðarson 17.
2:1 Atli Arnarson 38.(víti)
2:2 Arnþór Ari Atlason 49.
3:2 Ástbjörn Þórðarson 62.
4:2 Karl Friðleifur Gunnarsson 65.
4:3 Arnþór Ari Atlason 75.
4:4 Ari Sigurpálsson 83.
MM
Axel Sigurðarson (Gróttu)
M
Pétur Theódór Árnason (Gróttu)
Kristófer Orri Pétursson (Gróttu)
Ástbjörn Þórðarson (Gróttu)
Óliver Dagur Thorlacius (Gróttu)
Karl Friðleifur Gunnarsson (Gróttu)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Atli Arnarson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Rautt spjald: Patrik Orri Pétursson
(Gróttu) 37.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 6.
Áhorfendur: Um 800.
FJÖLNIR – FYLKIR 1:2
0:1 Valdimar Ingimundarson 29. (víti)
0:2 Hákon Ingi Jónsson 53.
1:2 Sigurpáll Melberg Pálsson 90.
MM
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
M
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Valdimar Þór Ingimundarson (Fylki)
Grétar Snær Gunnarsson (Fjölni)
Arnór Breki Ásþórsson (Fjölni)
Jón Gísli Ström (Fjölni)
Örvar Eggertsson (Fjölni)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 6.
Áhorfendur: Um 400.
KR – VÍKINGUR R. 2:0
1:0 Kristján Flóki Finnbogason 58.
2:0 Pablo Punyed 87.
M
Beitir Ólafsson (KR)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Pablo Punyed (KR)
Kristján Flóki Finnbogason (KR)
Þórður Ingason (Víkingi)
Ágúst Hlynsson (Víkingi)
Rautt spjald: Kári Árnason (Víkingi) 27.,
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi) 77., Halldór
Smári Sigurðsson (Víkingi) 85.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 7.
Áhorfendur: Um 1.000.
KA – BREIÐABLIK 2:2
0:1 Thomas Mikkelsen 45.
1:1 Brynjar Ingi Bjarnason 67.
2:1 Guðm.Steinn Hafsteinsson 90.(víti)
2:2 Thomas Mikkelsen 90. (víti)
M
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Rodrigo Gómez (KA)
Bjarni Aðalsteinsson (KA)
Almarr Ormarsson (KA)
Thomas Mikkelsen (Breiðabliki)
Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki)
Kwame Quee (Breiðabliki)
Anton Ari Einarsson (Breiðabliki)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7.
Áhorfendur: 815.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.