Morgunblaðið - 06.07.2020, Side 28

Morgunblaðið - 06.07.2020, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Hlutleysi sem róttækni Í upphafi stefna Birtingsmenn riti sínu gegn íhaldssamri list- stofnun og listskilningi sem öðrum þræði á rætur í þjóðernispólitísk- um hugmyndum sjálfstæðisbarátt- unnar. En tímaritinu er enn frem- ur stefnt gegn pólitískri mettun menningarumræðunnar, þar sem listamenn eru dæmdir á (flokks) pólitískum forsendum og sú krafa er hávær að listamenn verði að taka afstöðu. Í fyrstu yfirlýsingum þeirra um ritið – og í því sjálfu – er pólitísk rót- tækni því ekki efst á blaði, að minnsta kosti ekki í hefð- bundnum skiln- ingi. Þó að það hljómi þver- stæðukennt má segja að pólitísk róttækni Birt- ingsmanna komi ekki síst fram í andpólitískri viðleitni þeirra. Birtingsmenn leggja mikla áherslu á að ritið sé ekki flokks- pólitískt og jafnvel ópólitískt; að það eigi „fyrst og fremst að vera vettvangur fyrir rökræður um menningarmál án stjórnmálal[egs] tillits – það er algjörlega óháð öll- um stjórnmálasamtökum“ eins og Thor segir í endursögn sinni á ræðu sem hann hélt á blaða- mannafundi 4. febrúar 1955 þar sem Birtingur var kynntur til sög- unnar. Birtingsmenn áttu oft eftir að þurfa að verja þessa afstöðu sína. Nokkrum dögum eftir að fyrsta heftið kom út birtist til að mynda nafnlaus grein í Vísi með fyrirsögninni „Ósvífin auglýsing kommúnista í útvarpinu“ þar sem deilt er hart á Björn Th. Björns- son fyrir að hafa í listamannaþætti sínum í útvarpinu kvöldið áður auglýst „tímarit eitt, sem telur sig fjalla um listir og kommúnistar standa að“. Thor svarar með at- hugasemd í Vísi tveimur dögum seinna, kveðst ekki vilja álykta að blaðamaðurinn hafi aldrei séð ritið sem hann skrifaði um en neyðast til að efast um lesgreind hans því að „fremst í ritinu sé ávarp eða stefnuyfirlýsing frá útgefendum þess þar sem upplýst er að það sé óháð öllum stjórnmálasamtökum“ enda ætli hann að þess sjái víða stað í ritinu. Þykir honum blaða- maðurinn „örveitull á heitið „kommúnisti“ af misjöfnu tilefni“ en hann ætli ekki að ræða stjórn- málaskoðanir þeirra sem standi að Birtingi, það væri flókið mál enda séu honum þær miskunnar, fyrir utan að þær komi „málinu bók- staflega ekkert við“. Fyrir neðan athugasemd Thors eru birt við- brögð ritstjóra Vísis þar sem segir – fyrst í ertnislegum tón – að fara verði varlega í að kenna menn við kommúnisma eða kalla þá komm- únista vegna þess að með því sé gengið allnærri æru manns: „En engu að síður getur það ekki talizt ósennilegt að aðstandendur fram- anskráðs tímarits séu í ákaflega nánum tengslum við kommúnista, svo að ekki sé fastar að orði kveð- ið, og mjög líklegt, að komm- únistar þjappi sér fast saman um þessa útgáfustarfsemi.“ 82 Viðbrögð Vísis voru ekki eins- dæmi líkt og áður kom fram. Í raun var ekki tekið mark á yfirlýs- ingu Birtingsmanna um að rit þeirra væri óháð pólitískum öflum. Vafalítið hefur hún þótt óþarfur útúrsnúningur eða til marks um hortugheit í útgefendunum. Kannski er ritstjóri Vísis að vísa til þess að fyrsta heftið er prentað í Prentsmiðju Þjóðviljans. Og satt að segja stangast þessi yfirlýsing á við ýmislegt sem Birtingsmenn höfðu látið frá sér fara. Einar Bragi var harður vinstrimaður, hafði verið blaðamaður við Þjóð- viljann og viðriðinn Landnemann og Frjálsa þjóð. Jón Óskar hafði einnig látið til sín taka í pólitískri umræðu, meðal annars ort bar- áttuljóð gegn veru hersins, en var efasemdamaður, að eigin sögn. Thor var af borgaralegum ættum og hafði ekki haft sig mikið í frammi á pólitískum vettvangi en þó birt skáldskap í Tímariti Máls og menningar. Hann var kannski, ásamt Herði, óræðasta stærðin í stjórnmálalegu tilliti. Hörður átti aftur á móti eftir að hafa talsverð hugmyndafræðileg áhrif með skrifum sínum um byggingarlist og skipulagsmál þar sem hann boðaði nýja sýn á samfélagið í anda Bauhaus (sjá kafla 6.2). Birtingsmönnum var hins vegar full alvara með yfirlýsingu sinni um pólitískt „hlutleysi“. Öðrum þræði kemur hún til vegna þess að ráðist hafði verið að módernískum skáldskap bæði úr herbúðum vinstri og hægri manna. Í „Ávarp- inu“ segir að „línutrúir flokkspálar og pétrar haf[i] sent geira sína af engu minni heift og fákænsku að þeim [ungu brautryðjendunum] heldur en aurasjúkir íhaldsmenn“ (1/1955, 1). Deilurnar voru því ekki flokks- pólitískar – að minnsta kosti ekki í huga Birtingsmanna – heldur um- fram allt listpólitískar. En með því að segja Birting óháðan stjórn- málasamtökum sköpuðu ritstjór- arnir sér einnig sterkari vígstöðu á menningarvettvanginum, ekki hvað síst gegn Tímariti Máls og menningar sem var orðið afar voldugt. Það sést best á því að borgaraleg öfl sáu sér ekki annað fært en að bregðast við veldi þess. Þetta sama ár er Almenna bóka- félagið stofnað með Bjarna Bene- diktsson, þáverandi menntamála- ráðherra Sjálfstæðisflokksins, í fararbroddi. Í fyrsta tölublaði Fé- lagsbréfa Almenna bókafélagsins, sem hófu göngu sína þetta ár, seg- ir að félagið hafi það hlutverk að sameina skáld sem „aðhyllast lýðræðislega og frjálslynda stefnu í menningarmálum og þjóð- málum“. Almenna bókafélaginu er beinlínis stefnt gegn veldi Máls og menningar og gegn aðfluttum kenningum, eins og það er orðað, „þess efnis, að á fyrstu árum vís- indalegra rannsókna hafi fundist algild lögmál í þjóðfélagsfræðum“ svo sem Bjarni segir í „Ávarps- orðum“ fyrsta heftis Félagsbréf- anna. Hann talar um „einokun og stöðvun sannleiksleitarinnar“. Þetta sama ár hefur tímaritið Stefnir göngu sína í breyttri mynd í ritstjórn Matthíasar Johannessen (f. 1930), Gunnars G. Schram (1931-2004) og Þorsteins Thor- arensen (1926-2006), sem allir voru blaðamenn á Morgunblaðinu á þessum tíma, en á það má líta sem nokkurs konar svar við Birt- ingi. Um var að ræða tímarit gefið út af Sambandi ungra sjálfstæð- ismanna, sem kom fyrst út 1950, og hafði þá undirtitilinn Tímarit sjálfstæðismanna. Nú fékk það undirtitilinn Tímarit um stjórnmál og bókmenntir en fékk seinna meðal annarra undirtitilinn Tíma- rit hægri manna um þjóðmál og menningarmál. Í raun hljóp enn meiri kraftur í baráttuna um vald- ið á vettvangi fagurfræðilegrar og hugmyndalegrar umræðu með þessum útspilum menntamanna á hægrivæng stjórnmálanna. Óhætt er að kalla það róttæka afstöðu hjá Birtingsmönnum að lýsa yfir eins konar hlutleysi í þessu pólitíska andrúmslofti. Þeir leitast við að staðsetja sig á mær- unum, fella girðingarnar og skapa rými þar sem hin hefðbundnu átök milli hægri og vinstri eru merk- ingarlaus, óþörf. Með því að hafna forsendum ríkjandi orðræðu um listir og menningu ráðast þeir að rótum valdakerfisins, aflanna sem höfðu þegar hér var komið sögu barist um forræðið yfir íslenskri menningu um árabil og áttu eftir að gera um nokkurt skeið. Þeir vilja vera óræð pólitísk stærð. Sjálfstæði þeirra er þó ekki mjög afgerandi, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Jón Óskar segir frá því að Birtingsmönnum hafi boðist að Ragnar í Smára kostaði útgáfu tímaritsins og það kæmi út á veg- um Helgafellsútgáfunnar en þeir hafnað því: „Við kusum heldur að brjótast áfram af sjálfsdáðum og vera alfrjálsir.“ Í dagbók Thors 27. september 1954 er greint frá því að leitað hafi verið til Ragnars um stuðning við ritið þegar í upp- hafi og niðurstaðan hafi verið að hann ætlaði „að kosta eitt experí- ment með eitt hefti“. Rúmu ári seinna, tíunda október 1955, er á hinn bóginn að finna þessa færslu án frekari skýringa: „Ógurlega er Ísland leiðinlegt land, er það ekki. Mikið voðalegir dilettantar eru hér ráðendur á svonefndu menningar- sviði. […] Ragnar í Smára ætlar að fara laglega með okkur í Birt- ingi. Hann sveik loforðið sem hann gaf mér á laugard[aginn] um að gefa skipun um að taka Birting til prentunar.“ Ragnar var stuðnings- maður hinna borgaralegu afla þótt erfitt sé að setja pólitískan stimpil á menningarstarf hans í heild sinni. Birtingsmenn voru aftur á móti einnig í nokkrum tengslum við Þjóðviljann, málgagn sósíalista. Öll hefti fyrstu þriggja áranna eru prentuð í prentsmiðju Þjóðviljans nema 2. hefti 1955 sem er prentað í Víkingsprenti, að öllum líkindum á kostnað Ragnars í Smára. Að auki eru fyrstu misserin birtar í Þjóðviljanum tilkynningar um sölustaði og verð tímaritsins. Í fyrrnefndri áskrifendaherferð árið 1957 var enn fremur hátt í tugur auglýsinga um Birting í Þjóðvilj- anum – einum blaða, eftir því sem næst verður komist. Birtingsmenn voru hópur valda- lítilla manna innan íslensku vinstrihreyfingarinnar eða í tengslum við hana. Uppreisn þeirra beinist einna helst gegn menningarlegu forræði Máls og menningar. Þeir finna sig í raun knúna til þess að slíta sig frá ráð- andi öflum í íslensku menningar- lífi, sem höfðu haldið þeim í skefj- um, til þess að vinna fagurfræði sinni brautargengi. Deilurnar við Hannes Sigfússon, sem vitnað var til hér að framan, vitna um að ekki voru allir tilbúnir til þess að fara þessa leið, hvort sem ástæð- urnar voru fagurfræðilegar, hugmyndafræðilegar eða af öðrum toga. Sigfús Daðason er annað dæmi og einnig Matthías Johann- essen. Báðir gerðu þeir sína fagur- fræðilegu uppreisn innan menn- ingarstofnana vinstri- og hægri- manna, hinn fyrrnefndi í Máli og menningu og hinn síðarnefndi á Morgunblaðinu og að hluta til í Stefni. Tengsl Birtingsmanna við vax- andi menningarveldi vinstrimanna árin fyrir stofnun Birtings voru mismikil og með ólíkum hætti. Af- ar forvitnilegt er að lesa frásögn Jóns Óskars af tilraunum sínum til þess að semja sig að skoðunum og skáldskaparfræðilegum viðmiðum þessarar stofnunar, bæði með því að breyta smásögu þannig að hún yrði „innlegg í baráttuna“ og með því að yrkja í hefðbundnu formi, þvert gegn eigin sannfæringu og smekk, til þess að fá skáldskap sinn birtan hjá Kristni E. Andr- éssyni í Tímariti Máls og menn- ingar. Þegar kemur fram á sjötta áratuginn verður Jóni og fleirum æ ljósara að íhaldssöm viðhorf ráði of miklu um stefnu Máls og menningar og því verði að leita annarra leiða til þess að upprenn- andi straumar geti fundið sér far- veg í menningarlandslaginu. Tengsl hópsins við Mál og menn- ingu eru þó aldrei alveg rofin. Jón Óskar, Thor, Jóhann og Björn Th. skrifa allir í tímarit útgáfufélags- ins á meðan þeir starfa fyrir Birt- ing. Jón Óskar er gefinn út hjá Heimskringlu og Thor lofar ítrek- að menningarstarf Kristins E. Andréssonar í pistlum sínum, meðal annars í fyrsta hefti Birt- ings (1/1955, 21-22). Og Birtings- menn komu víðar við. Verk þeirra allra eru gefin út hjá Helgafelli, útgáfufyrirtæki Ragnars í Smára. Skáldsaga Björns Th. Björns- sonar, Virkisvetur, er gefin út hjá Menningarsjóði 1958. Um skeið heldur Einar Bragi áfram að skrifa í Þjóðviljann, einkum rit- dóma. Að þessu leyti, sem svo mörgu öðru, voru Birtingsmenn mótsagnakenndir – eða kannski séðir og raunsæir. Tilvísunum er sleppt. Tímaritið Birtingur og íslenskur módernismi Bókarkafli | Tímaritið Birtingur, sem kom út á árunum 1955-1968, gegndi lykilhlutverki við að innleiða módernisma í íslenskar bókmenntir og listsköpun. Í bókinni Opna svæðið rekur Þröstur Helgason sögu tímaritsins og þeirra átaka, pólitískra og listpólitískra, sem spruttu af því. Mynd úr einkasafni Unu Margrétar Jónsdóttur Módernistar Kjarnahópur Birtingsmanna, Einar Bragi, Hörður Ágústsson, Thor Vilhjálmsson og Jón Óskar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.