Morgunblaðið - 06.07.2020, Page 32
PURUSNAKK
Lág
kolvetna
Post-dreifing, hópur ungra listamanna, hefur tekið yfir
Klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Þau hafa komið sér fyrir
í Iðnó og munu sjá gestum fyrir fjölbreyttri dagskrá til
12. júlí. Hópurinn hefur hugsað sér að „breyta Iðnó í
sannkallaða miðstöð grasrótarinnar“. Á morgun,
þriðjudag, kl. 12 verða tvær vinnustofur í boði RASK
collective; Hljóðganga – röltæfing, með Þorsteini Ey-
fjörð Þórarinssyni, og Raftónlist fyrir byrjendur og vini í
umsjón Idu Juhl. Fyrirlesturinn Um myndlist, femínisma
og skipulag með Guðrúnu Erlu Geirsdóttur hefst kl. 15.
Post-dreifing tekur yfir Klúbb
Listahátíðar í Reykjavík í Iðnó
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 188. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Breiðablik tapaði sínum fyrstu stigum í Pepsi Max-
deild karla í fótbolta þegar sögulegri fjórðu umferð
lauk með jafntefli liðsins gegn KA á Akureyri í gær.
Bæði lið skoruðu úr vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins
sem endaði 2:2. Þrír Víkingar voru reknir af velli í 2:0-
ósigri gegn KR, Grótta og HK gerðu jafntefli í mögn-
uðum átta marka leik og Fylkir lagði Fjölni að velli í
Grafarvogi. »26
Blikar töpuðu fyrstu stigum eftir
tvær vítaspyrnur í uppbótartíma
ÍÞRÓTTIR MENNING
Líf og fjör var á N1-mótinu í knatt-
spyrnu sem fram fór á Akureyri nú
um helgina. Alls voru 212 lið skráð
til leiks eða rétt um tvö þúsund
strákar. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í
mótinu. Að sögn Ágústs Stefáns-
sonar, sem situr í mótsstjórn, ríkti
almenn ánægja með hvernig til
tókst.
„Þetta gekk mjög vel og ég man
varla eftir að við höfum verið eins
heppin með veður og nú. Það var
glampandi sól alla dagana,“ segir
Ágúst. Spurður hvernig hafi gengið
að fylgja sóttvarnareglum segir
hann að línurnar hafi verið lagðar
fyrsta daginn.
„Það voru einhverjir sem fóru
ekki eftir fyrirmælum, en við settum
skýrar reglur eftir fyrsta daginn og
frá þeim tíma gekk þetta mjög vel.“
aronthordur@mbl.is
Ljósmyndir/Þórir Tryggvason
Fjör Leikmenn Breiðabliks voru kampakátir um helgina. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í mótinu, eða um tvö þúsund.
Mikið fjör fyrir norðan
Almenn ánægja með N1-mótið sem fram fór á Akureyri
Barátta Tekist var á meðan á leikjum mótsins stóð. Ekkert var gefið eftir.
Hvíld Stund milli stríða hjá leikmönnum Fram og HK. Þétt var spilað á mótinu í ár til að takmarka samgang liða.