Morgunblaðið - 08.07.2020, Side 6
FRÉTTASKÝRING
Sighvatur Bjarnason
sighvaturb@mbl.is
Það er af sem áður var þegar flug-
leiðir í Íslandsflugi skiptu tugum og
flogið var á hvert horn. Nú eru fáar
leiðir taldar nægilega arðbærar án
beinnar niðurgreiðslu úr ríkissjóði.
Í síðastliðnum mánuði var opnað
tvískipt útboð Vegagerðarinnar í
áætlunarflugi innanlands. Annars
vegar voru boðnar út flugleiðirnar á
Bíldudal/Gjögur og hins vegar á
Höfn í Hornafirði.
Útboðið miðar að því að tryggja
samgöngur í lofti og lágmarksfjölda
ferða. Heildarkostnaðaráætlun
hljómar uppá rúma 1,2 milljarða
króna, en þrjú flugfélög buðu í verk-
in, Flugfélag Austurlands, Flug-
félagið Ernir og Norlandair.
Tilbúnir að stækka hratt
Athygli vekur að Flugfélag Aust-
urlands (FA) bauð langlægst í verk-
ið eða 60% af heildarkostnaðar-
áætlun. Félagið er ungt að árum,
fékk starfsleyfi í apríl í fyrra og hef-
ur eina fjögurra sæta vél til umráða.
Aðspurður um hið lága tilboð segir
Kári Kárason, framkvæmdastóri
FA: „Við fórum út í þetta á okkar
forsendum og þetta er niðurstaðan.“
Hann segir félagið tilbúið til að
stækka hratt og hafi tilbúna samn-
inga um kaup eða leigu á viðeigandi
flugvélakosti og þjálfun áhafna.
Flugfélagið Ernir (FE), sem á sér
50 ára sögu, hefur haldið uppi þjón-
ustu á umrædda staði frá árinu 2007.
Tilboð þess var um 5% yfir kostn-
aðaráætlun, en næstlægst á flugleið-
ina til Hafnar. Forstjóri félagsins,
Hörður Guðmundsson, segir að fé-
lagið hafi byggt upp sitt leiðarkerfi á
síðustu 13 árum, með lítilli framlegð.
Hann segir félagið hafa alla innviði
og reynslu til að halda þjónustunni
áfram, en bendir jafnframt á að erf-
itt geti verið að ná endum saman í
slíkum rekstri nema til komi stærra
leiðarkerfi til fullnýtingar á flug-
vélum og mannafla.
Norlandair, sem einnig stendur á
gömlum merg, bauð 4% yfir heild-
arverði en næstlægst í flugleiðina
Bíldudal/Gjögur. Félagið þjónustar
nú ríkisstyrktar leiðir á Vopnafjörð
og Grímsey, en meginstarfsemi þess
er á austurströnd Grænlands. Í sam-
tali segist framkvæmdastjórinn,
Friðrik Adólfsson, ekki skilja hvern-
ig hægt er að „bjóða svo langt undir
kostnaðaráætlun“. Hann segir félag-
ið eiga þann vélarkost og mannskap
sem til þarf í byrjun, en hafi í hyggju
að bæta við flugvélaflotann og horfi
þar til samlegðaráhrifa við aðra
starfsemi, t.d. flug til Constable
Point á Grænlandi.
Deildar meiningar
Útboðið gerir ákveðnar kröfur um
lágmarkstíðni ferða til áfangastaða.
Gert er ráð fyrir því að í öllum til-
vikum séu notaðar skrúfuþotur bún-
ar jafnþrýstibúnaði, sem að lág-
marki geti rúmað 15 farþega á
leiðinni til Hafnar og Bíldudals (að
sumri) eða níu farþega til Gjögurs og
Bíldudals (að vetri). Ákveðnar kröf-
ur eru gerðar til reynslu flugrek-
anda m.a. að hafa minnst tveggja ára
marktæka reynslu af flugrekstri við
vetraraðstæður á norðurslóðum og
þriggja ára reynslu af svæðisaðflugi
(RNAV). Viðmælendur blaðsins
hafa látið í ljós efasemdir um hæfi
FA í því samhengi, en Kári segir að
frekari eftirgrennslan hafi leitt í ljós
að vísað sé til reynslu flugmannanna
sjálfra, sem hann segir að verði
tryggð.
Útboðið gerir ráð fyrir því að nýr
samningstími hefjist í byrjun nóv-
ember þessa árs. Um aðdraganda
útboðsins lýsir Hörður því að núver-
andi samningur hafi verið laus í vor.
Vegagerðin hafi sent út svokallaða
„verðkönnun“ til að brúa bilið en
verðkönnun FE hafi verið birt með
útboðsgögnum. Þannig hafi allir haft
aðgang að upplýsingum félagsins,
sem skýri mögulega þann litla verð-
mun sem er á milli þeirra tveggja
sem hærra buðu. „Þetta tel ég vera
brot á jafnræðisreglum,“ segir
Hörður og telur hann þetta geta haft
áhrif á lögmæti útboðsins.
Hvað sem öðru líður vinnur tím-
inn ekki með hinum unga flugrek-
anda. Innleiðing nýrrar flugvélateg-
undar getur verið langt og flókið
ferli sem auðveldlega getur tafist.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Útboð Vegagerðin hefur opnað tilboð í flug frá Reykavík til Bíldudals, Gjögurs og Hafnar í Hornafirði. Á myndinni aðstoðar flugmaður Ernis farþega um borð.
Fáar flugleiðir arðbærar
án niðurgreiðslu ríkisins
Útboð á flugi til Bíldudals, Gjögurs og Hafnar Mikill munur milli tilboða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Innanlandsflug Margir landsmenn leggja traust sitt á öruggar flug-
samgöngur við höfuðborgina, sem Reykjavíkurflugvöllur sinnir.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með áralanga reynslu
að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum tölvum til að lesa
og bilanagreina bílinn þinn
Sérhæfð þjónusta fyrir
544 5151tímapantanir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Runólfur Oddsson, ræðismaður Ís-
lands í Slóvakíu og umboðsmaður
Jessenius-læknaskólans, segir þrjú
inntökupróf munu fara fram á næstu
vikum vegna náms ytra.
Í fyrsta lagi vegna náms í tann-
lækningum og læknisfræði við Pal-
acký-háskóla í Olomouc í Tékklandi.
Umsóknarfrestur sé til 13. júlí en
netpróf fari fram 20. júlí.
Í öðru lagi vegna náms við Jess-
enius-læknaskólann í borginni Mart-
in í Slóvakíu. Umsóknarfrestur sé til
17. júlí en netpróf fari fram 15. ágúst.
Um 160 Íslendingar eru við nám í
Jessenius-læknaskólanum og um 10 í
læknadeild SDU-
háskóla í Dan-
mörku sem tóku
fyrstu þrjú árin í
Jessenius-lækna-
skólanum. Skól-
inn er deild innan
Comenius-há-
skóla, helsta há-
skóla Slóvakíu.
Í þriðja lagi
fari fram inntöku-
próf í dýralæknaskólann í Košice í
Slóvakíu. Umsóknarfrestur sé til 14.
ágúst og fari netpróf fram 21. ágúst.
„Þetta eru viðurkenndir og mjög
góðir skólar. Alls 19 Íslendingar
voru í dýralæknanámi í Košice
síðastliðinn vetur. Þá voru rúmlega
160 Íslendingar í Jessenius-lækna-
skólanum og þrír í tannlæknaskól-
anum við Palacký-háskóla. Það er
mjög góður tannlæknaskóli.
Stutt á milli skólanna
Skólagjöld eru hófleg í þessum
skólum. Það búa orðið margir Ís-
lendingar á þessum slóðum en það er
ekki langt á milli þessara skóla. T.d.
eru 184 kílómetrar á milli Palacký-
háskóla og Jessenius-læknaskólans
og beinar lestarferðir á milli.“
Runólfur segir námið ytra skapa
góð atvinnutækifæri. Þótt Háskóli
Íslands hafi fjölgað sætum í lækna-
deildinni sé það hvergi nærri nóg. Þá
sé það dýrmæt lífsreynsla að nema í
góðum háskólum og búa erlendis.
Inntökuprófin á netinu
Hægt að þreyta inntökupróf um nám í læknisfræði, tann-
lækningum og dýralækningum við skóla í Austur-Evrópu
Runólfur
Oddsson
„Hin seinni ár hafa menn oft byrjað
um þetta leyti. Þetta eru fljót-
sprottnar premier-kartöflur sem við
ræktum undir plasti,“ segir Hjalti
Egilsson, kartöflubóndi á Seljavöll-
um í Hornafirði. Hann tók í gær upp
fyrstu kartöflurnar til að senda á
markað á höfuðborgarsvæðinu.
Hann tók upp þrjú tonn þennan
fyrsta dag. „Við tókum aðeins upp
fyrir heimamarkað í síðustu viku en
erum nú að byrja að taka upp fyrir
þéttbýlið. Við sendum það til
Reykjavíkur á morgun [í dag] og því
verður dreift í verslanir á fimmtu-
dag,“ segir Hjalti. Hann reiknar
með að geta tekið upp gullauga
seinnihluta næstu viku.
Hjalti segir að aðstæður til kart-
öfluræktar hafi verið ágætar það
sem af er sumri. Maí og júní hafi
komið nokkuð vel út, verið hlýtt og
rigning eins og eftir pöntun. Veit
hann ekki annað en að staðan sé
svipuð hjá öðrum kartöflurækt-
endum og von geti verið á send-
ingum af kartöflum á markaðinn víð-
ar að á næstu dögum.
Uppskeruhorfur eru góðar en af
fenginni reynslu þykir Hjalta viss-
ara að fagna ekki uppskeru fyrr en
hún er komin í hús. helgi@mbl.is
Ljósmynd/Halldóra Hjaltadóttir
Uppskera Hjalti Egilsson með
kartöfluuppskeru dagsins.
Fyrstu
kartöflur
á markað
Vinnuslys varð í umdæmi lögregl-
unnar á Suðurnesjum í fyrradag
þegar vinnupallur gaf sig og tveir
menn féllu á jörðina. Um var að
ræða 3,5 metra fall. Annar þeirra
fékk högg á höfuðið og var fluttur
með sjúkrabifreið á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja. Hinn slapp án
meiðsla, samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni.
Vinnupall-
ur gaf sig