Morgunblaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 28
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hugsað upphátt heitir ný bók eftir
Guðrúnu Egilson, blaðamann, fram-
haldsskólakennara og rithöfund.
Bókin geymir 34 pistla Guðrúnar
sem hefur stundað pistlaskrif í 40 ár.
Langflesta þeirra skrifaði Guðrún í
fyrra og svo eru nokkrir eldri sem
eru óháðir stað og stund. Pistlarnir
fjalla ýmist um samtímamálefni eða
minningabrot og sögur frá fyrri tíð.
Þeir eru auðveldir og skemmtilegir
aflestrar, að mati undirritaðs.
„Ég er búin að vera að þessu
meira og minna nær alla tíð,“ sagði
Guðrún um pistlaskrifin. Þau tengd-
ust fyrst störfum hennar sem blaða-
maður. „Ég byrjaði á Vikunni hjá
Gísla Sigurðssyni. Svo fór ég á Tím-
ann til Indriða G. Þorsteinssonar.
Þótt ég hætti í blaðamennsku var ég
alltaf viðloðandi hana og hélt pistla-
skrifum áfram.“ Fyrrnefndur Gísli
Sigurðsson, sem þá var orðinn um-
sjónarmaður Lesbókar Morgun-
blaðsins, bað Guðrúnu að skrifa
Rabb í Lesbókina árið 1980. Það
voru vikulegir pistlar eftir ýmsa höf-
unda. „Þetta þótti mér gríðarlegur
heiður því þarna voru fyrir á fleti
stórhöfðingjar eins og Sigurður A.
Magnússon, Svava Jakobsdóttir og
fleiri. Ég vandaði mig alveg óskap-
lega mikið,“ sagði Guðrún. Hún
skrifaði pistla í Lesbókina og síðar
Sunnudagsblað Morgunblaðsins til
ársins 2018. Guðrún fékk mikil við-
brögð frá lesendum og var oft spurð
hvort ekki væri von á fleiri pistlum.
Mótandi áhrif blaðamennsku
Guðrún var gift Birni Jóhanns-
syni, fréttastjóra og fulltrúa rit-
stjóra á Morgunblaðinu. Hann lést
árið 2003. Guðrún kvaðst stundum
hafa sagt að það væri ekki pláss fyr-
ir tvo blaðamenn á einu heimili og
því hefði hún starfað við kennslu og
haft mikla unun af henni. Björn heit-
inn sagði oft að Guðrún væri blaða-
maður af Guðs náð. Hún segir að
blaðamennskan hafi mótað sig og
kennt sér að vera opin og næm á um-
hverfið. Hugmyndirnar að pistl-
unum hafa því oft komið eins og af
sjálfu sér.
Guðrún hefur alltaf haft gaman af
að tjá sig og hafa pistlarnir reynst
góður farvegur til þess. Hún verður
75 ára í sumar og fannst það gott til-
efni til að koma nýjustu pistlunum á
prent. Jakob F. Ásgeirson, bóka-
útgefandi í Uglu útgáfu ehf., tók vel í
þá hugmynd að gefa út nýtt pistla-
safn. En ætlar hún að halda pistla-
skrifunum áfram?
„Nú ætla ég að verða 75 ára og að-
eins að spá í spilin og reyna kannski
að finna annað form fyrir skrifin,“
sagði Guðrún.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Pistlahöfundur Guðrún Egilson starfaði sem blaðamaður á árum áður og það var kveikjan að pistlaskrifunum.
Hefur hugsað upphátt
í pistlum sínum í 40 ár
Ný bók Guðrúnar Egilson Hugmyndir að pistlunum
koma oft eins og af sjálfu sér Pistlar eru góður farvegur
Kristjana Stefánsdóttir söngkona og Svavar Knútur,
söngvari og gítarleikari, eru í árlegri tónleikaferð sinni
um landið. Yfirskrift ferðalagsins er „Með faðmlög í far-
teskinu“ og eru næstu tónleikar í Gránu á Sauðárkróki í
kvöld kl. 20, annað kvöld, fimmtudagskvöld, í Gamla
Bauk á Húsavík kl. 21 og á föstudagskvöldið kemur í Te-
húsinu á Egilsstöðum og hefjast þeir tónleikar einnig
kl. 21. Á tónleikunum vilja þau „bæta fyrir þyngsl vor-
mánaðanna sem skriðu hjá í móki samkomubanns með
húmor og hlýju, krúttlegum kvöldsöngvum, angur-
værum Abbalögum og sígildum söngperlum“.
Kristjana og Svavar Knútur á ferð
um landið og lofa húmor og hlýju
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson mun ganga til
liðs við gríska knattspyrnufélagið Olympiacos þegar
yfirstandandi tímabili lýkur í grísku úrvalsdeildinni en
Grikklandsmeistararnir borguðu rúmlega 440.000 evr-
ur fyrir leikmanninn sem samsvarar tæplega 70 millj-
ónum íslenskra króna.
Ögmundur, sem er 31 árs gamall, skrifaði undir
þriggja ára samning við Olympiacos en félagið er sigur-
sælasta lið Grikklands frá upphafi og hefur unnið 45
meistaratitla og 27 bikarmeistaratitla. »23
Ögmundur Kristinsson samdi til
þriggja ára við grísku meistarana
ÍÞRÓTTIR MENNING