Morgunblaðið - 08.07.2020, Side 8

Morgunblaðið - 08.07.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020 Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóriMorgunblaðsins, bendir á að samtöl hafi átt sér stað um næstu ríkisstjórn sem eigi að vera vinstri- stjórn. Hefur hann Kjarnann fyrir sér:    Miðað við þær upplýsingar semfram koma í umfjöllun Kjarn- ans má telja líklegt að undirbúningur að myndun vinstri- stjórnar sé þegar hafinn með aðild Samfylkingar, Við- reisnar og Pírata og að hugmyndir séu um aðild VG að slíkri ríkisstjórn, sem jafnvel mundi sitja undir forsæti Katrínar Jak- obsdóttur.    Fyrirmyndin væri samstarf þess-ara flokka í borgarstjórn Reykjavíkur enda kallar Kjarninn slíka hugsanleg stjórn „Reykjavík- urstjórn“. Þótt Viðreisn verði varla skilgreind sem vinstriflokkur er hins vegar ljóst að sameiginlegt markmið Viðreisnar og Samfylk- ingar er aðild Íslands að Evrópu- sambandinu.    Þess vegna eru meiri líkur enminni á því, að slík ríkisstjórn mundi endurvekja aðildarumsókn Íslands að ESB, sem aldrei hefur verið afturkölluð með formlegum hætti. Allt eru þetta vangaveltur enn sem komið er, sem hins vegar kalla á að núverandi stjórnar- flokkar, sem allir hafa andstöðu við aðild að ESB á stefnuskrá sinni, hafi sig nú í það verk að afturkalla um- sóknina með formlegum hætti. Það mundi alla vega gera málið flóknara fyrir aðildarsinnaða ríkisstjórn.“    Rétt er hjá Styrmi að þetta eruvangaveltur. En Þórður Kjarn- ans er innanbúðarmaður og „t.......t fyrir Dodda“ telst 10 í einkunn hjá VG. Styrmir Gunnarsson Spáð innanbúðar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Plokk- og Grænfánadagur Vinnu- skóla Kópavogs fór fram í gær, með formlegri setningarathöfn í Hörðuvallaskóla. Þar mættu ung- lingar úr Kórnum auk starfsmanna Vinnuskólans, Sigurlaugar Arn- ardóttur, fulltrúa Landverndar, og Margrétar Friðriksdóttur, for- manns bæjarstjórnar Kópavogs, sem setti daginn. Tæplega 900 nemendur og starfsmenn á vegum Vinnuskóla Kópavogs voru á ferðinni í gær. Þetta er í fjórða sinn sem Vinnu- skóli Kópavogs skipuleggur hreins- unardag og var dagurinn haldinn í samvinnu við Vinnuskóla Hafnar- fjarðar. Vinnuskólinn hvatti alla Kópa- vogsbúa til að taka þátt í að hreinsa bæinn og fjarlægja allt plast í görð- um, sem og annars staðar í um- hverfinu. Hægt var að hringja í Vinnuskólann og tilkynna staðsetn- ingu afrakstur dagsins, sem var þá hirtur upp af starfsmönnum. Plokkað í Kópavogi  900 nemendur og starfsmenn Vinnu- skóla Kópavogs að störfum í gær Morgunblaðið/Eggert Kópavogur Nemendur Vinnuskóla Kópavogs að störfum í gær. Héraðsdómur Reykjaness hefur með tilkynningu í Lögbirtinga- blaðinu kallað fyrir dóminn tvo rík- isborgara Litháen vegna þess sem kallað er stórfelldur þjófnaður á reyktóbaki úr Fríhafnarversluninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fram kemur í ákæru lögreglu- stjórans á Suðurnesjum að fjórir Litháar hafi á tímabilinu 22. október 2017 til 31. desember 2018 í alls 8 skipti keypt sér flugmiða, innritað sig í flug, farið í Fríhafnarverslan- irnar, þar sem þeir tóku mörg karton af sígarettum ófrjálsri hendi en yfir- gáfu flugstöðina svo án þess að fara um borð í loftförin. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Í málinu liggur fyrir einkaréttarkrafa Fríhafnarinnar ehf. um að ákærðu verði dæmdir til greiðslu skaðabóta, samtals að fjárhæð krónur 13.266.000. Málin verða tekin fyrir í héraðs- dómi 8. september 2020. Í tilkynn- ingunni eru ákærðu kvaddir til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki ákærðu ekki þing megi þeir bú- ast við því að fjarvist verði metin til jafns við það að þeir viðurkenni að hafa framið brot það sem ákært er fyrir og dómur verði lagður á málið að þeim fjarstöddum . sisi@mbl.is Tóbaksþjófar kallaðir fyrir dóm  Keyptu flugmiða en fóru aldrei um borð  Fríhöfnin krefst 13,2 milljóna króna Morgunblaðið/Sigurgeir S. Fríhöfnin Þjófarnir stungu inn á sig sígarettum en slepptu áfenginu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.