Morgunblaðið - 08.07.2020, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2020
1. DEILD
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
ÍBV og Fram eru enn með fullt
hús stiga í Lengjudeild karla í fót-
bolta eftir sigra í fjórðu umferð-
inni í gær. ÍBV hafði betur gegn
Leikni Reykjavík á útivelli, 4:2.
Gary Martin tryggði ÍBV sigurinn
með tveimur mörkum á síðustu
ellefu mínútunum, en það fyrra
átti ekki að standa þar sem hann
skoraði það með hendinni. Dóm-
arateymið missti hins vegar af at-
vikinu og er Martin markahæstur
í deildinni með fimm mörk, en
hann hefur alls skorað 24 mörk í
29 leikjum í 1. deild hér á landi.
Leiknismenn eru með sjö stig í
fjórða sæti. Sólon Breki Leifsson
gerði bæði mörk Breiðhyltinga er
hann jafnaði í tvígang eftir að ÍBV
hafði komist yfir með mörkum Jo-
nathans Glenns og Óskars Elíasar
Zoëga Óskarssonar. Var mark
Óskars það fyrsta sem hann gerir
í deildinni með ÍBV og markið hjá
Glenn það fyrsta í 1. deild, en
framherjinn hefur skorað 32 mörk
í 82 leikjum í efstu deild.
Fram gerði góða ferð til Ólafs-
víkur og vann þar 2:1-sigur á Vík-
ingi. Hefur Víkingur farið upp í
efstu deild og leikið þar í tvö tíma-
bil og fallið aftur síðan Fram lék
síðast í efstu deild. Framarar líta
hins vegar vel út í ár undir stjórn
Jóns Sveinssonar, sem lék 312
leiki fyrir félagið á sínum tíma.
Már Ægisson skoraði sitt fyrsta
mark í sumar er hann kom Fram
yfir og Brasilíumaðurinn Fred
gerði sitt fimmta mark í öllum
keppnum er hann tvöfaldaði for-
skotið. Spánverjinn Gonzalo Za-
morano skoraði einnig sitt fimmta
mark í sumar í öllum keppnum er
hann minnkaði muninn í 2:1. Voru
Ólsarar mun sterkari það sem eft-
ir lifði seinni hálfleiks en Fram-
arar fögnuðu þremur stigum. Vík-
ingar eru með þrjú stig eftir
aðeins einn sigur í fyrstu fjórum
umferðunum. Þór Akureyri getur
jafnað Fram og ÍBV að stigum
með sigri á Vestra í kvöld.
Fyrirliðinn skoraði fjögur
Afturelding vann sinn fyrsta
sigur í sumar er liðið fékk Magna
í heimsókn í Mosfellsbæinn. Voru
heimamenn í stuði því þeir skor-
uðu sjö mörk gegn engu. Fyrirlið-
inn Andri Freyr Jónasson hafði
ekki skorað í deildinni í sumar
fyrir leikinn, en hann gerði sér lít-
ið fyrir og skoraði fjögur mörk.
Skoraði Andri átta deildarmörk á
síðustu leiktíð og 21 mark í 18
leikjum í 2. deildinni sumarið
2018. Jason Daði Svanþórsson,
Eyþór Aron Wöhler og Ragnar
Már Lárusson komust einnig á
blað hjá Mosfellingum. Magna-
menn hafa verið í miklu basli til
þessa í sumar og enn ekki náð í
stig. Þá hefur liðið aðeins skorað
eitt mark og fengið á sig 13.
Fram og
ÍBV áfram á
sigurbraut
Á toppnum með fullt hús stiga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldlínan Gary Martin og Brynjar Hlöðversson eigast við í Breiðholti í gær.
Chelsea er komið upp í þriðja sæti
ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta
eftir 3:2-útisigur á Crystal Palace í
gær. Leicester, sem hefur verið í
þriðja sæti stærstan hluta tímabils-
ins, er fallið niður í fjórða sæti eftir
1:1-jafntefli við Arsenal.
Crystal Palace lét Chelsea hafa
fyrir hlutunum á Selhurst Park
þrátt fyrir að Oliver Giroud og
Christian Pulisic kæmu Chelsea í
2:0 eftir tæpan hálftíma. Wilfried
Zaha minnkaði muninn fyrir Palace
áður en Tammy Abraham kom
Chelsea aftur tveimur mörkum
yfir. Christian Benteke minnkaði
muninn fyrir heimamenn og þar við
sat. Framherjinn ungi Eddie Nke-
tiah vill væntanlega gleyma leik
Arsenal og Leicester sem fyrst en
hann kom inn á sem varamaður í
stöðunni 1:0 á 71. mínútu. Fjórum
mínútum síðar var hann kominn
með rautt spjald og á 84. mínútu
var Leicester búið að jafna og 1:1
urðu lokatölur. Þá er Norwich tíu
stigum frá öruggu sæti eftir tap
fyrir Watford, 1:2.
Chelsea upp í þriðja sætið
með naumum sigri í London
AFP
Skotskór Christian Pulisic var á skotskónum á Selhurst Park í gærkvöld.
Lengjudeild kvenna
ÍA – Völsungur ......................................... 4:0
Víkingur R. – Grótta ................................ 1:3
Tindastóll – Augnablik............................. 1:0
Fjölnir – Keflavík ..................................... 0:4
Staðan:
Keflavík 4 3 1 0 14:1 10
Tindastóll 4 3 1 0 7:2 10
Haukar 4 2 2 0 7:4 8
Grótta 4 2 2 0 5:2 8
ÍA 4 1 3 0 8:4 6
Afturelding 4 1 1 2 3:4 4
Fjölnir 4 1 0 3 3:7 3
Víkingur R. 4 0 1 3 3:9 1
Augnablik 3 0 1 2 1:7 1
Völsungur 3 0 0 3 0:11 0
Lengjudeild karla
Afturelding – Magni................................. 7:0
Leiknir R. – ÍBV....................................... 2:4
Víkingur Ó. – Fram.................................. 1:2
Staðan:
ÍBV 4 4 0 0 10:3 12
Fram 4 4 0 0 8:2 12
Þór 3 3 0 0 7:3 9
Leiknir R. 4 2 1 1 7:6 7
Keflavík 3 2 0 1 10:3 6
Grindavík 3 2 0 1 5:4 6
Afturelding 4 1 0 3 9:8 3
Leiknir F. 3 1 0 2 4:6 3
Víkingur Ó. 4 1 0 3 3:8 3
Vestri 3 0 1 2 2:5 1
Þróttur R. 3 0 0 3 1:6 0
Magni 4 0 0 4 1:13 0
2. deild karla
Haukar – Selfoss ...................................... 1:2
Völsungur – Fjarðabyggð ....................... 2:2
Dalvík/Reynir – KF ................................. 2:4
Víðir – ÍR................................................... 0:3
Njarðvík – Þróttur V................................ 0:1
Kári – Kórdrengir .................................... 0:0
Staðan:
Kórdrengir 4 3 1 0 9:0 10
Haukar 4 3 0 1 9:6 9
Selfoss 4 3 0 1 9:7 9
Fjarðabyggð 4 2 1 1 13:6 7
KF 4 2 0 2 7:6 6
ÍR 4 2 0 2 8:8 6
Njarðvík 4 2 0 2 5:6 6
Þróttur V. 4 1 2 1 4:4 5
Dalvík/Reynir 4 1 1 2 7:11 4
Víðir 4 1 0 3 2:12 3
Kári 4 0 2 2 6:8 2
Völsungur 4 0 1 3 6:11 1
3. deild karla
Vængir Júpíters – Augnablik.................. 0:0
Staðan:
Reynir S. 3 3 0 0 8:5 9
KFG 3 2 0 1 10:6 6
KV 3 2 0 1 9:5 6
Ægir 3 2 0 1 7:5 6
Álftanes 3 1 2 0 3:2 5
Augnablik 4 1 2 1 6:6 5
Elliði 3 1 1 1 6:3 4
Tindastóll 3 1 1 1 5:6 4
Sindri 3 1 1 1 4:5 4
Höttur/Huginn 3 0 1 2 5:7 1
Einherji 3 0 1 2 5:11 1
Vængir Júpiters 4 0 1 3 2:9 1
England
Crystal Palace – Chelsea ......................... 2:3
Watford – Norwich................................... 2:1
Arsenal – Leicester .................................. 1:1
Staðan:
Liverpool 33 29 2 2 72:25 89
Manch.City 33 21 3 9 81:34 66
Chelsea 34 18 6 10 63:46 60
Leicester 34 17 8 9 64:32 59
Manch.Utd 33 15 10 8 56:33 55
Wolves 33 13 13 7 45:36 52
Arsenal 34 12 14 8 50:42 50
Tottenham 33 13 9 11 52:44 48
Sheffield Utd 33 12 12 9 34:33 48
Burnley 33 13 7 13 37:46 46
Everton 33 12 8 13 40:48 44
Newcastle 33 11 10 12 35:45 43
Southampton 33 13 4 16 42:55 43
Crystal Palace 34 11 9 14 30:43 42
Brighton 33 8 12 13 35:44 36
West Ham 33 8 7 18 40:58 31
Watford 34 7 10 17 31:53 31
Aston Villa 33 7 6 20 36:62 27
Bournemouth 33 7 6 20 32:59 27
Norwich 34 5 6 23 26:63 21
B-deild:
Nottingham Forest – Fulham................. 0:1
Brentford – Charlton ............................... 2:1
Luton – Barnsley...................................... 1:1
Reading – Huddersfield .......................... 0:0
Cardiff – Blackburn ................................. 2:3
Staða efstu liða:
Leeds 41 23 9 9 63:34 78
WBA 41 21 14 6 71:40 77
Brentford 42 22 9 11 75:34 75
Fulham 42 21 10 11 56:44 73
Nottingham F. 42 18 14 10 54:42 68
Cardiff 41 16 16 9 58:51 64
Derby 41 16 13 12 56:53 61
Swansea 41 15 15 11 52:48 60
Millwall 41 14 17 10 48:44 59
Preston 41 16 10 15 52:50 58
Ítalía
Lecce – Lazio ............................................ 2:1
AC Milan – Juventus................................ 4:2
Staða efstu liða:
Juventus 31 24 3 4 63:30 75
Lazio 31 21 5 5 67:33 68
Inter Mílanó 30 19 7 4 63:31 64
Atalanta 30 19 6 5 83:39 63
AC Milan 31 14 7 10 43:39 49
Roma 30 14 6 10 54:42 48
1. DEILD
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Keflavík virðist ekki ætla að stoppa
lengi við í 1. deild kvenna í knatt-
spyrnu, Lengjudeildinni, en liðið
vann öruggan 4:0-sigur gegn Fjölni
í 4. umferð deildarinnar á Extra-
vellinum í Grafarvogi í gær.
Dröfn Einarsdóttir gerði sér lítið
fyrir og skoraði þrennu fyrir Kefla-
vík í leiknum en staðan að loknum
fyrri hálfleik var 3:0, Keflvíkingum
í vil.
Natasha Anasi skoraði fyrsta
mark leiksins áður en Dröfn bætti
við þremur mörkum til viðbótar en
Keflavík féll úr efstu deild síðasta
haust og stefnir hraðbyri á endur-
komu í úrvaldeildinni.
Liðið er með 10 stig í efsta sæti
deildarinnar eftir fyrstu fjórar um-
ferðirnar og markatöluna 14:1.
Tindastóll fylgir fast á hæla
Keflavíkur en Hugrún Pálsdóttir
reyndist hetja Sauðkrækinga þegar
liðið fékk Augnablik í heimsókn á
Sauðárkróksvöll.
Hugrún skoraði sigurmark leiks-
ins á 21. mínútu en Augnablik var
án þriggja leikmanna sem voru í
sóttkví vegna kórónuveirusmits í
liði Breiðabliks. Augnablik er vara-
lið Breiðabliks.
Tindastóll jafnaði Keflavík að
stigum á toppi deilarinnar en Sauð-
krækingar hafa skorað sjö mörk í
sumar og fengið á sig tvö.
Þá eru nýliðar Gróttu komnir
upp í fjórða sæti deildarinnar eftir
afar sterkan 3:1-sigur gegn Víkingi
á Víkingsvelli í Fossvogi.
Helga Rakel Fjalarsdóttir, María
Lovísa Jónasdóttir og Emelía Ósk-
arsdóttir skoruðu mörk Gróttu, lið-
ið er með átta stig í fjórða sætinu.
Skagastúlkur unnu sinn fyrsta
leik í deildinni í sumar þegar botn-
lið Völsungs kom í heimsókn á
Norðurálsvöllinn á Akranesi.
Leiknum lauk með 4:0-sigri ÍA
en þær Jaclyn Poucel, Erla Karítas
Jóhannsdóttir, Unnur Ýr Haralds-
dóttir og Fríða Halldórsdóttir skor-
uðu mörk ÍA í leiknum, sem er
með sex stig í fimmta sæti deild-
arinnar.
Keflavík og Tindastóll á toppnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tækling Víkingskonan Nadía Atladóttir hoppar upp úr tæklingu í gær.
Nýliðar Gróttu
í fjórða sætið
Fyrsti sigur ÍA