Morgunblaðið - 13.07.2020, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
©2019 Disney/Pixar
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð
á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson,
sem komið hefur út í íslenskri þýðingu.
EXTENDED EDITION EXTENDED EDITION
Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI
Sýnd með
íslensku tali
Í TILEFNI AF 40 ÁRA AFMÆLI
ÞESSI STÓRKOSTLEGA MYND SÝND Í ÖRFÁA DAGA.90% Variety
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Ný plata tónlistarmannsins Rúnars
Þórissonar byggir á þeirri ógleym-
anlegri reynslu hans að hafa farið í
hjartastopp eftir sjósund í Nauthóls-
vík og verið í dái í á annan sólarhring.
Hún ber titilinn Ferjumaðurinn.
Rúnar segir frá því að hann hafi
byrjað að vinna að nýrri plötu árið
2016 og verið langt kominn með hana
þegar hinn örlagaríki 18. nóvember
2019 rann upp. Hann var þá búinn að
semja um helminginn af textunum á
plötuna.
„Eitt lagið fjallaði um orðræðuna á
vefmiðlunum, þar sem við látum allt
flakka án ábyrgðar. Í öðrum texta
fjallaði ég um andlega vanlíðan þeirra
sem eiga við sálar- og geðvanda að
stríða. Um það hvernig manneskjan
þarf að takast á við ýmis verkefni í
sínu hversdagslega lífi og hvernig
veröldin mætir henni oft svo köld og
tóm. Maðurinn getur verið svo einn í
þessari veröld. Þá er gott að eiga góð-
an vin. Í það minnsta er víst að geð-
heilbrigðiskerfið á Íslandi er ekki
nándar nærri gott í að takast á við
vandann og þung og sársaukafull eru
skref þeirra sem þurfa að leita sér að-
stoðar eða þurfa á eftirfylgni að
halda.“
Enn annar lagatextinn fjallaði um
umhverfis- og loftslagsmál, það
hvernig við komum fram við jörðina.
„Um græðgi okkar sem lifum í dag og
hvernig það að vilja hrifsa allt til sín í
eigin tilvist yfirgnæfir algjörlega um-
hyggju og tillit til komandi kynslóða.
Hver og einn verður að spyrja sig,
„Hvað get ég gert?““ Tónlistar-
maðurinn var sem sagt með hugann
við ýmis mikilvæg málefni í texta-
gerðinni þegar hér kemur við sögu.
Stjörnuspáin vakti athygli
Rúnar hefur stundað sjósund frá
árinu 2016 og segir allt hafa gengið
mjög vel þar til í nóvember í fyrra.
Hann hefur meðal annars synt frá
Kársnesi yfir í Nauthólsvík.
„18. nóvember síðastliðinn syndi ég
í um það bil tíu mínútur. Sjórinn var
um þrjár gráður.“ Rúnar hefur
reynslu af því að synda í sjónum þeg-
ar hann hefur verið rétt undir frost-
marki. „Svo ég hefði átt að þola þetta
að öllu jöfnu.“ Þegar upp úr sjónum
var komið hneig Rúnar hins vegar
niður og fór í hjartastopp.
Rúnar segist ekki trúa mikið á
stjörnuspá en stjörnuspáin þennan
dag hefur þó vakið athygli hans.
Þar segir: ,,Eitthvað alveg óvænt
gerist, kannski ekki endilega jákvætt
í fyrstu en verður þó til þess að þú
munt standa á óvæntum tímamótum.
Ný og spennandi tækifæri gefast og
þú gleðst yfir góðum fréttum. Happa-
dagur 18. nóvember.“
Hann segist, hálfkíminn, hafa verið
rosalega heppinn þennan dag. „Ég
var dáinn í að minnsta kosti eina mín-
útu. Margir hafa spurt mig hvernig
hafi verið þarna hinum megin.“
Þrátt fyrir að Rúnar eigi auðvelt
með að segja frá þessu í gaman-
sömum tón var þetta auðvitað erfið
lífsreynsla. „Þetta var mikið áfall fyr-
ir alla í kringum mig. Ég var svo
kaldur. Líkamshitinn var kominn nið-
ur í 31 gráðu svo það þurfti að hífa
mig upp í 34 gráður. Ég var í dái í
kringum 35 klukkustundir.“
Ævinlega þakklátur
Rúnar náði sér þó vel á strik og
hann bætir því við að hann sé fólkinu
sem statt var í Nauthólsvík þennan
dag ævinlega þakklátur. Auk tveggja
vina hans sem syntu með honum
nefnir hann bresk hjón sem af til-
viljun voru stödd í pottinum. „Maður-
inn er sérstaklega menntaður í að
taka á svona verkefnum og starfar við
það að fara á staði þar sem fólk lendir
í óvæntum slysum. Konan hans er
líka hjúkrunarkona. Það hjálpaði mér
rosalega að þau væru stödd þarna.“
Rúnar hefur haldið sambandi við
þau síðan. „Ég hef fengið sendar
myndir af fjölskyldunni og er í sam-
bandi við þau.“
Hann nefnir einnig að hann sé
óendanlega þakklátur starfsfólkinu í
Nauthólsvík, sem er þjálfað í að tak-
ast á við aðstæður sem þessar.
„Ég hef tekið þessu létt og er
hress, bjartsýnn og glaður og get
fagnað því að ekkert er að hjartanu
né æðakerfinu, það var bara kælingin
sem fór með mig þessa leið. En auð-
vitað var líka erfitt að ganga í gegn-
um þetta. Sárast í þessu var að horfa
á fólkið sitt á þessum tíma og vita af
því að því liði ekki vel, að vita af tár-
um þeirra sem elska og óttast það að
missa. Það er versta upplifunin en
það grær eins og annað.“
Við þessa lífsreynslu segir Rúnar
alla textagerð hafa tekið algjöra kú-
vendingu. „Allt snerist um þetta í
textagerðinni.“ Textar um loftslags-
mál, geðheilbrigði og orðræðu á net-
inu fengu að víkja fyrir vangaveltum
um mörk lífs og dauða og frásögnum
af þessari reynslu. „Titill plötunnar,
Ferjumaðurinn, vísar í gríska goða-
fræði, í ferjumanninn sem flutti látna
yfir fljótið Akkeron í undirheimana.
Af einhverjum ástæðum sneri hann
til baka með mig og ég er gífurlega
þakklátur fyrir það.“
Melankólían aldrei langt undan
Konseptið er mér mjög mikilvægt í
textum og þarna fékk ég bara kons-
ept upp í hendurnar. Í textagerð hef
ég verið mikið að pæla í verund fólks,
hvernig við lifum og tengjumst.“ Með
tónlistinni vill hann brúa bilið á milli
kynslóða, vakta strauma í tíma og
rúmi. „Þá hefur melankólían aldrei
verið langt undan.“
Rúnar hafði gefið út fjórar sóló-
plötur áður en Ferjumaðurinn kom
út. „Ég held það sé ákveðinn þráður í
gegnum þær allar, bæði músíklega og
textalega.“ Hann gaf árið 2015 út
plötuna Ólundardýr. Ég vann hana
þannig að ég gerði eitt lag á mánuði í
næstum heilt ár. Þá varð ég að klára
texta, lag og útsetja og taka upp fyrir
hvern og einn mánuð og gaf lagið svo
út á vefnum. Það var mikil áskorun.
Ég var eins og undin tuska eftir það
og bjóst ekki við að ég myndi fara í
þessa plötu strax. Ég ætlaði mér að
fara í allt öðruvísi tónlist, útsetja fyrir
strengi og vinna í rólegri tónlist. En
svo varð þetta ofan á og ég byrjaði
bara strax að semja.“
Rúnar hefur fengið ýmsa færa tón-
listarmenn til liðs við sig við gerð
plötunnar. „Ég nýt þess rosalega að
hafa gott fólk í kringum mig í músík-
inni.“ Arnar Þór Gíslason spilar á
trommur, Guðni Finnsson á bassa og
Tómas Jónsson á hljómborð. Sjálfur
sér Rúnar um söng og gítar- og
hljómborðsleik. „Svo hafa dætur
mínar, Lára og Margrét, sungið og
raddað með mér. Það er alveg ynd-
islegt. Gæti ekki verið betra.“
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Lifandi „Titill plötunnar vísar í gríska goðafræði, í ferjumanninn sem flutti látna yfir fljótið Akkeron í undirheim-
ana,“ segir Rúnar, sem er þakklátur ferjumanninum fyrir að hafa snúið við með sig í átt til lífs eftir hjartastopp.
Sneri aftur eftir ferð til handanheima
Rúnar Þórisson hefur gefið út plötuna Ferjumaðurinn Tónlistarmaðurinn fór í hjartastopp í
fyrra og byggja textarnir á þeirri lífsreynslu Óendanlega þakklátur þeim sem voru á slysstað