Morgunblaðið - 13.07.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.isljósmyndastofa
BRÚÐKAUPS MYNDIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tveir kafbátar; þýskur og norskur,
voru í Sundahöfn í Reykjavík í gær
vegna eftirlitsæfingarinnar Dyna-
mic Mongoose 2020 sem fór fram
við Íslandsstrendur og lauk á föstu-
dag. Kafbátarnir héldu utan eftir
hádegi í gær.
Auk Íslands tóku sex ríki Atlants-
hafsbandalagsins þátt í æfingunni;
Bandaríkin, Bretland, Frakkland,
Kanada, Noregur og Þýskaland.
Kosturinn sem þau lögðu til voru
fimm kafbátar og fimm kafbáta-
leitarflugvélar. Æfingar sem þess-
ar hafa verið haldnar árlega við
Noregsstrendur undanfarin ár,
utan árið 2017 þegar hún var við Ís-
land. Þá komu nokkrir kafbátar inn
í Reykjavíkurhöfn, rétt eins og nú.
Ákveðið hefur verið að framvegis
verði æfingarnar til skiptis hjá
Norðmönnum og Íslendingum, sem
leggja til aðstöðu á öryggissvæði á
Keflavíkurflugvelli. Þá blandast
Landhelgisgæslan í leikinn, m.a.
með því að áhafnir varðskipa og
þyrlna taka þátt í þeim hluta
æfingarinnar sem tengist hefð-
bundnum verkefnum Gæslunnar til
sjós og lands. sbs@mbl.is
Hinni viðamiklu Natóæfingu Dynamic Mongoose 2020 er nú lokið
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Tveir kaf-
bátar í
Sundahöfn
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Von er á skýrslu heilbrigðisráðherra
um dánaraðstoð þegar þing kemur
saman í september.
Þetta segir Bryndís Haraldsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, en hún
flutti þingsályktunartillögu á 149.
löggjafarþingi árið 2018 sem varð að
skýrslubeiðni til heilbrigðisráðherra.
Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins
lýsti Ingvi Hrafn Jónsson fjölmiðla-
maður reynslu bróður síns, sem þáði
dánaraðstoð í Kanada, og óskaði eftir
lögleiðingu hennar hér á landi.
Að sögn Bryndísar hefur Alþingi í
tvígang samþykkt skýrslubeiðnina,
bæði á síðasta löggjafarþingi og yfir-
standandi löggjafarþingi.
„Mér finnst þetta snúast um frelsi
einstaklingsins, fyrst og fremst. Ég
held að þessi ákvörðun eigi alltaf
heima hjá einstaklingnum sjálfum,“
segir Bryndís.
Hyggst biðja aftur um skýrslu
Skili heilbrigðisráðherra engri
skýrslu hyggst Bryndís leggja beiðn-
ina fram í þriðja sinn í haust.
„Ég vona að það þurfi ekki að
koma til þess, og að skýrslan berist á
þessu þingi,“ segir Bryndís.
Með beiðninni er ráðherra krafinn
upplýsinga um dánaraðstoð, svo sem
könnunar á viðhorfum heilbrigðis-
starfsmanna til dánaraðstoðar, þró-
unar lagaramma þar sem hún er
leyfð og reynslu af dánaraðstoð, svo
fátt eitt sé talið.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, vísaði til umsagnar embætt-
isins um málið frá árinu 2018, þegar
Morgunblaðið óskaði eftir afstöðu
kirkjuyfirvalda til málsins. Þar vakti
biskup athygli á því að til þessa hefði
verið litið svo á hér á landi að „það að
taka líf manns eða að flýta fyrir
dauða manns sé glæpsamlegt at-
hæfi“ og lífið sé gjöf sem mannfólk-
inu beri að varðveita en ekki taka
burt.
Engu að síður tók biskup undir
þörf fyrir umræðu um málefni er
varða lífslok og taldi gagnlegt fyrir
samfélagið að heiðarleg umræða
þess efnis ætti sér stað.
Í umsögn landlæknis frá því í mars
2019 um þingsályktunartillögu sem
lögð var fram árið 2018 taldi land-
læknir að hvetja þyrfti til umræðu
um hvaða meðferð væri einstakling-
um æskileg og ætti að standa til boða
við lok lífs, sem vera ætti „undanfari
umræðu um svo umdeilt mál sem
dánaraðstoð er“.
Þá benti embættið á að tími stjórn-
valda til að sinna lögbundnum verk-
efnum væri takmarkaður og var því
velt upp hvort málið væri nógu brýnt
í samanburði við önnur heilbrigðis-
mál sem eru á hendi heilbrigðisráð-
herra.
Vænta skýrslu um dánaraðstoð
Skýrsla ráðherra um dánaraðstoð væntanleg Alþingi óskaði tvisvar eftir skýrslu Biskup telur
umræðuna þarfa en segir að líf beri að varðveita Landlæknir segir tíma stjórnvalda takmarkaðan
Morgunblaðið/Ásdís
Aðstoð Umræðan er talin mikilvæg.
Til ryskinga kom að Varmalandi í Borgarfirði aðfara-
nótt sunnudags, þar sem fjöldi ungmenna var saman
kominn. Á svæðið sótti ungt fólk úr nemendafélögum
Flensborgarskóla í Hafnarfirði og Fjölbrautaskólans í
Garðabæ. Fólk annars staðar frá bar einnig að og á
tjaldsvæði sem ungmennin höfðu voru um 200 saman
komin þegar mest var. Áliðið var kvölds þegar slagsmál
brutust út en ekki er ljóst á milli hverra þau voru eða af
hvaða orsökum. Lögregla kom á vettvang og skakkaði
leikinn og ró var komin á svæðið fljótlega eftir mið-
nætti.
„Skemmtanamenning íslenskra ungmenna er ekki
alltaf til sóma, sérstaklega þegar áfengi er í spilinu.
Mistökin í þessu máli voru kannski helst þau að hleypa
tveimur stórum hópum inn á svæðið á sama tíma. Þetta
er reynsla sem við munum læra af,“ segir Njáll Hall-
dórsson, tjaldvörður í Varmalandi, í samtali við
Morgunblaðið. sbs@mbl.is
Ölvun og slagsmál á tjald-
svæði í Borgarfirðinum
Stórir ungmennahópar voru til vandræða á Varmalandi
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Varmaland Tjaldsvæðið er fjölsótt. Lögregla skakkaði
leikinn þegar mál fóru úr böndum vegna ölvunar.
Á 148. löggjafarþingi árið 2018
samþykkti Alþingi þingsálykt-
unartillögu Bryndísar um dánar-
aðstoð. Meðflutningsmenn voru
sjö talsins, frá Pírötum, Vinstri
grænum, Framsóknarflokknum
og Samfylkingunni. Málið gekk
til velferðarnefndar, þar sem
óskað var eftir umsögnum ým-
issa hagaðila, en var lagt fram
aftur á næsta þingi í formi
skýrslubeiðni.
Flutningsmenn
fimm flokka
FERILL MÁLSINS