Morgunblaðið - 31.07.2020, Side 13

Morgunblaðið - 31.07.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana. Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Donald Trump Bandaríkjaforseti velti því upp á Twittersíðu sinni í gær hvort fresta ætti forsetakosn- ingunum, sem fara eiga fram 3. nóvember næst- komandi, þar til Bandaríkjamenn gætu kosið á „al- mennan og öruggan“ hátt. Sagði Trump að ef gripið yrði til póstkosninga byði það hættunni heim á stórfelldasta kosningasvindli sögunnar, sem yrði þjóðarskömm fyrir Bandaríkin. Samkvæmt stjórnarskrá Banda- ríkjanna er kjörtímabil forsetans bundið við 20. janúar, og kjördag- urinn sjálfur er ákveðinn með lög- um. Það myndi því þýða aðkomu Bandaríkjaþings, ef hnika ætti kjör- deginum til. Leiðtogar repúblikana á Bandaríkjaþingi tóku hins vegar dræmt í hugmyndir Trumps um að fresta kosningunum. Mitch McConnell, leiðtogi repú- blikana í öldungadeildinni, benti á að alríkiskosningar í Bandaríkjunum hefðu alltaf farið fram á settum tíma, meira að segja í borgarastríði Bandaríkjanna. „Við munum finna leið til þess að halda kosningarnar 3. nóvember.“ sgs@mbl.is Velti upp frestun kosninga Donald Trump  Dræmar undir- tektir repúblikana Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Jóakim Danaprins, yngsti sonur Margrétar Þórhildar Danadrottn- ingar, er af hálfu hirðarinnar sagður munu að öllum líkindum ná sér til fulls af blóðtappa í heila sem fjar- lægður var með skurðaðgerð síðast- liðinn föstudag. Jóakim gekkst undir aðgerðina á háskólasjúkrahúsinu í borginni Tou- louse í suðvestanverðu Frakklandi á föstudag, en skammt þaðan hefur hann dvalið í sumarleyfi ásamt konu og börnum á óðali í eigu fjölskyld- unnar, Cayx-kastala. Prinsinn er 51 árs og sá sjötti í röðinni að ríkis- erfðum í Danmörku. Hann veiktist fyrir helgi og var fluttur í skyndingu á spítala, þar sem hann gekkst undir bráða að- gerð vegna meinsins. „Eftir legu prinsins á sjúkrahúsi síðustu daga og meðhöndlun á gjör- gæsludeild er það mat lækna að blóðtappinn muni ekki hafa frekari líkamleg einkenni eða önnur veik- indi í för með sér fyrir Jóakim prins,“ sagði í yfirlýsingu frá hirð- inni í Kaupmannahöfn í gær. Líðan eftir atvikum Sem stendur hvílist Jóakim prins á gjörgæsludeild spítalans og mun áfram dvelja á sjúkrahúsinu þegar hann verður útskrifaður af deildinni. Líðan hans er eftir atvikum sögð stöðug. „Það er of snemmt að segja,“ sagði talskona hirðarinnar, Lene Balleby, um hversu lengi mætti ætla að prinsinn yrði að dvelja á sjúkrahúsinu. Í tilkynningu hirðarinnar sagði að blóðtappinn hefði stafað af skyndi- legri vefjafláningu í slagæð. Bætt var við að læknasveit spítalans í Toulouse mæti það svo að óveruleg- ar líkur væru á að veikindin end- urtækju sig eftir að sár slagæðar- innar væru gróin. Danskir fjölmiðlar sögðu rang- lega í fyrstu að sjúkraþyrla hefði flogið Jóakim á spítalann, sem er í 130 km fjarlægð frá Cayx- kastalanum. Hið rétta er að hann var fluttur með sjúkrabifreið alla leið. Ekkert benti til veikindanna Prinsinn hafði nýsetið fyrir í sam- tali við héraðsblaðið La Dépêche er hann veiktist. Blaðamennirnir sem við hann ræddu sögðu Jóakim hafa verið afslappaðan á þeirri stundu og ekkert hefði bent til yfirvofandi veikinda. Jóakim er yngri bróðir Friðriks prins, sem stendur næstur áttræðri móður sinni, Margréti Þórhildi drottningu, að ríkiserfðum. Faðir þeirra, Hinrik prins, var af frönsk- um ættum en hann lést í febrúar 2018. Jóakim er tvígiftur og fjög- urra barna faðir. Tvo syni, Nikolai og Felix, á hann með fyrri konu sinni, Alexöndru greifynju, og tvo með núverandi konu, Maríu prins- essu. Gert hefur verið ráð fyrir því að Jóakim prins taki við starfi hermála- fulltrúa í danska sendiráðinu í París í september næstkomandi. Á þessu stigi hefur ekkert verið látið uppi af hálfu hirðarinnar um hvort veik- indin breyti því að einhverju leyti. Biðja um frið og næði Af hirðarinnar hálfu var sú von drottningarfjölskyldunnar látin í ljósi að fjölmiðlar yrðu við óskum Jóakims um að fá frið og næði til að jafna sig. Þökkuðu prinsinn og María prinsessa, sem fædd er í Frakklandi, almenningi einstaklega margar og góðar samúðarkveðjur í framhaldi af skyndilegum og óvænt- um veikindum Jóakims. Í fyrstu var Jóakim fluttur á sjúkrahús í bænum Cahor skammt frá sumarheimili fjölskyldunnar. Þar tóku læknar fljótt ákvörðun um að senda hann til Toulouse á næst- besta spítala Frakklands. Þangað kom hann aðfaranótt laugardags og fór beint undir hnífinn. Jóakim mun ná sér til fulls  Yngsti sonur Margrétar Þórhildar fékk blóðtappa í heila fyrir helgi sem fjar- lægður var með skurðaðgerð  Ekki vitað hvenær prinsinn losnar af sjúkrahúsi AFP Á batavegi Jóakim Danaprins og eiginkona hans, María prinsessa. Landsframleiðsla Bandaríkjanna dróst saman um 32,9% á öðrum árs- fjórðungi þessa árs, en samdráttur- inn er nær alfarið rakinn til kórónu- veirufaraldursins. Þó að samdrátturinn reyndist minni en hagfræðingar höfðu óttast var engu að síður um að ræða verstu niðurstöðu frá því mælingar hófust í Bandaríkjunum árið 1947. Fyrra met var sett árið 1958, en þá reyndist samdrátturinn 10%. Í tilkynningu bandaríska við- skiptaráðuneytisins kom fram að samdrátturinn hefði einkum orsak- ast af minni einkaneyslu, en hún féll um 34,6% á öðrum ársfjórðungi sam- kvæmt fyrsta mati. Hagtölur Bandaríkjamanna eru áætlaðar út frá ársgrundvelli, og sýna því hver samdrátturinn yrði ef skaðinn næði yfir tólf mánuði. Sé miðað við annan ársfjórðung ársins í fyrra nam samdrátturinn í Banda- ríkjunum 9,5%, sem er enn hið mesta sem skráð hefur verið. Þá vakti einnig áhyggjur að rúm- lega 1,4 milljónir Bandaríkjamanna bættust á atvinnuleysisskrá í síðustu viku, en alls hafa um 15 milljónir starfa tapast í Bandaríkjunum frá febrúar. Metin féllu víðar Það var ekki bara í Bandaríkjun- um sem samdrátturinn náði nýjum hæðum. Stjórnvöld í Mexíkó til- kynntu þannig að samdráttur lands- framleiðslunnar á öðrum ársfjórð- ungi hefði einnig verið sá mesti frá upphafi mælinga, eða um 17%. Þá greindu þýsk stjórnvöld frá því að samdrátturinn þar í landi hefði numið 10,1% á sama tímabili. Hag- spekingar þar töldu sig þó sjá bata- merki. Í Belgíu nam samdrátturinn 12,2% og í Austurríki 10,7%. sgs@mbl.is Dróst saman um 32,9%  Mesti samdráttur bandaríska hagkerfisins frá því mæl- ingar hófust 1947  Rúmlega 10% samdráttur í Þýskalandi Bandaríska geimferðastofnunin NASA skaut í gær á loft Atlas V-eldflaug, en um borð er könnunarfarið Perseverance, sem þýðir þrautseigja. Því er ætlað að rannsaka yfirborð Mars og undirbúa þannig jarðveginn fyrir frekari sókn mannkynsins til rauðu plánetunnar. AFP Þrautseigjan á braut til Mars

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.