Morgunblaðið - 31.07.2020, Side 15

Morgunblaðið - 31.07.2020, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020 Hátíðarboði Myllan er komin upp í Herjólfsdal en slíkt er til marks um að Þjóðhátíð sé handan við hornið. Það er hún þó ekki enda var hátíðinni aflýst fyrir nokkru vegna samkomutakmarkana. Óskar Pétur Lengi vel taldi ég að hugtakið nýfrjálshyggja væri heiti á ein- hverri grýlu, sem á það sameig- inlegt með þeirri Grýlu, sem talin er starfa í desember, að vera ekki til. Stundum er orðið „nýfrjáls- hyggja“ haft um íhaldsfrjáls- hyggju, sem sameinar félagslega íhaldssemi hefðbundinnar íhalds- stefnu annars vegar og ein- staklingshyggju, trú á frjálsan markað og takmörkuð ríkis- afskipti hins vegar. Það eru fyrst og fremst hugsjónamenn á vinstri væng stjórnmála sem hafa verið iðnir við að fjalla um „nýfrjálshyggju“. Það er ef til vill vegna grautarlegrar hugsunar vinstri- manna að fátt er hönd á festandi við að skil- greina „nýfrjálshyggju“. Þó má reyna að fara í kringum grautinn þegar íslensk verkalýðs- hreyfing vill breyta leikreglum á íslenskum vinnumarkaði. Leikreglur á íslenskum vinnumarkaði Leikreglur á íslenskum vinnumarkaði grundvallast á „Lögum um stéttarfélög og vinnudeilur“ nr. 80/1938 með áorðnum breyt- ingum. Í þeirri löggjöf er fjallað um rétt manna til þess að stofna stéttarfélög og stéttar- félagasambönd í þeim tilgangi að vinna sameig- inlega að hagsmunamálum verkalýðsstéttar- innar og launtaka yfirleitt. Í lögum þessum er hvergi getið um rétt at- vinnurekenda til að stofna með sér félög eða samtök. Sá réttur stofnast með félagafrelsi stjórnarskrárinnar. Ekki verður séð að í fyrr- nefndum lögum sé kveðið á um skyldusamn- ingssamband verkalýðsfélaga og atvinnurek- enda. Það samningssamband hefur þróast á liðinni öld með þeim hætti að komin eru for- gangsákvæði í kjarasamninga, þrátt fyrir fé- lagafrelsi stjórnarskrárinnar. Komið getur til álita hvað gerist þegar samn- ingar milli atvinnurekenda og launtaka takast ekki. Á það gat reynt í liðnum mánuði þegar ekki samdist með Icelandair og flugþjónustufólki. Lögspekingar töldu að gild- andi kjarasamningur væri fallinn úr gildi og réttarsambandi aðila lokið felldi annar hvor aðila til- lögur um breytingar. Með því væri réttarsambandi kjarasamn- ings lokið og með því að öllu flug- þjónustufólki hefði verið sagt upp og vinnuframlags ekki kraf- ist væri ekki hægt að koma á vinnustöðvun. Var uppsögn flugþjónustu- fólks þvingunaraðgerð eða við- brögð við því að samningar tók- ust ekki? Forysta ASÍ taldi að Icelandair hefði með uppsögn flugþjónustufólks farið gegn 4. grein áðurnefndra laga: „Atvinnurekendum, verkstjórum og öðrum trúnaðarmönnum atvinnurekenda er óheimilt að reyna að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir verkamanna sinna, afstöðu þeirra og afskipti af stéttar- eða stjórnmálafélögum eða vinnu- deilum með: a. uppsögn úr vinnu eða hótunum um slíka uppsögn, b. fjárgreiðslum, loforðum um hagnað eða neitunum á réttmætum greiðslum.“ Það er langsótt túlkun að atvinnurekandi sem rær lífróður eigi þann kost einan að gera kjarasamning úr takti við samkeppnisaðila í sömu atvinnugrein og úr takti við til þessa ásættanleg innbyrðis launahlutföll innan fyrir- tækisins. Leikjafræði Það er áhugavert að velta fyrir sér sam- skiptum aðila á vinnumarkaði í ljósi leikja- fræðinnar. Leikjafræðin gefur fjórar hugs- anlegar niðurstöður þegar A og B takast á; Að A vinni og B farist Að B vinni og að A farist Að A og B hafi báðir ávinning Að A og B farist báðir Kjarasamningur sem er úr takti við það sem gerist hjá samkeppnisaðilum leiðir til þess að bæði A og B farast. Hugsum sem svo að A sé flugrekandi. A býð- ur starfskjör sem eru vel samkeppnisfær á ís- lenskum vinnumarkaði. Hugsum jafnframt svo að B, samtök flugþjónustufólks, hafni slíkum samningi. Hvað gerist þá í landi félagafrelsis og samningafrelsis? Þá ferst B, en annar aðili, C, lifnar við. Ríkisvald á vinnumarkaði Ekki er hægt krefjast þess að ríkisvaldið beiti sér gegn fyrirtækjum sem ekki fara að geðþótta og hugmyndafræði verkalýðsrekenda. Hvar eru þá frjálsir samningar? Hvað gerist ef þess verður krafist að ríkis- valdið fari gegn verkalýðsfélögum? Löggjaf- arvaldið hefur það hlutverk eitt að lögfesta al- mennar reglur á vinnumarkaði, en ekki að koma að vinnudeilum nema þegar deilendur eru komnir í þrot. Sú aðkoma verður á jafnræðisgrundvelli með gerðardómi. Viðbrögð verkalýðshreyfingar í leikjafræði Það er brenglun í nýfrjálshyggju verkalýðs- hreyfingarinnar. Nýir verkalýðsrekendur virðast hafa sér- staka auðhyggju að leiðarljósi. Sem betur fer er íslensk verkalýðshreyfing ekki illa á vegi stödd fjárhagslega. En þá koma hótanir verkalýðs- rekenda um að þeir muni beita auðmagni hreyfingarinnar, ekki sínu auðmagni, til þess að ná sínum persónulegu markmiðum. Verkalýðs- hreyfingin hefur auðsleikjur úr háskólasamfé- lagi og samfélagi misheppnaðra blaðasala í sinni þjónustu. Tekið skal fram að verkalýðsrekendur eru kjörnir til forystu með mjög fáum atkvæðum í allsherjaratkvæðagreiðslum, og því ekki hægt að tala um sterkt lýðræðislegt umboð. Verst er þó þegar verkalýðsrekendur vilja nota fjáreignir lífeyrissjóða í sínu valdaspili. Lífeyrissjóðir urðu til í frjálsum samningum verkalýðsfélaga og atvinnurekenda. Lífeyris- sjóðir eru eign sjóðsfélaga en ekki verkalýðs- rekenda. Löggjafinn hefur skapað ramma um starfsemi lífeyrissjóða með löggjöf. Lífeyris- sjóðir hafa aðeins eitt markmið og tilgang; það er að tryggja sjóðsfélögum eftirlaun eftir að starfsævi lýkur. Upplýst ákvörðun Ef stjórn lífeyrissjóðs tekur ákvörðun um kaup á hlutabréfum er það vonandi upplýst ákvörðun á grundvelli gildandi löggjafar. Stjórnarmenn í lífeyrissjóðum eru aðeins bundnir af gildandi löggjöf og samþykktum líf- eyrissjóðanna, sem eiga sér stoð í lögum. Það að lífeyrissjóðir eigi að tryggja fulla at- vinnu og lífeyrissjóðir hafi „siðferðilega skyldu“ til að standa undir hagvexti er sam- bland af óskhyggju og brjálsemi. Það kann að vera að stjórnarmenn lífeyris- sjóða skapi sér persónulega bótaskyldu með því að fara gegn ákvæðum laga eða láta undan þrýstingi skuggastjórnenda. Siðrof? Siðrof er hugtak sem vísar til upplausnar samfélags þar sem samheldni og hefðbundið skipulag, sérstaklega það sem tengist við- miðum og gildum, hefur veikst og við tekur lög- leysa. Margt í hugmyndafræði og gerðum nýfrjáls- hyggju verkalýðsrekenda hefur einkenni sið- rofs og er ekki til að bæta kjör fólks á vinnu- markaði. Það er dauðadómur verkalýðsfélags að fara í pólitískt framboð. Hvað segir skáldið? Skáldið Steinn Steinarr orti; Já, viðsjált er hlutskipti velstæðra manna, og von er að margur upp hafi flosnað, þegar ræflarnir lifa og ræflarnir deyja og jarðast á þeirra kostnað. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Margt í hugmyndafræði og gerðum nýfrjáls- hyggju verkalýðsrekenda hefur einkenni siðrofs og er ekki til að bæta kjör fólks á vinnumarkaði. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Nýfrjálshyggja verkalýðshreyfingarinnar! Eða siðrof

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.