Morgunblaðið - 31.07.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020
50 ára Svala er Vest-
mannaeyingur en býr í
Kópavogi. Hún er iðju-
þjálfi og sjúkraliði að
mennt og er iðjuþjálfi í
Kópavogsskóla.
Maki: Jón Friðrik Birgis-
son, f. 1966, inn-
kaupastjóri hjá Verkfærasölunni.
Börn: Sigurður Árni, f. 1998 og tvíburarnir
Dagbjört Hildur og Bergdís Fjóla, f. 2004.
Stjúpbörn eru Ingibjörg Ósk, f. 1992, Birg-
itta Saga, 1994, og Kristófer Orri, f. 2002.
Foreldrar: Sigurður Rafn Jóhannsson, f.
1951, starfsmaður Vegagerðarinnar, og
Margrét Runólfsdóttir, f. 1949, fv. versl-
unarmaður. Þau eru búsett í Reykjavík.
Svala Helga
Sigurðardóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að vera óhræddari við að
láta ljós þitt skína. Skoðaðu málið vand-
lega svo þú hafir það á hreinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú þarf að hefja viðræður og kom-
ast að samkomulagi. Hertu upp hugann
því nú hefurðu allt að vinna og engu að
tapa.
21. maí - 20. júní
TvíburarMiklar breytingar eru í vændum,
nýtt starf eða búferlaflutningar. Taktu
hlutina skref fyrir skref og gakktu eins
vandlega frá þeim og þér er unnt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Spennan sem felst í því að ná
sambandi við nýja manneskju liggur loft-
inu. Reyndu að hitta á þau sem eru líkleg-
ust til að færa þér einhver skemmtilegheit.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Breytingar geta sett allt á hvolf, en
þú hefur gott af þeim. Vertu líka viðbúinn
því að aðrir komi þér á óvart.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Samskipti þín við foreldra fá aukið
vægi á næstunni. Gakktu glaður til verka,
því þú átt í vændum skemmtileg verkefni,
sem gera kröfur til allra þinna hæfileika.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn hentar vel til að ganga frá
fjármálum, samningaviðræðum og við-
skiptum. Taktu bara einn hlut fyrir í einu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú hefur viljað breyta til í
lífi þínu þá er þetta rétti dagurinn til að
fikra sig inn á nýjar brautir. Hafðu í huga
að þótt aðrir séu óánægðir þarft þú ekki
að vera það líka.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það kann eitt og annað að
koma þér á óvart í dag. Fallegasta stund
dagsins verður þegar uppgötvar eitthvað
alveg nýtt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einstaklingar í merkinu ættu að
vera tilbúnir að meðtaka breytingar og
stuðla að stakkaskiptum í ákveðnum mál-
um. Bættu það ærlega upp og byrjaðu á
að biðjast afsökunar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Líklegt er að vinkona þín vilji
tala við þig í trúnaði í dag. Reyndu að kom-
ast að því hvað það er og lagaðu það.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu sjálfum þér trúr og reyndu
ekki að gera þér upp skoðanir á mönnum
og málefnum. Mundu að við uppskerum
eins og við sáum.
tengslum við viðskiptavini, meta þarf-
ir þeirra og uppfylla væntingar. Ég
kvaddi Melabúðina á síðasta ári og
hef alltaf litið svo á að þegar einar dyr
lokist opnist aðrar. Ég hef unnið að
ýmsum verkefnum og er nú að skoða
ýmsa möguleika hvað varðar seinni
hluta starfsævi minnar.“
Hefur hlaupið 22 maraþon
Friðrik er mikill hlaupagarpur,
hefur hlaupið 22 maraþon víðs vegar
um heiminn og er fyrsti Íslendingur-
inn til þess að klára sex stóru mara-
þonin í heiminum. „Og konan mín var
fyrsta íslenska konan til að klára
Firði eignaðist ég marga góða vini og
samstarfsfólk sem ég er í góðu sam-
bandi við.
Svo þegar faðir minn 76 ára vildi
setjast í helgan stein 2004 fékk hann
mig enn á ný til liðs við Melabúðina.
Ég hafði staðið vaktina í Melabúðinni
fyrir pabba 1979, þegar hann keypti
reksturinn, og vann þar meira og
minna með skóla. Sextán árin hin síð-
ari hjá mér í Melabúðinni voru
skemmtileg og farsæl. Búðin festi sig
í sessi sem sælkera- og hverfis-
verslun. Mér fannst þá eins og í öðr-
um störfum mínum gefandi og
skemmtilegt að vera í nánum
F
riðrik Ármann Guð-
mundsson er fæddur í
Reykjavík 1960. „Ég
ólst upp í austurbænum
í Reykjavík og var
Laugardalurinn vettvangur leikja og
æskusprells. Var sumar í sveit á
Kleifum í Gilsfirði sem ég heimsótti í
sumar.“ Hann gerðist enda snemma
víðförull, en hann fór tveggja ára með
foreldrum sínum til Noregs og sigldi
til Trínidad og Tóbagó, í gegnum
Panamaskurðinn og til Japans. Hann
vann sumarstörf við Sigöldu- og
Hrauneyjarfossvirkjanir og fyrir
Landbúnaðarráðuneytið á Kefla-
víkurflugvelli, bæði í gömlu og nýju
flugstöðinni. „Önnur sumur í æsku og
með skólagöngu vann ég í Kjörbúð
Vesturbæjar á Melhaga sem pabbi
keypti 1964.“
Friðrik gekk í Vogaskóla, Lang-
holtsskóla og Laugalækjarskóla.
Hann lauk verslunarprófi frá Versl-
unarskólanum og stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð 1982.
Hann lauk BS-námi í hótel- og rekstr-
arnámi frá University of Surrey 1990.
„Eftir námið í Englandi og reynsl-
una þaðan var ég svo lánsamur að
vinna fyrir Tomma á Hard Rock
Cafe. Þetta voru skemmtileg og jafn-
framt lærdómsrík ár hjá Tómasi. Á
Hard Rock-árum mínum sótti ég
fjölda funda og þjálfun til Bandaríkj-
anna og Englands. Það var skemmti-
legt að kynnast þessum heimi og ekki
hvað síst hversu stóran hluta varn-
ingur og annað tengt vörumerkinu
skipaði stóran sess í hugum fasta-
gesta Hard Rock um allan heim.“ Á
þessum árum var Amma Lú stofnuð,
Hótel Borg endurreist og fyrsta
bruggverksmiðja á veitingastað sett
upp í Bjórkjallaranum (gömlu Ömmu
Lú), en þessir staðir voru allir í eigu
Tomma.
„Síðan var ég framkvæmdastjóri í
Firði – verslunarmiðstöð í Hafnarfirði
og tók þátt í framkvæmdum sem fól-
ust í því að byggja hana upp og koma
henni á kortið sem góðum valkosti til
að versla og eiga góðar stundir. Á
framkvæmdastjóraárum mínum
tókst að fylla húsið með verslunum og
þjónustufyrirtækjum, en þetta er ei-
lífðarbarátta. Á árunum mínum í
þessi hlaup svo við erum fyrstu ís-
lensku hjónin til að klára „The 6 Mar-
athon Majors“. Hlaupin eru frábær
útivera og félagsskapur og magnað
að upplifa nýja staði á þennan hátt. Á
stefnuskránni er að hlaupa í Ástralíu
og á Suðurskautinu til að ljúka mara-
þonum í heimsálfunum sjö. Ég nýt
þess að hlaupa utanvegahlaup eins og
Laugaveginn sem ég hljóp 2011 og
Mont Blanc-maraþonið 2017 og er
nýbúinn að hlaupa Fimmvörðuháls í
góðra vina hópi.“
Meðal annarra áhugamála Friðriks
eru laxveiði og hestamennska.
„Flugustöngin er alltaf við höndina á
sumrin. Ég var ásamt kærum fé-
lögum einn af leigutökum Skógár í
mörg ár og Þverá í Borgarfirði er
heimsótt a.m.k. einu sinni á sumri.
Ég er formaður í Upprekstrarfélag-
inu Tófunni, sem er samtök um ís-
lenska hestinn, náttúru landsins, úti-
veru, söng og matarmenningu þar
sem hver hefur sitt hlutverk. Auk
minni viðburða er ávallt farið í stóð-
réttir á haustin. Við erum líka í kajak-
sportinu. Fjölskyldan er með nokkra
vatnakajaka, en það er fátt skemmti-
legra en að róa á lygnu vatni og njóta
náttúrunnar.
Afmælishelgina verðum við hjónin
í Grímsey að skokka yfir heimskauts-
Friðrik Ármann Guðmundsson, hótel- og rekstrarfræðingur – 60 ára
Fjölskyldan Friðrik og Rúna ásamt dætrum sínum árið 2017.
Sextugur hleypur á Súlur
Hjónin Friðrik og Rúna á Fimm-
vörðuhálsi nýverið.
Hlaupagarpurinn Friðrik hleypur maraþon í Madagascar.
Föstudaginn 29. júlí árið 1960 gengu
þau Kristín Guðrúnar Torfadóttir og
Brynjar Vilmundarson í hjónaband og
áttu því 60 ára brúðkaupsafmæli í
fyrradag. Þau hófu búskap í Keflavík
sex árum fyrr, áttu orðið þrjár dætur
þegar þarna var komið sögu en þegar
yngsta dóttirin var skírð létu þau
pússa sig saman í leiðinni. Athöfnin
fór fram að loknum vinnudegi á heimili
sr. Björns Jónssonar, undir súð í Stóra-
Vatnsnesi í Keflavík. Auk skírnarbarns-
ins, brúðhjónanna og prestsins var
móðir Brynjars, Lára Guðmundsdóttir,
viðstödd.
Hjónin hafa búið í Keflavík allan sinn
búskap. Börn þeirra eru Brynja, Lára,
Guðlaug og Guðmundur Karl. Þau hafa
eignast tólf barnabörn, barna-
barnabörnin eru orðin sextán og það
sautjánda væntanlegt í ágúst.
Árnað heilla
Demantsbrúðkaup
40 ára Inga er Hafn-
firðingur, ólst upp í
Hvaleyrarholti og býr
þar. Hún er leikskóla-
kennari að mennt og
er aðstoðarleik-
skólastjóri í Leikskól-
anum Vesturkoti í
Hafnarfirði.
Maki: Brynjólfur Árnason, f. 1970, vél-
virki í álveri Rio Tinto í Straumsvík.
Börn: Sunna Dís, f. 2006, og Tinna Líf,
f. 2008. Stjúpsonur er Aron Leó, f.
2002.
Foreldrar: Ásdís Ingólfsdóttir og stjúp-
faðir er Jón Gíslason. Þau eru búsett í
Hafnarfirði.
Inga Þóra
Ásdísardóttir
Til hamingju með daginn