Morgunblaðið - 31.07.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 2020
Hátíðarboði Myllan er komin upp í Herjólfsdal en slíkt er til marks um að Þjóðhátíð sé handan við hornið. Það er hún þó ekki enda var hátíðinni aflýst fyrir nokkru vegna samkomutakmarkana.
Óskar Pétur
Lengi vel taldi ég að hugtakið
nýfrjálshyggja væri heiti á ein-
hverri grýlu, sem á það sameig-
inlegt með þeirri Grýlu, sem talin
er starfa í desember, að vera ekki
til.
Stundum er orðið „nýfrjáls-
hyggja“ haft um íhaldsfrjáls-
hyggju, sem sameinar félagslega
íhaldssemi hefðbundinnar íhalds-
stefnu annars vegar og ein-
staklingshyggju, trú á frjálsan
markað og takmörkuð ríkis-
afskipti hins vegar.
Það eru fyrst og fremst hugsjónamenn á
vinstri væng stjórnmála sem hafa verið iðnir
við að fjalla um „nýfrjálshyggju“. Það er ef til
vill vegna grautarlegrar hugsunar vinstri-
manna að fátt er hönd á festandi við að skil-
greina „nýfrjálshyggju“. Þó má reyna að fara í
kringum grautinn þegar íslensk verkalýðs-
hreyfing vill breyta leikreglum á íslenskum
vinnumarkaði.
Leikreglur á íslenskum vinnumarkaði
Leikreglur á íslenskum vinnumarkaði
grundvallast á „Lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur“ nr. 80/1938 með áorðnum breyt-
ingum. Í þeirri löggjöf er fjallað um rétt manna
til þess að stofna stéttarfélög og stéttar-
félagasambönd í þeim tilgangi að vinna sameig-
inlega að hagsmunamálum verkalýðsstéttar-
innar og launtaka yfirleitt.
Í lögum þessum er hvergi getið um rétt at-
vinnurekenda til að stofna með sér félög eða
samtök. Sá réttur stofnast með félagafrelsi
stjórnarskrárinnar. Ekki verður séð að í fyrr-
nefndum lögum sé kveðið á um skyldusamn-
ingssamband verkalýðsfélaga og atvinnurek-
enda. Það samningssamband hefur þróast á
liðinni öld með þeim hætti að komin eru for-
gangsákvæði í kjarasamninga, þrátt fyrir fé-
lagafrelsi stjórnarskrárinnar.
Komið getur til álita hvað gerist þegar samn-
ingar milli atvinnurekenda og launtaka takast
ekki. Á það gat reynt í liðnum mánuði þegar
ekki samdist með Icelandair og
flugþjónustufólki.
Lögspekingar töldu að gild-
andi kjarasamningur væri fallinn
úr gildi og réttarsambandi aðila
lokið felldi annar hvor aðila til-
lögur um breytingar. Með því
væri réttarsambandi kjarasamn-
ings lokið og með því að öllu flug-
þjónustufólki hefði verið sagt
upp og vinnuframlags ekki kraf-
ist væri ekki hægt að koma á
vinnustöðvun.
Var uppsögn flugþjónustu-
fólks þvingunaraðgerð eða við-
brögð við því að samningar tók-
ust ekki?
Forysta ASÍ taldi að Icelandair hefði með
uppsögn flugþjónustufólks farið gegn 4. grein
áðurnefndra laga:
„Atvinnurekendum, verkstjórum og öðrum
trúnaðarmönnum atvinnurekenda er óheimilt
að reyna að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir
verkamanna sinna, afstöðu þeirra og afskipti
af stéttar- eða stjórnmálafélögum eða vinnu-
deilum með:
a. uppsögn úr vinnu eða hótunum um slíka
uppsögn,
b. fjárgreiðslum, loforðum um hagnað eða
neitunum á réttmætum greiðslum.“
Það er langsótt túlkun að atvinnurekandi
sem rær lífróður eigi þann kost einan að gera
kjarasamning úr takti við samkeppnisaðila í
sömu atvinnugrein og úr takti við til þessa
ásættanleg innbyrðis launahlutföll innan fyrir-
tækisins.
Leikjafræði
Það er áhugavert að velta fyrir sér sam-
skiptum aðila á vinnumarkaði í ljósi leikja-
fræðinnar. Leikjafræðin gefur fjórar hugs-
anlegar niðurstöður þegar A og B takast á;
Að A vinni og B farist
Að B vinni og að A farist
Að A og B hafi báðir ávinning
Að A og B farist báðir
Kjarasamningur sem er úr takti við það sem
gerist hjá samkeppnisaðilum leiðir til þess að
bæði A og B farast.
Hugsum sem svo að A sé flugrekandi. A býð-
ur starfskjör sem eru vel samkeppnisfær á ís-
lenskum vinnumarkaði. Hugsum jafnframt svo
að B, samtök flugþjónustufólks, hafni slíkum
samningi. Hvað gerist þá í landi félagafrelsis og
samningafrelsis? Þá ferst B, en annar aðili, C,
lifnar við.
Ríkisvald á vinnumarkaði
Ekki er hægt krefjast þess að ríkisvaldið
beiti sér gegn fyrirtækjum sem ekki fara að
geðþótta og hugmyndafræði verkalýðsrekenda.
Hvar eru þá frjálsir samningar?
Hvað gerist ef þess verður krafist að ríkis-
valdið fari gegn verkalýðsfélögum? Löggjaf-
arvaldið hefur það hlutverk eitt að lögfesta al-
mennar reglur á vinnumarkaði, en ekki að
koma að vinnudeilum nema þegar deilendur
eru komnir í þrot. Sú aðkoma verður á
jafnræðisgrundvelli með gerðardómi.
Viðbrögð verkalýðshreyfingar
í leikjafræði
Það er brenglun í nýfrjálshyggju verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Nýir verkalýðsrekendur virðast hafa sér-
staka auðhyggju að leiðarljósi. Sem betur fer er
íslensk verkalýðshreyfing ekki illa á vegi stödd
fjárhagslega. En þá koma hótanir verkalýðs-
rekenda um að þeir muni beita auðmagni
hreyfingarinnar, ekki sínu auðmagni, til þess að
ná sínum persónulegu markmiðum. Verkalýðs-
hreyfingin hefur auðsleikjur úr háskólasamfé-
lagi og samfélagi misheppnaðra blaðasala í
sinni þjónustu.
Tekið skal fram að verkalýðsrekendur eru
kjörnir til forystu með mjög fáum atkvæðum í
allsherjaratkvæðagreiðslum, og því ekki hægt
að tala um sterkt lýðræðislegt umboð.
Verst er þó þegar verkalýðsrekendur vilja
nota fjáreignir lífeyrissjóða í sínu valdaspili.
Lífeyrissjóðir urðu til í frjálsum samningum
verkalýðsfélaga og atvinnurekenda. Lífeyris-
sjóðir eru eign sjóðsfélaga en ekki verkalýðs-
rekenda. Löggjafinn hefur skapað ramma um
starfsemi lífeyrissjóða með löggjöf. Lífeyris-
sjóðir hafa aðeins eitt markmið og tilgang; það
er að tryggja sjóðsfélögum eftirlaun eftir að
starfsævi lýkur.
Upplýst ákvörðun
Ef stjórn lífeyrissjóðs tekur ákvörðun um
kaup á hlutabréfum er það vonandi upplýst
ákvörðun á grundvelli gildandi löggjafar.
Stjórnarmenn í lífeyrissjóðum eru aðeins
bundnir af gildandi löggjöf og samþykktum líf-
eyrissjóðanna, sem eiga sér stoð í lögum.
Það að lífeyrissjóðir eigi að tryggja fulla at-
vinnu og lífeyrissjóðir hafi „siðferðilega
skyldu“ til að standa undir hagvexti er sam-
bland af óskhyggju og brjálsemi.
Það kann að vera að stjórnarmenn lífeyris-
sjóða skapi sér persónulega bótaskyldu með
því að fara gegn ákvæðum laga eða láta undan
þrýstingi skuggastjórnenda.
Siðrof?
Siðrof er hugtak sem vísar til upplausnar
samfélags þar sem samheldni og hefðbundið
skipulag, sérstaklega það sem tengist við-
miðum og gildum, hefur veikst og við tekur lög-
leysa.
Margt í hugmyndafræði og gerðum nýfrjáls-
hyggju verkalýðsrekenda hefur einkenni sið-
rofs og er ekki til að bæta kjör fólks á vinnu-
markaði.
Það er dauðadómur verkalýðsfélags að fara í
pólitískt framboð.
Hvað segir skáldið?
Skáldið Steinn Steinarr orti;
Já, viðsjált er hlutskipti velstæðra manna,
og von er að margur upp hafi flosnað,
þegar ræflarnir lifa og ræflarnir deyja
og jarðast á þeirra kostnað.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason »Margt í hugmyndafræði
og gerðum nýfrjáls-
hyggju verkalýðsrekenda
hefur einkenni siðrofs og er
ekki til að bæta kjör fólks á
vinnumarkaði.
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Nýfrjálshyggja verkalýðshreyfingarinnar! Eða siðrof