Morgunblaðið - 10.08.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2020
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin,
Nettó, Heilsuhúsin, Vegan búðin,
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið
og Matarbúr Kaju á Akranesi
CHAI
LATTE
Í liðinni viku ritaði VilhjálmurÞ. Vilhjálmsson, fyrrverandi
borgarstjóri, grein hér í blaðið og
varaði við því að kostnaður við
borgarlínuna væri líklega mjög
vanáætlaður. Sagði
hann kostnaðar-
áætlun hljóða upp á
50 milljarða króna
til ársins 2033 en
sérfræðingar álíti
að þegar allt er tal-
ið með, þar með
taldir vagnarnir
(sem ágreinings-
laust hlýtur að vera að þurfi til)
séu 80-100 milljarðar nær lagi.
Þá bendir Vilhjálmur á aðkostnaðaráætlun fyrir svip-
aða framkvæmd og borgarlínu,
Bussveien í Stavanger í Noregi,
hefði aðeins verið þriðjungur af
endanlegum kostnaði og að kostn-
aðurinn hefði orðið enn meiri ef
áætlanir hefðu ekki verið endur-
skoðaðar. Hann bætir við að svo-
kallaðar borgarlínuframkvæmdir
erlendis hafi víðast hvar farið
töluvert fram úr áætlun.
Spár um hve margir muni nýtasér þennan ferðamáta séu
líka ótrúverðugar og ekki í sam-
ræmi við reynslu bílaborga í
Bandaríkjunum, Kanada og Ástr-
alíu.
Vilhjálmur bætir því við að aug-ljóst sé að framkvæmdir við
borgarlínuverkefnið á næstu ár-
um eigi eftir að auka umferðar-
vandann á höfuðborgarsvæðinu,
ekki síst í Reykjavík.
Hvernig væri að stjórn-málamenn á höfuðborgar-
svæðinu og á landsvísu færu að
taka ábendingar af þessu tagi al-
varlega áður en þeir lenda í djúpu
feni offjárfestingar, umferðartafa
og óánægju almennings?
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Óraunsæjar
borgarlínuáætlanir
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Konráð Hrafnkelsson, sem hafði verið
saknað síðan 30. júlí, er kominn í leit-
irnar, heill á húfi, að því er móðir Kon-
ráðs, Hlín Ástþórsdóttir, greindi frá í
Facebook-færslu í gær.
Þar þakkaði hún ættingjum, vinum
og öðrum sem að leitinni komu fyrir
hlýhug, kveðjur, bænir og allan stuðn-
ing sem borist hafði aðstandendum í
leitinni að Konráði.
„Allur sá stuðningur er ómetan-
legur og verður aldrei þakkað nóg,“
skrifaði hún.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi
eystra lýsti fyrst eftir Konráði Hrafn-
kelssyni 1. ágúst. Fram kom í tilkynn-
ingunni að Konráð hefði yfirgefið
heimili sitt í Belgíu að morgni fimmtu-
dagsins 30. júlí, en seinast sást til hans
á McDonalds í miðbæ Brussel.
Um tuttugu vinir og aðstandendur
leituðu Konráðs í Brussel daginn eftir
án árangurs, en skilyrði til leitar voru
erfið vegna kórónuveiru. Lögreglan í
Belgíu vann að rannsókn málsins í
samstarfi við lögreglu hér á landi.
Ljósmynd/Lögreglan á Norðurlandi eystra
Fundinn Konráðs var leitað í Belgíu í 10 daga en hann er kominn í leitirnar.
Konráð fannst heill á
húfi í Brussel í Belgíu
Hans hafði verið saknað síðan 30. júlí
Stjórn Landssamtaka sauðfjár-
bænda hefur krafist þess að verð
sauðfjárafurða verði leiðrétt. Þetta
kemur fram í grein Unnsteins
Snorra Snorrasonar, framkvæmda-
stjóra samtakanna, á vef þeirra.
Þar segir jafnframt að afurðaverð
til bænda hafi ekki fylgt almennri
þróun verðlags. Afurðaverð á árinu
2019 var rétt um 470 kr./kg. Að því
er fram kemur í greiningu samtak-
anna hefðu bændur hins vegar átt að
fá um 690 kr./kg.
Í greiningu Unnsteins hafa verið
tekin saman gögn sem benda til þess
að afurðaverð sem íslenskir sauð-
fjárbændur fengu greitt á síðasta ári
sé það lægsta í Evrópu. Evrópusam-
bandið gefur vikulega út yfirlit þar
sem farið er yfir afurðaverð allra að-
ildarlanda. Lægsta afurðaverðið er
greitt til bænda í Rúmeníu, eða rétt
um 485 kr./kg. Hæst var það í
Frakklandi þar sem bændur fengu
rétt um 1.048 kr./kg. Til samanburð-
ar var verðið til íslenskra sauðfjár-
bænda haustið 2019 með viðbótar-
greiðslum 468 kr./kg.
Undir lok greinarinnar er þess
óskað að sanngirni sé gætt í viðskipt-
um við bændur. Vilja samtökin að
tryggt verði að sauðfjárafurðir fylgi
almennri þróun smásöluverðs hér á
landi.
Bændur krefjast leiðréttingar verðs
Segja verð sauðfjárafurða ekki hafa
fylgt almennri þróun smásöluverðs
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sauðfé Lambakjöt hefur ekki fylgt
almennri verðþróun.