Morgunblaðið - 10.08.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.08.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2020 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Hér er ekki undan neinu að kvarta. Maður hélt auðvitað í upphafi að það yrðu miklu fleiri á ferðinni í sumar en það þýðir ekkert að kvarta miðað við hvernig ástandið er,“ segir Bjarni Sigurður Aðalgeirsson. Hann og Jóhanna Pétursdóttir, eiginkona hans, voru lengst af bændur en ákváðu að segja skilið við búskapinn og stofna tjaldsvæðið Camping 66.12 North árið 2018. „Þetta er þriðja sumarið hjá okk- ur. Við opnuðum 23. maí og höfum haft opið síðan, allan ársins hring,“ segir hann. Í byrjun sumars voru fáir á tjald- svæðinu, enda strangar sam- komutakmarkanir í gildi, en gesta- fjöldinn fór að taka við sér um leið og takmarkanir rýmkuðu og ferða- menn tóku að streyma til landsins. „Þetta er minna en í fyrra en mað- ur verður bara að læra að lifa með því. Ég er mjög hlynntur þessum lokunum, hvort sem það er Asía eða Bandaríkin. Það er betra að hafa færri ferðamenn og losna við veir- una ef hægt er, þótt maður fái minni tekjur á móti. Peningarnir eru ekki allt,“ segir hann. Lítið að gera á gististöðum Tjaldsvæðið er staðsett við Mán- árbakka í Tjörnesi, í nágrenni við Húsavík. „Þetta er svolítið sérstakt tjald- svæði - hér erum við bara á sjávar- bakkanum og engin tré til að skýla eða neitt,“ segir Bjarni og bætir við að á svæðinu sé engin verslun, bara náttúra. Þó hvessir ekki oft á svæð- inu þrátt fyrir návígi við sjóinn. „Við erum utan við hafgoluna. Jú, það getur blásið en það er ekki allt of al- gengt,“ segir hann. „Þessir síðustu 7 dagar hafa verið betri en nokkru sinni áður, það er bara fullt að gera,“ segir hann, en veðrið hefur ekki verið eins gott yfir sumarið. Júní var ágætur en júlí kald- ur. „Svo er að hlýna í dag og frábær veðurspá fyrir vikuna,“ segir hann. Baldur segir marga gististaði í kring hafa lítið að gera, sér í lagi þær hótelkeðjur sem bjóða upp á gistingu um allt land, ef nóg er að gera. Aðspurður hvort hann merki auk- inn ferðamannastraum vegna gam- anmyndarinnar Eurovision, sem setti mark sitt á Húsavík, segir hann: „Nei, ekki til mín. Það er kannski einn og einn sem nefnir þetta „ja ja ding dong“ eða hvað þetta er,“ segir hann að endingu. „Þýðir ekkert að kvarta“  Margir hafa heimsótt tjaldsvæði Bjarna og Jóhönnu við Mánárbakka, þrátt fyrir erfitt árferði  Helmingur gesta Íslendingar  Fleiri eftir því sem leið á sumarið Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Mánárbakki Mörgum hugnast að tjalda við sjóinn á Mánárbakka en helmingur gesta í sumar voru Íslendingar. Ánægður Bjarni Sigurður Aðalgeirsson segir að undan engu sé að kvarta. Nóg sé um gesti á tjaldsvæðinu á Mánárbakka í Tjörnesvík. „Við lifum bara góðu lífi og verðum í raun ekki vör við neitt,“ segir Guð- mundur Þór Björnsson, bifvélavirki og kennari, sem ásamt eiginkonu sinni hefur verið búsettur í Flórída- ríki í Bandaríkjunum undanfarin átján ár. Vísar hann í máli sínu til út- breiðslu kórónuveirunnar í ríkinu. Að hans sögn hafa fjölmiðlar málað svarta mynd af stöðunni. „Það er nóg af fréttum sem fluttar eru af vírusnum í Bandaríkjunum. Af fréttaflutningi fjölmiðla að dæma mætti halda að hér væri bölvað ástand,“ segir Guðmundur sem tekur fram að hann hafi orðið lítið var við meint ástand. Þá sé efnahagslífið hægt og rólega að ná fyrri styrk. „Við höfum ekki orðið veik og verðum því ekki vör við neitt. Umferðin er orðin venjuleg aftur og nú er verið að reyna að opna skólana að nýju,“ segir Guðmundur, en hann kennir bifvélavirkjun á svæðinu. Sökum heimsfaraldursins hefur hann þurft að kenna heima frá því í marsmánuði, en eftir tvær vikur er ráðgert að nemendur fái með ein- hverjum hætti að koma í skólana á ný. Að því er fram kemur í opinberum tölum hafa nær 530 þúsund greinst með kórónuveiruna í Flórída-ríki, þar af hafa 8.108 einstaklingar látist. Íbúar ríkisins eru alls um 21,5 millj- ónir talsins. Segir Guðmundur að veiran hafi náð sér á strik þegar skemmtistaðir og barir voru opnaðir. „Það voru gerð mistök með því að opna barina og strendurnar of fljótt. Það er ekki hægt að saka yfirvöld um allt því fólk missir á endanum þol- inmæðina,“ segir Guðmundur og bætir við að Bandaríkjamenn bíði í raun eftir því að bóluefni finnist. Spurður um þátt Donald Trumps Bandaríkjaforseta í ástandinu segir Guðmundur að hann botni lítið í af- stöðu Íslendinga til hans. „Ég er svona heldur Trump-megin í tilver- unni. Það er fullt af Bandaríkja- mönnum sem eru hrifnir af því hvað hann er sjálfstæður og ópólitískur, en hann er auðvitað mjög umdeildur. Ég verð alltaf hálfhvumsa þegar Ís- lendingar gagnrýna Trump en fara svo heim og kjósa Dag B. Eggerts- son, sem er að eyðileggja borgina.“ aronthordur@mbl.is Segir ástandið betra en ætla mætti Guðmundur Þór Björnsson  Íslendingar búsettir í Flórída-ríki verða lítið varir við faraldur kórónuveiru  Fjölmiðlar mála svarta mynd af stöðu mála  Mistök gerð þegar skemmtistaðir opnuðu  Beðið eftir bóluefni Hafrannsóknastofnun leggur til að að veiðar á rækju við Eldey verði ekki heimilaðar árið 2020, að því er fram kemur í tilkynn- ingu á vef stofnunarinnar. Þar segir að samkvæmt stofnmæl- ingu sumarið 2020 sé stærð rækjustofnsins við Eldey undir varúðarmörkum stofnsins. Lítið hefur fengist af þorski og ýsu í stofnmælingu rækju við Eldey frá árinu 2010 en árið 2020 fékkst mikið af ýsu. Stofninn stækki ekki á næstu árum Einnig ráðleggur Hafrann- sóknastofnun að afli fyrir út- hafsrækju fiskveiðiárið 2020/ 2021 verði ekki meiri en 5.136 tonn. Þá hefur vísitala veiði- stofns úthafsrækju breyst lítið á árunum 2012 til 2020 „fyrir utan árið 2015 þegar hún lækkaði og var sú lægsta frá upphafi mæl- inga“. Bent er á að vísitala veiði- hlutfalls hefur verið undir mark- gildi frá árinu 2016. „Magn ungrækju hefur verið lágt frá 2004 og hefur verið í sögulegu lágmarki frá 2015. Stofnmæl- ingar síðustu ára benda því til að stofninn muni ekki stækka á næstu árum.“ Þá var magn þorsks í stofn- mælingu úthafsrækju mikið á ár- unum 2015 til 2018 en lækkaði árið 2020. Einnig hefur mælst mikið af þorski í stofnmælingu botnfiska að vori og hausti und- anfarin ár. Því er líklegt að af- rán á úthafsrækju hafi aukist á undanförnum árum. Engar rækjuveiðar við Eldey  Afrán aukist á undanförnum árum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.