Morgunblaðið - 10.08.2020, Side 15

Morgunblaðið - 10.08.2020, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2020 Frjáls Múkkar sveimuðu yfir sjónum skammt frá landi í leit að einhverju matarkyns. Ekki fylgir sögunni hvort leit þeirra hafi borið árangur. Kristinn Magnússon Í annarri umferð for- setakosninganna í Pól- landi hafði sitjandi for- seti, Andrzej Duda, nauman sigur á borgar- stjóranum í Varsjá, Rafał Trzaskowski. Þótt hann ynni einungis í sex héröðum í austurhluta landsins, þar sem Trzaskowski vann í tíu héröðum, og tapaði í meðalstórum og stærri borgum, hafði Duda slíkan stuðning í þorpum og smábæjum að það rétt dugði honum til að komast yfir marklínuna. Eins og þessi niðurstaða bendir til skiptist fylgi í pólskum stjórnmálum æ meir í takt við stéttaskiptingu. Sá hluti þjóðarinnar sem kaus Duda er mun fátækari, með tekjur sem eru einungis 67% af þjóðarmeðaltali. Þá er atvinnuleysi í héröðunum þar sem Duda sigraði 7-9% að meðaltali en er 5,4% á landsvísu. Framlög ríkisins til félagsmála, sem stjórnarflokkurinn Lög og rétt- læti (PiS), hefur haft forystu um undir stjórn Duda, hafa greinilega skilað sér í kjörklefanum. Helsti stjórnarand- stöðuflokkurinn, Borgaravettvang- urinn (PO), burðast með það orðspor að hann „hafi ekkert gert fyrir venju- legt fólk“. Kjósendur muna enn að það var PO sem hækkaði eftirlauna- aldurinn árið 2012 og að Trzaskowski var ráðherra í PO-stjórn Donalds Tusk, fyrrverandi forsætisráðherra. Duda faldi það ekki að hann naut góðs af ítökum ríkisins, sem PiS beitti með hætti sem minnti meira á austræna einræð- isherra en vestræna lýð- ræðissinna. Ríkið stjórnar með beinum hætti tveimur af fjórum áhrifamestu sjónvarps- stöðvunum, og réðust þær á hverjum degi á stjórnarandstöðuna. Sökuðu þær Trzas- kowski meðal annars um að ætla að „kynvæða börn“ (vegna tengsla hans við LGBT- hreyfinguna) og skera niður fé- lagslegar bætur til þess að geta greitt gyðingum bætur vegna seinni heims- styrjaldar. Að sögn Thomas Boserup, sem er óháður eftirlitsmaður kosninga fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evr- ópu, var fréttaflutningur ríkissjón- varpsins af kosningunum hlutdrægur: „Við höfðum áhyggjur af orðræðu óumburðarlyndis sem beint var gegn hinsegin fólki, útlendingum og gyð- ingum, sérstaklega í kosningabaráttu forsetans og í ríkissjónvarpinu.“ Rétt fyrir kosningarnar fékk helsta ríkisrekna sjónvarpsstöðin, TVP, sem enn og aftur var undir stjórn Jacek „Bolabíts“ Kurski, stjórnmálamanns innan PiS sem er alræmdur fyrir óvönduð meðöl, sérstakan styrk upp á tvo milljarða złoty (500 milljónir Bandaríkjadala). Samkvæmt úttekt eftirlitsþjónustunnar Press-Service Monitoring Mediów á umfjöllun helsta fréttaþáttar TVP á bilinu 3.-16. júní voru 97% umfjöllunar um Duda jákvæðar en 87% af umfjöllun um Trzaskowski voru neikvæðar. Í ljósi þess hve eindregin hópa- skipting er meðal pólskra kjósenda var það snemma ljóst að sigur í kosn- ingunum myndi vinnast með því að virkja sértæka hópa og þess vegna beitti PiS ágengri orðræðu. Mark- miðið var ekki að snúa fylgjendum stjórnarandstöðunnar (enda var það talið ómögulegt) heldur að virkja eigin fylgjendur. Ráðherranefnd Póllands hefur ekki komið saman síðan 12. júní sökum þess að undir stjórn forsætis- ráðherrans Mateusz Morawiecki hafa ráðherrar verið á ferð um landið og afhent ávísanir í helstu vígjum PiS. Niðurstaðan var 68,2% kjörsókn, sem er met. PiS var staðráðið að vinna þessar kosningar, einkum vegna þess að tap hefði þýtt endalok íhaldssamrar and- byltingar flokksleiðtogans Jarosław Kaczyñski. Forsetinn fer ekki með teljandi völd í þingbundnu stjórnkerfi Póllands en embættið hefur vissan þunga í krafti þjóðarkjörs. Það sem mestu skiptir er þó að forsetinn hefur neitunarvald gagnvart löggjöf og skipar dómara, sendiherra og aðra mikilvæga ráðamenn. Ef Trzaskowski hefði sigrað hefði hann getað stöðvað stefnu PiS og ógnað valdablokk Kac- zynskis, en innan hennar eru margir sem væru að öllu jöfnu líklegir til að þurfa að svara í dómsal fyrir gjörðir sínar í embætti. Í Póllandi blasa nú við þrjú ár til viðbótar þar sem PiS fer með öll völd. Næstu þingkosningar verða ekki haldnar fyrr en 2023. Þangað til mun PiS reyna að sölsa undir sig eða jað- arsetja allar sjálfstæðar stofnanir sem eftir eru í landinu. Tíminn vinnur með PiS, sérstak- lega þegar kemur að Hæstarétti, þar sem enn fleiri dómarar munu láta af störfum vegna aldurs og stuðnings- menn PiS munu koma í stað þeirra. Dómara á lægri dómsstigum, sem langflestir hafa starfað af heilindum hingað til, gætu veitt eitthvert viðnám en hótunin um embættismissi mun líklegast múlbinda þá flesta. PiS mun einnig reyna að svelta hér- aðsstjórnir þar sem stjórnarand- stöðuflokkar fara með völd, með því að færa til og skrúfa fyrir ýmsar fjár- veitingar. Síðan er að huga að því sem eftir lifir af óháðum fjölmiðlum. Kac- zynski hélt því fram í kosningabarátt- unni að „Það var mjög grimmilegt og víðtækt inngrip af hálfu fjölmiðla, við skulum ekki fela þá staðreynd að það var þýskt, en í framtíðinni verðum við að koma í veg fyrir að slíkt gerist“. Nú lýsir hann því yfir að „Pólsk yfirvöld mega ekki láta það viðgangast að hluti miðtaugakerfis þjóðarinnar sé í hönd- um útlendinga (…) við verðum að tryggja að þetta miðtaugakerfi pólsku þjóðarinnar sé pólskt“. Mögulega mun Evrópusambandið ákveða að skilyrða greiðslu „sam- heldnisjóða“ sinna við að ríkisstjórn PiS virði leikreglur réttarríkisins. Einkum virðast Þjóðverjar og Hol- lendingar hafa misst þolinmæðina gagnvart Póllandi og kunna að hætta loksins að fjármagna óbeint einræð- isstjórn þar og í Ungverjalandi. En þeir hafa sætt sig við kyrrstöðuna í Póllandi í fjögur ár, þannig að það virðist ólíklegt að nokkuð breytist, sérstaklega í ljósi allra þeirra vanda- mála sem ESB glímir við. Hvernig sem fer munu hinir 10.018.263 frjálslyndu Pólverjar sem töpuðu fyrir 10.440.648 stuðnings- mönnum PiS halda baráttu sinni áfram. Trzaskowski er enn borgar- stjóri Varsjár og hefur nýlega til- kynnt áform um að umbreyta Borg- aravettvanginum í breiðari félagslega hreyfingu sem muni nýta þann for- dæmalausa áhuga sem stuðnings- menn hans sýndu í kosningabarátt- unni. Trzaskowski kann að hafa tapað en hann sýndi fram á að PiS er ekki ósigrandi. Spurningin er hvort stjórn- arandstaðan fær fleiri tækifæri til að sýna fram á það. Hvernig sem fer er Pólland að snúa aftur til uppáhalds stjórnmálakerfis síns – baráttunni fyrir frelsi. Eftir Sławomir Sierakowski »Kaczynski og félagar munu gera allt sem þeir geta til að kosn- ingar framtíðarinnar í Póllandi verði aðeins formsatriði og landið verði einungis lýðræðis- ríki að nafninu til. Sławomir Sierakowski Sławomir Sierakowski er stofnandi Krytyka Polityczna-hreyfingarinnar. Hann er forstöðumaður Stofnunar æðri rannsókna í Varsjá og situr í að- alráði Þýskalands um alþjóða- samskipti. Pólland silast áfram Í Morgunblaðinu á sunnudag birtist grein eftir ráðherra ferða- mála, iðnaðar og ný- sköpunar þar sem tæpt er á efni greinar mínar í tímaritinu Vísbendingu í síðustu viku um stöðu efnahagsmála og CO- VID-19-farsóttina. Í ljósi orða ráðherrans og mikilvægi málsins vil ég nota tækifærið og end- urtaka boðskapinn fyrir lesendum Morgunblaðsins. Ég legg ekki í vana minn að skrifast á við stjórnmálamenn, hef reyndar aldrei gert það áður og mun vonandi ekki þurfa að gera það aftur, en í ljósi alvarleika máls finnst mér rétt að benda á nokkur atriði. Betur gengur í efnahagslífinu en á horfði í vor vegna þess að Íslendingar hafa aukið kaup sín á vörum og þjón- ustu innan lands í stað þess að ferðast til útlanda. Vaxtalækkanir Seðlabank- ans hafa einnig hjálpað til en fjöldi heimila hefur hækkað ráðstöf- unartekjur sínar með því að endur- fjármagna húsnæðislán og lægri vextir hafa örvað fasteignamarkaðinn. Fyrir- tæki í verslun og þjónustu hafa fundið fyrir þessari auknu eftirspurn. Þannig hefur eftirspurn aukist eftir þjónustu iðnaðarmanna, byggingavörum, tóm- stundavörum, klæðnaði og þannig mætti lengi telja. Íslendingar hafa ferðast mikið innan lands í sumar. En þótt betur gangi í efnahags- málum en búast hefði mátt við þá er öllum ljóst að þau fyrirtæki sem þjóna fyrst og fremst erlendum ferðamönn- um eru illa stödd. Atvinnuleysi er mik- ið, um 16 þúsund manns voru án vinnu í júnímánuði samkvæmt tölum Vinnu- málastofnunar. Ástandið á Reykjanesi er sérstaklega erfitt. Það er einnig óvíst hversu mikið Íslendingar munu ferðast innan lands á haustmánuðum. Varla fara þeir í norðurljósaferðir! En það breytir ekki jákvæðum efnahags- legum áhrifum þeirra 200 milljarða sem Íslendingar vörðu áður á ferðalög- um erlendis en nota nú til kaupa á vörum og þjónustu innan lands. Stjórnvöld þurfa að ákveða hversu mikið eigi að örva eftirspurn eftir ferðaþjónustu á næstu mánuðum með því að auðvelda ferðir um landamæri. En þá er einnig við því að búast að Íslendingar ferðist meira til útlanda sem dregur úr innlendri eftirspurn. Ferðir inn- lendra sem erlendra ferðamanna yfir landa- mæri auka hættuna á að farsóttin komi til lands- ins aftur eftir að núver- andi bylgja er gengin niður. Það þarf ekki sótt- varnalækni til þess að skilja að því meiri sem hreyfanleiki fólks er, þ.e.a.s. því fleiri Íslendingar sem ferðast til útlanda og því fleiri er- lendir ferðamenn sem hingað koma, þeim mun meiri hætta er á að farsóttin berist til landsins. Ef aukið flæði ferðamanna hefur í för með sér að farsótt geisi innan lands verður efnahagslegt tjón þjóðarbúsins margfalt meira en sá ávinningur sem fjölgun ferðamanna hefði í för með sér. Hagkerfi marga Vesturlanda hefur orðið fyrir miklu áfalli í ár, ekki vegna þess að ferðamönnum hefur fækkað heldur af því að fólk getur ekki mætt til vinnu og margvísleg viðskipti geta ekki átt sér stað. Ekki þarf að horfa mikið lengra en til Bretlands til þess að sjá slæmar efnahagslegar afleið- ingar farsóttar og harkalegri sótt- varna en Íslendingar hafa hingað til kynnst. Þá verður einnig að hafa í huga aðra þá sem verða illa úti ef farsóttin herjar á samfélagið nú í vetur. Ef ekki er unnt að starfrækja framhaldsskóla og háskóla með eðlilegum hætti verður ungt fólk illa úti. Ef skólahald leggst jafnvel tímabundið af þá fer það sér- staklega illa með þá sem standa veikt fyrir. Slíkt rask á skólahaldi er líklegt til þess að hafa félagslegar og efna- hagslegar afleiðingar til langs tíma. Eldri kynslóðir einangra sig frá börn- um og barnabörnum og getur slíkt haft slæm andleg áhrif. Mikið álag á heilbrigðiskerfið bitnar á starfsfólki þess og sjúklingum með aðra sjúk- dóma en COVID-19. Kvíði og áhyggj- ur plaga almenning. Það er skiljanlegt að þrýst sé á að liðka fyrir komum erlendra ferða- manna til þess að bjarga fyrirtækjum í ferðaþjónustu og minnka atvinnuleysi. En þeir sem taka ákvarðanir fyrir hönd þjóðarinnar verða að hafa heild- arhagsmuni skýra. Ekki má horfa fram hjá þeim mikla efnahagslega skaða sem verður ef farsóttin herjar á samfélagið í vetur. Efnahaglegt tap af völdum farsóttar innan lands getur verið mikið eins og sést í mörgum ná- lægum ríkjum. Af þessum sökum hafa mörg eyríki, svo sem Nýja-Sjáland, ákveðið að nota sérstöðu sína til þess að hafa strangar sóttvarnir á landamærum og vernda þannig innlent hagkerfi og samfélag uns lyf og bóluefni koma til hjálpar. Í nágrenni okkar mælir utanríkisráðu- neyti Noregs, svo dæmi sé tekið, með því að Norðmenn ferðist ekki til út- landa nema brýnustu nauðsyn beri til. Valkostir okkar sem búum á eyju eru því þessir: Öflugar sóttvarnir við landamæri líkt og Nýsjálendingar hafa gert og sóttvarnir sem eru minna hamlandi á efnahagsstarfsemi innan lands, eða takmarkaðar sóttvarnir við landamæri og miklar sóttvarnir innan lands eins og nú virðist stefna í. Ef ráðamenn eru að horfa á neyslu, at- vinnustig og stöðu ríkissjóðs þá þarf ekki hagfræðing til að benda á að fyrri kosturinn gæti komið betur út. Hættu- legt er að gera að einu hagsmuni ferðaþjónustu, annars vegar, og efna- hagslífsins alls, hins vegar. Þegar þjóðfélag okkar stendur frammi fyrir einhverju alvarlegasta vandamáli lýðveldistímans þá er mik- ilvægt að leyfa mismunandi sjón- armiðum að koma fram og ráðamenn þurfa að sýna ábyrgð með því að bregðast við umræðu í samræmi við embætti þeirra og ábyrgð. Gylfi Zoëga » Þeir sem taka ákvarðanir fyrir hönd þjóðarinnar verða að hafa heildarhagsmuni skýra. Ekki má horfa fram hjá þeim mikla efnahagslega skaða sem verður ef farsóttin herj- ar á samfélagið í vetur. Gylfi Zoëga Höfundur er prófessor í hagfræði. Í tilefni af grein ráðherra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.