Morgunblaðið - 10.08.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 10.08.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2020 Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, síðari leikir: Bayern München – Chelsea .................... 4:1  Bayern München áfram 7:1 samtals Barcelona – Napolí ................................... 3:1  Barcelona áfram 4:2 samtals Skotland Rangers – St. Mirren............................... 3:0  Ísak Snær Þorvaldsson kom inn sem varamaður hjá St. Mirren á 84. mínútu. Frakkland Deildarbikar, úrslitaleikur: Lyon – París SG ....................................... 4:3  Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn á hjá Lyon eftir 74 mínútur.  Lyon vann eftir vítakeppni. Rússland Khimki – CSKA Moskva ......................... 0:2  Hörður Björgvin Magnússon var ekki í leikmannahópi CSKA, Arnór Sigurðsson kom inn sem varamaður hjá CSKA á 54. mínútu. Tambov – Rostov ..................................... 0:1  Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í leikmannahópi Rostov. Slóvakía Michalovce – Spartak Trnava................ 0:2  Birkir Valur Jónsson var á varamanna- bekk Spartak Trnava. Senica – Zilina.......................................... 0:4  Nói Snæhólm Ólafsson lék allan leikinn með Senica. Hvíta-Rússland BATE Borisov – Gorodeja...................... 1:0  Willum Þór Willumsson kom inn sem varamaður hjá BATE á 76. mínútu.  NBA-deildin San Antonio – Utah .......................... 119:111 Memphis – Oklahoma ........................ 121:92 Brooklyn – Sacramento ................... 119:106 Philadelphia – Orlando .................... 108:101 New Orleans – Washington............. 118:107 Toronto – Boston.............................. 100:122 Portland – LA Clippers ................... 117:122 Denver – Utah ..................................134:132 Indiana – LA Lakers ........................116:111 Miami – Phoenix .............................. 112:119 Dallas – Milwaukee ..........................136:132 Toronto – Memphis.............................108:99 New Orleans – San Antonio .............113:122   Andrea Pirlo hefur tekið við knattspyrnu- stjórastöðunni hjá Juventus eft- ir að Maurizio Sarri var rekinn á laugardag. Pirlo, sem er 41 árs, lagði skóna á hilluna árið 2017 eftir magnaðan feril. Brottrekstur Sarris var gerð- ur opinber daginn eftir að Juventus féll úr keppni í Meistaradeild Evr- ópu í 16-liða úrslitum. Juventus vann 2:1 en féll úr keppni þar sem Lyon skoraði mark á útivelli og hafði unnið heimaleikinn 1:0. Sarri var því snarlega rekinn úr starfi þrátt fyrir að hafa gert liðið að ítölskum meisturum níunda árið í röð en hann tók við liðinu fyrir rétt rúmu ári. Juventus sigraði síðast í Meistaradeildinni árið 1996 og for- ráðamönnum og stuðningsmönnum félagsins þykir biðin vera orðin löng. Pirlo var ráðinn á dögunum til Juventus til að gegna starfi þjálfara hjá U23 ára liði félagsins en þurfti ekki að bíða lengi eftir stöðuhækk- un. Hann lék 116 landsleiki fyrir Ítalíu og varð heimsmeistari árið 2006. Hann varð ítalskur meistari fjórum sinnum með Juventus. Þá varð hann Evrópumeistari í tví- gang með AC Mílanó á sínum tíma. Miðjumaðurinn yfirgaf Juventus árið 2015 og lék síðustu ár ferilsins í Bandaríkjunum með New York City. Síðustu ár hefur Pirlo öðlast þjálfararéttindi frá FIFA og hafnað nokkrum starfstilboðum að sögn blaðamannsins Zekes Tells. kristoferk@mbl.is Pirlo sest í heita sætið í Tórínó Andrea Pirlo Í MOSFELLSBÆ Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðrún Brá Björgvinsdóttir, úr Keili, virðist nánast óstöðvandi á Íslands- mótinu í golfi. Alla vega ef horft er til þess að hún varð í gær Íslandsmeist- ari þriðja árið í röð. Eftir að hún komst á bragðið, og vann mótið í fyrsta skipti í Vestmannaeyjum árið 2018, hefur hún ekki sleppt takinu af bikarnum. Sigur Guðrúnar í gær kom þó eftir mikla dramatík. Ragnhildur Krist- insdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur virtist líkleg til að næla í sinn fyrsta sigur á Íslandsmótinu. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, einnig úr GR, var með forystuna eftir fyrsta keppnisdag. Ragnhildur tók hins vegar forystuna á öðrum keppnisdegi og lék af tölu- verðu öryggi í þrjá daga. Hún hélt for- ystunni og þegar níu holur voru eftir í gær hafði hún fjögurra högga forskot. Aðstæðurnar í gær voru hins vegar krefjandi. Talsverður vindur var og var líklega hliðarvindur á flestar brautir. Mikil rigning var þegar kon- urnar hituðu upp og á fyrstu holunum. Aðstæður voru þess eðlis að ýmislegt gat farið úrskeiðis og mögulega gætu orðið sveiflur. Ragnhildur var hins vegar örugg í stutta spilinu og sýndi ekki alvarleg veikleikamerki. Guðrún fann taktinn og með því að spila 10. - 17. braut á tveimur undir pari tókst henni að minnka muninn niður í eitt högg. Ragnhildi brást loks bogalistin á 18. holu og þar með 72. holu í mótinu og fékk þá víti en Guðrún sló inn á flöt. Guðrún fékk par og Ragnhildur skolla sem þýddi að þær þurftu að út- kljá málið í þriggja holu umspili. Léku þær holurnar 72 á höggi yfir pari sam- tals. Í umspilinu var Guðrún sterkari á taugum enda mun reyndari í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Von- brigðin hljóta að vera geysileg fyrir Ragnhildi eftir að hafa verið með for- skot í tæpa þrjá hringi en að sama skapi mjög sætur sigur fyrir Guð- rúnu. Hrökk í gang á seinni níu „Jú, þú getur eiginlega sagt að ég hafi stolið sigrinum. En þetta var auð- vitað hörkubarátta og það má alveg segja að ég hafi verið hæg af stað í dag. Mér fannst eins og möguleikinn á sigri væri að verða fjarlægur en svo hrökk ég í gang eftir níu holur. Fyrir vikið urðu seinni níu holurnar hörku- spennandi. Flesta dagana var ég bara tveimur höggum eða svo frá efsta sæt- inu og það er svo lítið í svona fjögurra daga móti. Slíkt getur snúist á nánast einni holu og sérstaklega þegar veðrið er svona. Aðstæður voru krefjandi og það gat hvað sem er gerst í dag,“ sagði Guðrún þegar Morgunblaðið spjallaði við hana. Sigurinn var frábrugðin hinum tveimur fyrri því í þeim mótum var hún lengi með forystuna en í þetta skiptið var hún að elta. „Já ég get al- veg sagt að þessi titill sé sætastur þótt hinir hafi verið geggjaðir. Þetta var mest spennandi mótið af þremur síð- ustu.“ Varð einnig stigameistari Guðrún Brá tryggði sér með sigr- inum einnig stigameistaratitilinn en þar er samanlagður árangur í stiga- mótunum á mótaröð GSÍ lagður sam- an. Guðrúnu vantar nú tvo Íslands- meistaratitla til viðbótar til að skáka föður sínum, Björgvini Sigurbergs- syni, sem varð Íslandsmeistari fjórum sinnum. Hugur Guðrúnar leitar þó út fyrir landsteinana. „Jú jú, ég verð að gera betur en hann en eins og staðan ætti að vera þá væri ég úti að keppa. [Kórónuveiran setur strik í reikninginn á mótaröðum erlendis]. En það er frábært að geta tekið þátt í Íslandsmótinu í staðinn,“ sagði Guðrún en veðurguðirnir buðu henni og öðrum keppendum upp á ýmsar útgáfur af íslensku sumri. „Við hituðum upp fyrir hringinn í dag í grenjandi rigninu. Og spiluðum fyrstu tvær holurnar við þær að- stæður. Fljótlega stytti þó upp en vindurinn var mikill og frekar kalt. Ég byrjaði í regnjakka í morgun en skipti honum svo bara út og var þurr þegar hringurinn byrjaði,“ sagði Guðrún Brá Björgvinsdóttir í samtali við Morgunblaðið. Ólafía Þórunn hafnaði í þriðja sæti en hún var með á Íslandsmótinu í fyrsta skipti síðan 2016. Ekki verður sagt að Ólafía hafi slegið illa en hún púttaði ekki nægilega vel til að geta unnið Íslandsmótið.  Guðrún Brá sigraði þriðja árið í röð  Umspil þurfti til að knýja fram úrslit  Ragnhildur var lengi með forystuna en brást bogalistin á 72. holu Ljósmynd/GSÍ Sá þriðji Guðrún þakkar fyrir stuðninginn þegar þriðji titillinn var í höfn. „Þessi er sætastur“ Landsliðsfyrirliðinn í knattspyrnu, Sara Björk Gunnarsdóttir, varð í gærkvöld franskur bikarmeistari með sínu nýja félagi. Lyon mætti öðru stórliði, Paris St. Germain, í úrslitaleiknum sem fram fór í Auxerre. Ekkert mark var skorað í venju- legum leiktíma né framlengingu og því þurfti að grípa til víta- spyrnukeppni til að skera úr um úr- slit. Þar hafði Lyon betur, 4:3. Sara Björk kom inn á sem vara- maður hjá Lyon eftir 74 mínútna leik. Sara franskur bikarmeistari Morgunblaðið/Hari Frakkland Sigur hjá Söru í bikar- keppninni í Frakklandi. Skagamaðurinn Stefán Þór Þórð- arson gæti verið að taka skóna fram á ný þrátt fyrir að vera orðinn 45 ára gamall. Sænska dagblaðið Norrköpings Tidningar segir frá þessu en Stefán gæti spilað með C- deildarliði Sylvia í sumar. Liðið er eins konar varalið Norrköping sem Stefán spilaði með um tíma. Hann segist í viðtali við dagblaðið vera að hugsa málið og gæti gamli fram- herjinn því spilað einhverja leiki í fyrsta sinn í níu ár. Hann lék síðast með ÍA árið 2011, spilaði 15 leiki og skoraði fjögur mörk. Skórnir fram á fimmtugsaldri? Morgunblaðið/Árni Sæberg Á fimmtugsaldri Stefán Þór spilaði sex A-landsleiki fyrir Ísland. Ljóst er orðið hvaða lið mætast í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu sem fara fram í vikunni en leikið verður í Lissabon, höfuðborg Portúgals. Þá hefur fyr- irkomulaginu einnig verið breytt í hraðmót sem minnir á stórmót landsliða. Verður annars vegar leik- ið á José Alvalade-vellinum, heima- velli Sporting, og hins vegar Da Luz- vellinum, heimavelli Benfica. Mæt- ast lið aðeins einu sinni í átta liða úrslitum og undanúrslitum í stað þess að leika tvo leiki. Ítalska liðið Atalanta mætir frönsku meisturunum í PSG á mið- vikudaginn í fyrsta leik 8-liða úr- slitanna. Þá eru tvö lið eftir frá Þýskalandi annars vegar og Spáni hins vegar og mætast þau öll innan- borðs. RB Leipzig spilar við Atlético Madríd, sem sló út ríkjandi Evr- ópumeistara Liverpool í síðustu um- ferð, á fimmtudaginn og stórveldin Barcelona og Bayern München mætast á föstudag. Fjórðungsúrslit- unum lýkur svo með viðureign Man- chester City frá Englandi og Lyon frá Frakklandi á laugardaginn. Undanúrslitin fara svo fram 18. og 19. ágúst áður en sjálfur úrslitaleik- urinn verður spilaður þann 23. Hraðmótið hefst í Portúgal í vikunni AFP Markahæstur Pólverjinn Robert Lewandowski er búinn að skora þrettán mörk fyrir Bayern München í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.