Morgunblaðið - 10.08.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 10.08.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2020 Í MOSFELLSBÆ Kristján Jónsson kris@mbl.is Bjarki Pétursson skrifaði nýjan kafla í íþróttasöguna í Borgarnesi þegar hann varð Íslandsmeistari í golfi í Mosfellsbænum í gær. Á hinu niðurdrepandi ári 2020 hefur íþróttafólki úr Borgarnesi orðið margt að vopni en körfuboltakon- urnar urðu bikarmeistarar í vetur og því hafa tveir stórir titlar skilað sér í bæinn. Hvorugan þeirra höfðu Borg- nesingar unnið fyrr. Hér skal því haldið til haga að Bjarki keppir nú fyrir Golfklúbb Kópavogs og Garða- bæjar og er þriðji Íslandsmeistari karla sem kemur úr klúbbnum. Áður hafa þeir Birgir Leifur Hafþórsson og Sigmundur Einar Másson orðið Íslandsmeistarar undir merkjum GKG fyrir utan Bjarka. ,,Jú jú, það má alveg segja það enda bý ég í Borgarnesi og hef ekki flutt úr Borgarnesi fyrir utan þann tíma þegar ég fór í háskóla til Bandaríkjanna og til Þýskalands á sumrin. Ég keppti alltaf fyrir GB en elti þjálfara minn, Arnar Má Ólafs- son, í GKG enda hef ég unnið lengi með honum og var hjá honum í Þýskalandi. Auk þess gerir GKG mikið fyrir sína kylfinga og þar er afreksstefnan ein sú besta á Ís- landi,“ sagði Bjarki. Fékk fimm fugla í röð Bjarki varð Íslandsmeistari með stæl því hann sló mótsmetið ef miðað er við höggafjölda undir pari. Bjarki lauk leik á samtals þrettán höggum undir pari og tryggði það með snyrtilegum fugli á lokaholunni. Þórður Rafn Gissurarson úr GR setti metið þegar hann lék á 12 undir pari á Akranesi árið 2015 og Axel Bóasson úr Keili jafnaði metið í Vestmannaeyjum árið 2018. Bjarki lék í gær á 68 höggum og hafði tveggja högga forskot fyrir lokadaginn. Að loknum 12 holum í gær var forskotið tvö högg en þá hrökk Borgnesingurinn í gír svo um munaði. Fékk hann fimm fugla í röð og sýndi hvers hann er megnugur. Bjarki vann með miklum mun þegar uppi var staðið. Næstir komu Rúnar Arnórsson úr Keili og Aron Snær Júlíusson GKG á fimm undir pari. Aron Snær var þó aðeins tveimur höggum á eftir Bjarka fyrir lokadaginn en fann sig ekki í gær. Skoðaði ekki stöðuna Bjarki var í síðasta ráshópnum á Íslandsmótinu á Akureyri árið 2016 og öðlaðist þar góða reynslu þótt Birgir Leifur hafi farið fram úr hon- um og unnið. Taugarnar voru í góðu lagi hjá Bjarka í gær eins og sást þegar hann fékk fimm fugla í röð. Þá brást hann frábærlega við eftir að hafa fengið skolla á 9. og 11. holu. Hann vissi hins vegar ekki nákvæm- lega hver staðan var. „Nei ég hugsaði ekki út í hvernig gengi hjá öðrum. Ég vissi að ég væri á höggi yfir pari á hringnum en ætl- aði mér að ljúka hringnum á tveimur til fimm undir pari. Fram undan voru tvær par 5 holur (12. og 13. hola) og ég vildi fá fugla þar og það gekk eftir. Þá datt ég algerlega í gír- inn og ákvað að breyta ekki minni leikáætlun. Sótti þar sem ég var tilbúinn til að sækja og þegar fleiri fuglar fylgdu í kjölfarið þá leið mér svolítið vel. Ég var með Aroni og Rúnari í ráshópi og vissi því nokkurn veginn hvernig þeim gekk en Axel Bóasson var í ráshópnum á undan mér. Hann hefði þá þurft að vera kominn sjö undir pari til að vera á sama skori og ég. Ef hann væri á slíku skori þá væri væntanlega fullt af fólki og sjónvarpsvélar í kringum hann. Ég gat ímyndað mér að Axel myndi spila vel en átti ekki von á öðru en ég væri efstur eftir að hafa fengið þessa fugla. Þegar þrjár holur voru eftir kíkti ég svo loksins á stöð- una og sá þá að ég hafði sex högga forskot. Þá kom fiðrildi í magann. Ekki vegna þess að ég væri stress- aður heldur vegna þess að ég var loksins að vinna Íslandsmótið,“ sagði Bjarki Pétursson enn fremur við Morgunblaðið á Hlíðavelli. Axel er stigameistari Að Íslandsmótinu loknu er ljóst að Axel Bóasson úr Keili varð stiga- meistari GSÍ árið 2020 en þar er ár- angur á stigamótunum á mótaröð GSÍ lagður saman. Er þetta í fjórða sinn sem Axel verður stigameistari. Bjarki sló mótsmetið  Varð Íslandsmeistari í Mosfellsbænum með glæsibrag  Lék á 13 höggum undir pari samtals  Annar sigur Borgnesinga í stórum íþróttamótum á árinu Ljósmynd/GSÍ Sá fyrsti Bjarki fagnar sigri á 18. flötinni í gær eftir að hafa fengið fugl. Knattspyrnumaðurinn Aron Jó- hannsson skoraði sitt fyrsta deildarmark í næstum tvö og hálft ár þegar hann kom Hammarby yfir snemma leiks í 2:1-sigri gegn Djurgården í sænsku úrvalsdeild- inni í gær. Aron skoraði markið strax á fjórðu mínútu en þurfti svo að fara meiddur af velli á þeirri 21. Þetta var fyrsta deildarmark Ar- ons síðan hann skoraði fyrir Wer- der Bremen í þýsku Bundesligunni fyrir rétt tæpum tveimur árum, 2. mars 2018. Fyrsta mark Arons í tvö ár AFP Mark Aron skoraði loks deildar- mark fyrir Hammarby. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, er gengin í raðir Vals en félagið greindi frá þessu í gær. Gunnhildur Yrsa hefur und- anfarin ár leikið með Utah í Banda- ríkjunum en þar hefur keppni verið frestað vegna kórónuveirunnar. Þar áður lék hún í Noregi með Arna Björnar, Bodø, Stabæk og Vålerenga. Gunnhildur Yrsa er lánuð til Vals út keppnistímabilið og ætti að vera liðinnu mikil styrkur. Hún er 31 árs og á að baki 65 landsleiki. Landsliðskona semur við Val Ljósmynd/Diogo Pinto/FPF Valsari Gunnhildur Yrsa mun spila með Íslandsmeisturunum í sumar. KR mætir skosku meisturunum í Celtic í fyrstu umferð Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu en dregið var í gær. Liðin mætast að- eins einu sinni og þar sem KR var dregið sem útilið mun viðureignin fara fram í Skotlandi 18. eða 19. ágúst. KR var í neðri styrkleikaflokki fyrir dráttinn og gat einnig mætt Legia Varsjá frá Póllandi og Fe- rencváros frá Ungverjalandi en Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, kvaðst sáttur við niðurstöðuna. „Þetta voru allt erfiðir andstæðingar og þetta er ágætt stutt ferðalag og það er auðvelt að afla sér upplýsinga um lið eins og Celtic,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Það eru alltaf tækifæri í fótbolta og mögu- leikar á að koma á óvart. Auðvitað er það langsótt að ætla að fara að slá út Celtic á þeirra heimavelli en við för- um ekki í þetta verkefni öðruvísi en að hafa trú á því.“ Rúnar stýrði KR-ingum einmitt gegn Celtic í keppninni árið 2014 þar sem þeir töpuðu 4:0 í Edinborg og 1:0 í Vesturbænum. Ef KR fellur úr leik gegn Skotunum færist liðið yfir í aðra umferð Evrópudeildarinnar og spilar þar í lok ágúst. KR-ingar heimsækja skosku meistarana Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Hall Celtic KR-ingar mæta skosku meisturunum í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. Liðin mættust sumarið 2014 og töpuðu KR-ingar samanlagt 5:0. Danmörk Nordsjælland – AGF................................ 4:0  Amanda Andradóttir var á varamanna- bekk Nordsjælland. Svíþjóð Mjällby – AIK ........................................... 3:1  Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik- mannahópi AIK. Falkenberg – Malmö ............................... 0:1  Arnór Ingvi Traustason kom inn sem varamaður hjá Malmö á 62. mínútu. Djurgården – Hammarby....................... 1:2  Aron Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Hammarby og fór af velli meiddur á 21. mínútu. Häcken – Kalmar..................................... 0:2  Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik- mannahópi Häcken. Staðan: Malmö 14 9 4 1 29:12 31 Elfsborg 14 7 6 1 23:18 27 Norrköping 13 7 4 2 29:17 25 Djurgården 14 7 2 5 20:14 23 Häcken 14 5 6 3 24:15 21 Hammarby 14 5 5 4 16:17 20 Mjällby 14 5 4 5 17:21 19 Sirius 13 4 6 3 21:21 18 Örebro 14 4 5 5 14:16 17 Varberg 13 4 4 5 18:17 16 Gautaborg 14 2 8 4 16:21 14 AIK 14 3 4 7 13:22 13 Kalmar 14 3 3 8 16:22 12 Falkenberg 14 2 6 6 15:21 12 Östersund 14 2 6 6 11:18 12 Helsingborg 13 1 7 5 10:20 10 A-deild kvenna: Linköping – Kristianstad ....................... 0:3  Sif Atladóttir var ekki í leikmannahópi Kristianstad, Svava Rós Guðmundsdóttir lék fyrstu 86. mínúturnar og skoraði eitt mark. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. Djurgården – Örebro .............................. 0:1  Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn fyr- ir Djurgården. Guðbjörg Gunnarsdóttir er í barnsburðarleyfi. Kalmar – Hammarby .............................. 1:2  Andrea Thorisson kom inn sem vara- maður hjá Kalmar á 69. mínútu. Noregur Aalesund – Viking ................................... 2:2  Hólmbert Aron Friðjónsson og Daníel Leó Grétarsson léku allan leikinn með Aalesund, Davíð Kristján Ólafsson kom inn sem varamaður á 69. mínútu.  Axel Óskar Andrésson kom inn á sem varamaður á 61. mínútu hjá Viking. Mjøndalen – Haugesund ......................... 1:0  Dagur Dan Þórhallsson kom inn á sem varamaður á 81. mínútu hjá Mjøndalen. Kristiansund – Start................................ 3:2  Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í leikmannahópi Start. Jóhannes Harðarson þjálfar liðið. Strømsgodset – Sandefjord.................... 3:4  Ari Leifsson kom inn á sem varamaður á 90. mínútu hjá Strømsgodset.  Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 84 mínút- urnar og Emil Pálsson fyrstu 64 mínúturn- ar fyrir Sandefjord. Vålerenga – Bodø/Glimt ........................ 2:2  Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn með Vålerenga og skoraði eitt mark.  Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodø/Glimt. Staðan: Bodø/Glimt 13 11 2 0 45:17 35 Molde 13 10 1 2 39:13 31 Odd 13 8 1 4 21:14 25 Vålerenga 13 6 5 2 18:17 23 Kristiansund 13 5 6 2 26:18 21 Rosenborg 12 5 3 4 17:10 18 Stabæk 13 4 5 4 16:18 17 Sandefjord 13 5 1 7 15:23 16 Brann 12 4 3 5 16:19 15 Strømsgodset 13 4 3 6 19:27 15 Haugesund 13 4 3 6 10:18 15 Sarpsborg 12 4 2 6 14:12 14 Viking 13 3 3 7 16:25 12 Mjøndalen 13 3 2 8 11:18 11 Start 14 1 6 7 15:27 9 Aalesund 13 1 4 8 18:40 7  Íslandsmótið á Hlíðavelli Kvennaflokkur: Guðrún Brá Björgvinsdóttir ....................+1 Ragnhildur Kristinsdóttir........................+1 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir ...................+4 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir ...................+20 Arna Rún Kristjánsdóttir ......................+21 Saga Traustadóttir .................................+22 Nína Björk Geirsdóttir...........................+24 Berglind Björnsdóttir.............................+25 Karlaflokkur: Bjarki Pétursson.......................................-13 Rúnar Arnórsson ........................................-5 Aron Snær Júlíusson ..................................-5 Andri Már Óskarsson .................................-4 Egill Ragnar Gunnarsson ..........................-4 Hlynur Bergsson ........................................-4 Tómas Eiríksson Hjaltested......................-3 Ólafur Björn Loftsson ................................-3 Axel Bóasson ...............................................-3 Andri Þór Björnsson ...............................Par Kristófer Karl Karlsson ...........................+1 Haraldur Franklín Magnús .....................+2 Viktor Ingi Einarsson ..............................+3 Dagbjartur Sigurbrandsson ....................+4 Ragnar Már Ríkharðsson ........................+4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.