Morgunblaðið - 10.08.2020, Page 32

Morgunblaðið - 10.08.2020, Page 32
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is SUMARÚTSALA 4.-22. ágúst 10-25% afsláttur K7 Öflug háþrýstidæla 78.172 Háþrýstidæla Áður 86.858 K5 Öflug háþrýstidæla 67.881 Háþrýstidæla Áður 72.990 FC 5 Skúringarvél 31.442 Skúringarvél Áður 36.990 VC 3 Pokalaus ryksuga með Hepa Síu 18.590 Ryksuga Áður 24.738 43.602 Gufutæki Áður 51.296 SC 4 Gufuhreinsitæki fyrir heimili WV 6 Gluggaskafa 15.990 Gluggaskafa 29.866 Slönguhjól Áður 35.137 CR 7 Sjálfvirkt slönguhjól VC 5 Snúrulaus pokalaus ryksuga , 33.992 Ryksuga Áður 39.990SE 6.100 Djúphreinsivél og ryksuga 59.441 Djúphreinsivél Áður 69.930 Sýningin BÓK – list og leikur, hefst í dag í Listasal Mos- fellsbæjar. Á henni sýna hjónin Guðlaug Friðriksdóttir og Ragnar G. Einarsson fjölbreytt verk en bæði eru menntuð í bókbandi og Guðlaug einnig í myndlist. Ragnar er þriðja kynslóð bókbindara og saman reka hjónin bókbandsstofuna Bóklist í Mosfellsbæ. Þau hafa haldið margar sýningar, bæði saman og hvort í sínu lagi. Verkin á sýn- ingunni eru af ýmsum toga, allt frá klass- ískum blóma- myndum til logandi bóka og dúkristum til olíuverka sem máluðu sig sjálf. Allt frá blómamyndum til logandi bóka og dúkristum til olíuverka MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 223. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. KR mætir skosku meisturunum í Celtic í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en dregið var í gær. Liðin mætast aðeins einu sinni og þar sem KR var dregið sem útilið mun viðureignin fara fram í Skotlandi 18. eða 19. ágúst. „Það eru alltaf tækifæri í fótbolta og möguleikar á að koma á óvart. Auðvitað er það langsótt að ætla að fara að slá út Celtic á þeirra heimavelli en við förum ekki í þetta verkefni öðruvísi en að hafa trú á því,“ segir þjálfarinn Rúnar Kristinsson. »26 Íslandsmeistararnir í KR fara til Glasgow í Meistaradeildinni ÍÞRÓTTIR MENNING „Ég þekki nú Ísland og það sem ég sakna mest er góður fiskur,“ segir Magnús M. Hauksson, framkvæmdastjóri veitingastaðarins og fiskbúðarinnar Íslendingsins (þ. Der Isländer), í Dortmund. Á Íslendingnum verður boðið upp á fisk og franskar, plokkfisk, fiskivefjur, fiskiborgara, laxasalat og ferskan íslenskan fisk, sem hægt er að taka með og matreiða heima. Marineraðir réttir verða einnig á boðstólnum en þar má nefna þorsk í basil-lime dressingu, lax í teryaki- sósu með sesam-fræjum yfir, svo fátt eitt sé nefnt. „Það eru svo margar frábærar fiskbúðir á Íslandi en við sáum vöntun á þessu hérna,“ segir hann. Íslenskar vörur verða í hávegum hafðar; Einstök-bjór, laxa-salt og lýsi verða á boðstólnum. „Við bjóðum upp á þetta til að standa undir nafni. Við erum mjög spenntir að sjá hvernig Þjóðverjinn mun taka við íslenskri vöru. Það er gaman að segja frá því að við munum flytja íslensku kokteilsósuna til Þýskalands - við erum örugglega fyrstir til að gera það,“ segir hann. Bíða spenntir Magnús ólst upp í Þýskalandi og flutti síðan til Íslands og lærði verkfræði. Nú hefur hann búið í Þýskalandi í 3 ár og stofnaði Íslendinginn ásamt nokkrum fjárfestum. Það sem maður saknar mest frá Íslandi er mömmu- maturinn og góður fiskur, eins og ég hef sagt. Við erum hérna tveir Íslendingar, ég og Kolbeinn Finnsson knatt- spyrnumaður,“ segir hann. Íslendingar í Þýskalandi hafa þegar sett sig í samband við Magnús og bíða spenntir eftir að staðurinn opni. „Við opnum á skemmtilegum stað, við vatn, sem hefur sterka tengingu við fiskinn. Þetta er aðsótt svæði og margir staðir hér, steikhús, ísbúðir og salatstaðir, en við erum fyrstir til að koma með fisk,“ segir hann. Staðurinn opnar í lok ágúst, þrátt fyrir kórónuveiru- faraldur, þar sem Þjóðverjar hafa staðið sig ágætlega í baráttunni gegn veirunni. „Það hefur verið grímuskylda síðan í mars og Þjóð- verjinn hefur staðið sig ótrúlega vel. Auðvitað fylgjum við öllum reglum,“ segir hann en því til marks þarf hver kúnni að skilja eftir nafn og símanúmer svo hægt sé að ná í hann, til að auðvelda smitrakningu. veronika@mbl.is Ljósmyndir/Magnús M. Hauksson Íslendingurinn Staðurinn verður með íslenskan plokkfisk á boðstólum, að sögn Magnúsar. Íslenskur veitingastaður opnaður í Dortmund  Plokkfiskur, fiskiborgarar og ferskur fiskur á Íslendingnum Framkvæmdir Unnið er hörðum höndum að opnun stað- arins, sem verður í lok ágúst, þrátt fyrir faraldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.