Morgunblaðið - 31.08.2020, Side 1
M Á N U D A G U R 3 1. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 204. tölublað 108. árgangur
STOLT AF SKÓLA-
STARFINU Á
AKUREYRI
BÖL RYÐUR
SÉR TIL
RÚMS
SKÁLDSAGAN
HJARTASTAÐUR
ENDURÚTGEFIN
NÝTT BRUGGHÚS 9 ELEGÍA UM ÍSLAND 29
Fólk á bæjunum Sílastöðum og
Einarsstöðum í Kræklinghlíð norð-
an við Akureyri vann í görðunum
alla helgina við að taka upp kart-
öflur, sem nú eru fullsprottnar. Á
þessum bæjum er þess vænst að fá
300-400 tonn af afurðum úr mold.
Í Þykkvabæ í Rangárvallasýslu,
helstu kartöflusveit landsins, er
reiknað með að uppskerustörf hefj-
ist af krafti í vikunni. Meðan ekki
gerir næturfrost standa grös þó
áfram og kartöflurnar eru í veldis-
vexti þegar svo stendur á. »4
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Kartöflur Helgi Jóhannsson á Sílastöðum stendur við sekkinn á upptökuvélinni.
Kartöflurnar eru nú í veldisvexti
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sveitarfélögin þurfa milljarða til við-
bótar í tekjur svo þau geti mætt kröf-
um sem til þeirra eru gerðar, segir
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, í sam-
tali við Morgunblaðið. Frávik í rekstri
sveitarfélaganna frá áætlunum líð-
andi árs til stöðunnar nú í ágústlok er
alls 33 milljarðar kr. Þar eru áhrif
kórónuveirunnar stærsti áhrifaþátt-
urinn; minni útsvarstekjur, meiri út-
gjöld vegna velferðarmála og fjárfest-
ingar sem jafnvel var bætt við til að
skapa vinnu.
Fulltrúar sveitarfélaga funduðu
fyrir helgi með forsætisráðherra og
sveitarstjórnarráðherra og fóru yfir
stöðu mála. Stefnt er að öðrum fundi í
næstu viku og er þess vænst að svör
um aðgerðir ríkisins liggi þá fyrir.
Framlög ríkisins til Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga verða á næsta ári skert
um fjóra milljarða króna. Aldís segir
að ríkið þurfi að gefa afdráttarlausa
yfirlýsingu um samstöðu með sveitar-
félögum.
Í Morgunblaðið í dag skrifa grein
framkvæmdastjórar hjúkrunarheim-
ila sem sveitarfélögin reka og segja
óvissu um reksturinn. Haldi svo fram
sem horfi verði heilbrigðisstofnunum
ríkisins falinn rekstur þeirra eins og
gert var á Akureyri, enda hafi fyr-
irheit stjórnvalda um sterkari grund-
völl rekstrar verið innistæðulítil. Um
þetta segir Aldís að starfshópur sveit-
arfélaga, Samtaka fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu og heilbrigðisráðu-
neytis sé að greina stöðuna og úrbóta
sé að vænta.
Sveitarfélög þurfa
milljarða til viðbótar
Fundað með ráðherrum Hjúkrunarheimili í óvissu
MTekjur skerðast mikið »4, 16
Íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir skráði sig í
sögubækurnar þegar hún fagnaði sigri í Meistaradeild Evr-
ópu í knattspyrnu ásamt liðsfélögum sínum og Frakklands-
meisturum Lyon í gærkvöld. Sara, efst fyrir miðju, þótti með-
al bestu leikmanna vallarins. Hún skoraði þriðja mark liðsins
og innsiglaði þar með 3:1 sigur á sínum fyrrverandi félögum í
Wolfsburg frá Þýskalandi. Sara er þar með annar Íslending-
urinn til þess að sigra í Meistaradeild Evrópu en Eiður Smári
Guðjohnsen gerði slíkt hið sama með Barcelona árið 2009.
„Það er erfitt að lýsa tilfinningum sínum á þessum tímapunkti
en það var algjör draumur að klára þetta fyrir mig persónu-
lega,“ sagði Sara að leik loknum. »26
Sara Björk meðal þeirra bestu í besta liði Evrópu
AFP
INGIBJÖRG ÓLÖF 10