Morgunblaðið - 31.08.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020
Sú nýbreytni verður tekin upp á
næstu fundum borgarstjórnar að í
upphafi fundar verða óundirbúnar
fyrirspurnir. Fyrirkomulagið hefur
verið notað á Alþingi í áraraðir en
þetta er nýlunda í borgarstjórn. Pa-
wel Bartozek, forseti borgarstjórnar
og borgarfulltrúi Viðreisnar, segir
að fyrirkomulagið sé tilraun sem
gerð er til áramóta á sex fundum.
„Þetta hefur verið sá dagskrárliður í
þinginu sem vakið hefur smá at-
hygli. Borgarstjórnarfundir geta
orðið 8-10 tímar og því ekki endilega
allir sem fylgjast með þeim öllum
stundum. En fyrirspurnir á þingi
hafa þó kannski leitt til þess að fólk
fylgist með upphafi funda og þetta
er tilraun sem við teljum vert að
gera til að fá skörp skoðanaskipti
eða upplýsingagjöf fyrir fundinn.“
vidar@mbl.is
Prófa óundirbún-
ar fyrirspurnir
Morgunblaðið/Eggert
Borgarstjórnarfundur Óundirbúnar
fyrirspurnir verða teknar upp.
Nýlunda á fundum
borgarstjórnar
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Reikna má með að framlög Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga til Borgar-
byggðar sem áætluð voru um einn
milljarður króna í ár skerðist um
200 milljónir kr. Tekjur sveitarfé-
lagsins á ári hafa verið um fjórir
milljarðar króna, þar með talið út-
svarið, sem mun
dragast nokkuð
saman á næst-
unni vegna minni
umsvifa í efna-
hagslífinu af völd-
um kórónuveir-
unnar. „Staðan er
þrengri en verið
hefur en við höf-
um svigrúm til að
komast yfir þenn-
an hjalla,“ segir
Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitar-
stjóri í samtali við Morgunblaðið.
Hún hóf í byrjun mars sl. störf sem
sveitarstjóri Borgarbyggðar hvar
hún er uppalin og á sínar rætur.
Hagræðing skilar sér
Undanfarin 2-3 ár hefur verið
unnið að uppstokkun og marg-
víslegri hagræðingu í rekstri Borg-
arbyggðar undir merkjum verkefn-
isins Brúin til framtíðar. „Sú vinna
er að skila sér, sérstaklega nú þegar
harðnað hefur á dalnum,“ segir
sveitarstjórinn.
„Við höfum alltaf stólað talsvert á
framlög Jöfnunarsjóðs sem er ætlað
að standa undir óvæntum útgjöldum
sveitarfélagsins, sem nú eru að
aukast. Úthlutunarreglurnar eru því
í raun öfugmæli. Staða Borgar-
byggðar nú er hins vegar þannig að
við getum aukið við skuldir tíma-
bundið. Sveitarfélög þurfa að vera
með jákvæðan rekstrarjöfnuð á
hverju þriggja ára tímabili, en slak-
að var á því ákvæði vegna áætlunar
um neikvæðari rekstrarniðurstöðu
hjá sveitarfélögum en áætlanir
gerðu ráð fyrir.“
Inngjöf í framkvæmdum
Viðbragð ríksins við samdrætti í
hagkerfinu hefur meðal annars verið
inngjöf í opinberum framkvæmdum;
svo sem byggingar og vegagerð. Í
Borgarbyggð hefur málum verið
mætt með líku lagi; daglegum
rekstri hefur verið haldið í megin-
atriðum óbreyttum og ýmsar fram-
kvæmdir eru í gangi. Verið er að
byggja nýtt hús fyrir starfsemi leik-
skólans Hnoðrabóls á Kleppjárns-
reykjum, þangað sem börnin úr upp-
sveitum Borgarfjarðar koma. Um
leið voru gerðar endurbætur á
starfsaðstöðu í Kleppjárnsreykja-
skóla. Þá hafa staðið yfir miklar
endurbætur á húsnæði Grunnskól-
ans í Borgarnesi. Til dæmis hefur
matsalur, bókasafn, starfsaðstaða
kennara og tengibyggingar verið
færðar til nútímans. Aðstaðan er
betri en var.
Fjölgar í skólum
Næsta mál á dagskrá er svo að
bæta aðstöðu fyrir íþróttaæfingar.
Vonast er til að geta farið í það verk-
efni á næsta ári, eða eins og svigrúm
í fjárhagsáætlun leyfir. Auk þess er
nú unnið að endurskoðun á stjórn-
sýslu sveitarfélagsins og skipuriti.
Efla á meðal annars stafrænar
lausnir og innleiða notendavænni
þjónustu, enda geti slíkt einfaldað
vinnu og skilað sparnaði.
Íbúar í Borgarbyggð eru nú rúm-
lega 3.800 og þar af eru Borgnes-
ingar um 2.100. „Það er ánægjulegt
að segja frá því að börnum hefur
fjölgað í leik- og grunnskólum Borg-
arness. Hér hefur verið jöfn fjölgun
íbúa undanfarin ár, nú er það
kannski húsnæðisskortur sem haml-
ar fjölgun. Því erum við nú að mæta
með því að skipuleggja og útbúa nýj-
ar byggingarlóðir í Bjargslandi í
Borgarnesi og svo í eldri hluta bæj-
arins, sem er eftirsóttur til búsetu,“
segir Þórdís Sif.
Tekjur skerðast
mikið en svig-
rúm til staðar
Ýmsar framkvæmdir í gangi Hús-
næðisskortur hamlar fjölgun íbúa
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Ýmsar áskoranir blasa
við í rekstri Borgarbyggðar.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Uppskerutíminn er skemmtilegur.
Við höfum unnið stíft alla helgina,
því kartöflurnar eru fullsprottnar og
hvað úr hverju má búast við rigningu
og næturfrosti. Því er best að ná sem
mestu úr mold, nú þegar aðstæður
eru góðar,“ segir Björgvin Helga-
son, bóndi á Sílastöðum í Kræklinga-
hlíð, rétt norðan við Akureyri.
Bændur á Sílastöðum og Einarsstöð-
um í Hörgársveit, sem eru samliggj-
andi jarðir, standa saman að kart-
öflurækt og undir með um 15 ha.
Þeir rækta gullauga, rauðar ís-
lenskar og premier og fara afurðirn-
ar að stærstum hluta í verslanir á
Akureyri. „Ég reikna með að upp-
skeran í ár verði á bilinu 300-400
tonn. Útlitið er gott og skilaverð fyr-
ir afurðir er þokkalegt. Þetta eru vel
sprottnar kartöflur og fallega útlít-
andi,“ segir Björgvin sem var með
sínu fólki í görðunum um helgina.
Sex manns eru í liðinu og allir leggj-
ast á eitt og þannig ganga verki
greitt fyrir sig. Veður til garðvinnu
var hið besta, þurrt, bjart og hlýtt.
Kartöfluræktun er talsverð á
Eyjafjarðarsvæðinu, svo sem í
Kræklingahlíð og í Eyjafjarðarsveit.
Einnig eru nokkrir bændur sem slík-
an búskap stunda í Grýtbakku-
bakkahreppi við Grenivík.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Vinna Mæðgurnar á Einarsstöðum Sigríður Stefánsdóttir, til vinstri, og dóttir hennar, Hulda Lillý Sigurðardóttir.
Uppskeran er góð
Kartöfluvertíð kraftmikil í Kræklingahlíð Allt að 400
tonn Vera á undan regni og frosti Unnið var alla helgina
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Haustverk Dráttarvélinni ekið um garðinn og upptökuvél í eftirdragi.
„Hér hefur enn ekki komið næturfrost, kartöflugrösin standa enn og
sprettan hefur ekki stöðvast. Ég reikna þó með að um miðja vikuna verði
byrjað af fullum krafti að taka upp úr görðunum hér,“ segir Markús Ár-
sælsson, kartöflubóndi í Hákoti í Þykkvabæ.
Um tíu bændur þar í sveit stunda ræktun jarðávaxta, en Þykkvibær
hefur löngum verið sagður mekka kartöfluræktunar á Íslandi. Útlitið með
uppskeru nú er gott þótt hún verði sennilega ekki jafn góð og í fyrra, seg-
ir Markús sem leggur framleiðslu sína inn hjá Þykkvabæjar, sem er af-
urðasala og matvælavinnsla.
Sprettan hefur ekki stöðvast
ÞYKKVIBÆR ER MEKKA KARTÖFLURÆKTAR Á ÍSLANDI
Þórdís Sif
Sigurðardóttir