Morgunblaðið - 31.08.2020, Page 6

Morgunblaðið - 31.08.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020 „Styttan sjálf var meira og minna ónýt en það er búið að laga hana og Héðinn fer að komast á sinn stað,“ segir Kristín Róbertsdóttir, for- maður Húsfélags alþýðu, sem er eigandi styttunnar af Héðni Valdimarssyni sem um áratugaskeið hefur staðið við Hringbraut í Framkvæmdir við endurbætur stöpulsins eru að hefjast og búast má við því að Héðinn komist aftur á sinn stað á næstunni. Við- gerðin hefur reynst dýr að sögn Kristínar. Einnar milljónar styrkur var veittur úr húsa- friðunarsjóði í fyrra til viðgerða á stöplinum. vegar í ljós að festingar og boltar inni í henni voru mikið ryðguð svo ráðast þurfti í viðgerð. Danskur sérfræðingur var fenginn í verkið. „Hann sagði að við mættum eiginlega vera fegin að styttan hefði ekki hrunið niður,“ seg- ir Kristín. Reykjavík. Sigurjón Ólafsson gerði styttuna af Héðni og var hún sett upp árið 1955. Styttan var tekin niður fyrir tveimur árum því laga átti stöpulinn undir henni. Var Héð- inn settur í geymslu á Árbæjarsafni og stóð til að vaxbera styttuna. Við skoðun kom hins Héðinn kemst brátt aftur á sinn stall Endurbætur Styttan af Héðni Valdimarssyni hefur verið lagfærð. Til vinstri má sjá hversu illa stöpullinn var farinn í árslok 2017. Myndin til hægri var tekin fyrir helgi þegar vinna stóð yfir. Morgunblaðið/Eggert Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ríkið fær 300-400 milljónir króna ár- lega vegna vanrækslugjalda frá bif- reiðaeigendum sem ekki koma með bíl sinn til skoðunar innan tveggja mánaða frá tilætluðum skoðunar- tíma. Nemur þetta nærri einni millj- ón króna á dag að meðaltali. Nú stendur til að gera reglugerð- arbreytingu þar sem almenna van- rækslugjaldið er hækkað úr 15 þús- und krónum í 20 þúsund krónur en eigendum hóp- og vörubifreiða verði gert að greiða 40 þúsund krónur í stað 15 þúsund króna ef þeir koma ekki með ökutækin í skoðun innan tilætlaðs tíma. Litlar vespur sendar í skoðun Líkt og sjá má á meðfylgjandi grafi hefur fjöldi vanrækslugjalda haldist svipaður undanfarin 10 ár og eru um 15% bifreiðaeigenda sem reiða fram gjaldið, samkvæmt upp- lýsingum frá Sýslumanninum á höf- uðborgarsvæðinu. Fram kemur í umsögn frá Sýslumanninum á Vest- fjörðum, sem sér um innheimtu gjaldsins, að árlega sé fjöldi álagn- inga vanrækslugjalds á bilinu 35.000 til 40.000. Í breytingum á reglugerðinni er m.a. lagt til að létt bifhjól í flokki I verði gerð skoðunarskyld. Eru það ökutæki sem geta ekki farið hraðar en 25 km/klst. Lágmarksaldur til aksturs slíkra ökutækja miðast við 13 ár og má því hér eftir gera ráð fyrir því að á sumum heimilum muni skoðunarskyldum ökutækjum fjölga. Samkvæmt gildandi reglum hefur þeim sem búa lengra en 80 km frá næstu skoðunarstöð verið veittur sá kostur að sækja um skoðunarfrest til allt að tveggja mánaða. Lagt er til í reglugerðarbreytingunni að sú heimild verði felld úr gildi. Bent er á umsögn Sýslumannsins á Vestfjörð- um um að það kunni að koma illa við staði þar sem sjaldan er boðið upp á skoðun ökutækja, t.d. á Hólmavík, Vík í Mýrdal, Kirkjubæjarklaustri, Djúpavogi og nágrenni þessara staða þar sem aðeins er skoðað í fær- anlegri stöð einu sinni á ári. Vanrækslan kostar sitt  Ríkið fær 300-400 milljónir króna á ári frá bifreiðaeigendum sem sinna ekki uppgefnum skoðunartíma  Vanrækslugjald verður hækkað í 20 þúsund kr. Álagning vanrækslugjalds 2009-2019 Heildarfjöldi álagninga frá upphafi, þúsundir 50 40 30 20 10 0 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Heimild: Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 35 34 38 34 37 34 37 35 41 39 39 Hefur bognað en ekki brotnað. Þetta sagði Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Ís- lands, þegar tré ársins 2020 var útnefnt við hátíðlega athöfn á Skógum í Þorskafirði í Reykhóla- sveit sl. laugardag. Umrætt tré er gráreynir, 5,9 m á hæð, með þver- mál í hnéhæð 26,5 cm en 17,3 í brjósthæð, en þar hefur tréð skipst í tvo stofna. Að útnefna tré ársins er áralöng hefð í starfi Skógræktarfélags Ís- lands. Með því er ætlunin að beina sjónum almennings að því grósku- mikla starfi sem unnið er um land allt í trjá- og skógrækt og benda á menningarlegt gildi einstakra trjáa um allt land. Upphaflega var svo hald fólks að tréð vestra sem útnefnt var nú væri silfurreynir, en kunnáttumenn gátu kveðið upp úr með að þetta væri gráreynir. Skógar í Þorskafirði eru í eigu Bahá́í-samfélagsins á Íslandi. Hall- dór Þorgeirsson, fulltrúi þjóðar- ráðs Bahá́í, segir vilja standa til þess að opna skóginn þar frekar til heimsókna svo fólk geti notið þar kyrrðar og eflt tengsl við nátt- úruna. Fjölmargar trjátegundir er að finna í lundinum á Skógum, svo sem fjallaþöll og skógarfuru, sem lifað hefur ýmislegt af. sbs@mbl.is Gráreynir valinn tré ársins  Myndartré á Skóg- um í Þorskafirði Ljósmynd/Ragnhildur Freysteinsdóttir Skógar Gráreynirinn góði til vinstri. Jónatan Garðarsson við hlið trésins. Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Harkaleg hópslagsmál brutust út í Bankastræti á laugardagskvöld. Bæði íslenskir og erlendir menn voru í átökunum sem í sumum til- vikum leiddu til alvarlegra áverka. Enginn er þó í lífshættu. Fram kemur á mbl.is að í það minnsta einn hafi farið á sjúkrahús. Margeir Sveinsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn segir að meiðsli þessara manna séu ekki alvarleg en um skurði og rot sé að ræða í ein- hverjum tilvikum. Hann segir að lögregla hafi fyrst og fremst reynt að stilla til friðar og því hafi ekki náðst að taka höndum menn sem þó hefðu augljóslega tekið þátt í slags- málunum. snorrim@mbl.is Lögreglan Hópslagsmál voru í Banka- stræti. Lögregla stillti til friðar. Hópslagsmál í Bankastræti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.