Morgunblaðið - 31.08.2020, Side 9

Morgunblaðið - 31.08.2020, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga www.innlifun.is Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Viðtökurnar hafa verið vonum framar. Við seldum meira en helm- inginn af bjórunum okkar á fyrsta degi og restin fór svo nánast öll dag- inn eftir. Það var eitthvað smá til eftir helgina,“ segir Axel Paul Gunn- arsson, annar aðstandenda Böls Brewing. Böl Brewing er nýtt brugghús á markaði hér á landi og fyrstu tveir bjórar þess fóru í sölu í Vínbúðunum á dögunum. Viðtökurnar voru góðar, eins og Axel sagði og meira er vænt- anlegt. Félagi Axels í Böli heitir Hlynur Árnason. Sá er menntaður efna- fræðingur og starfaði sem brugg- meistari hjá Borg brugghúsi áður en þeir félagar stofnuðu eigið brugghús fyrr á árinu. Axel er hins vegar menntaður í markaðsfræðum og bjó lengi í Englandi þar sem hann fikt- aði meðal annars við bjórgerð. „Við höfðum talað um að stofna eigið brugghús í svolítinn tíma og eftir áramót ákváðum við að láta slag standa. Vikuna eftir að við stofnuðum fyrirtækið skall Covid á. Þá settumst við niður, fengum okkur einn bjór, og hugsuðum hvað í fjand- anum við ættum að gera. Nið- urstaðan var að breyta plönunum aðeins en kýla samt á þetta. Upp- haflega höfðum við ráðgert að selja bara bjór á bari en þegar þeim var öllum lokað þurftum við að skipta um gír og fara inn í Vínbúðirnar,“ segir Axel. Raunar er vart hægt að kalla Böl Brewing brugghús því þeir félagar hafa ekki yfir neinu húsnæði að ráða og yfirbygging fyrirtækisins er eng- in. Þeir hafa þann háttinn á að leigja sér aðstöðu hjá öðrum brugghúsum og því hafa þeir ekki þurft að ráðast í stórar fjárfestingar til að koma fyrirtækinu á koppinn. Slíkt fyrir- komulag er þekkt erlendis, til að mynda frá hinum þekkta handverks- framleiðenda Mikkeller. „Okkar bjórar eru aðeins öðruvísi en allir hinir, það er alltaf eitthvert tvist í þeim,“ segir Axel þegar hann er spurður um það hvaða erindi Böl hafi á líflegan markað íslenskra handverksbjóra. Hann tekur sem dæmi tvo fyrstu bjórana sem fóru í sölu í Vínbúðunum um þarsíðustu helgi. Annars vegar var um að ræða Killer Queen sem er Pale Ale bragð- bættur með Earl Grey-tei frá Reykjavík Roasters. Hins vegar Bombogenesis sem er Gose bragð- bættur með ávöxtum. „Við settum töluvert meira af ávöxtum en tíðk- ast; hindber, bláber og brómber auk fjóla. Fólk setur ýmislegt út í bjóra en við gerum það til að bæta bjór- ana.“ Fleiri bjórar eru væntanlegir á næstunni. „Til dæmis dökkur Stout með kaffi og hlynsírópi. Hann er al- gert nammi. Svo er það súr IPA sem er bragðbættur með kirsuberjum, apríkósum og appelsínuberki.“ Nota fjólur og te til að bragðbæta bjórana  Böl Brewing er nýjasta handverksbrugghús landsins  Breyttu áætlunum vegna veirunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýliðar Axel Paul og Hlynur stofnuðu Böl Brewing í ár og stefna hátt. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Ekkert hefur þokast í vinnu stjórn- valda til að stemma stigu við ótryggðum ökutækjum í umferðinni. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í síðustu viku eru um 2.600 ótryggð ökutæki í umferð á Íslandi og tjón af þeirra völdum nemur tugum millj- óna króna á hverju ári. Í svari fjármála- og efnahagsráðu- neytisins við fyrirspurn Morgun- blaðsins um stöðu mála er rakið að lög um ökutækjatryggingar hafi tek- ið gildi um síðustu áramót samhliða gildistöku umferðarlaga. „Nú er nokkur reynsla komin á framkvæmd nýju laganna um öku- tækjatryggingar og hafa ráðuneyt- inu borist ábendingar um atriði sem nauðsynlegt væri að taka til endur- skoðunar. Á meðal þess sem gerðar hafa verið athugasemdir við og er til skoðunar í ráðuneytinu eru ákvæði í lögunum um lögveð á ökutækjum vegna vangoldinna lögboðinna vá- tryggingariðgjalda. Að auki hefur ráðuneytið almennt til skoðunar hvaða leiðir séu best til þess fallnar að stemma stigu við óvátryggðum ökutækjum í umferð. Vinnan hefur tafist vegna verkefna sem tengjast efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins en hún mun halda áfram í haust,“ segir í svari ráðuneytisins. Þegar áðurnefnd lög voru í undir- búningi kom fram í nefndaráliti efna- hags- og viðskiptanefndar að í minn- isblaði sem nefndin fékk frá ráðuneytinu segði að til skoðunar væri að skipa starfshóp sem hefði það hlutverk að fjalla meðal annars um upptöku vantryggingargjalds til að stemma stigu við ótryggðum öku- tækjum. Þetta var í mars 2019 en umræddur starfshópur hefur enn ekki verið skipaður. Óli Björn Kárason, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar, tjáði Morgunblaðinu að full samstaða hefði verið innan nefndarinnar um nauðsyn þess að lögfesta úrræði til að bregðast við þeim vanda sem ótryggð ökutæki valda. „Ef ráðu- neytið getur ekki brugðist við, enda glímt við gríðarleg verkefni vegna kórónuveirufaraldursins, hlýtur nefndin að taka málið í sínar hendur með það að markmiði að sníða af þá vankanta sem eru á gildandi löggjöf um ökutækjatryggingar,“ segir Óli Björn. Vinnan verði sett í gang á ný í haust  Boða aðgerðir gegn ótryggðum bílum Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, hefur sent erindi til Rík- isendurskoðunar vegna starfsemi SÁÁ. Þar segir að til tíðinda teljist að starfsmenn samtakanna sendi frá sér afdráttarlausa yfirlýsingu um misbresti í starfi samtakanna sem hafi fengið milljarða króna úr ríkissjóði. Vísað er til þess að fyrir stjórnarkjör í SÁÁ hafi meira en hemingur 100 starfsmanna skrifað undir yfirlýsingu þar sem segir að vandi SÁÁ snúist um yfirgengilegt ofbeldi í samskiptum, vanvirðingu, undirróður og valdabaráttu. Þarna sé augljóslega vísað til tæplega 40 ára starfs Þórarins Tyrfingssonar sem í um 20 ár var bæði formaður SÁÁ og framkvæmdastjóri. Við því hafi mátt búast að stjórn SÁÁ kann- aði málavöxtu. Það hafi ekki gerst og því vill Rótin að Ríkisendur- skoðun skoði málið. „Það eru miklir hagsmunir fólgn- ir í réttlæti til handa þeim sem beittir hafa verið ofbeldi innan stofnana ríkisins eða sem studdar eru af ríkinu,“ segir Rótarkonur. Ríkisendurskoðun kanni starf SÁÁ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.