Morgunblaðið - 31.08.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 31.08.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Allir vilja meira og betra sam- starf og betri tengingu skólastarfs- ins í bænum við atvinnulíf, íþróttir, menningu og listir. Tengja þarf bæjarlífið betur saman sem eina heild á forsendum barnanna. Á Ak- ureyri er líka kjörumhverfi til að æfa sig í að vera fullorðinn í öruggu umhverfi. Á þeirri vegferð gegna skólarnir lykilhlutverki,“ segir Ingibjörg Ólöf Isaksen for- maður fræðsluráðs Akureyr- arbæjar. Fræðslumál 44% af út- gjöldum Akureyrarbæjar Starf í skólum Akureyr- arbæjar hófst í síðastliðinni viku. Nemendur í 10 grunnskólum bæj- arins, þar með talið í Hrísey, eru um 2.700. Í leikskólunum sem eru ellefu talsins eru börnin um 940. Til þessa fræðslustarfs er varið alls um 8 milljörðum króna á ári, sem er um 44% af útgjöldum Akureyr- arbæjar. Á nýju starfsári verður starf- að í anda Menntastefnu Akureyr- arbæjar sem bæjarstjórn sam- þykkti í byrjun júní sl. Vinna við stefnumótun þessa, sem gildir 2020-2025, tók tæplega þrjú ár, í ferli sem fulltrúar fræðslusviðs Akureyrar, miðstöðvar skólaþró- unar Háskólans á Akureyri og ráð- gjafafyrirtækisins Tröppu leiddu. Fulltrúar nemenda grunnskól- anna, foreldrar, starfsfólk og ýms- ir fleiri voru teknir tali og þær upplýsingar – ásamt marg- víslegum fleiri gögnum – nýttar. Gæði og úrbætur „Í stefnumótun var einblínt á þætti sem nýjustu úttektir og ábendingar um innleiðingu á menntastefnu þjóðarinnar benda til að gera megi betur,“ segir Ingi- björg. Hún vísar til þess að fyrir nokkru hafi sérfræðingar í menntamálum farið um landið ásamt menntamálaráðherra og rætt hvernig best mætti innleiða menntastefnu stjórnvalda og tryggja menntun allra. Þar hafi mikilvæg sjónarmið komið fram. „Mikilvægasta aðgerðin í stefnu Akureyrarbæjar er áhersla á gæðastarf í skólum, úrbætur og augljósar vísbendingar um hvað er gott og hvað þarf að bæta. Við vilj- um að starfsfólk skólanna fái stuðning við að bera á borð og kynna afburðagott skólastarf með stolti og vissu um að vera á réttri leið,“ nefnir Ingibjörg. Tiltekur að vinna í skólunum með tilliti til gæða hefjist í haust. Samið hafi verið við ráðgjafaþjónustuna Tröppu og Háskólann á Akureyri um eftirfylgnina. Allir vegir færir Yfirskrift menntastefnunnar á Akureyri er Með heiminn að fótum sér. Titillinn vísar til þess að eftir nám í grunnskóla eigi börnum að vera allir vegir færir og að þau geti valið sér leið í samræmi við áhuga og þarfir, hvar sem er í heiminum. Grunnþættir mennt- unar eru skv. gildandi aðal- námskrá grunnskóla læsi, sjálf- bærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. „Starfshættir grunnskóla hafa verið í örri þróun á undanförnum árum en kannski hefur ekki verið nógu skýrt hvert stefna skal,“ seg- ir Ingibjörg. „Óháðar úttektir er- lendra aðila sýna þó að á við ættum að leggja áherslu á megináherslur aðalnámskrár og aðgreina nem- endur minna. Í menntastefnu Ak- ureyrarbæjar erum við að ganga lengra en tíðkast hefur með þá út- færslu. Við ætlum okkur að styðja okkar góða starfsfólk til að skara fram úr með fyrirmyndar starfs- háttum sem eru vel skilgreindir, byggja á því sem fyrir er og telst gott en hverfa frá því sem á ekki lengur við í skólaumhverfi nú- tímans.“ Lykilþættir við framkvæmd menntastefnu Akureyrarbæjar eru þrír. Í fyrsta lagi framúrskarandi starfshættir, það er vinna út frá gæðaviðmiðum, í annan stað leik- ur, nám og kennsla og í þriðja lagi prófum hafi útkoman verið nærri meðaltali. Horfa verði þó til fleiri þátta, svo sem að skólinn sé góður staður sem nesti nemendur vel til vegaferðar til framtíðar. „Við ætlum að auka líkurnar á betri árangri á samræmdum mæl- ingum og prófum. Sömuleiðis vill bærinn auka stuðning við kennara og stjórnendur svo hægt sé að gera enn betur og allir geti verið stoltir af skólastarfinu okkar. Með því að koma betur til móts við þarfir barna með skapandi starfsháttum auka lýðræðislega aðkomu þeirra að skólastarfinu og sjá til þess að námsverkefnin endurspegli raun- veruleikann og sé skemmtileg. Gæðavísarnir geta svo sagt okkur hvernig til tekst,“ segir Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður fræðsluráðs Akureyrar að síðustu. stjórnun og fagleg forysta. Í hverri stofnun sem heyrir undir mennta- rstefnuna verður útbúin aðgerð- aráætlun og hefur hver skóli svig- rúm fyrir eigin áherslur. Af hálfu fræðslustjórnar bæjarins verður svo horft á heildarmyndina í árleg- um úttektum og framförum fylgt eftir. Þar við svo bætist víðtækt samráð við alla sem tengjast skóla- starfinu eða láta sig það varða. Auka stuðning við kennara „Í hverjum skóla verður sett á laggirnar gæðaráð og svo verða styrk- og veikleikar hvers skóla og starfs hans vegnir og metnir. Sam- kvæmt því verður leiðin til fram- tíðar vörðuð,“ segir Ingibjörg. Hún bætir við að árangur nemenda skóla á Akureyri hafi um margt verið ágætur og á samræmdum Menntastefna Akureyrarbæjar mætir þörfum barna með skapandi starfsháttum og lýðræðislegri aðkomu þeirra að skólastarfi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mennt Allir geti verið stoltir af skólastarfinu okkar, segir Ingibjörg Ólöf Isaksen um fræðslumálin á Akureyri. Umhverfi til að æfa sig í að vera fullorðinn  Ingibjörg Ólöf Isaksen er fædd í Reykjavík 1977 og bjó þar til ársins 2004 er hún flutti norður til Akureyrar. Starfaði lengi sem kennari og menntaður íþróttafræðingur ásamt því sem hún hefur afl- að sér þekkingar í viðskiptum og opinberri stjórnsýslu.  Sveitarstjórnarfulltrúi í Eyjafjarðarsveit 2010-2013 og frá 2014 bæjarfulltrúi á Akur- eyri. Er stjórnarformaður Norðurorku og formaður fræðsluráðs Akureyrar. Fram- kvæmdastjóri Læknastofa Ak- ureyrar frá 2018. Er gift Karel Rafnssyni og þau eiga samtals 6 börn. Hver er hún? Morgunblaðið/Margrét Þóra Frímínútur Kátir krakkar í Gilja- skóla sem er í Glerárhverfi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Oddeyrarskóli Hingað sækja nem- endur af Eyrinni nám sitt. Í margra vitund er Akureyri skólabær og sennilega með réttu. Þar eru skólar á öllum stigum; leikskólar þar sem undirstaðan er lögð – og Háskólinn á Akureyri má útskrifa doktora sem er æðsta og hæsta lærdómsgráðan. Á mörgum sviðum samfélagsins má hitta fyrir fólk sem er frá Ak- ureyri og hefur langa skólagöngu að baki. Blaðamaður hefur oft veitt því athygli hve margir í heilbrigðis- greinum eru Akureyringar, sem í rótina helgast meðal annars og væntanlega af góðri kennslu í náttúrufræðigreinum við fram- haldsskóla bæjarins. „Skólasamfélag og bæjarlíf þurfa að vera í sama takti. Því er í menntstefnunni gert ráð fyrir því að börnin geti leitað til atvinnu- lífsins, listamanna og íþrótta- félaga í verkefnum sínum. Við viljum sjá nemendur á ferð um bæinn að leita eftir stuðningi við að útfæra nýsköpunarverkefni, taka viðtöl og þjálfa lykilhæfni. Með þessum áherslum getum við aukið líkurnar á því að börnin fóti sig í síbreytilegum heimi í bland við hefðbundnari aðferðir.“ Fóti sig í síbreytilegum heimi SKÓLASTARF OG BÆJARLÍF SÉU Í SAMA TAKTI Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.