Morgunblaðið - 31.08.2020, Síða 15

Morgunblaðið - 31.08.2020, Síða 15
Flokkur fólksins hefur barist fyrir bættum kjörum og að- stæðum eldri borgara og öryrkja bæði á Al- þingi og í Reykjavík- urborg. Til þess að það geti verið raunveruleg- ur kostur fyrir eldri borgara að vera sem lengst heima þá er mikilvægt að gera nokkrar breytingar á verkferlum þjónustunnar og taka inn fleiri þjón- ustuþætti. Þjónustuþörf er mismun- andi eins og gengur en stundum vantar ekki mikið upp á til að við- komandi geti búið lengur á heimili sínu. Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram í velferðarráði 19. ágúst 14 til- lögur sem sneru að bættri þjónustu við eldri borgara í heimahúsum og fjölgun þjónustuþátta. Öllum nema fjórum var hafnað. Frávísun var m.a. á grundvelli þess að verklags- reglur og framkvæmdaferill væru settar af starfsmönnum velferðar- sviðs en ekki velferðarráði. Hvatinn að gerð tillagnanna var frétt um að matarsending til eldri borgara hefði verið skilin eftir á hurðarhúni eftir að sendill hafði hringt dyrabjöllu sem ekki var svarað. Til þess að draga úr hættu á misskilningi milli þjónustuveitanda og þjónustuþega er greinilegt að breyta verður verkferlum. Hvað viðkemur þessum þjónustuþætti sér- staklega, lagði fulltrúi Flokks fólksins einnig til að maturinn væri sendur út sama dag og hann er framleiddur og að umbúðum verði breytt til að auð- velda þjónustuþegum að opna þær. Eins og umbúðir eru núna er erfitt að rífa plastið af bakkanum. Meðal tillagna var einnig ein til- laga sem laut að hlutverki sendils- ins. Ef enginn skilaboð eða fyrir- mæli liggja fyrir um annars konar afhendingu matarins er hægt að ganga út frá því sem vísu að þjón- ustuþegi taki á móti matnum úr hendi sendils. Ef þjónustuþegi svar- ar hvorki dyrabjöllu né síma ætti sendill að hringja í ættingja og upp- lýsa um stöðuna. Ef enginn ættingi er til staðar þarf að upplýsa þjón- ustumiðstöð. Með símtali sendils til ættingja (eða þjónustumiðstöðvar) er ættingi kominn með upplýsingar um að þjónustuþegi svari hvorki dyrabjöllu né síma þrátt fyrir að hann viti að matarsending sé vænt- anleg. Ættingi (þjónustumiðstöð) getur þá tekið ákvörðun byggða á þessum upplýsingum um hvað skuli gera í stöðunni. Þetta gæti verið vís- bending um að þjónustuþegi sé í vanda og kalla þurfi á lögreglu/ sjúkrabíl. Þegar eldri borgarar eru annars vegar eru allir þeir sem hafa við þá samskipti hluti af öryggisneti. Safn- ist sem dæmi matur upp hjá þjón- ustuþega sem óskað hefur eftir að sé skilinn eftir fyrir utan dyr hlýtur sendill að láta ættingja eða þjón- ustumiðstöð vita sem myndu í fram- haldi leita orsaka. Í öllu falli þarf matarsendingin að komast til skila enda vara sem búið er að greiða fyrir. Ekki er boðlegt að fara aftur til baka með matar- sendinguna og ætlast til að þjón- ustuþegi sæki hana sjálfur, sendi leigubíl eftir henni eða fái hana dag- inn eftir. Þegar ekki er komið til dyra til að taka við matnum er held- ur ekki réttlætanlegt að skilja mat- inn eftir á hurðarhúninum og láta þar við sitja nema fyrirmæli hafi komið um að það sé í lagi. Fjölga þjónustutilboðum Það er mat fulltrúa Flokks fólks- ins að útvíkka þurfi einnig ákveðna þjónustuþætti og bæta fleirum við þá þjónustu sem nú býðst til þess að auka möguleikana á að viðkomandi geti búið lengur heima. Létta þarf fjárhagslega undir með mörgum eldri borgurum. Lagt var til að þeir sem búa í öðru húsnæði en þjón- ustuíbúð ættu að fá niðurgreiðslur á þeim þáttum sem eru að jafnaði innifaldir í þjónustuíbúð, s.s. raf- magni, húsgjaldi og þrifum í görð- um. Einnig var lagt til að velferðaryf- irvöld taki þátt í kostnaði við örygg- ishnapp. Rök meirihlutans í velferð- arráði fyrir að fella þá tillögu voru „að það sé varasamt að setja það fordæmi að borgin fari að fyrra bragði og óumbeðin inn á verksvið ráðuneytis og sendi þar með þau skilaboð að kostnaðarþátttaka ráðu- neytis sé óþörf“. En hver er eiginlega forgangsröð- unin hér? Hvort er það þjónustu- þeginn eða hræðsla velferðaryfir- valda við að gefa fordæmi? Ekki ábyrgð velferðarráðs? Það er sérkennilegt að vísa frá og fella tillögur með vísan í að verk- lagsreglur og framkvæmdaferill sé sett af starfsmönnum velferðarsviðs en ekki velferðarráði. Auðvitað kem- ur það velferðarráði við ef verklags- reglur og framkvæmdaferill þjón- ustu velferðarsviðs við eldri borgara í heimahúsi þarfnast betrumbóta eða er ábótavant. Mannlegi þátturinn má aldrei gleymast þegar verið er skipuleggja þjónustu fyrir borgarana. Velferð- aryfirvöld ættu ávallt að hafa fullt samráð við þjónustuþega og hugsa hvert skref út frá þörfum hans. Hlusta þarf á þjónustuþegana og að- standendur þeirra. Það er á ábyrgð velferðarráðs sem er yfir velferð- arsviði að tryggja að allir þessir þættir séu í lagi. Heima sem lengst Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur Kolbrún Baldursdóttir » Auðvitað kemur það velferðarráði við ef verklagsreglur og fram- kvæmdaferill þjónustu velferðarsviðs við eldri borgara í heimahúsi þarfnast betrumbóta Höfundur er borgarfulltrúi Flokks fólksins. 15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020 Ekkert eitt í sam- göngumálum bætir líf fólks jafn mikið og jarðgangagerðin. Að fara undir fjöllin en ekki yfir þau er leið dagsins. Með jarð- gangagerð verða til hagsældarsvæði sem auðvelda lífið og fal- legu þorpin fá nýjan lífsþrótt. Þetta sjáum við á Austurlandi og Vestfjörðum. Á dögunum fór ég um Trölla- skagasvæðið og skynjaði afl jarð- gangagerðarinnar. Og sá í hendi mér að enn er verkinu ekki lokið, að- eins hálfnað verk þá hafið er. Strákagöngin voru barn síns tíma en Héðinsfjarðargöng, Ólafsfjarðar- göng og síðast Vaðlaheiðargöng hafa lagt atvinnulífi Mið-Norðurlands til ný búsetuskilyrði. Jarðgöng undir Trölla- skagann milli Skaga- fjarðar og Eyjafjarðar hrópa á einka- framkvæmd, ekkert síður en Hvalfjarð- argöng á sínum tíma. Húsavík í norðri, Ak- ureyri, Dalvík, Ólafs- fjörður, Siglufjörður, Sauðárkrókur og Blönduós með betri vegi um Þverárfjall orðin eitt atvinnu- svæði. Ferðamenn erlendir sem inn- lendir heimsækja svona gullhringi. Íslendingarnir voru alls staðar á minni ferð. Þeir hafa með hangandi hendi ferðast um sitt land síðustu árin en nú eru þeir vaknaðir. Út- lendingarnir koma aftur þegar pestinni linnir og heimurinn vaknar aftur af vondum draumi. Því er líka mikilvægt að nota tímann til að vinna að vegagerð og hvernig má dreifa ferðamönnunum um landið. Landsbyggðin með sínar dreifðu byggðir verður sérstaklega eft- irsótt eftir kófið. Víðernin og frelsið sem Ísland býður ferðamönnum upp á á ekki sinn líka. Bæði sam- vinnan og einkaframtakið njóta sín í þessum bæjum og ríkisvaldið verður að kunna sitt hlutverk: Að hætta að slátra þjónustunni og færa hana suður. „Dagsæðið,“ í Reykjavík má ekki brotlenda flug- velli höfuðborgarinnar, landsins alls. Flugið rís aftur með nýjum hætti, byltingu. Höfnum alþjóðabrjálæðinu í matvælaflutningum Heimsmyndin er breytt og heim- urinn hefur beðið tjón vegna heimsku og græðgi þeirra auð- ugustu. Flutningurinn á matvælum heimsálfa á milli er brot á mannrétt- indum og þaðan kemur fárið aftur og aftur, í dýraníði í verksmiðjubúskap, lyfjum og mengaðri jörð. Íslenskar sveitir eru matvælakistur ekkert síður en hafið kringum landið. Við eigum heita og kalda vatnið, svala lífsandann og eiturlausa jörð, heil- brigða búfjárstofna, góða bændur. Covid-pest af sama toga kom upp 2004 en þá tókst að kæfa hana. Svínapestin gerði árás 2009 og nú hin banvæna pest á ný. Allt stafar þetta af sóðaskap og viðbjóði í kring- um matvælamarkaði og verk- smiðjubúskap. Því segjum við Ís- lendingar okkur frá svona alþjóða- brjálæði strax. Biðjum okkar bændur að framleiða matvælin. Því verða stjórnmálamennirnir að vakna af sínum vonda draumi og þjónkun við heildsalagróðann og fara að efla Ísland allt til matvælaframleiðslu. Kjötið allt, mjólkurvörur og græn- meti verði heimafengið og heima- ræktað. Hvar sem ég fer kemur fólk til mín og segir: „Þetta er rétt með landbúnaðinn, við eigum að efla hann.“ Þarna er unga fólkið statt sem í vaxandi mæli spyr sig hvað það setur í magann og hvaðan fæðan kemur og hvernig er meðferð dýr- anna og framleiðsluferlið. Við getum lifað enn betra lífi í landinu okkar ef heilbrigð sjónarmið fá að ráða ferðinni en ekki skyndi- gróði, og galin heimsmynd sem nú liggur í fjörbrotum. Vilji er allt sem þarf. Hvað vilja stjórnmálamenn- irnir? Eftir Guðna Ágústsson »Hvar sem ég fer kemur fólk til mín og segir: „Þetta er rétt með landbúnaðinn, við eigum að efla hann.“ Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Jarðgöngin hafa auðgað og eflt hagsældarsvæði Sprettur Í Biskupstungum var riðið hratt um grundir sl. laugardag. Hver knapi var með tvo til reiðar og klárarnir fengu að spretta úr spori. Drjúgur verður síðasti áfanginn, segir í ljóðinu. Sigurður Bogi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.