Morgunblaðið - 31.08.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 31.08.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2020  Pepsi Max-deild karla KA – Stjarnan........................................... 0:0 KR – ÍA ..................................................... 4:1 Valur – HK................................................ 1:0 Grótta – Fylkir ......................................... 0:2 Staðan: Valur 12 9 1 2 28:12 28 Fylkir 13 7 1 5 21:18 22 Stjarnan 11 5 6 0 18:9 21 Breiðablik 11 6 2 3 24:17 20 KR 11 6 2 3 22:15 20 FH 11 6 2 3 22:16 20 Víkingur R. 11 3 5 3 19:18 14 ÍA 12 4 2 6 27:29 14 HK 13 4 2 7 21:28 14 KA 12 1 8 3 9:14 11 Grótta 13 1 3 9 10:27 6 Fjölnir 12 0 4 8 10:28 4 Lengjudeild karla Grindavík – Vestri .................................... 2:1 Víkingur Ó. – ÍBV .................................... 1:1 Afturelding – Fram.................................. 1:2 Þór – Þróttur R......................................... 3:0 Leiknir F. – Magni ................................... 1:3 Staðan: Fram 12 8 3 1 31:18 27 Keflavík 12 7 3 2 38:19 24 ÍBV 12 6 6 0 24:13 24 Leiknir R. 12 7 2 3 31:18 23 Þór 12 6 2 4 24:18 20 Grindavík 12 5 5 2 26:22 20 Vestri 12 4 4 4 14:17 16 Afturelding 12 3 3 6 23:19 12 Víkingur Ó. 12 3 2 7 15:29 11 Leiknir F. 12 3 1 8 14:29 10 Þróttur R. 12 2 1 9 9:26 7 Magni 12 1 2 9 10:31 5 2. deild karla Völsungur – Selfoss.................................. 0:1 Víðir – Fjarðabyggð................................. 5:2 Kári – KF .................................................. 2:2 Dalvík/Reynir – ÍR................................... 3:2 Staðan: Kórdrengir 12 8 3 1 25:8 27 Selfoss 12 8 1 3 19:12 25 Haukar 12 8 0 4 25:16 24 Þróttur V. 12 6 4 2 18:12 22 Fjarðabyggð 12 6 3 3 22:16 21 Njarðvík 12 6 3 3 20:14 21 KF 12 6 1 5 22:22 19 Kári 12 4 3 5 19:16 15 Víðir 13 4 0 9 15:33 12 ÍR 12 3 1 8 20:24 10 Dalvík/Reynir 12 2 2 8 14:26 8 Völsungur 13 1 1 11 16:36 4 3. deild karla Reynir S. – Einherji ................................. 7:2 Vængir Júpíters – KV.............................. 0:3 Höttur/Huginn – Augnablik.................... 3:1 Elliði – Sindri ............................................ 4:3 Álftanes – Ægir ........................................ 3:3 KFT - Tindastóll....................................... 2:2 Staðan: Reynir S. 12 9 2 1 40:19 29 KV 12 9 0 3 33:17 27 Augnablik 12 5 4 3 27:23 19 KFG 12 5 3 4 25:22 18 Tindastóll 12 4 5 3 22:25 17 Vængir Júpiters 12 4 3 5 15:18 15 Ægir 12 4 3 5 20:24 15 Sindri 12 4 3 5 23:30 15 Einherji 12 4 1 7 20:31 13 Höttur/Huginn 12 3 2 7 19:23 11 Elliði 12 3 2 7 20:27 11 Álftanes 12 2 4 6 20:25 10 Pepsi Max-deild kvenna Stjarnan – ÍBV ......................................... 1:0 Þróttur R. – Fylkir................................... 2:1 Selfoss – FH.............................................. 1:0 Staðan: Valur 11 9 1 1 27:9 28 Breiðablik 10 9 0 1 43:2 27 Selfoss 10 5 1 4 13:10 16 Fylkir 10 4 4 2 14:14 16 ÍBV 11 5 1 5 13:19 16 Stjarnan 11 3 2 6 18:25 11 Þór/KA 11 3 2 6 14:24 11 Þróttur R. 11 2 4 5 17:26 10 KR 8 2 1 5 9:18 7 FH 11 2 0 9 6:27 6 2. deild kvenna HK – Fjarðab./Höttur/Leiknir ............... 1:2 Hamrarnir – Hamar................................. 1:2 Staðan: HK 10 8 0 2 35:4 24 Grindavík 9 6 1 2 21:8 19 Fjarð/Hött/Leikn. 9 5 1 3 19:18 16 Hamrarnir 10 4 2 4 15:15 14 Álftanes 7 4 0 3 12:20 12 ÍR 10 2 4 4 21:23 10 Hamar 8 3 1 4 13:21 10 Sindri 9 2 0 7 12:22 6 Fram 10 1 3 6 18:35 6 Meistaradeild kvenna Wolfsburg - Lyon..................................... 1:3  Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik- inn með Wolfsburg og skoraði þriðja mark liðsins. England Samfélagsskjöldurinn: Arsenal – Liverpool 1:1  Arsenal sigraði 5:4 eftir vítakeppni. MEISTARADEILDIN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir átti frábæran leik fyrir Lyon þegar liðið varð Evr- ópumeistari fimmta árið í röð eftir sigur gegn Wolfsburg í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattspyrnu á Anoeta-vellinum í San Sebastián á Spáni í gær. Leiknum lauk með 3:1-sigri Lyon en Sara, sem skoraði þriðja mark Lyon og innsiglaði þar með sigur franska liðsins á 88. mínútu, var í byrjunarliði þess og lék allan leik- inn á miðsvæðinu. Eugénie Le Sommer kom Lyon yfir á 25. mínútu af stuttu færi úr teignum og Saki Kumagai tvöfald- aði forystu Lyon undir lok fyrri hálfleiks áður en Alexandra Popp minnkaði muninn fyrir Woflsburg á 58. mínútu. Leikurinn var sérstakur fyrir Söru fyrir margar sakir en hún gekk til liðs við franska félagið í júlí á þessu ári á frjálsri sölu eftir fjögur ár í herbúðum Wolfsburg. Skrítin tilfinning „Ég sá dómarann setja flautuna upp í sig og ég fór bara að gráta ef ég á að vera hreinskilin,“ sagði Sara í samtali við Morgunblaðið í gær en Sara var þá á leið frá Anoeta-vellinum í liðsrútu Lyon ásamt liðsfélögum sínum. „Það er erfitt að lýsa tilfinn- ingum sínum á þessum tímapunkti en það var algjör draumur að klára þetta fyrir mig persónulega. Það eru ekki nema tveir mánuðir síðan ég var að fagna Þýskalandsmeist- aratitilinum með Wolfsburg. Tilfinningin í leikslok var ótrú- lega skrítin. Þetta var hrikalega sætt en núna er ég bara frekar bú- in á því, andlega og líkamlega. Að verða Evrópumeistari og vinna Meistaradeildina hefur verið draumur hjá mér síðan ég fór út í atvinnumennsku í fyrsta sinn, þannig að þetta er ákveðið spennu- fall líka.“ Þriðja mark Söru tryggði Lyon svo gott sem sigurinn og Sara við- urkennir að hún hafi ekki alveg vit- að hvernig hún átti að haga sér eft- ir markið. „Það voru hrikalega miklar til- finningar í gangi hjá mér þegar ég skoraði. Ég vildi að sjálfsögðu sýna Wolfsburg virðingu og fagna ekki of mikið. Ég missti það aðeins líka því í minningunni var ég byrjuð að fagna og hlaupa til stelpnanna en svo áttaði ég mig á því hvað hafði gerst. Ég náði að róa mig en ég vissi líka að þetta væri nánast kom- ið í hús í stöðunni 3:1.“ Fljót að aðlagast Þetta var annar úrslitaleikur Söru á þremur árum en hún var í byrjunarliði Wolfsburg sem tapaði 4:1-eftir framlengdan leik fyrir Lyon í úrslitum Meistaradeild- arinnar í Kiev í Úkraínu 2018. „Í aðdraganda leiksins var ég með smá „flashback“ frá leiknum 2018. Lyon var betra liðið í þeim leik og ég þurfti að fara af velli eft- ir að ég meiddist í upphafi síðari hálfleiks. Ég var bæði líkamlega og and- lega búin á því á þeim tíma. Ég get alveg viðurkennt það að ég var bú- in að sjá þetta fyrir mér aftur og aftur og aftur hvernig þetta myndi spilast og það hefði verið algjörlega skelfilegt að tapa leiknum en sem betur fer tókst okkur ætlunar- verkið.“ Sara átti frábæran leik og var á meðal bestu leikmanna vallarsins en henni líður vel í búningi Lyon og hefur verið fljót að aðlagast líf- inu í Frakklandi. „Ég fór til Lyon til að bæta mig sem leikmaður og vinna þá titla sem í boði eru. Ég var ekki að skrifa undir hjá félaginu bara til þess að vera með og ég ætla mér að vinna fyrir mínu sæti. Ég er ótrúlega sátt með spila- mennsku mína í úrslitaleiknum og ég hef verið fljót að aðlagast. Það er auðvelt að komast inn í hlutina hjá svona frábæru liðið með svona góða leikmenn í kringum sig. Þá hefur mér verið tekið mjög vel hjá félaginu og það hjálpar allt- af,“ bætti Sara við í samtali við Morgunblaðið. Sara er fyrsti íslenski leikmað- urinn til þess að skora í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og önnur á eftir Eiði Smára Guðjohnsen til þess að fagna sigri í Meistaradeild- inni. Lyon hefur haft mikla yfirburði í keppninni undanfarin ár en liðið hefur unnið Meistaradeildina oftast allra liða eða sjö sinnum. Liðið vann 2011 og 2012 en þurfti svo að bíða í fjögur ár eftir þriðja bik- arnum. 2016 varð liðið svo aftur meistari og hefur Lyon unnið keppnina á hverju ári síðan. Táraðist við lokaflautið  Sara Björk Gunnarsdóttir varð Evrópumeistari með Lyon á Spáni í gær  Fyrsti Íslendingurinn til þess að skora í úrslitum Meistaradeildarinnar Ljósmynd/@UWCL Evrópumeistari Sara Björk Gunnarsdóttir hefur bikarinn á loft. FÓTBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Stjarnan er komin á beinu brautina í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, eftir sigur gegn ÍBV í 12. umferð deildarinnar á Samsung-vellinum í Garðabæ á laugardaginn. Shameeka Fishley skoraði sigur- mark leiksins á 86. mínútu með lag- legu einstaklingsframtaki en mark- menn beggja liða fóru mikinn fyrir sín lið í leiknum. Garðbæingar voru án sigurs í síð- ustu sjö deildarleikjum sínum, fyrir leik helgarinnar, og hafði liðið ein- ungis fengið 2 stig af 21 stigi mögu- legu úr síðustu leikjum sínum. Sigurinn var því lífsnauðsynlegur fyrir Stjörnuna en liðið getur þakk- að markverði sínum Erin McLeod fyrir að halda sér inni í leiknum á löngum köflum. Annar sigur Þróttara Stephanie Ribeiro reyndist hetja Þróttar úr Reykjavík þegar liðið fékk Fylki í heimsókn á Eimskips- völlinn í Laugardal, hún skoraði sig- urmark Þróttara á 42. mínútu í 2:1- sigri. Þróttarar byrjuðu leikinn illa og lentu undir eftir fjórtán mínútna leik en tókst að snúa leiknum sér í hag undir lok fyrri hálfleiks. Þetta var aðeins annar sigur ný- liðanna í deildinni í sumar en Þrótt- ur vann afar mikilvægan 2:1-sigur gegn FH í fimmtu umferð deild- arinnar. Þá tókst Selfossi að skjótast upp í þriðja sæti deildarinnar þegar FH kom í heimsókn en það var Tiffany McCarthy sem skor- aði sigurmark leiksins á 36. mín- útu á Jáverk-vellinum á Selfossi. Selfyssingar ætluðu sér stóra hluti í sumar og voru yfirlýs- ingaglaðir fyrir mót. Liðið byrjaði tímabilið illa en hef- ur rétt úr kútnum í síðustu tveimur leikjum sínum og unnið bæði Breiðablik og FH. Þá hefur liðinu tekist að tengja saman tvo sigurleiki í deildinni í fyrsta skiptið síðan í júní en liðið er með 16 stig í þriðja sæti deild- arinnar, líkt og Fylkir og ÍBV. Skjótt skipast veður í lofti  Stjarnan fjarlægðist botnsvæðið með sigri gegn ÍBV  Nýliðar Þróttar úr fall- sæti eftir sigur gegn Fylki  Selfyssingar í þriðja sætið eftir tvo sigurleiki í röð Sigur Selfoss vann sinn annan deildarleik í röð gegn FH um helgina. STJARNAN – ÍBV 1:0 1:0 Shameeka Fishley 86. MM Erin McLeoad (Stjörnunni) M Shameeka Fishley (Stjörnunni) Ingibjörg L. Ragnarsd. (Stjörnunni) Betsy Hassett (Stjörnunni) Jasmín Erla Ingadóttir (Stjörnunni) Auður Sveinbjörnsd. Scheving (ÍBV) Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV) Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz (ÍBV) Karlina Miksone (ÍBV) Eliza Spruntule (ÍBV) Dómari: Eiður Ottó Bjarnason – 6. Áhorfendur: 81. ÞRÓTTUR R. – FYLKIR 2:1 0:1 Guðrún Karítas Sigurðardóttir 14. 1:1 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 38. 2:1 Stephanie Ribeiro 43. MM Stephanie Ribeiro (Þrótti) M Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti) Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti) Ísabella A. Húbertsdóttir (Þrótti) Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylki) Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Fylki) Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki) Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 8. Áhorfendur: 90. SELFOSS – FH 1:0 1:0 Tiffany McCarthy 36. MM Anna Björk Kristjánsdóttir (Selfossi) M Karitas Tómasdóttir (Selfossi) Áslaug Dóra Sigurbjörnsd. (Selfossi) Dagný Brynjarsdóttir (Selfossi) Tiffany McCarty (Selfossi) Telma Ívarsdóttir (FH) Andrea Mist Pálsdóttir (FH) Madison Gonzalez (FH) Ingibjörg Rún Óladóttir (FH) Dómari: Bríet Bragadóttir – 5. Áhorfendur: 52.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.