Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.03.1988, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 30.03.1988, Blaðsíða 2
2 BÆJARINS BESTA ísafjörður: Alltaf verið mín stefna að bjóða vörur á sem iægstu verði - segir Benedikt Kristjánsson kaupmaður, sem í dag býður viðskiptavinum sínum vörur með allt að 60% afslætti Það hefur vakið athygli bæjarbúa að verslunin Vöru- val hefur undanfarnar tvær vikur verið með svokölluð vikutilboð sem gilda frá fimmtudegi til fimmtudags. í þessum tilboðum hafa al- mennar neysluvörur verið boðnar með miklum afslætti, allt að 60% afslætti. Blaðinu lék forvitni á að vita hvernig Benedikt færi að þessu, nú á þeim tíma þegar að ríkisstjórnin hefur lagt söl- uskatt á matvæli auk annarra skatta sem gerir fólki erfiðara að draga fram lífið. Bcnedikt sagði það alltaf hafa verið stefnu sína að bjóða viðskiptavinum sínum vörur á sem lægstu verði. Hann hefði orðið var við mikla neyslubreytingu hjá fólki þegar söluskattur var lagður á matvæli. Hann hefði því farið af stað og reynt að gera sitt til lækkunar á vöru- bjóða 60% afslátt, fær versl- unin nokkuð í sinn hlut? Verslunin fær sáralítið, en skýringin á þessum mikla af- slætti á niðursoðnum ávöxt- um er í fyrsta lagi sú að tollar hafa lækkað mikið á þessari vörutegund og einnig það að við kaupum gífurlega mikið magn í einu. Þannig getum við boðið upp á þennan af- slátt. Það sama gildir um kjötvörurnar. Við kaupum fleiri tonn af kjötvörum og einnig hjálpar það til að Slát- urfélag Suðurlands er fram- leiðsluaðili. Hversu lengi verður boðið uppá þessi vikutilboð? Ef mínir viðskiptavinir taka þessu vel og ég;sé fram á að þetta dæmi geti gengið upp þá verður áframhald á þessu. Ég ætla að gera tilraun núna í ákveðinn tíma og eftir að han-n er liðinn met ég stöð- HÓTEL ÍSAFJÖRÐUR Helgarmatseðill UM PÁKSAHELGINA SÚPA: Kjötseyði Flamande FORRÉTTUR: Grafinn lax m/spínati og hrærðum eggjum it FISKRÉTTUR: Djúpsteiktur skötuselur m/Camenbertosti KJÖTRÉTTIR: Lambahryggur Paillard m/tómötum duxelles Jr Hr Jr Nautalundir Bougetiere með pom chateau ú Hr ú Svína byggingameistarakótiletta með eggi og skinku i!r A ú EFTIRRÉTTUR: Appelsínurjómarönd Salat fylgir öllum réttum Benedikt Kristjánsson kaupmaður. verði m.a. með hagkvæmari innkaupum. í dag væri hann kominn í samstarf með Slát- urfélagi Suðurlands og Tanganum í Vestmannaeyj- um um innkaup bæði hér inn- anlands og erlendis frá. Þessi innkaup hafa gert okkur kleift að bjóða vörur á sama verði hér og í Reykjavík og Vestmannaeyjum. En hvernig er hœgt að una um áframhaldið. Hvernig hafa viðtökurnar verið? Fyrsta vikan fór mjög hægt af stað. Ég held að fólk hafi verið að átta sig á þessu. En í dag höfum við staðið á haus, ekki komist í mat né kaffi enda erum við að bjóða uppá mjög góðar vörur sem fólk notar dags daglega sagði Ben- edikt fyrir helgina. Páskastuð! Dansleikur í Súðavík, föstudagskvöld kl. 0.15 til 4.00. Hljómsveitin Sígild leikur fyrir dansi. Aldurstakmark 16 ár. Félagsheimilið.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.