Bæjarins besta - 30.03.1988, Blaðsíða 9
BÆJARINS BESTA
9
HÁKUR ...
Drekkið
meira vatn
Framhald af bls. 4
reyndir með því að þegja þær
í hel. Hóf hann svo lestur úr
heilbrigðislögum, líkast til, og
fjallaði þar um almenna upp-
lýsingaskyldu yfirvalda um
vatn og mengun þess.
Að endingu klykkti sá góði
maður út með lestri úr hegn-
ingarlögum. Taldist það víst
varða allt að sex ára fangelsi
að dreifa óbrúklegum neyslu-
varningi eins og blessuðu vatn-
inu.
Þá virtist hinn fyrsti ætla að
skrúfa fyrir vatnið. Kannski
hefur blessaður maðurinn þar
hitt naglann á höfuðið.
Hlustendur hafa sjálfsagt
haldið að þáttur þessi væri
skemmtiþáttur með hinum
alkunnu Bakkabræðrum.
Vonandi hafa þeir vitað betur.
Er fískur
fínni en fólk?
En það alskemmtilegasta
við vatnskomedíuna er þó
sennilega að til þess að þvo
megi fisk úr vatninu þarf að
blanda klóri í vatnið og drepa
„saur kóla“. En blessuðu fólk-
inu er ekki of gott að drekka
vatnið sem dauðum fiskum er
ekki treyst í. Og ekki vill yfir-
dýralæknir þvo dauðum lamb-
askrokkum úr því (ekki einu
sinni klórblönduðu) þótt fisk-
urinn megi hafa það.
„Af misjöfnu þrífast börnin
best“ segir gamalt máltæki.
Það getur alveg eins átt við um
fullorðin börn.
Sumir hafa reyndar viljað
þakka óvenjumikla frjósemi á
Isafirði og barnsfæðingar í
framhaldi af henni „hagstæðu"
drykkjarvatni.
Heldur er það ólíklegt og
jafnframt dapurlegt að fram-
leiða með þeim hætti fólk til
brottflutnings.
En svo er það nú með þessa
sögu alla að hún er bráð-
skemmtileg en hefur þó einn
stóran galla.
- Óbrúklegt vatn --
Svæðisstjórn um málefni fatiaðra á Vestfjörðum
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Vestfjörðum vill ráða fram-
kvæmdastjóra. Starfið getur verið laust nú þegar eða eftir nánara
samkomulagi.
Æskilegt er talið að umsækjendur séu félagsfræðingar, félags-
ráðgjafar eða hafi uppeldisfræðilega menntun, en reynsla af störf-
um fyrir fatlaða kemur einnig til greina, þegar ráða skal í starfið.
Aðsetur svæðisstjórnar er á ísafirði.
Upplýsingar um starfið gefur formaður svæðisstjórnar, Magnús
Reynir Guðmundsson í símum 94-3722 og 94-3783 (utan vinnu-
tíma).
Umsóknarfrestur er til 31. mars 1988.
Umsóknir skulu sendar til formanns svæðisstjórnar, pósthólf 86
ísafirði.
ísafirði 7. mars 1988.
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra
á Vestfjörðum.
Bílútvörp
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
POLLINN HF.
Verslun sími 3792
Bæjarins besta - blaðið þitt
Páskahlaðborð
STÓRT PÁSKAHLAÐBORÐ
í HÁDEGINU ANNAN í PÁSKUM
Verð kr. 1.095 fyrir fullorðna.
Hálft gjald fyrir 8-12 ára.
Frítt fyrir yngri en 8 ára.
MUNIÐ OKKAR STÓRGÓÐA
KAFFIHLAÐBORÐ UM HELGAR.
HM
HÓTEL ÍSAFJÖRÐUR