Bæjarins besta - 30.03.1988, Blaðsíða 6
6
BÆJARINS BESTA
BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vest-
fjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga
2,400 ísafjörður, ® 4560. Ritstjórar og ábyrgð-
armenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór
Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Jakob Falur
Garðarsson. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Rit-
stjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að
Suðurtanga 2, S 4570 og er svarað allan sólar-
hringinn.
Setning, umbrot og prentun: H-prent sf, Suður-
tanga 2, 400 ísafjörður.
Bókaútgáfan DYNGJA
tilkynnir útkomu nýrrar bókar,
DULRÆNAR GÁFUR
eftir breska stórmidilinn Horace Leaf.
Tilfinnanleg vöntun hefur lengi verið á bók, er gefi al-
menningi í landinu nokkra hugmynd um grundvallar-
nauðsyn hvermg á að meðhöndla miðilsgáfuna og
skyggni gáfuna, æfa og þroska.
„Dulrænar gáfur" er í þýðingu málfræðingsins og spírit-
istans Jakobs Jóh. Smára, skálds, væntanleg á markað
með vorinu. Ómetanlegt leiðarljós fyrir alla, er unna dul-
rænum málefnum.
Bókin verður í fallegu brúnu bandi, stærð A5, tæplega
200 blaðsíður. Verð til áskrifenda er kr. 1.395,00.
Útgáfan er tileinkuð Kristínu Friðriksdóttur, Kirkjuvegi
8, Selfossi.
Bókaútgáf'an Dyngja, Pósthólf'5143, 125 Reykjavík.
Sími 91-83822. Opió kl. 10-12 og nni helj»ar.
Gjöriö svo vel og klippið ut umsókmna og pöstleggiö
X K
□ Óska eftir að gerast áskrifandi að bókinni
Dulrænar gáfur.
Sérstakt bókatilboð í febrúar og mars.
□ Iðunn frá 1860 ........................ kr. 995
□ Draumar og æðri handleiðsla ............ kr. 900
□ Afi og amma. Pabbi og mamma. Lengi man
til lítilla stunda, í einu bindi eftir Eyjólf Guð-
mundsson á Suður-Hvoli í Mýrdal. Formáli
eftir dr. Einar Ól. Sveinsson og í öókinni er
ritgerð Halldórs Laxness um Eyjólf á
Suður-Hvoli ......................... kr. 1895
□ Vökunætur, eftir Eyjólf Guðmundsson
á Suður-Hvoli í Mýrdal. Góð og göfug
barnabók á fáguðu máli ................. kr. 995
Nafn
Heimili Póststöð
Vinnuhópur gegn sifj aspelli:
Skrifstofa opnuð
í Reykjavík
Vinnuhópur um sifja-
spellamál hefur opnað skrif-
stofu að Vesturgötu 3 í Reykj-
avík. Á skrifstofunni sem er
opin alla virka daga frá kl. 13-
17 svarar Sara Karlsdóttir í
síma 91-21260.
Þær konur sem vilja komast
í sjálfshjálparhóp eru vin-
samlegast beðnar um að
hringja eða skrifa vinnuhópn-
um, því það er fyrsta skrefið
til sj álfshj álpar og hefur
reynst vel.
í vinnuhópnum eru konur
sem áhuga hafa á að vinna
gegn sifjaspelli og styðja þær
konur sem eiga um sárt að
binda af þeim sökum. Hvern
hóp leiða félagsráðgjafar og
kona með reynslu. Fyllsta
trúnaðar er gætt í öllum sam-
skiptum. Ef áhugi er fyrir
hendi að hópstarfi loknu er
næsta skref að koma í bakhóp
sem er vinnuhópurinn sj álfur. >
Hafið samband við okkur
og þið eruð ekki einar leng-
ur.
Fréttatilkynning.
ísafjörður:
Snældan
- ný myndbandaleiga
í dag miðvikudag opnar ný
myndbandaleiga dyrnar fyrir
vídeóunnendum. Mynd-
bandaleigan, sem hlotið hefur
nafnið Snældan, er fjórða
leigan sem ísfirðingum gefst
kostur á að velja sitt myndefni
úr. Eigandi hennar er Halldór
Þórólfsson og verður hún
staðsett að Seljalandsvegi 20,
þarsem Raf h.f. vartil húsa.
Halldór kvaðst í samtali við
BB ætla að byrja með 500
titla og auka síðan smátt og
smátt. Leigan sem slík ætti
aðeins að vera aukabúskapur
því að í maí n.k. myndi hann
opna tölvuvöruverslun á
sama stað þar sem hann byði
upp á alhliða tölvuvörur s.s.
tölvur, prentara, diskettur
o.fl. m.a. frá Kristjáni Ó.
Skagfjörð og Heimilistækjum
hf. Við opnum þeirrar versl-
unar er m.a. ráðgert að halda
stóra tölvusýningu frá Krist-
jáni Ó. Skagfjörð.