Bæjarins besta - 12.04.1989, Blaðsíða 4
4
BÆJARIJMS BESTA
Skíðaíþróttir:
Síðustu mót
vetrarins
Akureyringar efstir í svigi og stórsvigi
Um helgina fóru fram síðasta
bikarmót vetrarins á Selja-
landsdal í svigi og stórsvigi og
bikar-og punktamót í göngu,
auk Ski-cross keppni sem sagt er
frá annnars staðar í blaðinu. I
svigi og stórsvigi á laugardag
varð sigurvegari Guðrún H.
Kristjánsdóttir (A) og í öðru
sæti, einnig í báðum greinuin,
varð Anna María Malmquist
(A).
f þriðja sæti í svigi varð Mar-
grét Rúnarsdóttir (1) og í fjórða
sæti Þórunn Pálsdóttir (í). í
þriðja sæti í stórsvigi varð María
Magnúsdóttir (A) og í fjórða
Harpa Hauksdóttir (A).
Á sunnudag var aftur keppt í
stórsvigi og þá sigraði Ánna
María Malmquist en Guðrún
varð í öðru sæti. í þriðja varð
Margrét Rúnarsdóttir og í fjórða
varð Þórdís Hjörleifsdóttir frá
Reykjavík.
\ göngunni urðu úrslit þau að í
fyrsta sæti í flokki 13-15 ára
stúlkna í 2,5 km. göngu með
frjálsri aðferð varð Hulda Magn-
úsdóttir (S), í flokki 13-14 ára
drengja í 5 km. göngu varð fyrst-
ur Kristján Hauksson (Ó), í
flokki 17-19 ára pilta í 10 km.
göngu með varð Sölvi Sölvason
(S) og í flokki 14-16 ára drengja í
7,5 km göngu með varð Daníel
Jakobsson (í). í flokki karla 20
ára og eldri í 15 km göngu vann
Einar Ólafsson (í).
Bikarmeistarar vetrarins í
göngu eru einmitt þetta sama
fólk sem hér er talið upp og BB
óskar þeim til hamingju með ár-
angurinn.
Félagsstarf aldraðra:
Kaffisala «g
söluborð í Hh'f
Sunnudaginn 16. apríl verður
kaffisala í Hlíf á 2. hæð og
einnig verður söluborð með alls
konar handunnum munum í
vinnusal Félagstarfs aldraðra í
kjallaranum. Starfsfólk Félags-
starfsins og aldraðir sjálfir
standa að þessu framtaki til
styrktar ferðasjóði. Einnig
munu ýmsir úr félögum aðstoða.
Á söluborðinu verða meðal
annars fallegar gólfmottur, alls
konar púðar, loðdýr, ámálaðir
dúkar og barnabolir, sokkar,
vettlingar, skrautnælur og fleira.
ísfirðingar og nágrannar eru
hvattir til þess að leggja öldruð-
um lið með því að koma til að fá
sér kaffi og vöfflur og kaupa fal-
lega muni, jafnframt því að
kynnast því sem fram fer í Fé-
lagsstarfi aldraðra.
Hittumst sem flest í Hlíf á
sunnudaginn 16. apríl kl. 15.00,
verið öll velkomin.
Málfríður Halldórsdóttir
forstöðumaður
Félagsstarfs aldraðra
RITSTJ ÓRN
Fyrir hinn almenna borgara, sem ekki getur látið
gjaldþrota fyrirtæki sitt fara á hausinn og keypt það
síðan skuldlaust af sjálfum sér; fyrir gamalmennið og
sjúklinginn, sem eiga allt sitt undir náð hins opinbera;
fyrir eyrarvinnukarlinn og skúringarkonuna, sem fyr-
ir gustuk ein heldur atvinnunni, þar eð störf hennar
eru svo óarðbær, hefur umræðan í þjóðfélaginu und-
anfarið verið athygli verð.
Pótt ekki væri mark á takandi nema litlu einu af
öllu því er sagt hefur verið þá væsir svo sannarlega
ekki um litla manninn. Hann virðist eiga fleiri hauka í
horni en í franska borgaraflokknum. Ekki hafði illa
innrættum stjórnmálamönnum fyrr komið til hugar,
að einhvers staðar mætti spara í heilbrigðiskerfinu, en
velhugsandi læknar ruku upp til handa og fóta. Upp
hófst margradda kórsöngur um aðförina að gamla
fólkinu og sjúklingunum. Hver um annan þveran
ruddust læknarnir fram á ritvöllinn berjandi sér á
brjóst. Misvitrum leiðtoga hafði heldur betur orðið á í
messunni. Hann hafði vanvirt helgan rétt læknanna,
rétt sem í raun er þeim kvöð, en þeir leggja á sig til
verndar hinum sjúku. Smáræði þessu mun félagi leið-
togans og forveri á valdastól hafa gaukað að læknum
sínum tíma til að gera launatöluna á framtalsseðlinum
trúverðugri.
Þegar miður hugsandi maður í fjármálaráðuneytinu
lét sér til hugar koma að skattleggja árlegar milljóna
vaxtatekjur urðu sjálfboðaliðar, er gáfu sig fram til að
vernda ellilífeyri og ekknabætur viðkomandi einstak-
linga, ekki á fingrum taldir. Þarna skorti litla mann-
inn aldeilis ekki haukana, sem af einskærri mann-
gæsku gengu fram fyrir skjöldu til verndar
smælingjanum, skeytandi lítt um hvað brynni á eigin
skinni, að sjálfra sögn.
Árum saman hafa verkalýðsforingjar bitið í skjald-
arrendur við upphaf samninga og krafist meiri réttar
verst settu skjólstæðingum sínum til handa. Og ævin-
lega hafa öðlingarnir hinum megin borðsins verið
þeim sammála. A þessum vettvangi hefur litla mann-
inn ekki skort meðræðara. Illar tungur kunna aftur á
móti að freistast til að segja ræðarana alla hafa róið á
sama borð. Þannig hafi litli maðurinn aldrei náð
landi. En það er önnur saga.
Ef marka má umræðu dagsins þarf litli maðurinn
ekki að kvíða framtíðinni. Verndarar hans eru á
hverju strái, ávallt viðbúnir! Við leggjum því ekki
eyrun að þeirri ósvinnu, að þegar betur sé að gáð séu
þeir ansi margir, sem hafi hag af því að hafa litla
manninn að blóraböggli. Og láti sér vel lynda.
s.h.
BÆJARINS BESTA, óháð vikublaö á Vestfjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga 2, 400 ísafjörður, S 4560.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Vilborg Davíðsdóttir.
Útgáfudagur: Miðvikudagur. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Suðurtanga 2, S 4570. Setning, umbrot
og prentun: H-prent sf, Suðurtanga 2,400 ísafjöröur.