Bæjarins besta - 12.04.1989, Blaðsíða 16
16
BÆJARINS BESTA
Tónlistarfélag ísafjarðar:
Tónleikar í
sal Frímúrara
Einar Jóhannesson og
David Knowles með tónleika
Kvenfélagið Hvöt:
Gaf 150.000
krónur
- í minningarsjóð Úlfs Gunnarssonar
RIÐJU áskriftartónleikar
þessa starfsárs hjá Tónlistar-
félagi ísafjarðar verða haldnir
næstkomandi laugardag 15. apr-
íl, kl. 17.00, í sal Frímúrara í
Hafnarhúsinu. Að þessu sinni
sækja okkur heim þeir Einar Jó-
hannesson klarinettleikari og
David Knowles píanóleikari.
Einar Jóhannesson þarf vart að
kynna fyrir tónlistarunnendum,
hann er einn af okkar bestu tón-
listarmönnum.
Er það mikill fengur tónlistar-
lífi í bænum að fá svo góðan tón-
listarmann í heimsókn. Einar
starfaði í Bretlandi um árabil og
hefur komið fram sem einleikari
í mörgum löndum Evrópu og
Asíu. Hann er nú fyrsti klari-
nettleikari í Sinfóníuhljómsveit
íslands.
David Knowles lauk námi í
píanóleik frá The Royal
Northern College of Music,
fluttist til Egilsstaða árið 1982 og
kenndi þar við Tónskóla Fljóts-
dalshéraðs. Nú starfar hann sem
undirleikari við Tónlistarskóla
Garðabæjar og Söngskólann í
Reykjavík.
David stundaði nám hjá
Dalton Baldwi'n og var einn af
ellefu nemendum víða að úr
heiminum sem valdir voru til að
taka þátt í námskeiði hjá honum
í Frakklandi í fyrra
Þeir félagar verða einnig með
tónleika í Bolungarvík, fimmtu-
daginn 13. apríl kl. 20.30 og á
Flateyri föstudaginn 14. apríl kl.
20.30.
Efnisskrá þessarra tónleika er
bæði fjölbreytt og skemmtileg og
er óhætt að fullyrða að enginn
verður svikinn af því að koma og
hlýða á þá félaga.
Fréttatilkynning
KVENFÉLAGIÐ Hvöt í
Hnífsdal afhenti 150.000
króna gjöf til Minningarsjóðs
Úlfs Gunnarssonar fyrrverandi
yfirlæknis Fjórðungssjúkrahúss-
ins á ísafirði þann 6. apríl síðast
liðinn.
Guðmundur Marinósson
framkvæmdastjóri sjúkrahússins
tók við gjöfinni sem afhent var
af stjórn félagsins og þakkaði
fyrir hana. Hann sagði gjöfina
koma sér vel til að halda áfram
tækjavæðingu hússins og fór
einnig nokkrum orðum um Úlf
heitinn og sagði hann enn vera
með starfsfólkinu á sinn hátt.
N,
KVEÐJUM HARÐAN VETUR MEÐ GLÆSIBRAG
i föstudagskvöldið
r-v*.
Sjávarréttaveisla á Hótel
14. apríl ogsíðasta vetrarda
Fjölbreytt úrval sjávarrétta og annarra rétta á hlað-
borði fyrir sœlkera. A laugardagskvöld er fjölbreyttur
matseðill að að vanda.
Því ekki að gera sér dagamun í vetrarlok.
Verið velkomin.
Munið að pantaborð tímanlega.
%
Sími 4111