Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.04.1989, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 12.04.1989, Qupperneq 7
BÆJARINS BESTA 7 Yerkfall Engin kennsla í menntaskélanum Áhrifa verkfalls B.H.M.R. gætir víða OLL kennsla í Menntaskól- anum á ísafirði hefur legið niðri síðan verkfall háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna hófst I síðustu viku. Allir fast- ráðnir kennarar skólans, tólf að tölu, eru í Hinu íslenska kenn- arafélagi og því í verkfalli. Kennsla í iðnskólanum fellur einnig niður að miklu leyti en þó ekki öllu. Að sögn Björns Teitssonar skólameistara settu kennarar nemendum fyrir einhver verk- efni til að vinna að á meðan á verkfalli stendur, en standi verk- fallið lengi verður reynt að bæta við kennsludögum. Síðasti kennsludagur samkvæmt skóla- almanaki er 28. apríl og hefjast próf þá 2. maí. Gerð próftöflu var þó frestað þar til verkfalli lýkur. Síðast var kennaraverkfall fyr- ir tveimur árum og stóð þá í um tvær vikur í mars. Þegar því lauk var bætt við kennslu með því að kenna í páskaleyfi en sá mögu- leiki er ekki fyrir hendi nú. í Grunnskólanum á ísafirði er einn kennari í HÍK og því í verk- falli. Vegna þess fellur niður kennsla í stærðfræði og eðlis- fræði í 8. og 9. bekk en samræmd próf hefjast hjá 9. bekk þann 24. apríl. Vorpróf eru þó ekki fyrr en um miðjan maí. Auk kennara eru einnig í verkfalli sýslufulltrúarnir tveir á ísafirði og sagði Pétur Kr. Haf- stein sýslumaður að rnjög myndi hægjast á allri þjónustu sýslu- skrifstofunnar á meðan á verk- falli stæði. Þá eru einnig í verkfalli starfs- maður Hafrannsóknarstofnunar á ísafirði og annar af tveimur starfsmönnum Rannsóknar- stofnunar fiskiðnaðarins, en þeir eru í Félagi íslenskra náttúru- fræðinga, sem er eitt aðildarfé- laga Bandalags háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna. Síðan er sálfræðingur á Fræðsluskrifstofu Vestfjarða í verkfalli. í Bolungarvík fellur niður kennsla skólastjórans, sem er fé- lagi í B.H.M.R., og er það kennsla í ensku í 8. og 9. bekk. A sjúkrahúsinu í Bolungarvík liggur niðri sjúkraþjálfun þar sem sjúkraþjálfarinn er í verk- falli, en hann er í 30% stöðu hjá sjúkrahúsinu. ARNAR G. HINRIKSSON Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími 4144 FASTEIGNAVIÐSKIPTI ÍSAFJÖRÐUR Urðarvegur 66. 214 m2 raðhús á tveimur hæðum. Sundstræti 25. Þriggja herbergja íbúð á 1. hæð. Túngata 13. Tveggja herbergja kjallaraíb- úð. Seljalandsvegur 30:175 m2 einbýlishús með innbyggðum bílskúr. 4 svefnherbergi. Húsið er í góðu standi. Mjög góð greiðslukjör geta boðist. Sólgata 7. Lítil 3ja herbergja íbúð. Móholt 8. 140 m2 einbýlishús ásamt bílskúr. Til greina koma skipti á ódýrari eign. Hafraholt 22. Raðhús, um 140 m2 ásamt bílskúr, 4 svefnherbergi. Laust eftir sam- komulagi. Hrannargata 10.3ja herb. íbúð á 1. hæð. Silfurtorg 1. Fjögurra herb íbúð á 3. hæð ásamt óinnréttuðu risi. Strandgata 19a. Lítið einbýlishús fjögurra herbergja og eldhús. Laust eftir samkomu- lagi. Silfurgata 11. Fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð. íbúðin er laus og selst með hagstæð- um kjörum. Bakkavegur 27. 2x129 m2 einbýlishús. Laust eftir samkomulagi. Sundstræti 29. Tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í fjórbýiishúsi. Stórholt 13. Fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð ásamt bílskúr. Sundstræti 27. Þriggja herbergja íbúð á 1. hæð. Laus. Sundstræti 35b. Lítið einbýlishús. Selst ódýrt. Laust fljótlega. Engjavegur 33. Tveggja herbergja íbúð á neðri hæð. Laus fljótlega. Stórholt 11. Fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt bílskúr. Getur losnað fljótl. Seljalandsvegur 30. 175 m2 einbýlishús með innbyggðum bílskúr. 4 svefnherbergi. Húsið er í góðu standi. Mjög hagstæð greiðslukjör geta boðist. Stórholt 13. Þriggja herbergja íbúð á 1. hæð. Laus eftir samkomulagi. Sólgata 5. Þriggja herbergja íbúð. Laus fljótlega. BOLUNGARVÍK Ljósaiand 9: Rúmlega 140 m2 einbýlishús ásamt bílskúr. Laust eftir samkomulagi. Vitastígur 19. Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð. Laus 1. maí n.k. Skólastígur 8. Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, sér inngangur. íbúðin er laus. Stigahlíð 4. Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð. Hjallastræti 20. Rúmiega 100 m2 einbýlis- hús ásamt bílskúr. Hjallastræti 18.120 m2 einbýlishús ásamt bílskúr. Stigahlíð 4. Þriggja herbergja endaíbúð á 3. hæð. Hafnargata 110. Tæplega 100 m2 álklætt einbýlishús. Skólastígur 20. Fimm herbergja íbúð á tveimurhæðum í parhúsi.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.